Vísir - 24.09.1938, Síða 3
V I S I R
Tvö bresk herskip
kvödd heim frð
Akursyt i.
Akureyri i dag.
Tvö bresk herskip komu til
Austfjarða fyrir nokkru og ætl-
uðu norður og vestur fyrir land
til Reykjavíkur. Komu þau til
Akureyrar síðdegis í gær og
höfðu pantað þar bryggjupláss,
en áður en þap lögðust að
bryggju, fengu þau skipun um
að halda samstundis til Eng-
lands, og lögðust þau því aldrei
að bryggju.
Jakob.
Kirkjuhygging á
Akureyri.
Akureyri í dag.
Eins og getið liefir verið um
hér í blaðinu liefir verið hafinn
undirbúningur að kirkjubygg-
ingu á Akureyri fyrir nokkru,
og var bygging kjallarans boð-
in út samkvæmt auglýsingu í
blöðunum fyrir nokkru.
Tilboð þau, sem bárust, voru
opnuð í fyrrakvöld, en þau voru
þrjú. Lægsta tilboðið nam kr.
24.400.00 og var frá Guðmundi
Ólafssyni byggingameistara.
Jakob..
Væringjar og Ernir
sameioast.
Síðastliðinn sunnudag var
baldinn stofnfundur Skátafélags
Reykjavíkur og er það samein-
ing Væringja og Arna. í hinu
nýja félagi eru 620 meðlimir,
því að Væringjar eru 460 að
tölu, en Ernir 160.
Skátafélagið Væringjar varð
25 ára í vor, en Ernir eru 14 ára
á þessu ári.
Á fundinum á sunnudaginn
voru samþykt bráðabirgðalög
félagsins og kosin stjórn. Hana
skipa: Leifur Guðmundsson,
formaður, Björgvin Þorbjörns-
son, gjaldkeri, Þórarinn Björns-
son, ritari og ineðstjórnendur:
Daníel Gíslason og Hörður Jó-
liannesson.
Mokafli á
Austfjöpðuixi.
Fréttaritari Vísis á Eskifirði
skýrði blaðinu svo frá í gær að
óvenjumikill þorskafli væri nú
■á Austfjörðum, og fengju bátar
um 14 skpd. í róðri. Þrátt fyrir
'það þótt nú sé stórstreymt róa
bálar frá fjörðunum á svoköll-
uð Kistuirtið út af Norðfirði og
tveir bátar, sem réru frá Nes-
kaupstað í gær höfðu dregið 11
stampa um hádegisbilið og
fengu af þeim 9 skpd. fiskjar.
Er það mjög fátítt að bátar rói
af fjörðunum í stórstreymi.
Bátar frá Eskifirði munu einnig
'i'óa þessa dagana djúpt á miðin,
(Og er það 8—9 klst. sigling. Er
mikill bugur í mðnnum við sjó-
sóknina, enda er þetta alger ný-
lunda fyrir Austfirðinga að fá
svo góðan afla, með Jn'í að fisk-
ur befír brugðist þar með öllu
undanfarin ár.
Skemtun
að Eiði á
I I
orgun.
Á morgun verður síðasta
skemtun sumarsins að Eiði og
hefst kl. 2 e. h.
Verður margt til skemtunar,
m. a. ræður: Jólianna Guðlaugs-
dóttir og Soffía Ólafsdóttir, en j
Friðfinnur Guðjónsson les upp 1
og frú Elísabet Einarsdóttir
syngur.
Þar eð þetta verður síðasta
skemtunin að Eiði í sumar, ættu
allir sjálfstæðismenn og konur
að fjöbnenna þangað á morg-
un. —
Bcejar
fréffír
Messur á morgun.
1 dómkirkjunni kl. II: Síra Frið-
rik Hallgrímsson.
1 Hafnarfjarðarkirkju kl. 2: Sr.
Garðar Þorsteinsson.
I fríkirkjunni kl. 2: Sr. Árni
Sigurðsson.
í Laugarnesskóla kl. 5 : Sr. Garð-
ar Svavarsson.
Nisturlæknir í nótt:
Kristín Ólafsdóttir, Ingólfsstræti
14, sími 2161. — Næturvörður í
Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Veðrið í morgun.
Reykjavík 11 stig, heitast í gær
12 stig, kaldast i nótt 10 stig. Úr-
koma í gær o gnótt 5.6 mm. Sól-
skin í gær 0.1 stund. Heitast á land-
inu í morgun 11 stig, hér og á
Reykjanesi, kaldast 6 stig, á Horni,
Siglunesi og í Grímsey. Yfirlit:
Lægð skamt suður af Vestmanna-
eyjuin á hægri hreyfignu í norður.
Horfur: Suðvesturland: Austan
kaldi. Sumstaðar dálítil rigning. —
Faxaflói: Austan gola. Úrkomu-
laust að mestu.
Skipafregnir.
Gullfoss er á leið til Leith frá
Kaupmannahöfn. Goðafoss er á leið
til Vestmannaeyja frá Hull. Bruar-
foss er á leið til Blönduóss frá
Siglufirði. Dettifoss er á leið til
Grimsby frá Vestmannaeyjum. Lag-
arfoss er á leið til Austfjarða frá
Leith.
Næturlæknir aðra nótt:
Alfreð Gíslason, Brávallagötu 22,
sími 3894. Næturvörður í Lauga-
vegs apóteki og Ingólís apóteki.
Helgidagslæknir:
Bergsveinn Ólafsson, Hávalla-
götu 47, sírni 4985.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.20 Hljómplötur: Létt kór-
lög. 19.50 Fréttir. 20.15 Upplestur:
„Gegnum lystigarðinn“ Sögukafli
(Guðmundur Daníelsson rithöf.).
20.40 Hljómplötur: a) Kvartett í
D-dúr, eftir Mendelsohn. b) Slav-
neskir dansar, eftir Dvorák. 21.25
Danslög.
Útvarpið á morgun.
Kl. 12 Hádegisútvarp. 14.00
Messa í fríkirkjunni (síra Árni
Sigurðsson). 17.40 Útvarp til út-
landa (24.52 m). 19.20 Hljómplöt-
ur: Dansar eftir Haydn og Mozart.
19.50 Fréttir. 20.15 Erindi: Siglu-
fjörður (Árni Friðriksson fiski-
fræðingur). 20.40 Hljómplötur:
Lög fyrir fiðlu og píanó (Kreisler
og Fischer). 21.05 Upplestur : „Hún
Elísabet að vestan“, sága (ungfrú
Þórunn Magnúsdóttir). 21.25 Dans-
lög.
Kensla
Tek nemendur, eins og
að undanförnu. Iient verð-
ur aðmála á flauel og silki,
„plastik“, ullar og leður.
Sýnisborn verða á morg-
un í glugga „Glófans“ í
Kirkjustræti 4.
Sigrún Kjartansdóttir.
Slátorgarn,
ágætt, fyrirliggjandi.
Veiðarfæraverslunin.
Frönskunám skeið
ALLIANCE FRANgAISE 1 HÁSKÓLA ISLANDS,
befjast í byrjun október. Kennari verður J. HAUPT sendi
kennari. Kent verður í byrjendadeild og frambaldsdeild. —
25 tíma námskeið kostar 25 krónur sem greiðist fyrirfram.
Áskriflarlisti liggur frammi á skrifstofu forseta Aliiance
Francaisc í Aðalstræti 11 og eru væntanlegir nemendur
beðnir að gefa sig fram sem fyrst. —
SöíititllitiOGSSÍieOOtÍöíiOGtÍtÍOÍÍOíSOOCiötSOíiCÍÍOtÍtSÍSOttíSOtÍtÍOOftíÍOíSOÍSOÍ
Spsrisjóðar Reykjavlkur
og nágreosis
verður framvegis opinn á laugardögum eins og aðra virka
daga, kl. 10—12 fyrir hádegi og kl. 3 '/2—6 V2 eftir hádegi. —
8 B g
RE SjTAURATIONIN- I
TILKYNNIR:
Allir eldri viðskiftavinir okkar, sem i vetur óska afnota af
samkvæmissölum Oddfellow-hússins, eru vinsamlega beðn-
ir að tilkynna það sem fyrst, vegna mikillar eftirspurnar.
H V 0 T
S.jáifstæðiskvennafélagið, lieldur fund í Oddfellow-
húsinu mánudaginn 26. sept. kl. S1/^ e. h.
Hr. alþm. Gísli Sveinsson, minnist frú Guðrúnar
Lárusdóttur, sem alþingismanns.
Konur beðnar að mæta stundvíslega. —
STJÓRNIN.
;í
«
8
o
ií
S l
il
ö
BEDDAR
ágætis tegund, fyrirliggjandi.
G E Y S I R
FATADEILDIN.
Hús
á góðum stað til sölu, Rentar
sig vel. Hagstæðir greiðsluskil-
málar. — Sími 4222. —
Einkatíma í
frönsku
veitir
J. HAUPT, sendikennari,
Sóleyjargötu 13. — Sími 3519.
Glsenýr
Silungur
Nor dalsf shiis
Sími: 3007.
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
ara aímæli Yíkings:
T v e i r
verða háðir á íþróttavellinum á morgun kl. 2 e, h.
Fyrst keppa „Old Boys“ úr K. R. og Víking, síðan I. fí-
Vals (íslands- og Reykjavíkurmeistararnir) og Vík-
ingur.
Nú er það fyrst spennandi.-------Allir út á völl.
G Æ R U
kaupir
Heild versluu
Gardars Gíslasonar
Síml1500
K. F. U. M.
Alménn samkoma annað
kveld kl. 8V2. Allir velkomnir.
ðskast keyptur.
Gr ænmetisverslun
rlkisios.
EvðldskóU
K.F.U.ML
tekur til starfa 1. október. —
Upplýsingar í Yersl. Vísi, á
Laugavegi 1. — Símar 3555 og
4700. —
DANSKLÚBBURINN „LAMBETH WALK“.
Dansletk ur
í K.R-liúsinu í kvökl kl. 10 f. b. —
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8 sama dag.
Verð 2.00 kr.
STJÓRNIN.
Hús og íhúðir.
Höf 11111 fjölda af búseignum til sölu, þar á meðal mörg me@
líLilli útborgun. —-
Munið einnig húsnæðismiðlun okkar. —
Midlimapskpifstofaxi
TRYGGING
Þingholtsstræti 15.
Sími 5314.
Germanía.
Þýskunámskeið
félagsins befjast í byrjun október. Tveír tímar á viku, 2®
tímar alls. Kenslugjald 20 krónur. — Kent verður í tveímur
flokkum, bæði byrjendum og lengra komnunr. — ÖUum
heimil þátltaka.
Frekari upplýsingar og tilkynning um þálttöku Iijá kemv-
aranum
Dp, bruno kress, Laufásvegi 10. — Sfmí 2017.
HStSOOOOtSOOOGOtSOOOOOOOOtSOtSOeGOOGtSOOOGGOGOOOOOOOOGOOOQOC
VerOlaunabðk.
Nýlega efndi sænska bókaútgáfan NATUR OCH KUL-
TUR til verðlaunasamkepni um bók fyrir drengi á aldi-in-
um 12—15 ára. Fyrstu verðlaun, 2000 krónur, hlaut óþekt-
ur böfundnr, HARALD VICTORIN, fyrir bók um Iiapp-
flug í kringum jörðina. Margar þjóðir faka þáít í kapp-
fluginu og er meiri „spenningur“ í frásögninni á köflum
en títt er í unglingabókum, en öll er bókin óvenjulega
skemtilega rituð.
Nú er þessi ágæta bók komin úf á íslensku í snildarlegri
þýðingu Frevsteins Gunnarssonar skólastjóra. Bókina
j5 kallar bann
fi Kappflugrið umhverfis jörðina
B .
Þeir, sem vilja gefa drengjum skemtilega bók, velja
g þessa. 18 myndir eru í bókinni. — Fæst bjá bóksölum.
ÍíSOOÍÍOtÍÍÍÍiOtÍOOOatÍtÍOOtÍOOtSOOOOtÍOtÍíiOOOOOOOOOOtÍOOOOOOtSOOíXK
Vetrarstarfsemi íþróttaskólans hefst I. okt
Viðtalstími alla næstu viku frá kl. 4—7 síðÆ
JÓN ÞORSTEINSSON.
— Best að auglýsa i VISI..