Vísir - 23.08.1938, Blaðsíða 4
VÍSIR
íer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 24. þ. m.
Atliöfnin hefst með húskveðju að lieimili hinnar látnu,
Bræðraborgarstíg 29, kl. l1/^ e. h.
Jafet Sigurðsson, börn og tengdabörn.
Kcvnan min og móðir okkar,
Anna Georgsson,
verður jarðsungin frá dómkirkjunni 24. þ. m. kl. SVo.
Georg Georgsson. Georg Gunnarsson.
Gunnar Gunnarsson.
andinn f járhaglegar ástæður til
þéss að halda húsinu eða ekki.
Af húsinu skal greiða árlega
ópinher gjöld, fasteignagjöld til
' bæjarins, lóðagjald, húsagjald,
vatnsskatt, hreinsunargjald,
. fasteignaskatt í ríkissjóð og
I brunábótagjald. Ofan á þetta
bætast árlegir vextir af lánum
þeim, sem á húsinu hvíla og af-
borganir af þeim. Alt á þetta að
. greiða á ákveðnum tímum, .og
það, sem kaupandinn verður að
athuga er, hvort hann á þeim
límum megi treysta því að hafa
nægilegt fé handbært. Ef hann
stepdur einhverntíma uppi svo,
að liann geli eldki greitt það,
. sem greiða skal, getur hann átt
. það á hættu að missa húsið út
úr höndum sínum, og missa
meira eða minna af því fé, sem
hann hefir lagt í það.
Að lokum segir þessi aðgætni
fasteignasali, að margir kaup-
ændur leiti ekki aðstoðar hæfra
manna, þegar þeir festi kaup á
húsum og sé þetta gert í sparn-
-aðarskyni. En slíkur spaniaður
/geti oft verið dýrkeyptur.
Þær atliugasemdir, sem settar
eru fram liér að framan eru að
vísu ekki itarlegar. En eitt má
þó af þeim sjá, en það er það,
að hver kaupandi ætti að Iiugsa
sig tvisvar um áður en hann
leggur út á þá braut, að festa fé
sitt í húsum. Rg sé ekki betur
en hér hljóti að vera liættur við
livert fótmál. Eg verð þvi enn á
ný að taka undir uppástungu
bréfritarans um eftirlit með
fasteignasölum. Það verður ekki
einungis að gera þá kröfu til
þessarar stéttar, að þar séu
sæmilega lieiðarlegir menn,
lieldur verða þeir einnig að hafa
vit á þeim málum, sem þeir fást
við.
Bt&jar
fréffír
Veðrið í morgun.
I Reykjavík 7 st., heitast í gær
15, kaldast í nótt 7 st. Úrkoma í
gær og nótt 0.2 mm. Sólskin í gær
8.9 st. Heitast á landinu í morgun
8 st., á Akureyri, Sandi, Kvjgindis-
dal, Siglunesi; kaldast 4 st., Gríms-
ey. — YfirliU Djúp lægð 700 km.
í suðsuÖvestur af Reykjanesi á
hægri hreyfingu í norðnorðaustur.
— Horfur: Suðvesturland: Hvass
austan. Stormur undan Eyjafjöllum
í dag, en lægir heldur í nótt. Rign-
ing. Norðurland: Allhvass suðaust-
an og austan. Úrkomulaust. Norð-
austurland: Allhvass suðáustan og
austan. Rigning öðru hverju.
Ekið á liest.
Ekið var á hest austur i Bisk-
upstungum á sunnudag, og varð að
skjóta hann þegar. Tólf ára dreng-
ur var á hestinum, er slysið varð,
en hann sakaði ekki. Bíllinn var úr
Hveragerði.
Skipafregnir.
Gullfoss er í Kaupmannahöfn.
Goðafoss er á leið til Vestmannaeyja
frá Hull. Brúarfoss var á Siglufirði
i morgun. Dettifoss er á leið til
Grimsby frá Vestmanneyjum. Sel-
foss fór frá Djúpavogi kl. 11 í gær
áleiðis til Aberdeen.
Es. Súðin
fer í hringferð annað kvöld aust-
ur um land.
Starfsmannafélag Reykjavíkur.
Fundur sá, er -halda átti í kveld
og auglýstur hefir verið, fellur nið-
ur af sérstökum ástæðum.
Lyra
kom síðdegis í gær frá Bergen.
Meðal farþéga voru: Magnús Jóns-
son', Ólafur Þórsteinsson læknir og
frú, Sigurlaug Jónsdóttir, Markús
Sigurjónsson, Hjalti Sigurbjörns-
son og ýmsir útlendingar.
K.R. — Vestmannaeyingar.
I gær keptu Vestmannaeyingarn-
ir þriðja leik sinn hér. Að þessu
sinni við K. R. og var sigurför
þeirra þar með stöðvuð. K. R. sigr-
aði með .3:1.
Leiðrétting.
Meinlegar prentvillur slæddust
inn í frásögnina í gær urn íþrótta-
mótið hjá Mosfelli. Þar stóð, að
Jóhannes Eiríksson hefði orðið
fyrstur, á að vera Janus Eiríksson.
Sá, er varð þriðji í langstökki, stökk
5.68 m. og sá þriðji í sundinu var
Áslijörn Sigurjónsson.
Rriems-fjósið.
Á bæjarstjórnarfundi, er haldinn
var síðastl. föstudag, var tekin sú
’ákvörðun, að auglýsa Briemsfjós
til niðurrifs.
Ms. „Dronning Alexandrine“
fór áleiðis til Kaupmannahafnar
i gær kl. 6. Meðal farþega voru:
Matthías Einarsson læknir og frú,
Hallgr. Benediktsson, stórkaupmað-
ur, próf. Lárus Einarsson og frú,
Meulenberg biskup, Hermann Jón-
asson og frú, frú K. Mixa, frú
Kr. Thorarensen 111. dóttir, Maríus
Ólafsson, Guðr. Bergström, Kristín
Guðmundsdóttir, Svanhv. Egils-
dóttir, Eva Sveinsson, L. H. Múller,
Sigr. Árnason, Bryndís Zoéga, Páll
Bjarnason og frú, Gunnar Ólafsson
m. barn, Kr. Schram, B. F. Gísla-
son, D. Thordarson, Ásta Sigur-
brandsdóttir, Guðm. Þorláksson,
Áslaug Kristinsdóttir, Svava Guð-
mundsdóttir, Guðr. Daníelsdóttir,
Þórir Jónsson, Hrefna Þorsteins-
dóttir, Esther Högnadóttir, Kristín
Ingvarsdóttir, Sig. Jónsson og
nokkrir útlendingar.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.20 Hljómplötur: Danslög.
20.15 Erindi: Síðustu forvöð
(Sigurður Þórarinsson jarðfræð-
ingur). 20.40 Hljómplötur: a:
Ungversk fantasía, eftir Liszt. b)
Symfónía í d-moll, eftir Cesar
Franck. c) Lög úr óperum.
Næturlæknir.
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12, sími 2234. — Næturvörður í
Reykjavikur apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
STÓFA eða 2 lítil herbergi
óskasl 1.- okt, með laugavatns-
liita og eldhúsi eða eldunar-
plássi með gasi. Tilboð sendist
Visi merkt „1,2,3“. (427
GÓÐ 3ja lierhergja íbúð ósk-
ast. 1. okt. Ábyggileg greiðsla.
Símí 2631 frá 2—6 síðd. (428
EINHLEYPAN vantar 1. okt.
stóra og minni stofu, lielst sam-
liggjandi, í nýtísku húsi, með
öllum þægindum. Fyrirfram-
greiðsla á alt að árs leigu gæti
komið til greina. Uppl. í síma
2901 eða 2890. (435
STÆRRI og SMÆRRI íbúðir
til leigu Reykjavíkurvegi 7,
‘Skcrjafirði. í ‘___(430
VANTAR 3ja lierbergja íbúð
með öllum nýtísku þægindum
1. október. Tvent í heimili. Sig-
urjón Hallvarðsson. Sími 2919-
_______________________(437
2 HERBERGI og eldhús til
leigu á Vesturgötu 23. (438
2 HERBERGI og eldliús, með
öllum nýtísku þægindum ósk-
ast 1. október, helst í vestur-
bænum. Tilhoð merkt „120“
leggist inn á afgr. Vísis fyrir
föstudagskvöld. (439
SÓLRÍKT herbergi lil leigu.
Útsýn vfir tjörnina. Vonar-
stræti 8, uppi. (440
ÓSKA eftir tveimur her-
bergjum ásamt eldhúsi, með öll-
um þægindum. Fyrirfram borg-
un. Uppl. i síma 2159. Margrét
Lárusdóttir. (442
3—4 HERBERGI og eldliús,
með öllum þægindum, sérmið-
stöð, svalir, til leigu- — Tilboð
merkt „Við miðbæinn“ sendist
Vísi. (451
iTAPAMUNDIf)]
TAPAST hafa kvenhanskar í
Austurstræli eða Aðalstræti. —
Finnandi viúsamlegast heðinn,
að gera aðvart í síma 2665. (429
TAPAST hefir lítill gull-
kross í keðju, í sundlaugunum.
Skilist á Leifsgötu 17. (441
TAPAST hefir peningabudda.
Vinsamlegast skilist Vesturgötu
5 (Reiðhjólaverkstæðið). Fund-
arlaun. (448
imnmmm
Bílfarafélag íslands
Skrifstofa: Hafnarstræti 5.
Félagsskírteini (æfigjald) kosta 10
kr. Skírteini, sem tryggja bálför,
kosta 100 lcrónur, og má greiða þau
í fernu lagi, á einu ári. Allar nánari
upplýsingar á skrifstofu félagsins.
Sími 4058.
KViNNAH
KONA með barn óskast á gott
sveitaheimili í haust og vetur.
Uppl. Grettisgötu 48 B eftir kl.
6 næstu kveld. (431
STÚLKA óskast til hjálpar
við sauma. Þarf að vera hand-
lagin. A. v, á. (443
FUHDÍh
~TÍLKYNNINGm
St. SÓLEY nr. 242 og bst.
JÓLAGJÖF nr. 107 fara í berja-
mó á sunnudaginn austur í
Bolabás. Lagt af stað ld. 8J4
árd. frá Reykjavikurveg 11 og
kl- 9 frá Lækjartorgi. Þess er
sérstaklega vænst, að íbúar
Skerjafjarðar og Grímsstaða-
holts, bæði börn og fullorðnir,
fjölmenni. Þetta verður skemti-
leg og ódýr ferð. Uppl. og far-
miðar á eftirtöldum stöðum:
Skólavörðustíg 10, sími 1944.
Reýkjavíkurvegi 11, sími 1272.
Fálkagötu 30, Grímsstaðaliolti,
sími 1842. Þátttaka tilkynnist
og farmiðar óskast sóttir fyrir
fimtudagskvöld. Skemtinefndin
(452
lEígaI
SÖLUBÚÐ óskast til leigu. —
Sími 3664, ((445
VERKSTÆÐISPLÁSS óskast
í suður- eða austurbænum 1.
október, fvrir tvo hefilbeldd. —
Uppl. í sima 3867. (449
KENSLAl
SKRIFTARSKÓLINN tekur
lil starfa í september. Námskeið
fyrir kennara og kennaraefni,
skri f tarkensluaðf erðir. Nám-
skeið fvrir verslunarfólk (skrif-
stofuhönd). Námskeið fyrir
skólafólk. Almenn slcriftarnám-
skeið. Skriftarnámskeið fyrir
börn. Kenni einnig í einkatím-
um. Jóhanna Ólafson, skriftar-
i kennari- Sími 5073. (407
ííiMnl
RABARBAR, nýupptekinn,
Gráfíkjur, Vanillestengur,
Hellukandís svartur, Síróp. —
Þorsteinsbúð, Grundarstíg 12.
Sími 3247. Hringbraut 61. Sími
2803. (432
ÍSLENSKT bögglasmjör, glæ-
nýtt. Þorsteinsbúð, Grundarstíg
12. Sími 3247. Ilringbraut 61.
Simf 2803. (433
VIL KAUPA 2 djúpa, stopp-
aða stóla sem fyrst. — Uppl. i
síma 2779. (434
KAUPUM flöskur, flestar teg-
undir, soyuglös, dropaglös með
slcrúfuðu loki, Whisky-pela og
hóndósir. Sækjum heim. Versl-
unin Hafnarsti-æti 23 (áður B.
S. 1.). Sími 5333. (231
iísíx icöOii; líiycioíiíimi; uiííoíií í
" E I N B Ý L I ,S H Ú S
Íí
í?
o
g
sr
Cr
ii
a
§
§
í;
r
5
á góðum stað utan við bæ-
inn, með stórum matjurta-
og blómagarði (eignarlóð)
til sölu- Fvrirspurnir, auð-
kendar „BIómvangur“,
sendist afgr. Visis fyrir
næstkomandi laugardag.
(450
Q
juvwn.
VIL KAUPA i/2-tons bíl eða
minni. Óska eftir tilboðum með
verði og aldri á afgr. Vísis,
merkt „438“. (436
GÓÐ eldavél óskast, helst með
miðstöðvarlögn. Uppl. í síma
3309. (444
TIL SÖLU notuð útidyi-ahurð
með karmi. Uppl. í síma 4299,
(446
LÍTILL PENINGASKÁPUR
óskast til kaups. Sími 4816. (447
KAUPUM flöskur, stórar og
smáar, whiskypela, glös og
bóndósir. Flöskubúðin Berg-
staðastræti 10. Sími 5395. Sækj-
um heim. Opið 1—6. (280
Fornsalan
Hafnai»stisæti 18
selur með sérstöku tækifæris-
verði ný og notuð húsgögn og
lítið notaða karlmannafatnaði.
HRÓI HÖTTUR og menn hans. — Sögur í myndum fyrir bÖrn. 172. LOFORÐ RAUÐSTAKKS.
— Það er ómögulegt, að Hrói •— Eg hefi lofað að þegja, en — Rauðstakkur, nú skil ég að — Lávarðurinn og Sir Ivan cru
hafi gert Eiríki hið minsta mein. það sver eg fyrir yður, að ekkert þér eruð vinur okkár. Eg lofa, að að koma! Þeir mega ekkert vital
Hvers vegna lýgur Sir Ivan? ilt mun hencla Eirík. eg skal altaf trúa yður. Látið sem þér hafið meiðst.
BTl
LEYNDARMÁL 53
HERTOGAFRÚARINNAR
neyðast til að segja að eg hafi skilið yður eflir
fótbrotinn í skurði. Nei, þakka yður herra
minn.“
„Eins og yður þóknast,“ sagði liann veikum
t’ómi, „en eg veit varla hvað þér gelið gert.“
„Það munuð þér sjá hráðum!“
Jálkurinn hans stóð skamt frá Taras-Bulba
sém horfði á hann fyrirlitningaraugum.
„Komdu hingað, þorparinn þinn!“
Eg náði í hann og leymdi hann að hertogan-
um, en sá þá, að árangurslaust muudi fyrir mig,
íið reyna að köma honum á bak hestinum.
„Hvaða gagn er að hestum, sem eru eins og
stærðar heygaltar?“ sagði eg fyrirlitlega.
Stórhertoginn horfði á mig afsökunarlega og
það fór í taugarnar á mér.
„Taras-Bulba,“ kallaði eg.
Og klárinn minn litli kom þótt eg sæi, að
honum væri það þvert um ^eð. Hann vissi
Iivað gerast mundi.
Stórhertoginn gat ekki leynl því, að liann var
áhyggjufullur orðinn:
„Þér ætlið þó ekki að setja mig á bak þessari
— skepnu?“ spurði hann. „Þá vil eg heldur
liggja k\rr hér.“
„Aldrei að eilífu,“ sagði eg. „Taras-Bulba er
spakur sem lamb. Og nú gerið þér nákvæmlega
eins og eg segi yður.“
Stórhertoginn var þungur, en mér tókst með
mestu erfiðismunum að koma liouum á bak
litla hestinum mínum og því næst steig eg á
bak tröllinu og getið þér ímyndað yður hversu
mér leið, eftir alt þetta. Maðurinn, sem cg reyndi
að liata, hafði unnið samúð mína — og sjálfri
mér var um að kenna. Og svo bættist það ofan
á alt að Taras-Bulba var á svipinn eins og liann
vildi segja:
„En hvað hefi eg gert af mér? Þú lætur mig
bera þennan Þjóðverja — og sjálf hefirðu yfir-
gefið mig til þess að riða þessum herjans jálki,
sem hefir hófa eins stóra og steikarpönnur“.
„Eg komst að niðurstöðu um það, að það
mundi ekki leiðin til þess að losna við að giftast
að fótbrjóta biðilinn. Eg þarf ekki að taka fram,
að eg og mínir likar förum að eigin geðþótta
hvað sein keisurum liður — og ef eg sjálf hefði
ekki fallist á að giftast stórhertoganum liefði
enginn máttur á jarðríki getað fengið mig til
þess. En það, sem gerst hafði leiddi til þess, að
eg játaðist lionum.
Það þarf ekki að taka fram hverja undrun
það vakti, er eg lcom með stórhertogann svo á
sig kominri sem reynd har vilni, og var veiði-
m ferðinni þegar freslað. Allir, sem liöfðu tekið
þátt í hénni, þyrptust í kringum okkur. Eg varð
að segja þeim hvernig þetta geldc til og eg var
eins stuttorð og mér var unt. En hinn meiddi
stórhertogi fylti i skörðin og talaði um mig og
hjálpsemi mína af hinum mesta riddaraskap —
og lýsti mér næstum sem lietju. Og allir vott-
uðu mér aðdáun fyrir hjörgunarafrekið.
„Og keisarinn, sem alt af liætlir til að gera
úlfalda úr mýflugu, sagði:
„Þetta er fyrirmyndar stúlka —- að bjarga
heitmanni sinum fyrsta dagirin!“
Iveisarafrúin kysti mig — hún var haldin ein-
hverri „fjölskyldu-kossasýki.“
Faðir minn var himinlifandi.
„T1 hamingju, yðar hátign,“ hvíslaði hann i
evra mér.
Og eg var reið — en mér var skemt í aðra
röndina og eg lét reiði mína bilna á vesalings
Taras-Bulba sem fékk að kenna á svipunni.
Eg er þannig gerð, að eg vil vita hvernig
staða mín er. Eg gerði mér ljóst, að eg var kom-
in þangað, vegna eigin glópsku, þaðan, sem mér
varð ekki undankomu auðið nema eitthvert
hneykslimál kæmi til sögunnar, en engin prin-
sessa, sem virðir titil sinn vill bjarga sér þannig
— og kýs lieldur að verða vansæl. Og þess vegna
ákvað eg að gefa „unnusta“ mínum þegar þá
um kvöldið til kynnna hvaða skilmála eg setti:
Eg bað hann að taka á móti mér i lieimsökn
og liann sendi þegar á brott aðstoðarmann þann,
sem hafði nýlolcið við að binda um fót hans.
Þegar við vorum orðin ein sagði eg við hann
citthvað á þessa leið:
„Þér mimuð furða yður á að eg er liingað
komin. En eg geri ávall það, sem mér flýgur í
hug, ef eg sé ekkert athugavert við það sjálf og
skeyti elckert um venjur og siði. Nú finst mér,
að það sé afar mikilvægt, að þér gerið yður eft-
irfarandi ljóst:
„Eg kom til Pétursborgar til þess að taka
þátt í hátiðaliöldum með föður mínum, í til-
efni af komu keisarans — til þess að skemta