Vísir - 27.01.1940, Síða 1

Vísir - 27.01.1940, Síða 1
Ritstjóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. Sími: 4578. Ri itstjórnarskrifstofur: Uélagsprentsmiojan (3. hæð). Afgreiðsla: HVERFISGÖTU 12. Sími: 3400. AUGLÝSINGASTJÓRI: Sími: 2834. 30. ár. Reykjavík, laugardaginn 27. janúar 1940. 22. tbl. Rú§§ar g:efa§t npp á isókitiimi fyrir norð- an Ladog:aratnið. Voroshilov á leið til vígstöðvanna. EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun. Webb Miller, fréttaritari United Press, símar í morgun frá Helsingfors, að svo mjög hafi dregið úr áhlaupum Rússa fyrir norðan La- dogavatn, að fullyrða megi, að sókn þeirra hafi mistek- ist, og að þeir verði að hætta frekari tilraunum til þess að komast að Mannerheimvíggirðingunum að norðan- verðu frá, að minsta kosti í bili. Manntjón Rússa, falln- ir og særðir, er talið vera að minsta kosti 20.000 á þess- um vígstöðvum undangengna 5—6 daga, þar af um 1/4 fallnir eða upp undir 5000 menn. í gær var dimmviðri á vígstöðvunum og bætti það aðstöðu Finna. Fregnir hafa borist um, að Voroshilov, yfirmaður rauða hersins, sé í þann veginn að koma til vígstöðv- anna í Finnlandi í eftirlitsferð. ÞEKKING RÚSSNESKRA FANGA Á LÁGU STIGI. Finska útvarpið hefir byrjað nokkurskonar spurningakepni meðal rússneskra fanga og er spurningum og svörum útvarp- að. Spurt er um ýmislegt, sem flest barnaskólabörn geta svar- að, en rússnesku fangarnir hafa staðið sig illa, og kemur fram hjá þeim alveg furðuleg van- þekking í sögu, landafræði o. s. frv. og ekki verður heldur séð, að þeir hafi mikil kynni af því, sem er að gerast í heiminum nú. Margir fanganna, sem spurn- ingum svöruðu höfðu aldrei heyrt Roosevelt Bandaríkjafor- seta nefndan á nafn og sumir höfðu aldrei heyrt getið um Napoleon mikla eða Nikulás Rússakeisara og fjölskyldu hans. Flestir könniiðust þó við von Ribbentrop. Einn hélt, að Tyrkland væri Eystrasaltsríki. Þeir, sem best stóðu sig, fengu vindil í verðlaun. NÝ FJÁRSÖFNUN HANDA FINNUM. Norræna félagið hefir hafið nýja fjársöfnun handa Finn- landi og safnaðist á fyrsta degi 100.000 kr. - NRP. Bardagar eru stöðugt harðir fyrir norðan Ladogavatn, en til þessa hefir öllum áhlaupum Rússa verið hrundið. Það er vafalaust, að Rússar hafa teflt þarna fram úrvalsliði sínu, en þeir hafa beðið mikið mann- tjón og mikið af hergögiium liefir fallið í hendur Finna. — Á Petsamovigstöðvunum hefir tveimur áhlaupum verið hrund- ið. - NRP. BRESKU HERGÖGNIN KOM- IN TIL FINNLANDS. Breska verkalýðsnefndin, sem dvelst í Finnlandi, lætur í ljós mikla aðdáun á vörn Finna. Formaður nefndarinnar, Sir Walter Citrine, hefir upplýfct, að Finnum sé farin að berast mikil hjálp frá Bretlandi,- NRP. Japanir vilja efla viðskifti sín á Balkanskaga. K.höfn í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Frá Budapest er símað, að sendiherrar Japana í París, Rómaborg, Berlín, Ankara, Bern, Bukarest og Sofia séu komnir til Budapest, til þess að ræða Evrópumál. Það er talið, að Japanir hafi mikinn áhuga fyrir að auka við- skifti sín í suðausturhluta álf- unnar og í Balkanskagalöndum. Yfirleitt horfir svo fyrir Jap- önum, að róðurinn verði þeim þungur á viðskiftasviðinu. Við- skiftasamningur Japana og Bandaríkjamanna er nú geng- inn úr gildi og ekkert hefir þok- ast í áttina til samkomulags um nýjan viðskiftasamning þeirra milli, en markaður sá, sem Jap- anir höfðu í Bandaríkjunum er þéim afar mikils virði, og 'vafa- mál, að þeir geti bætt sér miss- inn upp annarsstaðar. Sænska skipið Patria rakst á tundurdufl nýlega á leið frá Rotterdam til Gautaborgar. 18 manna af skipshöfninni er saknað. - NRP. 14-000 smálesta amerískt skip strandar. Japanskt skip bjargar áböfninni. London 1 morgun. Einkaskeyti frá United Press. Freg-n frá Kagoshima í Japan hermir, að ameríska farþega- skipið „President Quezon“, 14.187 smálestir, hafi strandað við Bonini-eyju, 700 mílur suð- ur af Tokio. Fjögur japönsk skip komu á vettvang og björguðu öllum far- þegum og skipverjum. DYRTlÐARUPPBOT 1 NOREGI. Báðir aðilar hafa fallist á til- lögur sáttasemjara rikisins um dýrtiðaruppbót á kaup. Tillag- an hljóðar Um 7% hækkun og nær hún til um 120.000 manns. Af hækkuninni leiðir aukaút- gjöld fyrir iðnaðar- og önnur atvinnufyrirtæki, sem nemur 22% milj. lcr. — Einnig var fall- ist á tilboð ríkisins um skipu- lag á uppbót lianda starfsmönn- um hins opinbera. Það var til- skilið af hálfu stjórnarinnar, að Stórþingið féllist á tilhögun- ina. Af tillögunum leiðir aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, er nema 6.8 milj. kr. iá yfirstandandi fjárliagsári og 18.9 milj. kr. á öllu næsta fjárhagsári. - NRP. Þýskur kaf- bátur sökkv- ir skipi. London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Frá Dublin er símað, að skip- verjar af sænka skipinu Sonja hafi skýrt frá því, að þýskur kafbátur hafi sökt því með tundurskeyti. Skipstjórinn á Sonju neitaði að verða við þeirri kröfu kafbátsforingjans, að skrifa undir skjal þess efnis, að í skipinu væri ófriðarbannvara, sem ætti að fara til Englands. Skipstjóri neitaði og var þá Sonju sökt með tundurskeyti. Skipið var á leið frá New York til Rotterdam með gúmmí og baðmullarfarm. Á Sonju voru 24 menn og voru þeir settir á land í hafnar- borg á suðvesturströnd Eire í gap\ BRESKIR OG FRANSKIR HERMENN VERÐA KOMN- IR TIL FINSKU VÍGSTÖÐV- ANNA FYRIR VORIÐ. London á hádegi í dag. Einkask. frá United Press. Að því er United Press hef- r fregnað frá áreiðanlegum heimildum, eru allar líkur til að breskir hermenn verði farnir að berjast hlið við hlið Finnum á vígstöðvunum í Finnlandi undir vorið, enda þótt breskir stjórnarembætt- ísmenn vilji ekki láta hafa neitt eftir sér um þetta. Það er ennfremúr talið líklegt, að franskir hermenn verði send- lr til finsku vígstöðvanna næstu vikur. Enda þótt hér verði um sjálfboðaliða að ræða, verða eingöngu æfðir hermenn sendir til Finnlands. Dagsbrúa segir sig úr Landssambandi islenskra stéttaíélaga. Brottrekstur alþýðuflokksmanna úr íélaginu ómerktur. Fyrsti fundur hins nýkjörna trúnaðarráðs Dagsbrúnar var haldinn í Alþýðuhúsinu kL 8% í gærkveldi. Mættir voru 89 manns af þeim 100 sem kosnir voru. II tanr íkisverÉi. Landráð kommúnista. Skákþingið: 3ja umferð í Meistaraflokki í gær fór fram 3. umferð í Meistaraflokki, en í 1. flokki voru tefldar biðskákir. I meistaraflokki fóru svo leikar: Sturla og Áki gerðu jafntefli, Ilafsteinn vann Bene- dikt, Sæmundur og Ásiiiundur gerðu jafntefli, Gilfer vann Hermann, Hannes og Guð- mundur biðskák. 1 meistaraflokki er Hafsteinn hæstur. Hefir hann 2% vinn. Biðskákirnar í fyrsta flokki fóru svo: Sigurður Gissurarson og Magnús Jónasson gerðu jafntefli,, Magnús J. og Kristján Sylveríusson jafntefli og Pétur Guðmundsson vann Ragnar Pálsson. Sjálfstæðisfélagið Skjöldur í Stykkishólmi á io ára afmæli í dag og verður þess minst með fjölmennu samsæti þar á staðnum í kvöld. í Skildi eru nú 120 félag- ar og félagslíf með miklum blóma. — Formaður félagsins er Kristján Bjartmarz hreppsnefndaroddviti. Kommúnistar hafa að und- anförnu reynt að gera samn- í ingaumleitanir Islendinga við j bresku ríkisstjómina tortryggi- j legar í augum almennings og ( hafa þeir fullyrt, að samningar | séu þegar gerðir við Breta, sem gangi landráðum næst. Ummæli þessi hafa þeir bygt á því að hernaðarviðskifta ráðherrann breski hafi lýst yfir því í þing- ræðu, að samningar væru gerð- ir milli Islands og Bretlands, og einnig Bretlands og Belgíu. Samkvæmt upplýsingum, er Vísir hefir aflað sér eru um- mæli breska ráðherrans mjög úr lagi færð. Mun hann aðeins hafa getið þess að viðræðum um samninga við ísland væri lokið, en liitt er alrangt, að hann hafi sagt að samningar liafi ver- ið gerðir. Um samningana við Belgíu er aftur það að segja, að viðræður um þá lialda enn áfram, og sýnir þetta að um- mæli ráðherrans hafa mjög ver- i ið úr lagi færð. Það skal tekið fram, að Vísir hefir ennfremur aflað sér upp- ■ lýsinga um það, að það hefir , orðið að ráði að ednstaklingar átvinnu- og viðskiftalífsins stofnuðu i eigin þágu með sér félagsskap og tilnefndu fulltrúa af sinni liálfu í viðskiftanefnd, sem fulltrúi eða fulltrúar af Breta hálfu taki einnig sæti í, til þess að greiða fyrir nauð- synlegum viðskiftum við útlönd á þessum ófriðartímum. Þessa ráðstöfun var kommúnistum fullkunnugt um, og þeir hafa, eðli sínu samkvæmir, notað þann kunnugleika til þess að þyrla upp blekkingum, i hreinu landráðaskyni, og er ógerningur að fullyrða neitt um eins og nú standa sakir hverjar afleiðing- ar þessi viðleitni þeirra kann að hafa. Hitt er óhætt að fullyrða, að manntegund þessi hefir ekki velferð eða liagsmuni sjómanna fyrir augum, eða það,að tryggja lif og öryggi þeirra á sjónum. Formaður félagsins, Einar Björnsson, setti fundinn og ( bauð menn velkomna til sam- j starfsins, og kvaðst vona að j samvinna hinna tveggja lýð- j ræðisflokka innan Dagsbrúnar j mætti leiða til meiri einingar . bg farsældar innan félagsins en j verið hefir, og skapa þar með gott fordæmi til eftirhreytni fyrir Önnur verkalýðsfélög. Var máli hans tekið með dynjandi lófaklajipi og var auðséð á öll- Um fundarmönnum að þeir gerðu sér miklar vonir um góð- an árangur af samstarfi þess- ara tveggja stæi’stu verkalýðs- flokka á landinu. Fyrsta verkefni fundarins var að stjórn félagsins skipaði eftirtalda menn i atvinnuleysis- nefnd Dagsbrúnar: Kristin H. Kristjiánsson. Ingvar Hannesson. Björn Benediktsson. Þórð Gíslason. Þorstein Sigurjónsson. Edvard Sigurðsson. Þorkel Gíslason. Næsta mál á dagskránni var að stjórn félagsins bar fram svo j hljóðandi tillögu: Þar sem fundur félagsins, sem haldinn var 11. nóv. 1938 var eigi ályktunarfær sökum þess, að eigi voru nægilega margir félagsmenn á fundi, en samkv. gjörðabókinni mættu 196 félagsmenn, og þar sem i fundargjörð trúnaðarráðs 13. nóv. s. á. kemur hvergi frarn að fundurinn sé löglega boðað- ur og þar af leiðandi tekur helmingur trúnaðarráðsmanna á fundi, ákveður trúnaðarráðs- fundur haldinn föstudaginn 26. jan. 1940, að samþyktir þær, er gerðar voru á fyrtöldum liunþ um Um brottrekstur þeirra: Guðm. R. Oddssonar, Guðjóns B. Baldvinssonar, Kristínusar Árndals, Vilhjálms S. Vil- hjálmssonar og Iiaraldar Pét- urssonar sé eigi löglegur sam- kv. gildandi félagslögum og skulu fyrnefhdir menn þvi telj- ast áfram löglegir meðlimir félagsins. Fyrstur tók til máls um tillög- una varaform. félagsins Sig. Halldórsson og mælti-hann ein- dregið með því að hún yrði sam- þykt, þar sem brottvikning þessara manna væri fram- kvæmd á algjörlega ólöglegan hátt. Rökstuddi hann mál sitt með tilvitnunum í lög félagsins og þær fundargjör^r félags- fundar og trúnaðarráðsfundar sem um málið fjalla. — Auk hans tóku til máls um tillöguna þeir: Amgrímur Kristjánsson, Kristinn Kristjánsson, Torfi Þorbjörnsson, Björn Benedikts- son, Jón S. Jónsson og Sigur- björn Markússon, og töluðu þeir allir með tillögunni. Síðan bar formaður tillöguna undir at- kvæði og var hún samþykt með 87 samhljóða atkvæðum. Var samþykt að leyfa þessum sex mönnum, sem Héðinn Valdimarsson og kommúnistar höfðu rekið úr Dagsbrún í trássi við lög félagsins, að setja á þess- um fundi. Buðu fundarmenn þá velkomna í félagið aftur með lófaklappi, en Guðm. R. Odds- son þakkaði fundarmönnum móttökurnar fyrir þeirra hönd. Þá fór fram kosning í trún- aðarmannaráð, sem skipað er níu mönnum; stjóm félagsins ásamt f jórum öðrum, sem kosn- ir eru af trunaðarráði féjagsins. En eins og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, var á- kveðið í samningunum milli Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokksverkamannanna að Al- þýðuflokkurinn ætti þar fimm fulltrúa en Sjálfstæðisflokkur- inn fjóra. Þar sem sjálfstæðis- menn eiga þrjá fulltrúa í stjórn félagsins en Alþýðufl. tvo, var kosinn einn maður til viðbótar af hálfu sjálfstæðismanna, Kristinn Ámason, og var hann kosinn með öllum greiddum at- kvæðum, en varamaður hans var kosinn Oddur Jónsson. Af liálfu Alþýðufl. voru þessir menn kosnir með samhljóða at- kvæðum: Guðm. R. Oddsson, Guðjón B. Baldvinsson og Helgi Þorbjörnsson en til vara Krist- inus F. Arndal, Jón Arason og Kristján Guðmundsson. I>ví næst bar stjómin fram svohljóðandi tillögu: Fundur haldinn í trúnaðar- ráði verkamannafél. Dagsbrún, föstudaginn 26. janúar 1940 samþykkir að félagið segi sig úr Landssainbandi islenskra stéttarfélaga og felur stjórn fé- lagsins að tilkynna stjórn Landssambandsins þessa sam- þykt. Jafnframt samþykkir fund- urinn, að Dagsbrún sé utan allra verklýðssambanda þar til öðruvísi verður ákveðið. Fylgdi Sig. Halldórsson einn- ig þeirri tillögu úr garði með nokkrum orðum. Var liún síð- an borin undir atkvæði og sam- , þykt mótatkvæðalaust. j Að lokum voru mörg liags- munamál verkamanna rædd og I urðu miklar og fjörugar um- , ræður um þau. Bar fundurinn j þess greinilegan vott að fylgis- menn lýðræðisflokkanna eru staðráðnir í því að hefja drengi- legt og sigursælt samstarf á hinu nýbyrjaða starfsári félags- ins. Og munu þeir með sameig- inlegum átökum hrinda hvers- konar klofningsstarfsemi af hálfu kommúnista af höndum sér, en jafnframt hefja sleitu- Iausa baráttu fyrir hagsmunum verkamanna í Dagsbrún.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.