Vísir - 20.01.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Rit itstjórnarskrifstof ur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÖRI:
Sími: 2834.
30. ár.
Reykjavík. laugardaginn 20. janúar 1940.
16. tbl.
Orustunni á.
vígstöðvnnia:
okið e
.®.
Undanh&ld Rússa heldur áfram.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS — Khöfn í mórgun.
Webb Miller, fréttaritari United Press á vígstöðv-
unum í Finnlandi, símar í morgun:
Horfurnar á Sallavígstöðvunum hafa að
undanf örnu verið þær, að Finnum mundi takast að króa
inni mikinn hluta hers þess, sem Rússar hafa sent á
þessar vígstöðvar, til þess að halda áfram sókninni til
Helsingjabotns, eftir að níunda rússneska hernum
hafði mistekist þetta og beðið hinn herfilegasta ósigur.
Það var til þess að komast hjá sömu örlögum, að hinn
nýi her Rússa á þessum slóðum hefir hörfað undan,
eins og eg sagði í fréttum mínum í gær, og sumstaðar
yfir 50 km., og þetta undanhald er í rauninni ósigur,
þótt ekki geti hann enn talist fullnaðarósigur. Undan-
haldið þýðir, að Rússar verða að gef ast upp við að sækja
fram til Helsingjabotns í bráð, og það er Finnum afar
mikils virði.
Rússar berjast nú í örvænt-
ingu, því að þeir óttast, að ör-
log; þeirra verði hin sömu og
fyrri herfylkja Rússa þarna. Á
vigstöðvum þessum er verið að
knýja fram úrslit, sem munu
hafa mikilvæg áhrif á allan
gang styrjaldarinnar eftir þetta.
Leggja Finnar hið mesta
kapp á að knýja fram úrslitin
og nota sér það eins og þeir geta,
að þeir eru landslagi betur
kunnir en Rússar og ráðast stöð-
ugt á þá á undanhaldinu, þegar
þeir síst eiga þess von. Sam-
gönguleiðir Rússa eru nú í stöð-
ugri hættu.
Á öðrum vígstöðvum er lítið
barist. Loftárásir hafa verið
gerðar í finskar borgir, en
manntjón var lítið. Kviknaði í
allmörgum húsum.
Það vekur mikla athygli,
hversu lítið Rússum verður á-
gengt í lofthernaði sínum á
finskar borgir undangengin
dægur, miðað. við það, hversu
mikinn flugvélaf jölda þeir nota
í þessum árásum. Finnar hafa
skotið niður a. m. k. 11 rúss-
neskar flugvélar undangengna 3
daga. Loftvarnir Helsingfors
eru að komast í stöðugt betra
borf og flugvélar Rússa hætta
sér ekki inn yfir borgina. Það er
alveg greinilegt, að Finnar eru
að ef last lof thernaðarlega, og að
það er farið að muna um þá
hjálp, sem þeim berst erlendis
frá, flugher þeirra og útbúnaði
*hans til eflingar. Sænskir flug-
menn eru nú farnir að berjast
með, finska hernum. NRP—FB.
Þýskt herlið
í Galiziu.
FRANCO HEFIR EKKI SENT
PÁFA ORÐSENDINGU VID-
VÍKJANDI KOMMUNISMAN-
UM.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Samkvæmt tilkynningu frá
utanrikismálaráðherra Spánar
segir í símfregn frá Madrid í
morgun, hefír Franco ekki sent
páfa neina orðsendingu viðvikj-
andi viðleitni háns til þess að
bindra það, að kommúnisminn
breiðist Út um álfuna.
Rússar gátu ekki annast her-
gagnaflutning þaðan til Þýska-
lands.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Frá Budapest er símað, að
ýmsar fregnir hafi borist um
að þýskt herlið sé komið til
þess hluta Póllands, sem Rúss-
ar hertóku. 1 Budapest er talið,
að herlið þetta hafi verið sent
þangað til þess að flytja heim
til Þýskalands þann hluta her-
gagnabirgða Póllands, sem var
í þessum hluta landsins, og
samkomulag hafði náðst um
við Rússa, að þeir ætti að fá.
Það er tekið fram, að orsök
þess að þýskt herlið hafi verið
sent þessara erinda til austur-
hluta Póllands, sé sú, að Rúss-
ar geti ekki annað flutningun-
um sjálfir eins og i upphafi var
til ætlast, því að flutningakerfi
þeirra er alt í megnasta ólagi.
Strangara eftirlit
með nauðsynjum
í Póllandi.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Fregnir frá Varsjá herma, að
komið hafi verið á strangara
eftirliti með matvælum og út-
hlutun þeirra í þeim hluta Pól-
lands, sem Þjóðverjar hafa á
valdi sinu. Þýsku yfirvöldin í
Póllandi taka ákvarðanir uíri
verðlag matvælanna.
---------------- ¦mmmmKmM%m0mmmm-----------------
PENINGAGJAFIR HANDA
FINNUM.
Mikið af gjöfum berst stöð-
ugt til finsku sendisveitarinnar
í Oslo. Seinustu daga 200.000
kr., þar af 100.000 kr. fra Fé-
lagi atvinnurekenda í pappírs-
iðnaðinum. — NRP—FB.
Friðarviðleitni
Rooseveits og
ans.
London i morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Hans heilagleiki páfinn hefir
sent Roosevelt forseta orðsend-
ingu og látið í Ijós ánægju sína
yfir viðleitni hans til þess að
vinna fyrir friðinn. Telur páfi
þetta sanna, að voldug öfl
beggja megin hafsins, í hinUm
gamla og nýja heimi, vilji vinna
í þágu friðarins og sameinuð
gæti þessi öfl orkað miklu, til
þess að uppræta ágengnina og
koma á varanlegum friði.
Páfi játar, að það sé gifurleg-
um erfiðleikum bundið, að
koma á friði, en vinir friðarins
megi ekki gefast upp, þeir verða
að láta sér skiljast, að þó að
lítil von sé um að takast megi
að koma á friði, sé það vegna
þess, að styrjaldaraðilar hafa
ekki breytt afstöðu sinni, en þar
fyrir verði að halda áfram að
gera alt, sem unt er, til þess að
friðurinn komist á sem fyrst.
Grár fyrir járnum -
30 PUND.
hermannanna,
Sumir þýsku
sem eru i
Harðasti
fremstu skotgröfunum bera
i svona brynplötur á brjostinu og
I
i aluminiumplötur á bakinu.
' Þessar „brynjur" vega 30 pund
og hermennirnir eru fluttir til
og f rá á vörubílum.
sinni U- S. A.
¦ látinn.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Frá Washington er símað, að
William E. Borah, öldunga-
deildarþingmaður fyrir Idaho-
fylki, hafi látist í gær. Fékk
hann heilablóðfall, eftir að hafa
hlotið byltu.
William Edgar Borah hafði
aðeins eina opinbera stöðu, —
hann var þingmaður frá því 15.
jan. 1907 — en varð einn af
þektustu mönnum Bandaríkj-
anna. Hann var harðvitugasti
einangrunarsinni Bandaríkj-
anna og þvi þektastur fyrir af-
skifti sín af utanríkismálum.
Borah fæddist 29. júni 1865
á bóndabæ nálægt borginni
Fairfield i Illinois-flyki. Árið
1889 útskrifaðist tíann úr laga-
skóla Kansasfylkis og settist að
í borginni Lyons í þvi fylki. Þar
var hann þó aðeins i eitt ár og
langaði þá helst til að verða
leikari. Þá lék hann t. d. i leik-
riti eftir Sbakespeare, en þess
er ekki getið, hvernig honum
hafi tekist.
Árið 1891 settist Borah að i
Boise, Ida., og bjó þar æ síðan.
Árið 1895 kvæntist tíann dóttur
fylkisstjórans, Mamie O'Conn-
ell. Hann bauð sig fyrst fram til
öldungadeildarinnar 1902, en
féll. Fékk hann 22 kjörmanna
atkv., en þurfti 26 til þess að
komast að. En 15. jan. 1907
sigraði hann og var síðan altaf
endurkosinn.
Þegar heimsstyrjöldinni var
lokið 1918 og Wilson forseti
vildi að Bandaríkin gengi i
Þjóðabandalagið, barðist Borah
gegn því og sigraði, og það er
einnig talið honum að þakka,
að demokratar mistu völdin
eftir ófriðinn. Það var Warren
G. Harding, sem Borah barðist
fyrir að yrði forseti og hann
kom þvi einnig til leiðar, að
Harding stefndi til afvopnunar-
ráðstefnu árið 1921.
Þegar Japanir réðust fyrst
inn í Mansjúríu var álit Borah
svo mikið, að hann fékk per-
sónuleg tilmæli um að sjá svo
um, að Mansjúria fengi hjálp,
en af þvi varð þó ekki. Þött
Borah hefði svoná mikil áhrif
á utanrikisstefnu þjóðar sinn-
ar, fór hann aldrei utan neiiia
einu sinni. Það var árið 1931,
er hann fór i Evrópuferð.
Eftirfarandi er talið lýsa
skapferli hans mjög vel. Árið
1925 samþykti öldunadeildin
að hækka laun meðlima sinna
úr 7500 d. upp i 10 þús. doll-
ara. En Borah, sem hafði verið
endurkosinn i 3. sinn árið áður,
taldi sig ekki geta tekið við
þessari launahækkun, því að
kjósendur hans hefði kosið
hann fyrir 7500 dollara á ári.
Hann endurgreiddi þvi altaf
þessa 2500 dollara, sem launa-
hækkunin nam og tók ekki við
henni fyrri en hann hafði verið
endurkosinn í 4. sinn árið 1930.
Sundhöllin
verður lokuÖ dagana 22'. til 28.
þ. m., vegna hreingerningar og hins
árlega eftirlits með vélum og tækj-
um. En í dag og á morgun ver'Öur
opið eins og venjulega, og munu
vafalaust margir baðgestir hagnýta
sér þaÖ sem best.
TEKINN TIL FANGA — EN ÁNÆGÐUR.
Myndin er af finskum yfirforingja, sem er að yfirheyra rúss-
neskan hermann, sem hefir verið tekinn til fanga. Rússneski
hermaðurinn er ánægður á svip og virðist ekki vera að harma
örlög sín. Kannske er það tilhugsunin um að reykja vindhng-
ana, sem Finnar hafa gefið honum, sem seiðir hið ánægjulega
bros fram á varir hans.
Tveir dómar:
3000 kr. sekt fyr-
ir leynivíxtsölu.
í gær var dæmdur Ólafur
Kjartan Ólafsson, Skólavörðu-
stíg 46, fyrir margitrekað brot
á áfengislögunum.
Ólafur var dæmdur í 3ja
mánaða fangelsi og 3000 króna
sekt. %
Bílstjóxi svlftor öku-
leyfi æíilangt.
1 gær kvað sakadómari upp
dóm í máli Jóns Jónssonar, bíl-
stjóra, sem ók á Jón Erlendsson
verkstjóra hjá Sláturfélagi Suð-
urlands, inni hjá Tungu, og
urðu þær afleiðingar af þessu
'slysi, að Jón Erlendsson lést
sama dag.
Bílstjórinn var dæmdur í 45
daga fangelsi og sviftur öku-
leyfi æfilangt.
arskólinn 35 ára, tók til starfa
um haustið 1905 og hefir á
þessum árum orðið einna lang-
fjöhnennasti framhaldsskóli
Jandsins. Hefir Nemendasam-
bandið ákyeðið að minnast
þessa afmælis á ýmsan hátt, m.
a. með þvi að halda allsherjar
nemendamót.
Sambandið hefir samið
spjaldskrá yfir nöfn allra, sem
hafa úrskrifast úr skólanum og
getur því hæglega náð til allra
gamalla nemenda og safnað
þeim til sameiginlegra átaka
um að halda hátíðlegt þetta af-
mæli skóla síns.
-n<ri4 ttfv^*-*-
Aðalfundur Nemenda-
sambands Verslunar-
skólans.
Nemendasamband Verslunar-
skóla Islands hélt aðalfuhd sinn
í gærkveldi í Oddfellowhúsinu.
Fundurinn var fjölsóttur og
voru þessir kosnir í stjórn sam-
bandsins: Konráð Gislason for-
seti, og var hann endurkosinn,
Guðmundur Ófeigsson, Adolf
Björnsson, Guðjón Einarsson
og Haraldur Leonharðsson. —
Endurskoðendur sambandsins
voru kosnir Engilbert Hafberg
og Bergþór Þorvaldsson, en rit-
nefndina sldpa þeir Árni Óla
blaðamaður, Hjálmar Blöndal
og Óskar Gíslason.
Á þessu ári verður Verslun-
Minkur að verki?
í fyrrakveld átti bóndinn í
Melshúsum, fyrir sunnan Hafn-
arfjörð 13 hæns. 1 gærmorgnn,
þegar hann kom út í hænsa-
stíuna, voru aðeins 7 þeirra lif-
andi.
Af hinum var ekkert sjáan-
legt nema fiðrið og blóð, sem
sletst hafði upp um alla veggi.
Taldi bóndinn strax, að hér
I hefði verið um mink að ræða,
I en hæsastían er i fjárhúsi, og
I að minkurinn myndi hafast við
! þar í f járhúsinu eða í hlöðunni,
' sem er áföst því. Verða gerðar
ráðstafanir til þess að ráða nið-
urlögum minksins hið fyrsta.
SKÍÐAFERÐIR.
Þótt lítið hafi snjóað að und-
anförnu er þó skíðafæri talið
gott í Bláfjöllum og Skálafelli.
Ármenningar f ara i skiðaf erð
i kvöld kl. 8 og í fyrramálið
kl. 9. —
K.R.-ingar fara einnig i tvær
ferðir, kl. 8 i kveld og kl. 9 i
fyrramálið. Farseðlar fást i
skrifstofu félagsins kl. 4—6 i
dag.