Vísir - 08.01.1940, Síða 1

Vísir - 08.01.1940, Síða 1
Ritst jóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. Sími: 4578. 'i Riotst jórnarskrifstof ur: iFélagsprentsmiðjan (3. hæð). •L 30. ár. Reykjavík, mánudaginn 8. janúar 1940. Afgreiðsla: HVERFISGÖTU 12. Sími: 3400. AUGLÝSINGASTJÓRI: Sími: 2834. 5. tbl. Rússar valda byssum sínum Finskir smáíiokkar gera stöðugt árásir á Murmanskbrautina. EINKASKEYTI frá United Press. — K.höfn í morgun. Webb Miiler, fréttaritari United Press á vígstöðv- unum í Finnlandi símar í morgun: Frosthörkurnar halda áfram á vígstöðvunum í Finnlandi og valda því, að engar stórorustur eru háð- ar. Kuldinn háir herliði Rússa mikið meira en finsku hermönnunum. Á Kirjálanesi er 45 stiga frost á Celsíus og rússnesku hermennirnir þjást svo af kulda, að þeir geta margir hverjir ekki beitt vopnum lengur. Fimtán manna flokkur finskur tók 75—100 Rússa til fanga á svæðinu milli víggirðinganna. Voru þeir illa haldnir. Það fer stöðugt í vöxt að rússneskir hermenn gerist liðhlaupar. Á Kyrjálanesi hafa Rússar haldið áfram fallbyssuskothríð á vígstöðvar Finna, sem hafa goldið þeim í sömu mynt. Aðstað- an á þessum vígstöðvum er óbreytt. Tilraunir Rússa til þess að sækja fram yfir ísi lögð vötn hafa aílar mishepnast. Fregnir hafa borist um, að Finnar hafi gert nýjar árásir á Murmanskbrautina á ýmsum stöðum og valdið skemdum á henni. Eru það smáflokkar, sem árásirnar gera. Samkvæmt seinustu fregnum hafa Finnar unnið stórsigur við Soumusalmi og tekið 15.000 fanga og mikið herfang, m. a. yfir 40 skriðdreka. Ðettifoss kom með fullfermi aö vestan, í seinustu ferð sinni frá Ame- ríku fékk Dettifoss á sig sjó, sem braut liurð í vélarrúmi og olli nokkurum skemdum öðr- um ofanþilja. Skipið hafði næstum full- fermi að vestan, mestmegnis timbur til fiskkassagerðar. Engir farþegar voru með sldpinu. Þau tvö skip, sem nú eru í förum milli New York og Reykjavíkur, balda þeim ferð- um áfram fyrst um sinn. STRANDVARNIR BRETLANDS. A ströndum Bretlands eru fallbyssustöðvar með stuttu millibili, einkanlega á suður- og austurströndinni. Það yrði enginn leikur að setja herlið á land, þar sem strandvarnirnar eru i eins góðu lagi og hér. Bretar smíða herskip fyrir Norðmenn. Fyrsti torpedo-mótorbátur- inn af níu, sen Norðmenn eru að láta smíða í Englandi, verð- ur afhentur um miðjan janúar, Upphaflega liafði verið ráðgert, að afhending hans færi fram 24. des., en smíðin tafðist vegna striðsins. Smíði liinna skipanna seinkar einnig. NRP. — FB. Rú§§ar niidir- Iuía §okn. Rússar ern nú að koma upp * tvöföldum gaddavírsgirðingum á Kyrjálanesi, fyrir framan skotgrafir sínar og bækistöðvar. Stórsókn er því ekki talin í vændum að sinni, en stöðugur liðflutningur fer fram til víg- stöðvanna og alt bendir til að Rússar undirbúi stórkostlega sókn, en hvort hún hefst áður langt líður eða snemma í vor er með öllu óvíst. NRP.—FB. Far§ottahætía af völdiaiii §tríð§in§. Diesen landlæknir í Oslo hef- ir komist svo að orði í viðtali, að heilsufar hafi verið gott í Noregi árið sem leið. Berkla- veikin er stöðugt í rénun og að- eins 400 ný tilfelli á árinu, en voru 470 1938. — Landlæknir- inn leggur álierslu á, að ein af- leiðing styrjaldarinnar kunni að verða útbreiðsla smitandi sjúkdóma og farsótta. NRP. — FB. Áiás rússnesks kaf- báts á sænskt skip. Rússar lofa aö atlxuga máliö. Kafbátur, se'm menn vita ekki með vissu hverrar Jijóðar er, réðist á sænska skipið Fenris í gær (laugardag) við Norre Kvarken. Skotið var á sldpið af fallbyssu kafbátsins, sem menn telja líklegt að sé rússneskur. Sænska sendisveitin í Moskva hefir fengið fyrirskipun um að krefjast upplýsinga frá Sovét- stjórninni. Rússar hafa lofað að athuga málið. NRP.—FB. Búlgarap og Balkan— bandalagið- K.höfn í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Mikilvægur árangur af viðræðum utauríkismála- ráðherra Ítalíu og Ung- verjalands. Frá Istanbul er símað, að rú- menski sendiherrann í Tyrk- | landi, Stojica, hafi lagl af stað frá Bukarest til Sofia, liöfuð- borgar Búlgaríu í gærkveldi, að þvi er ætlað er til þess að fá Búlgaríu til þess að taka þátt í fundi Balkanbandalagsins, og lil vara að sendur verði áheyrn- ar-fulltrúi. 30.000 - 50.000 manns hafa farist í Tyrklandi. 9 K.höfn í morgnn. Einkaskeyti frá United Press. Frá Tyrklandi berast stöð- j ugt fregnir um landskjálfta, feiknalegar úrkomur, vatna- vexti og kulda. Fólk ferst í tuga og jafnvel hundraðatali daglega. Það er nú giskað á, að a. m. k. 30.000 manns hafi farist í Tyrklandi síðan er landskjálftahörmungarnar dundu yfir og í kjölfar þeirra vatnavextir og flóð. Ýmsir giska á, að alt að því 50.000 manns hafi farist. Samkvæmt opinberum skýrslum er kunnugt um, að ! 118.732 menn hafa farist, að I 11.838 hús hafa gereyðilagst | j og að 93 þcrp hafa hrunið að 1 j kaila íil grunna. Deilumá! eríið úrlausnar, lögð til hliðar að ósk ítala. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Viðræður þeirra Ciano greifa, utanríkismálaráðherra Ítalíu og Czaky greifa, ungverska utanríkismálaráð- herrans, eru hvarvetna taldar hinar mikilvægustu. Við- ræðurnar fóru fram í Feneyjum á laugardag og í gær og er nú Ciano greifi kominn til Rómaborgar aftur, en Czaky greifi lagði þegar í gær, að afloknum seinasta fundinum, af stað heimleiðis. Hafði Czaky ætlað sér að dveljast á Ítalíu sér til hvíldar um skeið, en sló því á frest til þess að ræða árangurinn sem allra fyrst við samstarfsmenn sína í stjórninni. í hinni sameiginlegu yfirlýsingu, sem gefin var út að fundin- um loknum, segir lítið annað en að vinátta og samvinna llala og Ungverja hafi aldrei verið traustari böndurn bundin og að algert samkomulag hafi náðst á fundinum, en það er fullyrt eftir áreiðanlegum heimildum að Czaky félst á þá tillögu Ciano greifa, að Ungverjar frestuðu öllum kröfum um lönd á hendur nágrönnum sínum, einkanlega kröfunum á hendur Rúmenum um Transylvaníu, en Ungverjum hefir alla tíð sviðið að missa þennan landshluta, og hefir sambúð Ungverja og Rúmena af þessum sökum verið all-erfið. Stjórnmálamenn skilja svo ummæli Cúino er hann lofaði Ungverja fyrir göfugmannlega framkomu og einlægan ásetn- ing að viðhalda friðsamlegri sambúð við nágranna sína, að Czaky hafi í öllu fallist á, að slegið verði á frest kröfum um Transylvaníu. Italir hafa á hinn bóginn lofað Ungverjum að beita sér fyrir því, að sambúð þeirra og Balkanþjóðanna komist í betra horf, einkanlega sambúð Ungverja og Jugoslava. Einnig hefir Ciano greifi lofáð Ungverjum því, að koma þeim til aðstoðar, ef þeim yrði nokkur hætta búin af Rússum. Blöð í Rómaborg gera þessi mál að umtalsefni og er ljóst af þeim að þótt ítalir hirði ekki um að hafa nein afskifti af því sem fram fer innan landamæra sovétríkjanna, munu þeir ekki þola þeim að vinna aðí útbreiðslu kommúnisma á ítölskum „áhrifasvæðum“. ítalir hafa lýst yfir, að þeir telji Ungverjaland og Balkanskagann „áhrifasvæði“, þ. e. þeir láti sér ekki í léttu rúrni liggja hvað þar gerist og ætla að þeita þar áhrifum sínum með hagsmuni Italíu og hlutaðeig- anái íanda fyrir augum. I<Y« fllBldl ,.ÖÖÍMS4’ 1 g’Sl'B*. Fjölmennur fundur var í gær haldinn í málfundafélaginu Óðinn. Var ætlunin að ræða þar um afstöðu sjálfstæðisverka- manna til stjórnarkosninganna í verkamannafélaginu Dags- brún, sem hefjast 18. þ. m. En samkvæmt þeim upplýsingum sem form. félagsins, Sigurður Halldórsson, gaf á fundinum, er ekki afráðið enn hvort sjálfstæðisverkamenn leggja fram sér lista við þær kosningar, eða ganga til sameiginlegrar uppstill- ingar með þeim verkamönnum sem fylgja Alþýðuflokknum að málum. Kvað form. samninga þessara tveggja aðiía íangt á veg komna, en þó ekki svo að hægt væri að gefa neinar ákveðnar upplýsingr um þá að svo komnu máli, en kvað það hins veg- ar áreiðanlegt að búið yrði að taka fasta ákvörðun í þessu sam- bandi um miðja þessa viku, og þá yrði strax boðað til fundar aftur í félaginu og samningarnir lagðir þar undir úrskurð fundarmanna. Ólafur Tliors, atvinnumála- rá'ðherra, Iiélt langa og ítarlega ræðu um störf og framkvæmd- ir ríkistjórnarinnar og skýrði frá gangi þeirra mála á síðast- liðnu Alþingi, sem mest varða alþýðu manna, svo sem fá- tækralögin, kaupgjaldsmálið og hina rökstuddu dagskrá forsæt- isráðherra út af frumvarpi Bjarna Snæbjörnssonar. Þá flutti Bjarni Benediktsson prófessor mjög rökfasta og fróðlega ræðu um ástandið í verkalýðsmálunum og framtíð- arborfurnar í þeim. Var gerður mjög góður róm- ur að málum beggja ræðu- manna, og hafa ræður þeirra liaft mjög mikil áhrif á baráttu- lmg sjálfstæðisverkamanna, sem nú í þessum mánuði eiga enn einu sinni eftir að láta bæj- arbúa standa á öndinni af undr- un yfir hinu vaxandi fylgi Sjálfstæðisflokksins meðal reykvískra verkamanna. Kom það greinilega í ljós á fundinum, að sálfstæðisverka- menn munu ganga ósldftir lil stjórnarkosninganna í Dags- brún, bvort heldur þeir stilla upp sínum eigin lista eða í sam- ráði við Alþýðuflokkinn. En nauðsynlegt er að allir Óðins- menn mæti á þeim fundi, þar sem ákvörðun verður teltin um það. Á þessum fundi voru mættir um 200 verkamenn. Kaopdeila i Keflavik, sem Félagsdóm- up úpskupðar. —o— Óvenjumikil útgerð á Suðurnesjum. Alger Vinnustöðvun er nú í Keflavík, að því er útveginn snertir, og ber þar til að deila er komin upp millum verka- lýðs og sjómannafélagsins ann- arsvegar og útgerðarmanna hinsvegar. Samningum milli þessara félaga hefir þó ekki ver- ið sagt upp, en sjómenn krefj- ast hlutaskifta í stað kaups og premíu, eins og áður tíðkaðist, en að þeim kjörum þykjast út- vegsmenn ekki geta gengið. Sjómenn byggja þessa kröfu sina á ákvæðum gengislaganna, sem að þessu lúta, en sam-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.