Vísir


Vísir - 18.01.1940, Qupperneq 1

Vísir - 18.01.1940, Qupperneq 1
Ritst jóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. Sími: 4578. Riotstjórnarskrifstof ur: í'élagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. CZWSKrEF Annarsstaðar liggja bar- dagar niðri vegna kuld- anna. 48 st. frost i Viborg. EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun. rosthörkurnar í álfunni eru hinar mestu, sem menn muna, og það þarf í sumum löndum að fara þrjá aldarfjórðunga aftur í tímann, til þess að finna dæmi til eins mikilla kulda og nú, en í Noregi komst frostið upp í 48 stig á Celsius í gær, og eru ekki dæmi til meira frosts, að því er sagt er, í Ev- rópu. (Sbr. og annað skeyti). — í Finnlandi er og feikna frost og Webb Miller, fréttaritari United Press, símar frá Helsingfors, að í Viborg á Mannerheimlín- unni hafi frostið komist upp í 48 stig. HERMENN I HVlTUM SIHKIUUM. Á vetrum klæðast hermenn Finna hvítum klæðum eins og rjupan. Það eru ekki einvörðungu skiðamannahersveitirnar, sem eru livítklæddar. Hér sjást hermenn með byssu, sem ætluð er til þess að skjóta af á slcriðdreka. Hermennirnir hafa hvitar skikkjur og hvít ábreiða hefir verið lögð yfir fallbyssuna. Vélstjóri á Akureyri falsar tókk, tvo vixia og sparisjóösbók. Er í ^æsluvarðhaldi hér a ISiík. Þ. 12. þ. m. var handtekinn hér í bænum Þórður Jónsson frá Akureyri, sem kveðst vera vélstjóri að mentun. Hefir hann faisað einn tékk á Landsbankann, tvo víxla í útbú Útvegsbank- ans á Akureyri og sparisjóðsbók, einnig á útbú Útvegsbankans. Á Kyrjálanesi sem víðast hvar annarsstaðar liggja bar- dagar niðri vegna kuldanna. Á Kyrjálanesi var þó skotið af fallbyssunum við og við, til þess að „halda þeim heitum“, þVí að stórskotaliðið óttast skemdir á þeim af völdum frostsins, ef þær liggja óhreyfðar dægrum saman. FYRIR NORÐAN LADOGA- VATN ER ÞO ENN BARIST. Enn eru bardagar háðir fyr- ir norðan Ladogavatn. Þar hafa Finnar tvístrað rússneskri her- deild og tekið allmarga Rússa til fanga. Rússnesku hermenn irnir kvarta mjög um kulda og yfirleitt skortir mjög á, að að- búnaður þeirra sé í eins góðu lagi og hjá Finnum. ORUSTURNAR YIÐ SALLA. Rússar hafa ekki enn gefið upp alla von um að ryðja sér braut til Helsingjabotns. Fyrir nokkru bárust fregnir um að Menn liallast að þessum skoð - unum m. a. vegna þess, að alt bendir til þess, að áliti brCskra stjórnmálamanna, að Þjóðverj- um sé nauðugur einn kostur, að knýja fram úrslit eins fljótt og þeir geta. Ronald Cross, við- skiftastriðsmálaráðherra Rre'!- lands, gerði erfiðleika Þjóð- allstór rússneskur her væri kró- aður þama inni, og búist væri við, að Finnar myndi vinna þarna stórsigur, eins og þegar þeir sigruðu 163. og 44. rúss- nesku herfylkin, en að undan- förnu hefir verið hljótt um bar- daga á þessu svæði, og jafnVel talið, að mikið vafamál væri hvorir sigruðu. En sannleikur- inn virðist sá, að mjög hefir dregið úr bardögum þarna, vegna kuldanna, en meðan hafa Rússar fengið liðsafla. Hafa þeir því, þrátt fyrir frosthörk- urnar, freistað að gera ný á- hlaup, sennilega til bjargar nokkrum hluta liðs þeirra, sem er innikróaður. Sóttu þeir fram á þremur stöðum. Á einum staðnum varð þeim nokkuð á- gengt, en á hinum tveimur Voru þeir hraktir til baka og eru á undanhaldi. Hafa þeir skilið eftir mikið af hergögnum, en margt manna féll af liði þeirra. Rússar eru sagðir hafa þarna 40.000 manna lið. verja að umtalsefni í ítarlegri ræðu í neðri málstofunni i gær. Ivvað hann Bandamönnum hafa orðið svo vel ágengt í viðskifta- striðinu nú þegar, að á sviði við- skifla og framleiðslu væri Þjóð- verjar ekki beíur settir nú en þegar 2 ár voru liðin af Heims- Frh. á hls. 3. Páll ríkiseriingi miðl- ar máium í deilum Ungverja og Rúmena. Einkaskeyti frá United Press. London, í morgun. Itölsk blöð skýra fná því, að þeir hafi setið á leynilegri ráð- stefnu, Horthy ríkisstjórnandi í Ungverjalandi og Páll prins ríkisstjórnandi j Júgóslavíu. Á fundi þessum vann Páll prins að því að sættir gæti tekist milli Ungverja og Rúmena, út af kröfum hinna fyrrnefndu til Transylvaniu, vestasta hluta Rúmeníu, sem Rúmenar fengu að afstaðinni heimsstyrjöldinni, en Ungverjum hefir altaf sviðið það og vilja fá landið aftur. jHefir deilan uin þetta mál verið erfiðastur þrándur í götu fyrir hættri sambúð Ungverja og Rúmena. Þeim hluta rannsóknar máls- ins, sem farið getur fram hér syðra er nú lokið og fékk Vísir eftirfarandi upplýsingar hjá sakadómara í morgun: Þórður Jónsson komst yfir tékkávísun úr ávísanahefti, sem Björn Arnórsson á Akureyri átti. Ætlaði Þórður hingað suð- ur um nýárið en var peninga- lítill i meira lagi og tók þá það ráð að falsa tékkinn. Skrifaði liann á hann 300 kr. og falsaði síðan undir nafn Jakobs Frí- mannssonar, kaupfélagsstjóra á Akureyri, en skrifaði hinsvegar á ávísunina númerið á banka- hók Björns Arnórssonar. Gaf Þórður ávisunina út til sjálfs sín og sýndi þar með lítil hygg- indi. Síðan tók Þórður sér far með Bergenhus frá Akureyri 2. jan. s.l. Kom skipið við á Siglufirði, og fór Þórður þar i land og seldi tékkinn. Tékkinn var síðan sendur Iiingað til Reykjavíkur, og komst þá upp um svikin. Þórður hefir einnig játað, að hafa falsað tvo víxla, sem bann seldi í banka á Akureyri. Var annar víxillinn að upphæð 175 kr. og hinn 250 kr. Framkvæmdi hann þessar falsanir i byrjun desembermán- aðar og voru þær til komnar svo sem nú skal frá greint. — 45.000 BAKPOKAR HANDA FINSKUM HERMÖNNUM. 45.000 bakpolcar lianda finsku hermönnunum hafa safnast í Noregi og er búið að senda 42.000 til Finnlands. — Finsku liermennirnir eru ákaf- lega glaðir yfir þessum gjöf- um. — NRP—FB. Þórður hafði áður fengið tvö vixillán í hanka fyrir norðan og ætlaði að greiða víxlana upp á gjalddaga, en þegar til kom gat hann það ekki. Hann hafði þá ekki einurð á því, að segja á- hyrgðarmönnunum frá því, að hann gæti ekki staðið við þetta loforð. Tók hann þá það til hragðs, að falsa nöfn ábyrgðar- mannanna á framlengingar- víxla. Ábyrgðarmennirnir voru Jakob Frímannsson, sem áður getur, og faðir Þórðar. En Þórður virðist vera eyðslusamur allmjög, þvi að er hann kom hingað suður, varð hann fljótlega peningalaus. En hann hafði meðferðis spari- sjóðsbók, sem hann átti, frá út- búi Útvegsbankans á Akureyri. I þeirri bók hafði hann átt kr. 395.32 þ. 16. febr. 1938, en þann dag tók hann kr. 394.00 út úr bókinni. Innstæðan var því aðeins kr. 1.32, en þann 11. þ. m. falsaði Þórður hókina þannig, að í stað úttektar við 16. febr. 1938 skrif- aði hann innborgun og breytti niðurstöðutölum bókarinnar í samræmi við það. Var þá inn- stæða eftir því kr. 789.32. Fór Þórður síðan með bókina í iÚt- vegsbankann liér þ. 12. þ. m. og tók úr lienni kr. 400.00. Þessi fölsun komst þó ekki upp fyr en nokkru síðar, þegar tilynning um hana kom frá Ak- ureyri hingað suður. Þórður var svo liandtekinn þann 12. þ. m. Hafði liann þá verið duglegur við að eyða fénu, því að hann hafði þá að- eins í fórum sinum kr. 119.67. Þórður Jónsson er 21 árs að aldri, fæddur 26. okt. 1918. — Honum mun ekki liafa verið refsað áður, svo að mönnum sé kunnugt um það hér syðra. )>Ef Finnland hverfur af Evrópukoríinuu - - Andróður í Bandaríkjunum gegn stuðningi við Finna. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Fregn frá Washington í morgun hermir, að svo horfi, að áformin um hjálp Bandaríkjanna Finnum til handa, séu dauðadæmd, vegna deilna þeirra, sem ýmsir þing- menn hafa vakið um málið í þeim tilgangi að mata sinn pólitíska krók á því, að það sé hættulegt hlutleysi Bandaríkjanna að styðja Finnland. Eru það þingmenn úr miðvesturríkjunum svo kölluðu, sem hér eru að verki. Fyrir skemstu skrifaði Roosevelt forseti leiðtogum flokkanna á þingi bréf um hjálp Bandaríkjanna til Finnlands og lagði til, að veitt yrði ótakmörkuð hjálp Finnum til handa, til kaupa á landbúnaðar- og iðnaðarvörum, sem þeir þarfnast. Jesse Jones, forstöðumaður lánastarfsemi Bandaríkjanna, hefir rætt áformin um hjálp handa Finnlandi við bankamála- nefnd öldungadeildar þjóðþingsins, og skýrt málið fyrir henni, en margir nefndarmenn létu í ljós efa um, að tillögumar myndi nokkuru sinni koma til atkvæða, hvorki í öldungadeildinni eða fulltrúadeildinni. Það eru, sem fyrr var að vikið, einkanlega stjórnmála- menn úr landbúnaðarfylkjunum í „miðvestur-ríkjunum“, sem eru áhugalausir í málinu, eða réttara sagt vilja bregða fæti fyrir málið, af því að hlutleysi Bandaríkjanna sé í hættu, ef Finnum sé veitt slík aðstoð, sem lagt hefir verið til. Að því er United Press hefir fregnað hefir fyrrnefndur Jesse Jones tilkynt finska sendiherranum, að lán handa Finnlandi í hernaðarlegum tilgangi brjóti í bág við anda og bókstaf hlut- leysislaganna. Hinsvegar var það áður kunnugt, að Roosevelt og ráðunautar hans töldu, að auðið væri að hjálpa Finnum með því að veita þeim lán til kaupa á landbúnaðarafurðum o. fl., en þó ekki hergögnum. KALDAR KVEÐJUR. — BANDAMENN GETA HJÁLPAÐ. — ÞEÍR IIAFA MESTAN HAG AF AÐ FINNAR SIGRI. Það er sagt, segir ennfremur í símfregnum frá Washington, ’ að sú skoðun sé að verða ofan á hjá þingmönnum á sambands- þingi Bandaríkjanna, að „Bandamenn eigi mest á hættu ef Finnland hverfur af landabréfi Evrópu — þess vegna er rétt- ast að þeir hjálpi Finnum“. Áform itríðs§tjórnar- innar breskn. Mikil aukning skipasmiða og skot- færaframleidslu ákveöín. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Lúndúnablaðið News Chronicle skýrir frá því í morgun, að stríðsstjómin breska hafi mikil áform á prjónunum um aukn- ar framkvæmdir í vor, í því augnamiði, að hraða því, að sigur í styrjöldinni falli Bandamönnum í skaut hið fyrsta. Meðal annars er ráðgerð stórkostleg aukning á smíði flutningaskipa og skotfæraframleiðslan verður aukin gífurlega. Yfirleitt hall- ast menn nú að því, að brátt muni koma til hinna stórkostleg- ustu átaka í styrjöldinni, í seinasta lagi snemma í vor, en þar fyrir gera menn jafnframt ráð fyrir, að styrjöldin kunni að dragast á langinn.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.