Vísir - 30.01.1940, Blaðsíða 1
. ..
i -r: :¦
" Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
RL itstjórnarskrifstof ur:
Félagsprenísmiðjan (3. hæð).
Afgreiðsia:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGfcÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
30. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 30. janúar 1940.
24. tbl.
HHMHWMm E!
adoaav
6000 íallnir af liði Rússa
ií
á þessum vígstöðvum.
EINKASKEYTI frá United Press. — Kaupm.höfn í morgun.
WEBB MILLER, sem hefir verið á vígstöðv-
unum, fyrir norðaustan Ladogavatn, sím-
ar í morgun, að s. 1. sunnudag hafi Rússar
beðið meira manntjón í bardögunum þar en nokkur-
um einum degi öðrum. Þennan eina dag f éllu af Rúss-
um 1300 menn og síðan er þeir gerðu hina miklu til-
raun sína til þess að hef ja sókn á þessum vígstöðvum,
hafa að minsta kosti 6000 menn fallið af liði Rússa.
Eftir að Finnum hefir nú tekist að hrinda öllum á-
hlaupum Rússa og koma í veg fyrir, að þeir gæti hafið
stórkostlega, framhaldandi sókn þarna, eins og þeir
höfðu ætlað sér, hafa Finnar nú hafið sókn og náð
mörgum stöðvum Rússa á sitt vald.
Fregnir um, að þeim hafi tekist að umkringja 4 rúss-
nesk herf ylki, haf a þó ekki verið staðfestar.
Stórskotalið Finna heldur uppi stöðugri skothríð,
þegar færi gefast, á flutningasveitir Rússa, en Rússar
nota mikið sleða, sem hestum er beitt fyrir til flutn-
inga, en Finnar hafa drepið fyrir þeim um 700 hesta á
þessum vígstöðvum, og stöðvað flutningana til Rússa,
og veldur það þeim miklum erfiðleikum.
Rússar halda áfram loftárásum sínum á finskar borgir og
hafa borgirnar Ábær og Hangö orðið harðast úti, margt manna
beið bana og særðist, en kviknaði í húsum. 4 rússneskar flug-
Vélar voru skotnar niður.
Japanir ©g: IAalir
hefja nýja baráttii
gregrn kommúiiisiiia.
EINKASKEYTI f rá United Press. — London í morgun.
Það gengur stöðugt orðrómur um það, að á fundi japanska
sendiherrans, sem haldinn var í Budapest, hafi verið rætt um
að halda áfram baráttunni gegn útbreiðslu kommúnismans, og
hafa í þeim efnum samvinnu við Itali.
Það vekur mikla athygli, að Italir og Japanir raunverulega
endurnýja þannig hið and-kommúnistiska bandalag, en eins
og kunnugt er voru Þýskaland, Japan og ítalía aðilar að and-
kommúnista sáttmálanum, en þau samtök fóru að mestu út
um þúfur, er Þjóðverjar gerðu sáttmála sinn við Sovét-Rúss-
landi.
Samgönguerf iðleikarnir
í BretlandL
Engin breyting til batnaðar.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Samgönguerfiðleikar eru nú
meiri í Englandi en menn vita
dæmi til áður, og engin merki
sjást þess, að bráðlega muni úr
rætast.
Samgöngutafirnar valda hin-
um mestu erfiðleikum víða um
land. Ýmsar borgir eru án
nokkurs sambands við aðrar
borgir og vofir því sú hætta yf-
ir, að birgðir eldsneytis og kola
gangi til þurðar.
Þykir mikið við liggja, að
menn haldi sem sparlegast á,
því að enn er allsendis óvíst
hvenær úr rætist. Er lagt sér-
staklega ríkt á við menn, að
spara kol, koks og gas, rafmagn
o. s. frv. Póstsendingar hafa taf-
ist mikið og stórkostlega hefir
dregið úr allri bílaumferð, enda
eru bílaeigendur hvattir til þess
að nota bíla sína sem allra
minst. Járnbrautarlestir eru 20
—28 klst. á eftir áætlun.
ÖHum heimferðarleyfum í
hernum, bæði í Frakklandi og
heimahernum, hefir verið frest-
að vegna samgönguerfiðleik-
anna.
Bandamenn leigja
50 norsk skip.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Bresk og frönsk eimskipafé-
lög hafa leigt, að því er fregn-
ast hefir, um 50 norsk flutn-
ingaskip, á venjulegum við-
skiftagrundvelli. Skipin munu
flest vera fremur smá. Talið er
að þau verði aðallega notuð til
flutninga milli Bretlands og
Frakklands.
Ilíl.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Fregnir frá Bukarest herma,
að dr. Clodius, þýski viðskifta-
málasérfræðingurinn, sem
dvelst um þessar mundir í
Rómaborg, sé að reyna að koma
því til leiðar, að Þýskaland fái
nokkurn hluta þeirrar olíu, sem
Italir fá frá Rúmenum.
Jafnframt hafa ítalir hvatt
Rúmena til þess að auka olíu-
útflutninginn til ítalíu um 30%.
Hækkun
kjötverðsins.
Frjáls innflutningur er nú á
kjöti til Englands og Verð held-
ur hærra þar en hér hefir verið
að undanförnu.
Hefir kjötverðlagsnefnd því
tekið það ráð, að hækka kjöt-
verðið innanlands um 20 au., en
fyrir skemstu var það hækkað
um 13 au. pr. kg. Telur nefnd-
in það ekki ætlunina að selja
kjötið innanlands vægara verði,
en hægt er að fá fyrir það á er-
lendum markaði.
Stjórnarkosning í
Sjómannafélaginu.
Á sunnudag fór fram aðal-
fundur Sjómannafélags Reykja-
víkur. Meðlimir í félaginu eru
um 1400 að tölu, en þátttaka í
kosningum var litil.
Sigurjón Á. Ólafsson var kos-
inn formaður. Hlaut hann 407
atkvæði. Aðrir stjórnarmeðlim-
ir eru Ólafur Friðriksson,
Sveinn Sveinsson, Eigurður Ól-
afsson og Ólafur Árnason.
Frá Sigurði Skagfield.
Það hefir lítið frést af Sig-
urði Skagfield að undanförnu,
en nú hefir einn kunningi hans
fengið bréf frá honum og skýr-
ir Sigurður þar frá högum sín-
um.
Sigurður hefir sungið víða
um Þýskaland, og síðast í óper-
unni í Oldenburg. Hefir hann
t. d. sungið „Erik" í „Hollend-
ingnum fljúgandi". Þá hefir
liann og sungið hlutverk í Lo-
hengrin og Don José í Carmen.
Hefir Sigurður fengið góða
dóma fyrir söng sinn.
Hann mun fara til Berlínar í
næsta mánuði og syngja þar.
Hefir honum verið boðið þang-
að. I vor gerir svo Sigurður ráð
fyrir því að koma heim.
Stjórn svelnafélags mú
ara stððvaii vinnn við
nokkrar byggingar i gæ
A sama tíma krefst félagið
ásamt öðpum aukins innflutn-
ings á byggingarefni.
1 gær bar það til tíðinda, að Guðjón Benediktsson, ásamt
öðrum stjórnendum í Sveinafélagi múrara, stöðvaði vinnu þar
sem svo var ástatt, að sveinar unnu að húsbyggingum með
meisturum. Varð gerð tiiraun til að stöðva vinnu við þrjú hús,
en ekki er vitað um árangur nema í einu þeirra, en þar lögðu
sveinarnir niður vinnu samkvæmt tilmælum stjórnarinnar. —
LOFTVABNALmiÐ FINSKA AÐ STÖBFUM.
Bússar halda áfram hinum ægilegu loítárásum sínum á borgir Finnlands, í þeim tilgangi, að því
er fréttaritarar erlendra blaða halda fram, að lama viðnámsþrótt finsku þjóðarinnar. Loftárásir
Bússa hafa aldrei verið ógurlegri en uþp á síðkastið og er engu líkara en lögð sé stund á, að reyna
að hæfa sjúkrahús og slíka staði, og í engu skeytt um, þótt þeir séu merktir Bauða krossinum.
Loftvarnaliðið í finskum borgum hefir ærið að starfa. Því er skift í sveitir, sUmar annast loft-
varnabyssurnar, aðrar ryðja til í rústum húsa, bjarga fólki, flytja sært fólk í sjúkrahús o. s. frv.
— Hér sést einn slíkur flokkur að störfum í finskri borg, eftir loftárás. Myndin er tekin á efstu
hæð hússins og eru veggirnir á framhlið hússins alveg horfnir.
Næsta kvöldtaaka,
II. I. verðiir a
laugrardag.
Þeir mörgu, sem hafa beðið
þess með óþreyju, að 2. kvöld-
vaka Blaðamannafélags íslands
færi fram, þurfa nú ekki að
bíða lengur en til laugardags.
Það hefir dregist lengur en
ráðgert var í upphafi, að þessi
kveldvaka færi fram, en töfin
verður bætt upp með að vanda
enn meir til þessarar kveldvöku
en þeirrar fyrstu.
Skemtiskráin er ekki tilbúin
að fullu, e'n hún verður eins
og áður miðuð við það, að þar
verði eitfhvað fyrir alla. Dag-
skrá 1. kveldvökunnar uppfylti
þá kröfu, svo sem best varð á
kosið, og sú, sem fram fer n.k.
laugardag, mun einnig gera
það.
Sjálfstæðisfél.
Skjöldur í Stykk-
ishólmi 10 ára.
Stykkishólmi í morgun.
Sjálfstæðisfélagið Skjöldur
hélt 10 ára afmæli sitt hátíðlegt
s. 1. laugardag. Hófið byrjaði kl.
7y2 síðdegis og sátu það 140—^
150 manns,
Margar ræður voru haldnar
undir borðum, en eftir borð-
haldið skemtu menn sér við
spil og dans fra mundir morg-
un.
Félaginu barst fjöldi heilla-
óskaskeyta, m. a. frá þingmanni
kjördæmisins, miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins, blöðum flokks-
ins og einstaklingum.
Skemtunin fór vel fram og
skemti fólk sér ágætlega. Guð-
jón Bunólfsson, bakari, og frú
hans, stóðu fyrir veitingum,
sem voru hinar ákjósanlegustu.
Ólafur Jónsson frá Elliðaey
hefir verið formaður félagsins
frá stofnun þess, en baðst undan
endurkosningu iá síðasta aðal-
fundi, sem haldinn var í þess-
um mánuði. Var þá Kristján
Frh. á 3. síð.
Tildrög þessa máls eru þau,
að á fundi, sem haldinn var
snemma i sumar kom fram til-
laga frá stjórn Sveinafélagsins
þess efnis, að sveinum skyldi ó-
heimilt að vinna að byggingu
húsa með utanfélagsmönnum,
en tillaga þessi beindist að sjálf-
sögðu fyrst og fremst gegn
meisturunum, með þvi að aðrir
hafa ekki réttindi til múrara-
vinnu við húsbyggingar en þeir
og sveinarnir.
Mál þetta hefir legið niðri frá
því í haust, og neitaði einn
sveinanna i gær að hlýðnast
boði stjórnarinnar, með því að
hún hefði ekki framfylgt ofan-
greindri samþykt um alllangan
tíma.
Takist stjórn Sveinafélagsins
að halda þessu máli til streitu,
er sennilegt að vinna stöðvist
við nokkur hús, sem í smíðum
eru. Er þetta framferði þeim
mun einkennilegra, þegar vitað
er að nú er atvinna mjög rýr við
byggingar,fyrst og fremst vegna
lítils innflutnings á byggingar-
efni og ennfremur vegna vax-
andi dýrtíðar. Þetta sjá svein-
arnir sjálfir, og munu þeir á-
samt meisturunum leggja ríka
áherslu á að fá aukinn inn-
flutning, þótt ekki sé vitað
hvaða úrlausn sú málaleitun
þeirra fær. Atvinna sveinanna
er mjög óveruleg eins og sakir
standa, og jafnvel yfirvofandi,
að hún verði engin innan
skamms, þannig að þeir verði
að leita til annara atvinnu-
greina til þess að draga fram
lífið. Er því vitað, að sú stöðv-
un, sem hér er gerð, brýtur
beint gegn hagsmunum þeirra,
þótt svo kunni að fara, að
stjórninni takist að þvinga hana
fram.
i Menn ættu að fylgjast vel
með athöfnum múrarasveina-
félagsins á þessum tímum, með
því að ekki er ósennilegt, að
þetta félag beri fram undir
i stjórn kommúnista háværar
í kröfur um aukna atvirinu, og
' það innan skamms, en þá þurfa
[ stjórnarvöldin að taka til athug-
, unar hvort þeir, sem ekki vilja
• vinnu, eigi að fá óeðlilegum
kröfum framgengt sjálfum sér
til framdráttar.
Sýnist hendi næst að þeir
menn innan múrarasveinafé-
lagsins, sem andvígir eru þess-
um athöfnum á þessum tim-
um, taki nú höndum saman og
reki kommúnistana af höndum
sér. Aðalfundur félagsins verð-
ur háður í febrúar, og þá er
tækifærið til þess að skapa heil-
brigðan grundvöll fyrir starf-
semi Sveinafélagsins, sem er í
fullu samræmi við þörf og
hagsmuni félagsmanna.