Vísir - 23.05.1939, Síða 2
VISIR
VfSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
(kl. 9—12 5377)
Ver9 kr. 2J>0 á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Fólagsprentsmiðjan h/f.
Verkefni
handa unga
fólkinu.
DINN af áhugasömustu skóla-
^ mönnum landsins, Vil-
hjálmur Þ. Gíslason, talaði í
gærkveidi í útvarpið „um dag-
inn pg Yúginn“. í eriiidi sfnu
drap hann meðal annars á mál,
sem foreldrum og öðrum for-
ráðamönnum unglinga er ofar-
lega í huga, ekki síst um þessar
mundir. Nú sténdur svo á, að
skólarnir eru ýmist að hætta
eða hættir. Hvað tekur þá við
öllum þeim hundruðum ung-
linga, sem i þá hafa gengið?
Hvernig á allur þessi hópur að
fá atvinnu yfir sumartímann?
Þessar spurningar eru mönn-
um áhyggjúefni. Og það er ekki
einungis fjárhagshiið málþins,
sem; áhyggjunum veldur. Vand-
inn er fyrst og fremst sá, að út-
vega unglingunum verkefni,
sem getur þroskað þá og búið
undir lífið, á sama hátt og sjálf
skólagangan. Og þess er þá einn-
ig að minnast, að fjöldi ung-
linga er svo settur, að hann á
þess ekki kost að stunda skóla-
nám að vetrinum og hefir þá
ekkert fast verkefni við að fást.
Þessir unglingar eru miklu ver
settir en námsfólkiðv
1 fyrra sumar var hér á ferð-
inni enskur maður. Hann rek-
ur smáverslun i borg sinni og
er nokkuð efnum búinn. Þessi
maður sagði: Eg á þrjá syni,
sem nú eru að komast upp. Að-
eins einn þéirra getur skapað
sér lifsframfæri yið verslun
mírla. Eg sé ekki fram á að eg
geti fengið neitt viðunandi starf
lieima fyrir handa hinum
tveimur. Þess vegna ætla eg að
láta þá fá það fé, sém eg get
látið af hendi rakna til þess að
þeir geti hafist handa einhvers-
staðar í nýlendum vorum.
í Bretlandi er orðið svo á-
skipað, að lítil verkefni eru
lianda unga fólkinu heima fyr-
ir. En Bretar eru svo settir að
þeir eiga lítt numin lönd út um
allan heim og þangað fara ár-
lega hópjar æskumanna til að
hrjóta sér braut.
Við íslendingar eigum engar
nýlendur. En við eigum lítt
numið land. Þessvegna ættum
við ekki að þurfa að hafa sams-
konar áhyggjur af framtíð
harna okkar, sem þær þjóðir,
er búa við slikt þröngbýli, að
allstaðar er maður fyrtir, þar
sem borið er niður. Ef rétt er
að farið, þarf ekki að skorta
verkefni í landi voru, heldur
hendur til að leysa verkefnin.
Við höfum ekki haft nægilega
opin augun fyrir því að hér
hagar alt öðruvisi til en í flest-
um löndum Norðurálfunnar.
Þeirra mesta mein er það, að
fólksfjöldinn er meiri en landið
ber. Okkar mein er fólksfæðin.
Atvinnuleysið liér á landi staf-
ar ekki síst af því, að við höf-
um verið altof ginkeyptir fyrir
skipulagi, sem niiðast við það
að enginn geti troðið öðrum
um tær. En ekki liitt að ýta sem
mest undir framtakið. —
Við höfum lagt höft á fram-
takið í stað þess að örfa
það. Hér er svo mikið landrými
og sjórými, að við þurfum ekki
að óttast að neinum sé troðið
um tær, þótt hafist sé handa.
Það er rétt að sá sem ekki
vill vinna á ekki heldur mat að
fá. En sá sem vill vinna á að
fá mat. Hér höfum við horft
upp á það árum saman, að
vinnufúsir menn hafa verið
dæmdir til iðjuleysis. En mað-
ur, sem vill vinna og fær það
ekki, telur til sakar á hendur
þjóðfélaginu. Á þennan hátt
hafa skilyrðin orðið til viðgangs
j>eim öfgastefnum, sem þjóðfé-
laginu stafar liætta af. íslensk
alþýða biður ekki um „leiki og
brauð“, hún biður um „vinnu
og brauð“. Sú krafa er réttmæt
í fylsta máta.
Hlutverk þeirrar stjórnar,
sem nú situr, er að leysa at-
vinnulífið úr læðingi. Það verð-
ur ekki gert í einu vetfangi. En
þó er þegar tekið að birta nokk-
uð yfir. Ef það þíutverk verð-
ur leyst, er þar með unnin bug-
ur á einhverri ömurlegustu
meinsemd íslensks þjóðlifs, at-
vinnuleysinu. Við íslendingar
eigum engar ónumdar nýlend-
ur lianda æskumönnum okkar.
Við þurfum heldur ekkert á
þeim að halda, af því að land-
námið blasir við lieima fyrir,
þegar horft er opnum augum.
Tveir Hafnfirð-
ingar hætt komn-
ir á sjó.
Á níunda tímanum í gær voru
tveir menn úr Hafnarfirði, þeir
Kristens Sigurðsson og Þórar-
inn Steindórsson, hætt komnir
á sjó. Þessir menn eru skipverj-
ar á vélbátnum Síldinni frá
Hafnarfirði. Skeði þetta með
eftirfarandi hætti.
Um kl. 73/2 í gærkvöldi lögðu
þeir Kristens og Þórarinn af
stað á litlum trillubát með nóta-
báta af Sildinni í eftirdragi og
var förinni heitið að óttarsstöð.
um í Hraunum, sem eru skamt
fyrir sunnan Straum. Átti að
gera við nótabátana á Óttars-
stöðum.
Þegar þeir voru komnir
skamt út á fjörðinn, hvesti
skyndilega af suðri, svo að þeir
sáu fram á að þeir myndi ekki
komast á áfangastað, þvi að bát-
ana tók að reka fyrir vindi og
sjó og gekk svo um stund.
Þegar menn í landi sáu hvað
verða vildi, brugðu þeir við og
mönnuðu stóran trillubát til að
fara þeim Kristens og Þórai’ni
til hjálpar. Eigandi þessa trillu-
báts er Gísli Gunnarsson, kaup-
maður. Dró sá bátur nótabát-
ana með aðstoð litla trillubáts-
ins og komust þeir heilu og
höldnu til Óttarsstaða.
Þar sem Hafnfirðingar voru
orðnir hræddir um afdrif bát-
anna, var hafnarbáturinn feng-
inn til að fara þeim til hjálp-
ar, en er hann kom á vettvang
voru þeir úr allri hættu og leið
vel.
Skipafregnir.
Gullfoss kom frá útlöndum rétt
eftir kl. i í dag. Goðafoss er á leið
til Hull frá Hamborg. Brúarfoss
er á leið til Kaupmannahafnar frá
Leith. Dettifoss er á AkureyrÍ. Lag-
arfoss kemur til Leith í dag. Sel-
foss er á leið til Rotterdam. Bro,
aukaskip Eimskipafélagsins, er í
Reykjavík.
ein miljón manna
verður ávalt reiðubúin
til herþjónustu.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Það hefir verið opinberlega tilkynt i Madrid, að
sjálfboðaliðasveitir Itala og Þjóðverja fari
nú að halda heim og er svo ráð fyrir gert, að
öllum heimflutningum verði lokið 1 þessum mánuði.
Þessi fregn er einnig birt í Rómaborg og er því gert
ráð fyrir, að ekki verði framar nein bið á þessu máli.
Hinir spænsku hershöfðingjar Francos lialda yfir-
mönnum ítala og Þjóðverja miklar veislur þessa dag-
ana og þakka þeim samstarfið. Hefir sambúð þeirra
aldrei verið betri en nú, er sjálfboðaliðamir snúa heim-
leiðis, því að Spánverjum hefir altaf gramist við
Franco fyrir það, hversu hann dró taum útlending-
anna. Er ekki laust við að Spánverjar sé fegnir að
iosna við ítalina og Þ jóðverjana, enda þóttþeirhafiver-
ið samherjar að undanfömu.
Jafnframt því sem ítalir og Þjóðverjar hverfa á brott, er
Franco að koma nýju skipulagi —. friðarskipulagi — á her
sinn. Hefir United Press fregnað frá heimildum, sem jafnan
hafa reynst haldgóðar, að friðartímaherinn verði 300 þús.
manna. Er nú unnið. að því að leysa upp þær herdeildir, sem
þá verða um fram. Þær samanstanda aðallega af mönnum úr
þeim héruðum, sem verst hafa. orðið úti af völdum stríðsins,
og þurfa því mest á vinnuafli að halda. Jafnframt eru Márar
og útlendingahersveitir sendar aftur til Marokko.
Auk þess hefir íþróttasambandi falangistafélagsskaparins
verið fyrirskipað að hafa æfingar með a. m. k. einni miijón
manna, sem bæta má í fasta herinn hvenær sem þörf krefur.
Eftir því ætti þá Spánn að geta haft 1.3 milj. manna undir
vopnum, jafnskjótt og stjórninni þar þykir þess þurfa.
United Press.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Undirskrift þýsk-ítalska bandalagsins fór fram í gær í ut-
anríkismálaráðuneytinu þýska með mikilli viðhöfn. Utanríkis-
málaráðherrarnir, von Ribbentrop og Ciano greifi skrifuðu
undir sáttmálann, í viðurvist Hitlers. Þýsk og ítölsk blöð skrifa
afar mikið um þennan mikla atburð og segja. að með honum
sé staðfest samvinna, pólitísk og hemaðarleg, 150 miljóna
manna. —
Sáttmálinn er stuttur og er
höfuðefni hans að skipuð verð-
ur fastánefnd undir stjórn og
eftifliti utanríkismálaráðherr-
ann^ ög er það hlutverk nefnd-
arinnar að vera á verði um
Íiágsmuni Þýskalantís og ítalíu
og ef hagsmunir ríkjanna eru
í hættu ráðfæra ríkisstjórnirnar
sig þegar í stað hver við aðra.
Ef árás er gerð á annað rílcið
skal hitt koma því til lijálpar
með öllum þeim meðulum, sem
það hefir yfir að ráða, pólitísk-
um og liernaðarlegum, í styrj-
öld, en hvorugt ríkið má semja
vopnahlé eða frið, án þess að
ráðgast við hitt. Pólitísk og
hernaðarleg samvinna verður
aukin eins og hægt er. Lýst er
yfir vináttu við ríkin, sem gerst
hafa aðilar að and-kommúnist-
iska sáttmálanmn, þ. e. Japan
Mansj úókóríkinu, Ungverjalandi
og Þýskalandi. Sáttmálinn gildir
í tíu ár.
Utanríkisráðherrar Þýska-
lands og Ítalíu létu í ljós í út-
varpsræðum eftir að undir-
skriftin fór fram, að með þess-
ari sáttmálagerð væri, eins og
von Ribbentrop orðaði það,
skjallega sönnuð pólitísk og
hernað'arleg samvinna, sem
raunverulega hefði verið orðin
að veruleika áður, en Ciano
gerði m. a. orð Mussolini að
sínum, að ekkert vandamál álf-
unnar -væri þess eðlis, að ekki
væri hægt að Ieysa það friðsam-
lega.
United Press.
J
Breskur hermaður forðav út-
vaicpsstöö frá eydileggingu,
I. R. A. enn að verki.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
I. R. A. — írski lýðveldisherinn — lætur altaf á sér bæra við
og við, en vegna þess, hversu strangar gætur eru hafðar á öll-
um mikilvægum stöðum, tekst nú oftar en áður áð koma í
veg fyrir hermdarverk af hans völdum. Þó ber mest á þessari
starfsemi I. R. A. í Liverpool og nágrenni, en þaðan eru mest-
ar samgöngur við Eire.
I morgun var þannig komið í veg fyrir að eyðilögð yrði út-
varpsstöð hjá hermannaskálum Seaforth hálendinga herdeild-
arinnar /Seaforth Highlanders) í Liverpool. Fanst þar vítisvél
með 20 „patrónum“ af gelignite-sprengiefni. Hermaðurinn,
sem fann sprengiefnið sýndi mikið snarræði og hugrekki, því
að enda þótt hann ætti það á hættu, að vítisvélin spríngi í
höndunum á honum og yrði honum að bana, eða limlesti hann,
þá tók hann hana upp, bar hana alllangan spöl og lét hana í
fötu, sem var full af vatni. Var hún þannig orðin hættulaus.
Útvarpsstöð, sú, sem hér átti að sprengja í loft upp, er mjög
mikilvæg fyrir siglingar á Merseyskipaskurðinum. Hefðu orðið
hinar mestu tafir á siglingum um skurðinn, ef tekist hefði að
eyðileggja stöðina.
United Press.
KANADAFÖRIN:
AtvinDnlans upp-
pjafa bermaðnr
bandtekinn.
Einkaskeyti tii Yísis.
London í morgun.
Frá Toronto er símað, að
þar bafi í gærkveldi verið
liandtekinn atvmnutaus upp.
gjafaliermaður, Ricliard
Healey, er liann reyndi að
fleygja bréfi inn í vagn kon-
ungslijónanna. Þau hjónin
voru þá á leið frá Woodbrue.
kappreiðabrautinni.
Við rannsókn á bréfinu
kom í ljós að það var til
Healey’s sjálfs. Hafði liann
fengið það fyrir tveim árum
frá bréfritara konungs. Hafði
Healey skrifað konungi þá,
kvartað við liann yfir slæmri
meðferð á sér og beðið kon-
ung lásjár.
Healey hefir auðsjáanlega
ekki verið ánægður með
svarið, því að með þessu ætl.
aði hann — sagði hann við
yfirheyrslu — að sýna kon-
ungi að hann væri óánægður
með þessi málalok.
United Press.
Árekstnr á landa-
mærnm Páilands.
Oslo 22. maí. FB.
Atburður, sem menn óttast
að hafi alvarlegar afleiðingar
hefir gerst við þorpið Kalthof
á landamærum friríkisins og
Danzig, þar sem bílstjóri nokk-
ur skaut til bana Danzigbúa að
nafni Gruber. Forseti senatsins
í Danzig hefir sent pólsku
stjórninni harðorð mótmæli, en
pólska stjórnin hefir einnig
sent senatinu livassorða ox-ð-
sendingu. Menn bíða áhyggju-
fullir vitneskju um hvað Þjóð-
verjar muni gera í málinu. —-
Atburður þessi minnir óhugn-
antega mikið á atburði þá, sem
gerðust áður en Þjóðverjar
sendu ber inn í Tékkóslóvakíu.
— NRP.
Leiðangursmanni bjargað.
Aftenposten birtir fregn um
það að ftugvélinni frá lijálpar-
leiðangursskipinu Veslikari hafi
tekist að bjarga franska greif-
anum Michael. — Veslikari gæti
verið komin aftur til Noregs
með sjúklinginn eftir fimm
daga. — NRP.
AMERÍSKIR SJÓLIÐAR
skipa heiðursvörð við komu Friðriks ríkiserfingja á Heimssýninguna í New York.