Vísir - 09.02.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 09.02.1940, Blaðsíða 1
Ritst jóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. Sími: 4578. Rii.tstjórnarskrifstofur: í’élagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Afgreiðsla: HVERFISGÖTU 12. Sími: 3400. AUGLÝSINGASTJÓRI: Sími: 2834. 33. tbl. MNKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS ~ Khöfn í morgun. Einn af fréttariturum United Press í Finnlandi, Edward Beattie, símar í morgun, nýkominn úr f erð til Kyrjálaness: Fregnir þær, sem birtar hafa yerið erlendis, og eg hefi verið beðinn að staðfesta ef sannar væri, að Rúss- um hefði tekist að brjótast inn í eða gegnum fremstu röð Mannerheimvíggirðinganna, 20—30 mílur frá Vi- borg, hafa ekki við rök að styðjast. Samkvæmt áreiðan- legustu heimildum og af eigin sjón get eg fullyrt, að Rússum hefir hvergi tekist að brjótast gegnum víggirð- ingamar. Hinsvegar halda þeir stöðugt áfram áhlaup- um sínum og tefla sífelt fram óþreyttu liði og hefir gengið svo í tíu daga. Því er ekki að leyna, að Rússar hafa iðulega komist nálægt fremstu röð víggirðinganna með skriðdreka sína og skriðdreka-sleða, en Finnum hefir altaf tekist að stöðva þá fyrir framan víggirðing- arnar, og hafa Rússar beðið ógurlegt manntjón og Finn- ar hafa eyðilagt feiknin öll af hergögnum fyrir þeim. Rússum hefir að eins tekist að ná á sitt vald framvarða- stöðvum á tveimur stöðum, en hafa verið hraktir þaðan aftur. Talið er, að upp undir 1000 menn hafi fallið í liði Rússa á hverjum degi síðan er sókn þeirra á miðbik Mannerheimvíggirðinganna byrjaði. MIKIÐ BARIST Á ÖÐRUM VÍGSTÖÐVUM. Á öðrum vígstöðvum er mikið barist. Einnig þar fá Rússkr stöðugt mikinn liðsafla. Leggja þeir mikla áherslu á, að knýja fram úrslit hið fyrsta. Það er mikið barist á norðurvígstoðvunum, við Petsamo, og á miðvígstöðvunum við Salla og Kuhmo. FINNAR TREYSTA Á HJÁLP VETRARHRÍÐANNA. Finnar eru hughraustir sem fyrrum og verjast af miklum móði og þrátt fyrir mikinn liðsmun hefir Rússum hvergi tekist að vinna á svo neinu nemi. — Á þessum slóðum er tíðast hríðar- veður og fannkomur og Finnar vona, að svo verði enn, því að aðstaða þeirra til varnar er því betri sem snjóþyngsli eru meiri, en þegar þykt er í lofti geta Rússar ekki haldið áfram loftárás- um sínum, en hin lofthernaðarlega aðstaða er smám saman að breytast Finnum í vil, því að þeir fá nú mikið af flugvélum frá öðrum löndum. Er það kunnugt, að þeir hafa fengið breskar og ítalskar flugvélar að undanförnu, og reynast þær ágætlega, og eru taldar miklu fullkomnari en hinar rússnesku. | TÉKKNESKIR PENINGA- SEÐLAR PRENTAÐIR I ÞÝSKALANDI ÁÐUR EN ÞJÖÐVERJAR HERTÖKU BÆHEIM OG MÆRI. Einkask. frá United Press. 1 E.höfn í morgun. í fregn frá Prag segir, að Tékkneski þjóðbankinn hafi gefið út 5 og 1 kr. seðla, þar sem málmskortur sé svo mikill, að ógerlegt sé að fá málm til myntsláttu. Stafar málmskorturinn af þvi, að málminn verður að nota til licrgagnagerðar. Svo er að sjá, sem Þjóð- verjar liafi séð fyrir, hversu Eara mundi i þessum efnum, þvi að seðlarnir, sem nú eru komnir í umferð, voru prent- aðir í Þýskalandi áður en Þjóðverjar hertóku Bæheim og Mæri. s-o-s. Dularfult neyðar- skeyti frá skipi í Irlandssjó. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Neyðarskeyti harst frá far- þegaskipinu Lady Connaught, sem statt var á írlandssjó, kl. 1 síðastliðna nótt. I skeytinu var sagt, að verið væri að se'tja nið- ur björgunarbátana. Á skipinu voru um 100 farþegar. Var ótt- ast, að sést hefði til kafbáts, og að árás á skipið væri yfirvof- andh Tæpum hálftíma síðar barst annað skeyti frá skipstjór- anum, þess efnis, að skipið héldi áfram ferð sinni. Tvísýnt um líf Tweedsmuir lávarðar Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. BRESKA SENDINEFNDIN KOMIN HEIM. Breska sendinefndin, sem fór til Finnlands er komin heim, og lýsir mikilli aðdáun á Finnum. Nefndarmenn leggja áherslu á, að veita beri Finnum eins mikla hjálp og með nokkuru móti sé hægt að láta í té, og einkanlega segja þeir, að leggja beri á- herslu á að senda þeim sem mest af flugvélum. Samkvæmt seinustu fregnum frá Ottawa er tvísýnt um líf Tweedsmuirs lávarðs. Tdja lælcnarnir mjög alvarlega horfa. Ummæli Sir Walter Citrine. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Formaður bresku verklýðs- sendinefndarinnar, Sir Walter Citrine, lét hina mestu aðdáun i Ijós á Finnum, við kornu sina til London í gær. Hann kvað þá berjast af svo miklum dugnaði og harðfengi, að aðdáunarvert væri, og öll þjóðin væri sam- huga um að reka Rússa af höndum sér. Sérstaka athygli vekja þau ummæli hans að nefndin hafi komist að raun um, eftir að hafa kynt sér málið mjög ítarlega, að fregnir Finna um mann- tjón Rússa séu síst orðum auknar. Að lokum sagði Sir Walter: „Ef Finnar fá þá hjálp, sem þeir þurfa að fá, eiga skilið að fá og verða að fá, mun eg verða síðastur manna til þess að spá sigri Rússa.“ NÝR NORSKUR HJÚKRUN- ARLEIÐANGUR FARINN TIL FINNLANDS. Nýr norskur lijúkrunarleið- angur lagði af stað til Finnlands í gær undir stjórn Nikolaysen yf irlæknis. Þál ttakendurnir, kárlar og konur, eru álls 28. — Mikill mannfjöldi kvaddi leið- angursmenn og var brottförin mjög hátíðleg og margir hrærð- ir. NRP—FB. NORÐMENN KYNNA SÉR LOFTVARNIR FINNA. Dómsmálaráðuneytið norska hefir ákveðið að senda 4 menn næstu daga til þess að kynna sér loftvarnir i finskum borg- um. Ráðgert er fjögurra vikna dvöl í Finnlandi. NRP.—FB. NORÐMENN SENDA FINNUM NlU JÁRNBRAUTARVAGNA FULLA AF FATNAÐI. Niunda Rauða kross-söfnunin i Nóregi lianda Finnum gekk að öllu liið ákjósanlegasta. Að þessu sinni var aðallega safnað fatnaði og er búið að senda níu járnbrautarvagna af fatnaði á- leiðis til Finnlands, og auk þess mikið af fatnaði til Norður-Nor- | egs og enn eru margar geymslu- ! stofur í Oslo fullar af flutningi, ! sem sendur verður til Finnlands bráðlega. NRP—FB. PÖLSKI HERINN í FRAKKLANDI. — Það er talið, að pólski herinn, sem verið er að þjálfa í Frakklandi, undir stjórn franskra liðsforingja, verði fullæfour i vor snemma, og geti tekið þátt í stórorustunum, sem allir ganga út frá sem gefnu, að verði háðar með vorinu á vesturvigstöðvun- um. I þessum pólska lier munu vera á annað hundrað þúsund menn. Þegar Pólland f«ær sjálfstæði sitt er ráðgert, að þessi lier verði sendur til Póllands, og verði stofnher landhers hins nýja Póllands, sem Bandamenn segja, að rísi upp á ný, að afstaðinni styrjöld þeirri, sem nú geisar. — Myndin er tekin í einni bækistöð pólska hersins í Frakklandi, er hermennimir hafa skipað sér í raðir til þess að fá matarskamt sinn. lOO leynilögpeglumenn framkvæma húsraim- sókn í skrifstofum Rússnesku verslunar- stofnunarinnar i París Húsrannsókn, sem lögreglan í París gerði nýlega 1 skrifstof- um verslunarfulltrúa sovét-stjómarinnar, hefir vakið mikið umtal. Húsrannsóknin var vandlega undirbúin og komu alt í einu í skrifstofurnar 100 óeinkennisklæddir franskir lögreglu- menn, kyrrsettu í bili alla starfsmenn, opnuðu skjala- og pen- ingaskápa, og tóku á brott með, sér ýms plögg. Starfsmönnun- um var ekki slept, fyrr en búið var að gera húsrannsókn í einkahíbýlum þeirra. Rússneski sendiherrann í París hefir mótmælt húsrannsókn- inni og telur hana brot á alþjóðalögum, en franska stjórnin neitar að taka mótmælin til greina og segir, að það hafi verið fylstu ástæður fyrir hendi til þess að gera þær húsrannsóknir sem hér sé um að ræða, og muni það koma í ljós, þegar rétt þyki að kunngera árangurinn. — NRP—FB. Eldsneytisskortimnnn í Kaupmannahöfn. V'atnsliituxi í íb áöarhúsum bönnnð fpá mánudegi aö telja. EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun. Vegna ísalaga við Danmörku hafa aðflutningar tepst svo, að kolaleysi er yfirvofandi eftir nokkra daga. Hefir verið hert á ýmsum ráðstöfunum vegna þessa ástands. Bannað er að hita vatn í íveruhúsum og víða er ekki hægt að hita upp íbúðir lengur. Er vatnshitun algerlega bönnuð frá næstkomandi mánu- degi að telja. Fyrirskipað hefir verið, að öllum matsölu- og veitingastof- um skuli lokað á miðnætti. Kvikmyndahúsum er lokað kl. 10. Fyrirskipað er, að kynda eklti meira en svo í íveruhúsum, að hitinn fari ekki yfir 10 stig á Celsius. Ráðstafanir þær, sem hér hafa verið nefndar, og fleiri, eiga að vera í gildi þar til í apríl. Norðmenn kaupa 15 skipsfarma af kolum í Bandarzkjunum. Vegna eldsneytisskorts í Nor- egi hefir reynst óhjákvæmilegt að semja um kaup á mörgum kolaförmum frá Bandarílcjun- um, eða alls 10—15 og mörgum mjög stórum. Bæði iðnaðarfyr- irtæki og einstakir innflytjend- Ur hafa gert samninga um kola- kaup vestra. NRP.—FB. ffikill ÍS ¥tð ^orcgiitrendur Hafísinn liefir nú rekið að landi fyrir austan Arendal og þaðan getur ísinn að líta i sam- liangandi belti svo langt sem augað eygir með fram strönd- inni. Menn óttast, að ísinn muni valda miklum samgönguerfið- leikum. NRP.—FB. ¥ið§kiftí Ifúsusa og: Raudaríkja- uiauua stöðvaist Einkaskeyti frá United Press. K.höfn í morgun. Ýmsar líkur benda til, að mjög muni draga úr viðskiftum Rússa og Bandaríkjamnna, og jafnvel talið, að viðskiftin muni alveg stöðvast. I Bandaríkjun- um kemur nú mjög fram í blöð- um og hjá stjórnmálamönnum, að Bandaríkin ætti að hætta viðskiftum við Rússa og jafnvel slíta stjórnmálasambandinu við Sovét-Rússland. Slíkar tillögur hafa þó ekki fengið góðar und- irtektir hjá stjórninni, sem lítur svo á, að svo mikilvæg skref megi ekki taka, nema hinar gildustu ástæður séu fyrir hendi. Þetta mál verður vafa- laust rætt enn frekara en þegar hefir verið gert í þjóðþinginu. Er það framkoma Rússa gegn Finnum, sem vakið hefir svo mikla gremju meðal stjóm- málamanna og almennings í Bandaríkjunum, að menn heimta, að Bandaríkin sýni Rússum það ótvírætt, að Banda- ríkjamenn hafi megna fyrir- litningu á Rússum fyrir innrás þeirra í Finnland og loftárás- irnar á varnarlausa bíjpi og þorp Finnlands. Seinustu fregnir herma, að skrifstofum Rússnesk-amerísku verslunarstofnunarinnar í Moskva hafi verið lokað. Fyrsta sundmót ársins a föstudag Næstkomandi föstudag verð- ur fyrsta sundmót þessa árs haldið hér í SundhöIIinni. Verð- ur kept í sex sundgreinum, en þátttakendur verða margir. Kept verður í eftirtöldum greinum: 500 m. bringusundi, lcarla, 4x100 m. boðsundi, karla, 200 m. bringusundi, lcveuna, 50 m. bringusundi, stiilkna innan 14 ára, 100 m. bringusundi og 100 m. frjálsri aðferð, drengja innan 16 ára.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.