Vísir - 15.08.1938, Blaðsíða 2

Vísir - 15.08.1938, Blaðsíða 2
VISIR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN YÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. ýGengið inn frá Ingólfsstræti-). Sínar : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Yerð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. „Umturnun“. Alþýðblaðinu sagðist svo fiá á laugardaginn, að sænski verk- fræðingurinn, seni fenginn var til þess að alhuga áætlanir bæj- arverkfræðinganna um hitaveit- una frá Reykjum, hafi „um- turnað“ þeirn áætlunum svo gersamlega, að hann áætli stofn- kostnað hitaveitunnar 2,6 milj. kr. hærri en bæjarverkfræðing- arnir, miðað við það vatnsmagn, sem nú er fyrir liendi. Bæjar- verkfræðingarnir hafa áætlað stofnkostnaðinn 3,5 milj., en sænski verkfræðingurinn 6,1 milj. Og til þess að færa rnönn- um heim sanninn um þetta, birtir hlaðið samanhurð á áætl- ununum, lið fyrir lið. En um það er ekkert að villast, að hlað- ið sleppir vísvitandi að geta þess, að sú áætlun bæjarverk- fræðinganna, sem það tekur íil samanhiu-ður, er um hitaveitu fyrir rúmlega HÁLFAN hæinn, en áætlun sænska verkfræðíngs- ins um hitaveitu fyrir ALLAN bæinn innan Hringbrautar! í áætlunum bæjarverkfræð- inganna var gert ráð fyrir þvi, að byrjað yrði á hitaveitunni með því að virkja það vatns- magn, sem nú er fyrir hendi á Reykjum (168 lítra á sek.), og fullnægja með því liitaþörfinni, eins og hún gæti mest orðið (í 15. st. frosti), í rúmlega hálf- um bænum, eins og hann er nú. Síðan átti að auka virkjunina, svo að hún nægði öllum hæn- um, þegar nægilegt vatnsmagn væri fengið til þess. í fyrstu virkjun áttí ekki að leggja nema eina vatnsæð til bæjarins frá Reykjum og götukerfi að eins í hálfan bæinn. Og það er þessi virkjun, sem bæjarverkfræðing- arnir áætluðu að mundi kosla 3,5 milj. krónur. Hinsvegar var sá möguleiki fyrir hendi og var vakið máls á honum á fundi í Verkfræð- ingafélaginu, er þar var rætt um skýrslu og tillögur bæjarverk- fræðinganna, að nota þetta sama vatnsmagn til upphitunar á öllum bænum, þó að með þvi yrði ekki fullnægt hitaþörfinni í meira frosti en 8 st. En það var þá upplýst, að á undanförnu 5 ára tímabili hefði meira frost en 8 st. aðeins komið fyrir í 20 sólarhringa alls, eða sem svarar 4 sólarhringa á ári. Jafnframt var þá einnig gert ráð fvrir því, að í meiri frostum yrði að nota kol til þess að fullnægja hita- þörfinni lil þess ítrasta. Og upp frá þessu var gert ráð fyrir þvi, að virkjuninni yrði hagað þann- ig, eða að hitaveitan yrði gerð fyrir allan bæinn i fyrstu virkj- un. En á þetta hefir sænski verkfræðingurinn fallist, og um þá virkjun er áætlun hans gerð, en ekki um virkjun fyrir hálfan bæinn. Hitaveitusérfræðingur AI- þýðublaðsins, Emil Jónsson, nú vitamálastjóri, áfellist bæjar- verkfræðingana mjög fyrir það, að þeir vildu ekki láta sér nægja eina vatnsæð til bæjarins frá Reykjum, og taldi að engin þörf væri á að hafa þær tvær, og að eins til kostnaðarauka, enda myndi það vera neyðarúrræði, sem að eins væri gripið til af því, að vatn væri ekki nægilegt á Reykjum nú, og því ráðgert að virkja í tvennu lagi. Og auð- vitað gerði sá „vísi maður“ ekki ráð fyrir því, að frá Krýsivík þyrfti að leggja nema eina æð. Þessu hefir nú sænski vei'kfræð- ingurinn „umturnað“ algei’lega fyiúr Emil, og telur „það tæp- ast verjandí, að treysla á að eins eina lögn“ frá Reykjum, og livað þá frá Krýsivílc! — En af þessu leiðir, að í áætlun hans er gert ráð fyrir tvöfaldri lögn frá Reykjum að Öskjuhlíð, og er á- ætlunarverð hans þá einnig að sjálfsögðu tvöfalt. Höfðu bæjar- vei’kfi-æðingai’nir áætlað verð á einfaldri lögn 905 þúsund krón- ur, en sænski verkfræðingurinn áætlar verð tvöfaldrar lagnar 1830 þús., og munar þannig 925 þús. á þeim lið áætlunarinnar. Bæjarkerfið í rúmlega hálfan hæinn áætluðu hæjarvei-kfi’æð- ingarnir 1218 þús. krónur. Sænski verkfræðingurinn áætl- ar bæjarkerfi i allan bæinn 1995 þús. kr. Þannig er mismunurinn á þessum tveim liðum áætlananna samtals um 1700 þús. kr. Þar við hætist varaliitamiðstöð um 456 þús. og liækkun á verk- fi’æðistörfum og ófyrii’séðum útgjöldum, er stafar af heildai’- hækkun kostnaðaráætlunai’inn- ar 283 þús. kr. En allur þessi mismunur stafar af því, að á- ætlun bæjarvei-kfræðinganna, sem Alþýðuhlaðið notar í þess- um saixxanhurði, er um hitaveitu fyrir rúmlega HÁLFAN (eða 60%) af hænum, en áætlun sænska verkfræðingsins um hitaveitu fyrir ALLAN bæinn. Bæjarverkfi’æðingarnir gerðu hinsvegar einnig áætlun um hiíaveilu fyrir allan bæinn, þar sem g'ert er ráð fyrir tvöfaldri vatnsæð frá Reykjum að Öskju- hlíð og fullkomnu bæjai’kerfi. Ef sú áætlun er horin saman við áætlun sænska verkfræðingsins, sem réttara væri, þá kemur það einnig í ljós, að áætlun hans er í rauninni staðfesting á áætlun- úm þeiri’a. Það fer þannig fjai’ri þvi, að sænski ve rkfræðin guri 11 n hafi „umturnað“ áætlunum hæjai’- verkfræðinganna, þó að Alþýðu- blaðið reyni að umturna sann- leikanum þannig, að svo megi vii’ðast! Áfengislagabrot fara mjfig f rfixt. Á árunmn 1926—1930 hefir tala ákærði-a fyrir lögi-eglubrot numið samtals 5.688, en á ár- unum 1931—35 hafa þau verið 8.714. Þar af hafa brotin verið 7.147 í Reykjavík en 1.567 utan Reykjavíkur. Nálega helmingur allra kærðra lögregluhx’ota þessi ár, hæði í Reykjavík og utan Reykjavíkur hefir verið brot gegn áfengislöggjöfinni, þar af 314 ölvun á ahnannafæri. Hefir þessum brotum mikið fjölgað síðustu 5 ái’in frá næstu 5 ár- unum á undan (um 45%). Næst áfengisbrotunum kemur röskun á almennri reglu og öi’yggi, sem er um kt allra ákærðra hrota 1931—35 og hafa nálega tífald- ast frá næstu 5 árum á undan. En þar næst koma hrot á bif- Óeirdis* og handtöknp í Efri-Schlesiu. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Heræfingar þær, sem nú standa fyrir dyrum í Þýska- landi, vekja milda athygli um alla álfuna, og er talsverður uggur í mönnum víða, einkum í Frákklandi. Yfirleitt finst mönnum það gagnrýningarefni víðast hvar, hversu heræfingarnar verða í stórum stíl, en þær hafa verið mjög vandlega undirbúnar að undanförnu. En sökum þess, hversu stórfeldar og víðtækar heræfing- arnar verða, mun uggur og ótti grípa um sig í álfunni og framtíðarhorfurnar verða ótryggari. Daily Telegraph kemst svo að orði, að enginn véfengi rétt Þjóðverja til þess að æfa her sinn, en vegna þeirrar æsingar, sem ríkjandi sé í álfunni, hefði verið heppi- legra, ef heræfingarnar hefði verið minna áberandi og ekki eins víðtækar og í ráði er, en við æfingarnar hefir herinn sama rétt og á styrjaldartímum, og getur tekið hvað sem er til sinna nota og látið borgara og bændur aðstoða sig eftir þörfum. Þjóðverjara halda áfram að auka víggirðingar sínar í Vestur-Þýskalandi af miklum krafti. Fregnir frá Varsjá, birtar í Lundúnablöðum, skýra frá því, að a. m. k. 500 þýskir verkamenn hafi verið handteknir í Efri-Schlesíu, þar sem Hitler er með leynd að koma upp öflugum víggirðingum. Handtökurnar fóru fram eftir að slegið hafði í bar- daga milli Gestapo-manna (pólitísku leynilögreglunn- ar) og verkamanna og námumanna, en námumenn voru sakaðir um að hafa dreift and-nazistiskum flug ritum út um Efri-Schlesíu. í flugritunum var farið hörðum orðum um nazista, fyrir vígbúnaðaráform þeirra, og verkamenn hvattir til þess að neita að vinna að þeim. Uniíed Press. WILHELM KEITEL yfirhershöfðingi þýska hersins, er tók við stöðu von Blom- bergs, er hann féll í ónáð hjá Hitler, er talinn andvígnr hin- um róttækari öflum innan naz- istaflokksins. Hefir hegrst, að Hitler vilji taka von Blomberg í sátt að nýju, gegn því, að hann slíti samvistum við konu þá, sem hann gekk að eiga, en hún er af borgaralegum ætt- um, og bendir það í þá ált, að. nazistar séu ekki alts kostar ánægðir með Iíeitel og yfir- stjórn hans á hermálunum. Mann tjón Rnssa og Japana. London í morgun. Samkvæmt hálfopinberri til- kynningu, sem birt var í morg- un, féllu 236 Rússar í bardög- unum um Chankufeng, en 611 særð.ust. Af Japönum féllu 600 menn, segir í hinni rúss- nesku tilkynningu, en 2500 særðust. (Samkvæmt japanskri tilkynningu, sem birt var fyrir nokkuru, var manntjón Rússa miklum mun meira en Japana). United Press. Werabley sond- mfitieo Eokið. Sundmeistaramót Evrópu í Wembley, London, lauk á laug- ardaginn. I þeim sundum, sem ísland tók þátt í, tóku þátt að eins 9 þjóðir af 28, sem lofað liöfðu þátttöku og var þvi lcepn- in afar-hörð. íslendingar lcom- ust ekki í úrslitakepni, en Ingi Sveinsson, sem tólc þátt i auka- kepni, varð þar þriðji, á undan Hollendingnum Gerkens. INGI SVEINSSON. Að eins einn Norðurlanda- maður komst í úrslitakepni i áð- urnefndum sundum, þ. e. Svíinn Björn Borg. íslendingarnir fengu ágætar viðtökur. Sundráð Reykjavíkur. (Samkv. símskeyti frá Erlingi Pálssyni.) Reykjavíkur-mótið liefst í kveld. Fram -- ¥alnp. Síldveidarnar Afgreiðsla hjá síldarverksraiðjora rík- isins gengnr ágætlega og aðeins 5 skip bíða eftir lðndun. Samkvæmt fregnum frá Djúpavík i morgun kom Garð- ar í gær með 2000 mál og Hannes ráðherra með 1700 mál, sem voru losuð i nótt. — I nótt komu Huginn III. með 332 tn. i salt og 400 mál, linuv. Freyja með 180 tn. og 400 mál, Huginn II. með 500 mál og Málmey með 300 tn. Karlsefni var að koma með mikinn afla. Afli er heldur tregari, enda kaldara i bili og torfurnar gisn- ari. Veiðin aðallega á Húnaflóa og Skagafirði. Verksmiðjan á Djúpavík hef- ir nú fengið um 100 000 mál og 7000 tn. í salt. Frá Hesteyri er símað, að Snorri goði hafi komið þangað á laugardag með 2292 mál. Til Hjalteyrar komu á laugard. Þorfinnur með 1421 mál, Kross- tindur 632, Arinbjörn hersir 1804, Skallagrímur 1341, l.v. reiðalöggjöfinni og öðrum lög- um og reglum um umferð, um % af brotunum 1931—35. Hef- ir þeim hrotum í heild ekki fjölgað frá næstu 5 árunum á undan, en þungamiðja þeirra flust yfir á bifreiðarnar. (Ilagtíðindi). Huginn 1240, Garðar 711, Gull- foss 1247. Alls um 8400 mál. í gær komu Krosstindur með 616, Hjalteyrin með 1178, Ólaf- ur Bjarnason með 1339 og Fjölnir með 856 mál. Til Iljalteyrar eru komin 152 þúsund mál og til Hesteyrar 25 y2 þús. mál, eða samt. í báð- ar verksmiðjurnai’ svipað og í fyrra. , . 0 Einkaskeyti til Vísis. Sigulfirði á laugardag. Þessi skip komu í gær og í nótt> Gulltoppur/Hafaldan með 300 mál, Skagfirðingur 850, Erlingur 2. 400, Njáll 600, Har- aldur 500, Hermóður 550, Oliv- ette 500, Eggert 250, Óðinn 200, Harpa 150, Þórir 400, Kári 500, Auðhjörn 400, Gulltoppur 600, Björn Austræni 300, Björn 550, Ágústa 400, Kristján X. 100, Frigg 150, Geiú 450, Gunnhjörn 600, Jón Þorláksson 800, Höfr- ungur 540, Anna/Einar Þveræ- ingur 550, Karl/Svanur 200, Hringur 850. Hjá Ríkisverksmiðjunum bíða nú 35 sldp með samtals 17000 mál. Allar þrær eru fullar og þurfa skipin að híða 2—3 sólar- hringa eftir löndun. Mörg skip hafa fengið síld í morgun og eru sum á leiðinni með full- fermi. Þráinn. Siglufirði í morgun. I gærkveldi var mikil síld á Haganesvik og komu mörg skip þaðan í nótt með síld til söltun- ar og í morgun hafa komið nolckur skip fullfermd þaðan með bræðslusíld og fleiri vænt- anleg. Sögðu sjómenn svartan sjó þar af síld, en gisnar torf- urnar við Tjörnes. Hefir einnig frétst af allmikilli síld í morg- un. Veður er alls staðar gott. Löndun gengur vel í Ríkis- verksniiðjunum og biðu kl. 10 í morgun aðeins 5 skip löndunar. Síðan á laugardag hafa eftirtalin skip lagt upp þar: Kristján X. 100 mál, Frigg, Akranesi, 150, Geir 450, Gunnbjörn 600, Jón Þorláksson 800, Höfrungur 540, Arthur og Fanney 400, Karl og Svanur 200, Gulltoppur, Vest- niannaeyjum, 300, Hringur 850, Gyllir og Fylkir 400, Ægir og Muninn 250, Eldborg 600, Anna og Einar 550, Unnur 350, Guide Me 400, Valbjörn 400, Harpa 200, Freyja 400, Frigg og Lagar- foss 80, Vébjörn 200, Gotta 600, Hafalda 400, Bjarnarey 650, Eggert200, Geir goði550, Nanna ,500, Snorri 400, Gyllir og Fylk- ir 250. Þessi síld er að mestu leyti veidd á Skagafirði og á Haganesvílc og sumpart við Tjörnes. — Þráinn. Fyrsti leikurinn í Reykjavik- urkepninni verður í kveld og liefst kl. 7%, Eru það Fram off Valur, sem keppa í kveld og verður þetta vafalaust spenn- andi og fjörugur leikur, því að eins og nienn muna sigraði Val- ur á vílaspyrnu er þessi félög keptu á íslandsmótinu í vor. Kappliðin verða í kveld svo sem hér segir: Valur: Hermann Hermanns- son, Frímann Helgason, Grim- ar Jónsson, Hrólfur Benedikts- son, Jóhannes Bergsteinsson, Guðmundur Sigurðsson, Ellert Sölvason, Egill Kristhjörnsson, Björgúlfur Baldursson, Þórar- inn Þorkelsson og Magnús Bergsteinsson. Fram: Þráinn Sigurðsson, Ólafur Þorvarðsson, Ragnar Jónsson, Sæmundur Gíslason, Sigurður Halldórsson, Lúðvig Þorgeirsson, Jón Sigurðss., Jör- gensen, Jón Magnússon, Högni Ágústsson og Haukur Antonsen. K. R. er Reykjavikurmeistari frá í fyrra. Dómari verður Guðjón Ein- arsson. M.s. Dronning Alexandrine fer norður og vestur í kvekl- Meðal farþega verða: Sigríður Pálsdóttir, Éiríkur Eiríksson, Steingr. Björnsson og frú, Soff- ía Torfason, Sigurhjörg Krist- insdóttir, Rebekka Jónsdóttir, Anna Flygenring, Þór. Egilsson og frú o. m. fl-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.