Vísir - 22.01.1940, Blaðsíða 1
Ritst jóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Ri: ítst jórnarskrifstof ur:
t'élagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
17. tbl.
*
Ogriirle g*»r loítárá§ir
á fm§tar borg^ir.
Finnar í þann veginn
að taka Markajarvi?
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS — Khöfn í morgun.
Það er nú talið alveg sannað mál, að Rússar noti
flugstöðvar þær, sem þeir fengu réttindi til að
hafa í Eistlandi, er þeir gerðu sáttmálann við
Eistlendinga s. 1. ár, til þess að senda þaðan flugvélar
til loftárása á finskar borgir.
Ferðamenn frá Eistlandi segja, að þetta sé opinbert
leyndarmál í Eistlandi. Loftárásirnar á finskar borg-
ir í fyrradag voru hinar ógurlegustu, einkanlega varð
mikið tjón í Ábæ (Turku).
Rússar leggja mikla áherslu
á, að eyðileggja Abæ, vegna
mikilla aðflutninga þangað. —
Hafa þeir gert um 30 loftárásir
á borgina, og er seinasta árásin
talin hafa verið hræðilegust
allra. — Vörpuðu þeir niður
sþrengikólum og íkveikju-
sprengjum í hundraðatali. —
Kviknaði í f jölda mörgum hús-
um og var ekki bóið að hindra
útbreiðslu eldsins í gær. M. a.
kom sprengikúla niður í fæð-
ingarspítala, og olli miklum
skemdum, en ekki er getið um
manntjón.
Sumstaðar sáust yfir 70 rúss-
neskar flugvélar í einum hóp.
Flugu Rússar tíðast mjög hátt
eða í alt að 16.000 feta hæð. Þó
kom það fyrir, að flugvélar
þeirra lækkuðu flugið, og gerð-
ar voru vélbyssuárásir á járn-
brautarlestir, og jafnvel þótt
merktar væri Rauða Krossin-
um. —
Finskir flugmenn hafa gert
loftárásir á flug- og flotastöðv-
ar Rússa, flotastöðina í Kron-
stadt og eina flugstöð Rússa í
Eistlandi. Um tjón er ekki
kunnugt.
FRÁ SALLA-
VÍGSTÖÐVUNUM.
Þaðan berast fregir .um, að
Rússar hafi byrjað ákafa stór-
skotahríð, en ekki er kunnugt
hvort þarna er um að ræða til-
raun til þess að verja her Rússa
á undanhaldinu, eða að hér er
hafin tilraun til gagnsóknar.
Tilgangurinn með loftárás-
inni var sá, að því er fullyrt er
talið, að eyðileggja járnbraut-
arsamgöngurnar um þessa borg
milli Svíþjóðar og Finnlands.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Winston Churchill, flotamála-.
ráðherra Bretlands, flutti ræðu
í fyrradag, sem hefir vakið fá-
dæma athygli, ekki síst í hlut-
Iausu löndunum. — 1 ræðunni
rakti Churchill gang styrjald-
arinnar að nokkuru og var ræða
hans, eins og vænta mátti,
þrungin hvatningu til Banda-
manna um að stefna ótrauðir í
átt til fullnaðarsigurs, sem
vissulega myndi falla þeim í
skaut, þrátt fyrir það að vænta
megi að til hinna stórkostleg-
ustu átaka og erfiðleika muni
koma. En það voru aðallega
ummæli hans um hlutlausu
þjóðirnar, sem um er deilt. —
Hann ræddi hótanir Þjóðverja
í garð hlutlausra þjóða og erf-
HRÍÐARVEÐUR OG KULD-
AR JHALDA ÁFRAM 1
BALKANRÍKJUNUM.
Fólksflutningabifreiða með
100 manns saknað.
•
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Hríðarveður eru nú mikil
á Balkanskaga og kuldar eru
miklir hvarvetna á megin-
landinu.
I fregn frá Belgrad segir
að ofviðri mikið með mikilli
snjókomu liafi gengið yfir
Jugoslaviu, og valdið miklu
tjóni á samgönguleiðum, hús-
um og öðrum mannvirkjum.
Fjöldi staða hefir algerlega
einangrast í hili.
Tveggja fólksflutninga-
bifreið með um 100 manns
er saknað og óttast menn, að
stórslys hafi orðið.
iða aðstöðu þeirra, sem eru ná-
grannar Þýskalands, og spáði
enn meiri erfiðleikum fyrir
þær. Varpaði hann svo fram
þeirri spurningu hvað gerast
mundi, ef hlutlausu þjóðirnar
gengi í lið með Bandamönnum
í baráttunni gegn ofbeldi og á-
gengni.
I Bretlandi og Frakklandi
hefir ræðu Churchills verið vel
tekið, en mjög fálega í hlutlausu
löndunum, sem telja óheppilegt,
að Churchill skyldi fara út á
þessa braut í ræðu sinni, en
þýsk blöð líta svo á, að Chur-
chill hafi með ummælum sín-
um um hlutlausu þjóðirnar Ver-
ið að gera tilraun til þess að fá
þær í lið með Bandamönnum.
Nýja Bíó
sýnir á niorgun hina ágætu kvik-
mynd „Stanley og Livingstone“ til
ágóða fyrir Mæðrastyrksnefndina.
Gefst • þeim, sem ekki hafa séð
myndina, þarna ágætt tækifæri til
þess að sjá hana og styrkja Mæðra-
styrksnefndina um leið.
FINNAR NÁLGAST
MARKAJARVI.
Herlína Finna er nú í hálf-
hring um borgina Markajárvi
og hefir orustusvæðið færst
miklu nær landamærum Rúss-
lands eða alls um yfir 60 kíló-
metra frá því er undanhald
Rússa byrjaði.
BARDAGARNIR Á
KYRJÁLANESI.
Webb Miller, fréttaritari Uni-
ted Press á vígstöðvunum í
Finnlandi, símar frá Helsing-
fors í morgun, að stórskota-
hríð Rússa á Taipale-vígstöðv-
unum bendi til, að Rússar ætli
nú að reyna að komast fyrir
endann á Mannerheimvíggirð-
ingunum þar sem árásir á þær
um miðbik þeirra hafi algerlega
mishepnast.
LOFTÁRÁSÁ ULEÁBORG.
í GÆR.
í gær voru tvívegis gerðar
loftárásir á Uleáborg. Kviknaði
í f jölda húsa og manntjón varð
talsvert.
950 manns bjargað af
ítölsku farþegaskipi,
sem stóð í Ijósum loga.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Sú fregn barst frá Toulouse í Frakklandi í gær, að kviknað
hefði í ítalska skipinu Orazio, á Miðjarðarhafi. Á skipinu voru
600 farþegar og 350 manna áhöfn og var ekki kunnugt, er
fregnin var send, hvort nokkurum, er á því voru hefði verið
bjargað. Hitt var vitað, að tvö frakknesk herskip voru á Ieið á
vettvang og eitt ítalskt skip.
1 morgun snemma barst fregn um, að frönsku herskipin
hefði bjargað 250 manns, og voru þá önnur skip; komin á vett-
vang til aðstoðar við björgunina.
í seinustu fregnum hermir, að skipstjórinn hafi tilkynt, að
farþegar og skipshöfn hefði yfirgefið hið brennandi skip, og
hefði öllum sem á því voru, verið bjargað.
Um sama leyti barst fregn um, að fleiri herskip væri komin
á vettvang.
Van Zeeland, fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu, var meðal
farþega skipsins, sem var á leið til Suður-Ameríku.
Skipið er talið gereyðilagt.
Hin nýja stjórn Dagsbrúnar
tók við störfum í gær.
■--•--
Sásrabætur Héðins er hann veltur út úr
verkalýðsbaráttunni.
U* rslitin í stjórnarkosningunni í Dagsbrún voru gerð kunn á aðalfundi félagsins
í gær, sem hófst kl. 1 e. h. í Gamla-Bíó. Fóru svo leikar að Héðinn Valdimars-
son og stjórn hans féll með allmiklum atkvæðamun. A-listinn fékk 636 at-
kvæði, en B-listinn 729 atkvæði, og með því að hlutfallskosning er ekki í félaginu hlutu
allir frambjóðendur B-listans kosningu, og er þá stjórnin þannig skipuð: Einar Björns-
son formaður (A), Sigurður Halldórsson varaformaður (S.), Gísli Guðnason ritari
(S.) Torfi Þorbjörnsson gjaldkeri (A), Sveinn Jónsson fjármálaritari (S.)
í trúnaðarráð var einnig kosið og hlaut B-listinn 717 atkv., en A-listinn 622 atkv.
(Úrslil þessi ber fyrst og
fremst að þakka liinu ágæta
starfi málfundafélagsins Óðins,
er hóf starfsemi sina fyrir tæp-
um tveim árum, én innritaðir ;
félagar eru þar nú rösklega 400.
Hefir Óðni stöðugt aukist fylgi,
og félagið hefir ótrauðlega bar-
ist fyrir því, að allir verka-
menn yrðu jafn réttháir innan
verlcalýðssamtakanna og mark-
ar því úrslit kosninganna einn-
ig ákveðna stefnubreytingu að
þessu leyti, og má vænta frekari
skilnings frá hendi Alþýðu-
sambandsins liér eftir, en hing-
að til hefir verið þar rikjandi.
Hvefnig sem á þetta mál ér lit-
ið, er hér um stórvægilegan
málefnasigur að ræða, og þótt
atkvæðamunur reyndist ekki
meiri liggja til þéss fyrst og
Gaíencu væntanlegur
til Rómaborgar.
Einkaskeyti frá United Press.
K.höfn í morgun.
Fregnir frá Rómaborg herma,
að Gafencu, utanríkismálaráð-
herra Rúmeniu, sé væntanlegur
til Rómaborgar, til þess að ræða
við Ciano greifa, utanríkismála-
ráðherra Ítalíu.
GafencU hefir nýlega rætt við
Marköwitz, utanríkismálaráð-
herra Jugoslaviu.
Yfirleitt fara nú fram miklár
viðræður stjórnmiálamanna
Italíu, Ungverjalands og Balk-
anlandanna, en fúndur Balkan-
ríkjanna byrjar 2. febrúar, svo
sem áður hefir verið getið.
fremst þær orsakir, að komm-
únistar hafa bylt sér i völdun-
um innan Dagsbrúnar, og gert
margþættar ráðstafanir til þess
að tryggja sigur sinn við þessar
kösningar. Hafa þeir að þessu
sinni tjaldað öllu því sem til
var, og er nú veldi þeirra alger-
lega brotið á bak aftur.
Á aðalfundi Dagsbrúnar í
gær tók hin nýja stjórn við
störfum, er reikningar félagsins
höfðu verið lesnir upp og frá-
farandi félagsstjórn hafði gefið
skýrslu sína.
Tala félagsmanna er nú 2200,
en innheimst hefir í gjöldum á
árinu kr. 22.000,00, en ársgjald-
ið fyrir hvern félaga er kr.
16,00. í inntökugjöklum hafa
innheimst kr. 1105,00, en gjald-
ið er kr. 5,00. Allar tekjur fé-
lagsins á árinu hafa numið kr.
27.847.69.
Útgjöldin á árinu hafa hins-
vegar verið: Skattar til lands-
sambands íslenskra stéttarfé-
laga kr. 4641,00, launagreiðslur
skrifstofumanns kr. 4200,00 og
til aðstoðarmanns kr. 3300,00,
en auk þess hafa verið greidd-
ar ýmsar smáupphæðir til
kommúnista fyrir einhverja í-
hlaupavinnu.
Halli á árinu liefir numið kr.
2902,00, en í sjóði samkv. efna-
hagsreikningi félagsins eru kr.
253.23.
Umræður urðu engar um
reikningana og voru þeir sam-
þyktir með 20—30 atkv.
Eftirfarandi tillögur komu
fram á fundinum: „Aðalfund-
ur Yerkamannafélagsins Dags-
brún felur félagsstjórn að bera
fram fyrir ríkisstjórnina þá á-
skorun frá félaginu, að gengis-
Iögunum verði breytt á næsta
alþingi, þannig að kaupgjald
verkamanna liækki að fullu
samkvæmt aukningu dýrtíðar-
innar mánaðarlega, og að út-
reikningur á framfærslukostn-
aði verði talinn eftir raunveru-
legum búreikningum Dags-
brúnarmanna með miðlungs
tekjum. Felur aðalfundur fé-
lagsstjórn að skýra frá árangri
i þessum málum á félagsfundi
innan eins mánaðar og leggja
tillögur sinar þar að lútandi
fyrir félagið á þeim fundi.“
Tillögu þessa flutti Héðinn
Valdimarsson, og má furðulegt
hedta, að hann skuli ekkert hafa
í þessum málum gert meðan
hann var sjálfur fomaður
Dagsbrúnar.
Þá kom fram óundirrituð til-
laga um það að gera Héðinn að
heiðursmeðlim félagsins, með
því að liann liefir verið formað-
ur þess í 14 ár. Heiðursfélagar
eru engir aðrir en þeir, sem út-
slitnir eru orðnir, en hafa starf-
að vel fyrir félagið meðan þeir
voru og hétu, og hefir þvi þótt
sanngjarnt að sleppa þeim við
félagsgjöld, þar eð þeir væru
ekki aflögufærir. Tóku menn
þetta svo að fylgismenn Héðins
væru með þessu að gefa honum
vottorð um að starf hans i fé-
laginu tilheyrði nú aðeins for-
tíðinni og vildu þvi gera á hon-
um gustukaverk. Var tillaga
þessi samþykt með nokkrum
meirihluta atkv., en allur fjöldi
fundarmanna sat hjá við at-
kvæðagreiðslu.
Fleira gerðist ekki og var
fundi slitið um kl. 3 síðd.