Vísir - 25.10.1938, Page 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Effirtnáli.
„Dag skal að kveldi lofa“ seg-
ir máltækið. Það var ólieilladag-
ur fyrir kaupfélagið í höfuð-
staðnum, þegar „Tíminn“ hóf
herferð sína á hendur verslun-
um hér í bænmn, í því skyni að
rægja af þeim innflutninginn.
Framsóknarmenn, sem undir-
búið höfðu áhlaupið, gengu að
því vísu, að verslunarstéttin
væri nú orðin svo kúguð og
beygð, að enginn hefði einurð
til að bera hönd fyrir höfuð
henni. Þeir bjuggust við að auð-
velt yrði að niða af henni álitið
og æruna. En það fór á annan
veg,
ÖIl hin grálegu orð „Tímans“,
allar hinar fúlu og ósvífnu full-
yrðingar, allar hinar lúalegu, ó-
drengilegu dylgjur lentu á
kaupfélaginu — samherjanum,
sem blaðið hafði ætlað uppsker-
una af sáningu sinni. Það var
sannað, að kaupfélagið seldi
vörur við verði sem blaðið kall-
aði „svjvirðilegt okur“. Árásin
á kaupmannaverslanirnar var
orðin að árás á kaupfélagið, á-
rás á kaupfélögin yfir liöfuð,
Árásin lciddi í Ijós, að hinar
hátíðlegu yfirlýsingar sam-
yinnuhlaðanna um ágæti kaup-
félagavershinarinnar, eru blekk-
ingar og ósannindi. Kaupfélagið
hafði eina vörn, aðeins eina
vörn fram að færa, og liún var
sú, að það liefði keypt vörurn-
ar af heildsölum og hið háa
verðlag væri þeim að kenna.
Öll blöð stjórnarinnar ásamt
hinum pólitíska útvarpsþul
hennar, grípa þessa vörn fegins
hendi. Hið háa verð félagsins
er heildsölunum að kenna! Það
er víst fátt hér á landi að dómi
„Tímans“ sem elcki er þeim að
kenna! En hvað skeður? Félag
ísl. stórkaupmanna gaf þær
upplýsingar, að meðlimir fé-
lagsins hafi selt kaupfélaginu
vefnaðarvörur fyrir aðeins rúm-
lega 700 krónur síðustu tólf
mánuði, án innflutningsleyfis.
Upplýsingar þessar kollvörp-
uðu svo gersamlega staðhæf-
ingu kaupfélagsins og lýstu það
beinlínis bert að hinum mestu
ósannindum, að allir bjuggust
við að kaupfélagið og stuðn-
ingsblöð þess reyndu að sanna
sitt mál. En blöðin og félagið
hafa ekki gert hina minstu til-
raun til að verja sína fyrri stað-
hæfingu. Þau hafa steinþagað.
Þau sáu að hér var ekki lengur
hægt að verjast. Þeim vafðist
tunga um tönn, því að aftur
rennur lýgi þá sönnu mætir.
„Tíminn“ ritaði mjög lævís-
lega grein um mál þetta nokkr-
tim dögum síðar. Þar var ekki
minst á það að kaupfélagið hafi
orðið bert að ósannindum um
hJutdeild heildsala í verðlagi
þess. Blaðið spann í þráðinn þau
ósannindi um málið sem því
hentaði til þess að málstaður
þess biði engan hnekki. Grein-
ar blaðsins eru venjulega ritað-
ar með fullri fyrirlitningu á
sannleika og sanngimi. I hinni
sömu grein hefur blaðið upp
hróp inikið i heilagri vandlæt-
ingu yfir því, að Vísir heimti
að kaujifélögin séu „tvisköttuð“.
Þess var ekki krafist að þau
væri tvísköttuð, en það virðist
ekki ósanngjarnt, að kaupfé-
lögin, eins og liver önnur fyrir-
tæki í landinu, beri skattabyrð-
arnar. Nú eru þau skattfrjáls
samanborið við önnur fyrirtæki
Verslunin er nú með aðstoð rílc-
isvaldsins að komast að miklu
leyti í hendur kaupfélaganna
og stórvaxin iðnaðarfyrirtæki
eru nú rekin á þeirra vegum.
Með þessu er verið að gera
verslunina skattfrjálsa og iðn-
aðinn líka. Þegar samvinnufé-'
lögin hafa tekið verslunina í
sinar hendur, munu þau finna
einhver ráð til að ná undir sig
þeim hluta iðnaðarins sem arð-
vænlegastur er. Til þess eru ýms
ráð. Til dæmis skifting hráefn-
anna til innflytjenda, þeim
synjað sem áður liöfðu innflutn-
inginn en nýjum fyrirtækjum
gefin leyfi,
„Tíminn“ hættir sér vafalaust
ekki fyrst um sinn út í það að
athuga verðlag kaupfélaganna.
Kaupfélagið 1 Reykjavík hefir
að líkindum fengið nóg af slíku
í svipinn. Blaðið hefir nú dregið
sig í hlé i þessu máli með fullri
vansæmd fyrir fávisku sína og
blekkingar.
Héraðsmót sjálfstæðis-
manna í Anstfirðinga
fjórðnngt.
Héraðsmót Sjálfstæðismanna
í Austfirðingafjórðungi hefst á
Seyðisfirði 31. þ. m., og mun
standa yfir í 2 daga
Var upphaflega ákveðið að
það hæfist 29. þ, m., en af þeim
sökum, að brottför Súðarinnar
héðan úr bænum drógst á lang-
inn, varð að fresla mótinu sem
þvi svaraði. Óvíst er um þátt-
töku liéðan að sunnan, með því
að engin ferð fellur til baka fyr
en seint og síðar meir, en þátt-
laka verður mikil á mótinu af
Austfjörðum.
Tíö sjálfitæðlsfélög
stofnnð f Árnessýsln
nm helglna.
Gimnar Thoroddsen cand.
juris fór um helgina austur í
Árnessýslu og sat þar stofnfundi
tveggja sjálfstæðisfélaga á Sel-
fossi og Eyrarbakka.
Á laugardegi var stofnað að
Selfossi Sjálfstæðisfélag Sand-
víkurhrepps, en stjórnendur
voru kosnir: Sigurður ,Ó. Ólafs-
son, Höfn, form. og meðstjórn-
endur Jóhann Ólafsson, Hlöð-
um og Guðlaugur Þórðarson,
Tryggvaskála. Á sunnudegi var
stofnað félag sjálfstæðismanna
á Eyrarbakka og hráðabirgða-
stjórn kosin, en hana skipa:
Þorkell Ólafsson, Kristinn Gísla-
son, Guðmundur Jónsson, Þor-
grímur Gíslason og Sigurður
Kristjánsson oddviti.
Þá fór Gunnar til Stokkseyr-
ar og er þar í undirbúningi fé-
lagsstofnun. Mikill áhugi er
ríkjandi í þessum þremur
hygðalögum, Selfossi, Eyrar-
liakka og Stokkseyri, fyrir því
að raflögn verði lögð frá Sogs-
stöðinni til kauptúnanna og eru
héraðsmemn að vinnja að þvjí
eftir megni, að því verði hrund-
ið í framkvæmd hið bráðasta.
Chiaxig
hans
Kai-shek og1 stjórn
flúin frá Hankow.
Ymsir horgarhlotar standa í
hjörto háli og hörmoogar
ástaod ríkir meðal borgarbfia
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
'j, London í morgun.
ip regnir, sem bárust frá Shanghai í gærkveldi
[ Jf skýra svo frá, að framvarðasveitir japanska
1 hersins séu nú að eins í fimm mílna fjarlægð
frá borginni Hankow. Herskip Japana eru einnig kom-
in í nánd við borgina og halda þau uppi látlausri fall-
byssuskothríð á ströndina og eru að flytja mikinn her-
^ styrk á land í grend við Wuchang.
Frá Hangkow berast þær fregnir að Chiang kai Shek
og kona hans hafi farið þaðan um dagmálabilið í flug-
vél, en ókunnugt er um ákvörðunarstað þeirra, en þó er
talið líklegt, að þau munu hafa haldið til Chungking
eða Yunnafnu, borga, sem eru lengra inn í landinu.
Aðrir kínverskir embættismenn hafa yfirgefið borg-
ina í nótt, og haldið einnig flugleiðis til annara staða.
FUMIKARO KONOYE,
prins og stjórnarforseti í Jap-
an, sem lalið er að hafi verið
andvígur styrjöldinni í Kína,
en liafi orðið að láta undan
kröfum herforingjanna. Hótaði
hann í uppha.fi að segja af sér,
en af því varð þó ekki.
BARON v. FALKENHAUSEN,
þýskur hermálasérfræðingur,
hefir verið ráðunautur stjórn-
arinnar í Kína í hermálum, en
var kvaddur heim til Þýska-
lands. Hafði liann orðið Kín-
verjum að miklu liði og biðu
þeir óbætanlegt tjón, er þeir
mistu hann úr þjónustu sinni.
Um níuleytið í morgun berast þær fregnir að eldur breiðist
óðfluga út um ýms borgarhverfi Hankow, einkanlega í þeim
borgarhluta, þar sem Japanir hafa haft forréttindaaðstöðu og
stórfeldar sprengingar heyrast altaf annað veifið.
f verksmiðjuhverfum borgar-
innar standa flest hús í ljósum
loga og kínverskir hermenn
vinna að því að sprengja upp og
eyðileggja flugvelli borgarinnar,
þannig að aðstaða Japana verði
sem erfiðust er þeir hafa náð
borginni á sitj vald.
Allir þegnar Evrópuríkjanna
hafa búið um sig í þeim borg-
arhlutum, sem Englendingar og
Rússar h.öfðu forréttindaað-
stöðu í, en þau hverfi borgar-
innar hafa bæði Kínverjar og
Japanar viðurkent, sem hlutlaus
svæði, þannig að lítil hætta er
talin á því, að þeir borgarhlut-
ar muni verða fyrir árásum.
Stöðugur flóttamannastraum-
ur hefir legið frá Hankow og til
héraðanna, sem lengra eru inn í
borginni, og eru hörmungar
hins flýjandi fólks mjög átak-
anlegar og skortur á flestum
lífsnauðsynjum.
United Press.
18 menn farast í flug-
slysi í Astralíu.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London í morgun.
Frá Melbourne í Ástralíu er símað, að ein af far-
þegaflugvélum ástralska flugflotans hafi far-.
ist rétt utan við Melbourne» með þeim hætti,
að hún muni hafa rekist á f jallstind vegna dimmviðris.
Fjórir menn af áhöfn flugvélarinnar biðu bana og
f jórtán farþegar.
Nánari fregnir af slysinu liggja ekki fyrir.
United Press.
HITLER TEKUR Á MÓTI MUSSOLINI.
Mussolini kom í einkalest sinni til fjórveldraráðstefnunnar,
en Hitler mætti honum á miðri leið, en fulltrúi hans, Hess, tók
á móti honum í Brennerskarði. Myndin er tekin er þeir liittust.
Mussolini og Hitler, og urðu þeir síðan samferða til Munchen.
Roosevelt forseti Bandaríkj-
anna hefir beitt sér mjög fyrir
því að bæta hag almennings þar
í landi, og hefir forsetinn full-
yrt það oft og einatt að þriðj-
ungur Bandaríkjaþegna væri
„illa klæddir, illa fæddir og illa
hýstir“.
Til þess að ráða bót á þessu
Iiefir nefnd verið skipuð til jæss
að rannsaka þessi mál, og hefir
liún beitt sér fyrir mjög ná-
kvæmri skýrslusöfnun þessu
viðvíkjandi og liefir lieildarnið-
urstaða nefndarinnar verið birt
fyrir nokkru.
Kemst nefndin að þeirri nið-
urstöðu að y3 þegnanna hafi
haft í tekjur á árunum 1935—
1936 kr. 2000.00 á ári. Helm-
ingur þjóðarinnar hefir haft
minni tekjur en kr. 4.600.00,
% lilutar þjóðarinnar minna en
Ofviflrifl.
Ofsaveður af suðlægri átt
gekk yfir mestan hluta landsins
i nótt og stóð langl fram á dag.
Stórhrim var af völdum veð-
ursins við suðurströnd landsins.
Þegar er vitað um nokkurt tjón
af völdum veðursins og brims-
ins, er því var samfara.
Grindavík: í nótt gerði af-
spyrnurok af suður-suðvestri
með stórbrimi og flóðliæð. Gekk
sjórinn sumstaðar langt upp á
tún og bar á þau sand. Sjórinn
náði og til nokkurra vélbáta,
sem stóðu efst í naustum, kast-
aði þeim til og skemdi meira og
minna.
kr. 6.400 og %0 lilutar hennar
minna en kr. 11.000.00.
Á liinn bóginn höfðu 2%
þjóðarinnar tekjur sem námu
kr. 22.000.00 eða meiru, en 1 °/o
hafði kr. 44.000.00 eða þar um-
fram í tekjur á ári.
Þær fjölskyldur eða einstakl-
ingar, sem liöfðu tekjur þar um-
fram voru sem hér segir:
Frá kr. Fjölsk.
220.000—440.000 .. 13.000
440.000—1.100.000 . . 4.000
1.100.000—2.200.000 .. 916
2.200.000—4,400.000 . . 240
yfir 4.400.000 .. 87
Þjóðartekjurnar í lieild svara
til kr. 6.600,00 fyrir hverja fjöl-
skyldu. „New York Times“ ræð-
ir nýlega þessi mál, og segir að
nauðsyri beri lil að draga úr
mestu tekjunum með háum
sköttum.
fréttaritari Visis að veður hafi
verið þar hið versta í gær, en
engu tjóni valdið að öðru leyti
en því, að trillubát sleit upp á
höfninni og rak hann upp á
Eiðið, og mun vera töluvert
brotinn. Við Eyjar var sjór ó-
venju úfinn í gær, enda er stór-
streymt og þá brimmeira við
Eyjarnar og súgur mikill í sund-
unum.
Bátar lágu allir við festar á
höfninni, en vindáttin var þann-
ig að ekki kom að sök.
Dómarapróf í
knattspyrnu.
Prétlaritari Visis á Eyrar-
* hakka skýrði blaðinu svo
frá í morgun, að nokkuru eftir
miðjan dag í gær hefði vindátt-
in breyst til balnaðar og dregið
úr sjó meðfram ströndinni,
þannig að tjón hefði orðið lítið
umfram það, sem getið var um
hér í blaðinu í gær.
Sjóvarnargarðar hafa skemst
mikið ög auslan við Hraunsá
héfir sjóvarnargarðurinn sópast
burtu á allstóru svæði. Veður
og sjó hefir nú Iægt að mestu.
Frá Vestmannaeyjum símar
Á sunnudaginn munu a. m.
k. sex menn ganga undir munn-
legt próf í að dæma knatt-
spyrnu. Prófdómarar verða þeir
Guðjón Einarsson, Guðmundur
Ólafsson og Jóhannes Berg-
steinsson.
Þeir, sem ganga undir prófið
á sunnudag, eru: Baldur Möller,
Brandur Brynjólfsson, Guð-
mundur Sigurðsson, Hrólfur
Benediktsson, Jón Magnússon
og Þráinn Sigurðsson.
Vilji fleiri ganga undir þetta
próf, ber þeim að gefa sig fram
við Guðjón Einarsson.