Vísir - 10.02.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 10.02.1940, Blaðsíða 1
Ritst jóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. Sími: 4578. Rii itstjórnarskrifstof ur: í'élagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Afgreiðsla: HVERFISGÖTU 12. Sími: 3400. AUGLÝSINGASTJÓRI: Sími: 2834. 34. tbl. Oll finska þjóðin á verði gegn nýrri hættu. Rii§§ar hafa flutt íin§knniæ!aiidi njdinara íll Finnland§ loftleiðis og: liafa margir þegar verið liautl- tekiiir. EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun. Auknar ráðstafanir hafa verið gerðar um gervalt Finnland til varnar gegn nýrri hættu: Finsku- mælandi rússneskum njósnurum, sem Rússar hafa flutt loftleiðis til Finnlands, í allstórum stíl, þann- ig, að búnir fallhlífum svífa þeir til jarðar úr flugvél- um, að baki víglínu Finna. Tilraunir Rússa í þessa átt yfir hinum þéttbygðari hluta landsins suður frá gáfust ekki vel, en í strjálbýlinu í Norður-Finnlandi hefir þeim hepnast þetta. Starfsemi þessara manna er Finnum vit- anlega mjög hættuleg. Er hér um að ræða njósnara sem tala finsku sem innfæddir menn, og þeir eru klæddir finskum einkennisbúningum. Aðrir hafa það hlutverk með höndum að vinna skemdarverk á samgönguleiðum og víðar. I Lögreglan um gervalt Finnland hefir fengið sérstak- ar fyrirskipanir um að vera vel á verði og auk þess hafa stjórnarvöldin snúið sér til almennings, og hvatt menn til þess að aðstoða her og lögreglu í hvívetna við að hafa hendur í hári njósnaranna. Hafa allmargir rússneskir njósnarar verið handteknir síðustu daga. FRÁ VlGSTÖÐVUNUM. RÚSSAR HALDA ÁFRAM SÓKNINNI. Rússar halda hvarvetna áfram áhlaupum sínum, en verður ekki ágengt. Mestur kraftur virðist í sókn þeirra á Kyrjálanesi og er nú ekki eingöngu sótt fram á Summavígstöðvunum, heldur beggja megin við þær. Frá Kuhmovígstöðvunum hafa ekki borist nýjar fregnir, nema að Finnar halda áfram að þjarma að Rússum, og er manntjón mikið í liði Rússa. Fyrir norðan Ladogavatn hafa Finnar bætt aðstöðu sína, þótt Rússar þar eins og á Kyrjálanesi hafi fengið mikinn liðsauka. FINNAR HAFA FENGIÐ MIK- IÐ AF HERGÖGNUM FRÁ BRETLANDI OG FRAKK- LANDI. Hergögn eru nú flutt í stór- um stil til Finnlands frá Bret- landi og Frakklandi. Frá Bret- landi hafa Finnar fengið árás- arflugvélar af allra nýjustu gerð og miklar birgðir af skot- um í rifla og vélbyssur. Skorti Finna mjög hvorttveggja. Þá hafa Frakkar einnig brugðist drengilega við og sent Finnum miklar birgðir af marsgkonar hergögnum og hefir forsætis- ráðherra Finnlands persónu- Iega þakkað franslca sendiherr- anum i Helsingfors hjálpina. Hergögn þessi munu munu vera send vfir Svíþjóð. Briskflr Hnrspillir sfikkvir 2 kafbátum. London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Breskur tundurspillir liefir sökt tveimur þýskum kafbát- um á sömu stundu og þykir það mikið afrek. Hefir breska flota- málaráðuneytið birt tilkynn- ingu um þetta, vegna þess liversu óvanalegt afrek er um að ræða, en vanalega er ekki til- kynt jafnóðum, þó kafbáti eða kafbátum sé sökt. Kafbátar þessir ætluðu að gera árás á flulningaskip, sem herskip íylgdu. Nánara getur ekki um atburð þennan í tilkynningu flotamálaráðuneytisins, en það er búist við að Churchill eða Chamberlain geri nánari grein fyrir þessu i næstu yfirlits- greinum sínum um styrjöldina. LEBRÓí á vígr§töðvuiiiim. London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Gort lávarður, breski yfirher- foringinn bauð Lebrun ríkisfor- seta Frakklands að heimsækja breska herinn fyrir aftan vig- stöðvarnar í Frakklandi og fór rikisforsetinn í þessa heimsókn i gær. Lebrun heimsótti her- menn í bækistöðvum þeirra fyrir aftan vígstöðvarnar, skoð- aði hin nýju, vélknúnu hergögn Breta o. s. frv. Flokkur Há- skota (Gordon-Highlanders) stóðu á heiðursverði við komu Lebrun. — Hyltu hinir bresku hermenn Lebrun ákaft. Að heimsókninni fyrir aftan vigstöðvarnar lokinni fóru þeir Lebrun og Gort lávarður ásamt fylgdarliði til vigstöðvanna og skoðuðu hin nýju, ramgeru virki, sem búið er að koma þar upp, til viðbótar ])eim, sem fyr- ir voru. Msl PjlWjðl I rjífi tialntiðin M? Fjöldi flutningaskipa með mat- væli við Norður-íshaf. Þau ætla að komast suður með Noregs- ströndúm til Þýskalands. K.höfn í morgun. Einkaskeyti frá United Press. í skeyti frá Helsingfors í morgun er sagt frá því, sam- kvæmt fregnum frá Norður- Finnlandi, að mörg þýsk flutn- ingaskip hafi sést í Limnahamri og þar undan ströndinni. — Limnahamri er eina höfnin í Norður-Finnlandi, sem ekki leggur, en hún er nú í höndum Rússa. Talið er, að flutninga- skip þessi séu hlaðin korni og öðrum matvælum, og ætli Þjóðverjar að gera tilraun til þess að rjúfa hafnbann Breta, með því að láta skip þessi sigla suður með Noregsströndum til Þýskalands. Friðarvið- leitni Roosevelts. K.höfn í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Það var tilkynt í Washington í gær, að Roosevelt forseti hefði ákveðið, að senda Summer Wells aðstoðarutanrikismála- ráðherra Bandaríkjanna til Þýskalands, Ítalíu, Bretlands og Fralcklands, til þess að kynna sér horfurnar í þessum löndum. Það var tekið fram, að hann 'færi aðeins kynningarerinda, en liefði engar tillögur meðferðis, og myndi ekki takast á liendur neinar skuldbindingar fyrir liönd Bandaríkjanna. Jafnframt var tilkynt, að Bandaríkja- stjórn hefði liafið umræður við „önnur hlutlaus ríki“. Þótt til- kynt væri, að engin tengsli væri milli fju’irhugaðra viðræðna við stj órnmálamenn styr jaldar- landa og hlullausra landa, er lilið svo á, að hér sé um tilraun að ræða, lil þess að koma á friði. Má m. a. marka það af því, að i London þótti ástæða til að taka það fram, að Frakk- ar og Bretar hefði þegar tekið fram skýrt og skilmerkilega livaða skilyrði þeir hefði sett fyrir því, að sest væri á ráð- stefnu til þess að ræða friðar- j skilmála, en jafnframt var til- i kynt, að Summer Wells myndi j verða tekið vel í London og j hann gæti fengið þar allar þær ' upplýsingar, sem hann óskaði i eftir. 1 fregnum frá Rómaborg seg- DANSKIR SJÁLFBODALIÐAR LÆRA Á SKlÐUM. — Sá er gallinn við dönsku sjálfboðaliðana, sem farið liafa til Finnlands, að þeir eru ekki þaulvanir skíðagarpar, eins og sjálfboðaliðarnir frá Noregi og Sviþjóð. Má glögt sjá það á j>essari mynd, að „enginn verður óbarinn biskup“. En Dan- irnir taka þessu brosandi og þá er hálfur sigur unninn. Lokaður fundur í franska þinginu í fyrsta sinn í 20 ár Landvarnamálin og styrjöldin til umræðu. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Leon Blum, leiðtogi jafnaðarmanna, gerði það áð tillögu sinni undir umræðum í frönsku málstofunni í gær, að haldinn yrði lokaður fundur til þess að ræða landvamirnar og ýmsar styrj- aldarframkvæmdir. Daladier, sem er hermálaráðherra og utan- ríkismálaráðherra, auk þess sem hann er forsætisráðherra, var í rauninni andvígur tillögunni, og þótti sýnilega miður, ef farið væri út á þessa braut, enda hefir ekki veríð haldinn fundur fyr- ir luktum dyrum í fulltrúadeildinni í tvo áratugi, en hann kvaðst ekki vilja vekja deilur um þetta, og sætta sig við þær ákvarð- anir, sem deildin tæki. Var svo tillaga Blums samþykt með nokkurum atkvæðamun og greiddu, auk jafnaðarmanna, ýmsir úr róttæka flokknuin (radikalflokknum) atkvæði með tillög- unn, einkum úr hægra armi flokksins. Fundurinn stóð yfir þar íil kl. 8 í gærkveldi og var þá frestað og hófst að nýju í morgun. NJÓSNASTARFSEMÍ í FRAKKLANDI. Franska lögreglan liefir að undanförnu verið að komast á snoðir um víðtæka njósnastarf- semi, að undirlagi þýsku lög- reglunnar (Gestapo). Er ekki grunlaust um, að eitthvað frek- ara liafi sannast í þessa átt, er liúsrannsóknin var gerð lijá Rússum nýverið, en annars er svo að sjá, sem Þjóðverjar liafi liaft „útsendara“ og „agenta“ hingað og þangað um Frakk- land, og liefir franska lögregl- an verið all-athafnasöm að undanförnu að grafa fyrir ræt- ur þessa meins. Höfuðtilgang- urinn með allri þessari starf- semi virðist vera, að vekja sundrungu meðal frakknesku þjóðarinnar og tortrygni henn- ar í garð Breta. Gestapo liefir sent allskonar fyrirspurnir, sem „agentarnir" áttu að svara, t. d. var spurt um lýðhylli Daladiei-s, hverjir væri vinir hans, liverj- um augum almenningur í Frakklandi liti á samvinnu Breta og Frakka, livern stuðn- ing Daladier myndi fá, ef til verulegra átaka kæmi, hvort ir, að stjórnmálamenn þar séu vantrúaðir á, að friðartilraunir Roosevelts muni bera árangur að svo stöddu, og stuðnings ít- aliu sé vart að vænta, fyrr en ákveðnar tillögur liggi fyrir. Hinsvegar láta stjórnmálamenn i ljós von um, að af lieimsókn Sumer Wells leiði bætt sam- búð Bandaríkjamanna og Itala. Frakkar treysti nýlenduher- svedtum sínum og þar fram eft- ir götunum. Daladier mintist á þessa njósnastarfsemi i þing- ræðu í gær og sagði, að það yrði franska þingið, sem nú gæti svarað þessum fyrirspurnum Gestapo. Þólt Daladier væri mótfallinn tillögu Blums um lokaðan fund og tillaga Blums næði fram að ganga, er Daladier ekki talinn i neinni hættu. Alger eining er sögð ríkja á fundinum og allur þingheimur miðar gagnrýni sína á styrjaldarframkvæmdiun við heill og liag Frakklands. Nýbýlastofnun og atvinnuleysi. Nefnd skipuð til þess að athuga skilyrði til þess að koma á stofn nýbýlahverfi og fái atvinnulaus- ir menn atvinnu við fram- kvæmdirnar. .—o- Eins og kunnugt er hefir ný~ býlamálið verið alllengi á dag- skrá og hefir á undangengnum árum sveigst í þá átt, að menn hallast frekar að því, að stofnað verði til nýhýla í hverfum, þar sem ræktunar- og samvinnu- skilyrði eru best. í framhaldi af þvi, sem áður hefir verið gert þcssum málum viðlcomandi, er það, að landliúnaðarráðherra hefir skipað þriggja manna nefnd, sem hefir fengið það hlutverk, að athuga skilyrði til þe'ss að koma á fót nýbýla- hverfi, sem gert mun vera ráð fyrir, að verði i allstórum stil, og mun nefndin einnig taka til- lit til þess við störf sín hversu ástatt er i atvinnuleysismálum, svo að atvinnulausir menn geti fengið störf við þessar fram- kvæmdir. I nefndinni eiga sæti: Steingr. Steinþórsson búnað- armálastjóri, Valtýr Stefánsson ritstjóri, Ingimar Jónsson skólastjóri. Mlkill fjðldi áskrifenda að bókum Menningar- sjóðs og Þjóðvinafél. Fyrir rúmri viku var byrjað að safna áskrifendum að bók- um Menningarsjóðs og Þjóð- vinafélagsins. Gengur áskrif- endasöfnunin ágætlega og hafa að jafnaði safnast um 100 á dag. Eru þetta aðallega þeir, sem komið hafa á skrifstofu Menn- ingarsjóðs í húsi Búnaðarbank- ans, en auk þess tóku um 100 áhugamenn hér í bænum að sér, að safna áslcrifendum. Hafa nokkrir þeirra skilað fullum á- skriftalistum, en flestir eiga eftir að skila. Það eru bæði ungir og gamlir, sem gerast áskrifendur að bók- unum, og úr öllum stéttum. Þá hafa fengist 1-—2 menn í hverri sveit landsins til ]>ess að safna áskrifendum þar og fleiri menn í kaupstöðum og kaup- túnum. Eins og nú horfir má því búast við, að upplag bók- anna verði óvenjulega mikið á íslenskan mælikvarða. Fyrstu bækurnar munu koma út í apríl næstkomandi. Eru það „Marlcmið og leiðir“ eftir AldoUs Huxley, í þýðingu dr. Guðmundar Finnbogasonar og „Sultur“, eftir Hamsun, þýdd af Jóni Sigurðssyni, skrifstofu- stjóra Alþingis. Landsmálafélagið Vörður hélt fund i gærkvöldi og hóf Thor Thors umræður um stjórn- málin. Rakti hann helstu lagasetn- ingu síðasta þings, sem og samn- ingaumleitanir og samvinnu lýðræð- isflokkanna. Gerði hann sérstaklega grein íyrir afstöðu sinni til þessa máls, og lýsti því næst árangri af stjórnarsamvinnunni. Talaði hann langt mál og snjalt, við hinar hestu undirtektir. Frekari umræður urðu ekki og var fundi slitið um kl. loyí.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.