Vísir - 20.01.1940, Page 1
Ritst jóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Rii itstjórnarskrifstof ur:
UélagsprentsmiSjan (3. hæð).
30. ár.
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
16. tbl.
Orustunni á Salla
vígstöðvunum er
ekki lokid enn.
--®-
Undanhald Rússa heldur áfram.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS — Khöfn í mórgun.
Webb Miller, fréttaritari United Press á vígstöðv-
unum í Finnlandi, símar í morgun:
Horfurnar á Sallavígstöðvunum hafa að
undanförnu verið þær, að Finnum mundi takast að króa
inni mikinn hluta hers þess, sem Rússar hafa sent á
þessar vígstöðvar, til þess að halda áfram sókninni til
Helsingjabotns, eftir að níunda rússneska hernum
hafði mistekist þetta og beðið hinn herfilegasta ósigur.
Það var til þess að komast hjá sömu örlögum, að hinn
nýi her Rússa á þessum slóðum hefir hörfað undan,
eins og eg sagði í fréttum mínum í gær, og sumstaðar
yfir 50 km., og þetta undanhald er í rauninni ósigur,
þótt ekki geti hann enn talist fullnaðarósigur. Undan-
haldið þýðir, að Rússar verða að gefast upp við að sækja
fram til Helsingjabotns í bráð, og það er Finnum afar
mikils virði.
Rússar berjast nú í örvænt-
ingu, því að þeir óttast, að ör-
lög þéirra verði hin sömu og
fyrri herfylkja Rússa þarna. Á
vígstöðvum þessum er verið að
knýja fram úrslit, sem munu
hafa mikilvæg áhrif á allan
gang stjTjaldarinnar eftir þetta.
Leggja Finnar hið mesta
kapp á að knýja fram úrslitin
og nota sér það eins og þeir geta,
að þeir eru landslagi betur
kunnir en Rússar og ráðast stöð-
ugt á þá á undanhaldinu, þegar
þeir síst eiga þess von. Sam-
gönguleiðir Rússa eru nú í stöð-
ugri hættu.
Á öðrum vígstöðvum er lítið
barist. Loftárásir hafa verið
gerðar í finskar borgir, en
manntjón var lítið, Kviknaði í
allmörgum húsum.
Það vekur mikla athygli,
hversu lítið Rússum verður á-
gengt í lofthernaði sínum á
finskar borgir undangengin
dægur, miðað við það, hversu
mikinn flugvélafjölda þeir nota
í þessum árásum. Finnar hafa
skotið niður a. m. k. 11 rúss-
neskar flugvélar undangengna 3
daga. Loftvarnir Helsingfors
eru að komast í stöðugt betra
horf og flugvélar Rússa hætta
sér ekki inn yfir borgina. Það er
alveg greinilegt, að Finnar eru
að eflast lofthernaðarlega, og að
það er farið að muna um þá
hjálp, sem þeim berst erlendis
frá, flugher þeirra og útbúnaði
• hans til eflingar. Sænskir flug-
menn eru nú famir að berjast
með. finska hernum. NRP—FB.
FRANCO HEFIR EKKI SENT
PÁFA ORÐSENDINGU YIÐ-
YlKJANDI KOMMtNISMAN-
UM.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Samkvæmt tilkynningu frá
utanríkismálaráðherra Spánar
segir í símfregn frá Madrid í
morgun, hefir Franco ekki sent
páfa neina orðsendingu viðvikj-
andi viðleitni hans til þess að
hindra það, að kommúnisminn
hreiðist ut um álfuna.
Þýskt herlið
í Galiziu.
Rússar gátu ekki annast her-
gagnaflutning þaðan til Þýska-
lands.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Frá Budapest er símað, að
ýmsar fregnir liafi borist um
að þýskt herlið sé komið til
þess liluta Póllands, sem Rúss-
ar liertóku. í Budapest er talið,
að herlið þetta liafi verið sent
þangað til þess að flytja heim
til Þýskalands þann liluta her-
gagnabirgða Póllands, sem var
í þessum hluta landsins, og
samkomulag hafði náðst um
við Rússa, að þeir ætti að fá.
Það er tekið fram, að orsök
þess að þýskt herlið hafi verið
sent þessara erinda til austur-
hluta Póllands, sé sú, að Rúss-
ar geti ekki annað flutningun-
um sjálfir eins og i upphafi var
til ætlast, því að flutningakerfi
þeirra er alt í megnasta ólagi.
------— ■ -------------
Strangara eftirlit
með nauðsynjum
í Póllandi.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Fregnir frá Varsjá lierma, að
komið hafi verið á strangara .
eftirliti með matvælum og út-
hlutun þeirra i þeim hluta Pól-
lands, sem Þjóðverjar hafa á
valdi sínu. Þýsku yfirvöldin í
Póllandi taka ákvarðanir um
verðlag matvælanna.
-----—«mMrw—.—------
PENINGAGJAFIR HANDA
FINNUM.
Mikið af gjöfurn berst stöð- ■
ugt til finsku sendisveitarinnar |
í Oslo. Seinustu daga 200.000 ;
kr., þar af 100.000 kr. frá Fé- '
lagi atvinnurekenda í pappirs-
iðnaðinum. NRP—FB.
Friðarviðleitni
Roesevelts og
páfans.
London í morgun.
Einkaslceyli frá United Press.
Hans heilagleiki páfinn hefir
sent Roosevelt forseta orðsend-
ingu og látið í Ijós ánægju sína
yfir viðleitni hans til þess að
vinna fyrir friðinn. Telur páfi
þetta sanna, að voldug öfl
beggja megin hafsins, í liinum
gamla og nýja heimi, vilji vinna
í þágu friðarins og sameinuð
gæti þessi öfl orkað miklu, til
þess að uppræta ágengnina og
koma á varanlegum friði.
Páfi játar, að það sé gífurleg-
um erfiðleikum bundið, að
koma á friði, en vinir friðarins
megi ekki gefast upp, þeir verða
að láta sér skiljast, að þó að
lítil von sé um að takast megi
að koma á friði, sé það vegna
þess, að styrjaldaraðilar hafa
ekki breytt afstöðu sinni, en þar
fyrir verði að halda áfram að
gera alt, sem unt er, til þess að
friðurinn komist á sem fyrst.
Grár fyrir járnum - -
30 PUND. — Sumir þýsku
hermánnanna, sem eru í
fremstu skotgröfunum hera
svona brynplötur á brjostinu og
aluminiumplötur á hakinu.
Þessar „hrynjur“ vega 30 pund
og hermennimir eru fluttir til
og frá á vörubílum.
Harðasti
einangranar-
sinni U. S. JL
látinn.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Frá Washington er símað, að
William E. Borah, öldunga-
deildarþingmaður fyrir Idaho-
fylki, hafi látist í gær. Fékk
hann heilablóðfall, eftir að hafa
hlotið byltu.
William Edgar Borah hafði
aðeins eina opinbera stöðu, —
hann var þingmaður frá því 15.
jan. 1907 — en varð einn af
þektustu mönnum Bandaríkj-
anna. Hann var liarðvítugasti
einangrunarsinni Bandaríkj-
anna og því þektastur fyrir af-
skifti sín af utanríkismálum.
Borah fæddist 29. júní 1865
á bóndabæ nálægt borginni
Fairfield í Illinois-flyki. Árið
1889 útskrifaðist liann úr laga-
skóla Kansasfylkis og settist að
í horginni Lyons í því fylki. Þar
var liann þó aðeins í eitt ár og
la,ngaði þá helst til að verða
leikari. Þá lék hann t. d. í leik-
riti eftir Shakespeare, en þess
er ekki getið, hvemig honum
hafi tekist.
Árið 1891 settist Borah að í
Boise, Ida., og bjó þar æ síðan.
Árið 1895 kvæntist hann dóttur
fylkisstjórans, Mamie O’Conn-
ell. Hann bauð sig fyrst fram til
öldungadeildarinnar 1902, en
féll. Fékk hann 22 kjörmanna
atkv., en þurfti 26 til þess að
komast að. En 15. jan. 1907
sigraði hann og var síðan altaf
endurkosinn.
Þegar heimsstyrjöldinni var
lokið 1918 og Wilson forseti
vildi að Bandaríkin gengi í
Þjóðabandalagið, barðist Borah
gegn því og sigraði, og það er
einnig talið honum að þakka,
að demokratar mistu völdin
eftir ófriðinn. Það var Warren
G. Harding, sem Borah barðist
fyrir að yrði forseti og hann
kom því einnig til leiðar, að
Harding stefndi til afvopnunar-
ráðstefnu árið 1921.
Þegar Japanir réðust fyrst
inn í Mansjúríu var álit Borah
svo mikið, að hann fékk per-
sónuleg tilmæli um að sjá svo
um, að Mansjúría fengi hjálp,
en af því varð þó ekki. Þött
Borali hefði svona mikil áhrif
á utanrikisstefnu þjóðar sinn-
ar, fór liann aldrei utan nema
einu sinni. Það var árið 1931,
er liann fór í Evrópuferð.
Eftirfarandi er talið lýsa
skapferli hans mjög vel. Árið
1925 samþykti öldunadeildin
að hækka laun meðlima sinna
úr 7500 d. upp í 10 þús. doll-
ara. En Borali, sem liafði verið
endurkosinn í 3. sinn árið áður,
taldi sig eklri geta tekið við
þessari launahækkun, því að
kjósendur lians liefði kosið
hann fyrir 7500 dollara á ári.
Hann endurgreiddi þvi altaf
þessa 2500 dollara, sem launa-
hækkunin nam og tók ekki við
henni fyrri en hann liafði verið
endurkosinn í 4. sinn árið 1930.
Sundhöllin
verSur lokuÖ dagana 22. til 28.
þ. m., vegna hreingerningar og hins
árlega eftirlits með vélum og tækj-
um. En í dag og á morgun ver'ður
opið eins og venjulega, og munu
vafalaust margir baðgestir hagnýta
sér það sem best.
TEKINN TIL FANGA — EN ÁNÆGÐUR.
Myndin er af finskum yfirforingja, sem er að yfirlieyra rúss-
neskan hermann, sem hefir verið tekinn til fanga. Rússneski
hermaðurinn er ánægður á svip og virðist ekki vera að harma
örlög sín. Kannske er það tilhugsunin um að reykja vindling-
ana, sem Finnar liafa gefið honum, sem seiðir hið ánægjulega
bros fram á varir hans.
Tveir dómar:
3000 kr. sekt fyr-
ir leynivínsöiu.
I gær var dæmdur Ólafur
Kjartan Ólafsson, Skólavörðu-
stíg 46, fyrir margítrekað brot
á áfengislögunum.
Ólafur var dæmdur í 3ja
niánaða fangelsi og 3000 króna
sekt. »
Bíistfón svifíui: öku-
leyH æfilangt.
I gær kvað sakadómari upp
dóm í máli Jóns Jónssonar, bil-
stjóra, sem ók á Jón Erlendsson
verkstjóra hjá Sláturfélagi Suð-
urlands, inni lijá Tungu, og
urðu þær afleiðingar af þessu
slysi, að Jón Erle'ndsson lést
sama dag.
Bílstjórinn var dæmdur i 45
daga fangelsi og sviftur öku-
leyfi æfilangt.
Aðalfundur Nemenda-
sambands Verslunar-
skólans.
Nemendasamband Verslunar-
skóla Islands hélt aðalfund sinn
í gærkveldi í Oddfellowhúsinu.
Fundurinn var fjölsóttur og
voru þessir kosnir í stjórn sam-
bandsins: Konráð Gíslason for-
seti, og var hann endurkosinn,
Guðmundur Ófeigsson, Adolf
Björnsson, Guðjón Einarsson
og Haraldur Leonliarðsson. —
Endurskoðendur samhandsins
voru kosnir Engilbert Hafberg
og Bergþór Þorvaldsson, en rit-
nefndina skipa þeir Árni Óla
blaðamaður, Hjálmar Blöndal
og Óskar Gíslason.
Á þessu ári verður Verslun-
arskólinn 35 ára, tók til starfa
um haustið 1905 og hefir á
þessum árum orðið einna lang-
fjölmehnasti framhaldsskóli
landsins. Hefir Nemendasam-
bandið ákveðið að minnast
þessa afmælis á ýmsan hátt, m.
a. nieð því að halda allsherjar
nemendamót.
Sambandið hefir samið
spjaldskrá yfir nöfn allra, sem
hafa úrskrifast úr skólanum og
getur því hæglega náð til allra
gamalla nemenda og safnað
þeim til sameiginlegra átaka
um að lialda liátíðlegt þetta af-
mæli skóla síns.
-------
Minkuar að verki?
I fyrrakveld átti bóndinn í
Melshúsum, fyrir sunnan Hafn-
arfjörð 13 hæns. í gærmorgun,
þegar hann kom út í hænsa-
stíuna, voru aðeins 7 þeirra lif-
andi.
Af hinum var ekkert sjáan-
legt nema fiðrið og blóð, sem
sletst liafði upp um alla veggi.
Taldi bóndinn strax, að hér
hefði verið um mink að ræða,
en hæsastían er i fjárhúsi, og
að minkurinn myndi hafast við
þar í fjárhúsinu eða í hlöðunni,
sem er áföst því. Verða gerðar
ráðstafanir til þess að ráða nið-
urlögum minksins liið fyrsla.
SKÍÐAFERÐIR.
Þótt lítið hafi snjóað að und-
anförnu er þó skíðafæri talið
gott í Bláfjöllum og Skálafelli.
Ármenningar fara í skiðaferð
í kvöld kl. 8 og í fyrramálið
kl. 9. —
K.R.-ingar fara einnig í tvær
ferðir, kl. 8 í kveld og kl. 9 í
fyiTamálið. Farseðlar fást i
skrifstofu félagsins kl. 4—6 í
dag.