Vísir - 21.02.1940, Page 1

Vísir - 21.02.1940, Page 1
Ritst jóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. Sími: 4578. Rintst jórnarskrifstof ur: iFélagsprentsmiðjan (3. hæð). Af greiðsla: HVERFISGÖTU 12. Sími: 3400. AUGLÝSINGASTJÓRI: Sími: 2834. 30. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 21. febrúar 1940. 43. tbl. Rússar hafa ekki tekið Koivisto og Björkö, segja Finnar Rús§a til þe§s að §ækja fram yfii* ^nvantavatn mi§kepna§t. EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun. Edward Beattie, fréttaritari United Press á víg- stöðvunum í Finnlandi símar í dag: Rússar halda áfram tilraunum sínum til þess að brjótast gegnum . Mannerheimvíggirðingarnar. Sendu þeir hverja hersveitina á fætur annari yfir Su- vantovatn í gær, en Finnar hrundu öllum áhlaupum þeirra. Rússar hafa birt tilkynningar um, að þeir hafi náð Koívisto á sitt vald og Björkö, en á báðum þessum stöð- um hafa Finnar ramger strandvirki. í Helsingfors er því algerlega neitað, að þessar fregnir séu réttar. !>a!ð er litið svo á, að sigrar Finna fyrir norðaustan og norðan Ladogavatn séu mjög mikilvægir, þar sem þeir geti bráðlega, eða er þeir hafa „hreinsað til“ nokkuru betur á þessum slóðum, flutt herlið, þaðan til Kyrjálaness. Finnar hafa nú tekið sér stöðu í annari virkjaröð Manner- heimvíggirðinganna ,en þau virki eru miklu ramgerari en þau í fremstu röðinni. Öllum áhlaupum Rússa á hinar nýju aðal- vamarstöðvar Finna, hefir verið hrundið. AFSTAÐA NORÐMANNA 1 ALTMáRK-MÁLINU. Norðmenn segja, að málið sé rætt a£ litlum skilningi í blöðum Bandamanna og hafi þeir í hótunum. 1 norskum blöðum er lögð mikil áhersla á þá yfirlýsingu Halvdan Kolit utanríkismála- ráðherra, að á Altmark hafi ver- ið dregið að hún flagg, sem sýndi, að skipið var í þjónustu þýska rikisins og bæri því að líta svo á, að það væri herskip, og undanþegið skoðun á norsk- um siglingaleiðum — skips- hafnirnar á norskum eftirlits- skipum liefði ekki haft rétt til annars en að sannfæra sig um, hvaða skip væri um að ræða, og það hefði verið gert með því að fara fram á að sjá skips- skjölin, sem einnig sýndu, að skipið var útbúið með loft- varnabyssum. Þetta gerðist út af Þrándheimsfirði, en þegar svo annað norskt eftirlitsskip stöðvaði skipið fyrir utan Berg- en, neitaði skipstjórinn að sýna skipsskjölin á ný, þar sem hann hefði þegar sýnt þau skip- herra á norsku eftirlitsskipi. í breskum og frönskum hlöð- um er málið rætt af litlum skilningi í garð Noregs. Það er kvartað yfir athafnaleysi Norð- manna og jafnvel haft í hótun- um við þá, og er það í litlu sam- ræmi við það, að vesturveldin Iiafa altaf sagst hera umhyggju fyrir hlutlausum smáþjóðum og virða réttindi þeirra. Um- mælin í breskum og frönskum hlöðum eru mjög einhliða og yfirleitt hallað á Norðmenn, en Iiinsvegar er málstaður þeirra eindregið studdur í blöðum Norðurlandaþjóðanna. Mikill mannfjöldi var við- staddur er þýsku sjómennirnir 6, sem féllu í bardaganum í Jössingfirði, voru jarðsungnir. Flokkur norskra sjóliða stóð heiðursvörð og þýski sendiherr- ann í Oslo og skipstjórinn á Alt- mark fluttu ræður. Skipstjór- inn á norska eftirlitsskipinu, sem nú er í Jössingfirði, lagði sveig á gröfina. Einnig var lagð- ur sveigur á hana frá Hitler og þýska flotamálaráðuneytinu og auk þess voru fjölda margir sveigar aðrir með þýskum lit- um. — Sjöundi þýski sjómað- urinn, sem særðist í bardagan- um, lést í sjúlcrahúsi í gær í Kristianssand. — NRP—FB. 60 franskir kommúnist- ar gerðir London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Fulltrúadeild franska þjóð- þingsins hefir samþykt með 492 atkvæðum gegn engu, að svifta rétti til þingsetu 60 þingmenn kommúnista. Bar ríkisstjórnin fram frumvarp hér að lútandi fyrir nokkuru og hefir sérstök nefnd liaft það tii meðferðar. Um leið og frumvarpið var lagt fram var tilkynt, að þeir þing- menn kommúnista, sem segði sig úr kommúnistaflokkinum og hætti öllu samstai'fi við j kommúnista, yrði undanþegnir j ákvæðum laganna. Þetta not- uðu sér sjö af þingmönnum kommúnista og sögðu sig úr flokkinum og hættu öllu sam- starfi við kommúnista í Moskva. Nefndin lagði til, að þessir sjö þingmenn héldi þing- mannsréttindum sinum og félst deildin á það. Þjóðverjar leigja ítölsk olíuflutninga- skip. K.höfn í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Þýskt félag hefir tekið á leigu fjögur ítölsk olíuflutningaskip með það fyrir augum, að flytja olíu frá Rússlandi (Batum í Ge- orgíu við austanvert Svartahaf) til búlgarskra hafna, en þaðan vei'ður olían flutt á jórnbraut til Þýskalands. Með þessu er stigið mikilvægt skref til þess að tryggja Þýska- landi olíubirgðir. í BÆKISTÖÐ ÞÝSKRA FLUGMANNA — á einni af eyjunum við vesturströnd Þýskalands. Þar liafa bækistöðvar flugvélar þær, sem gera árásir á skip á siglingaleiðum við Bretland. Eins og myndin sýnir eru tjöld flugmanna máluð þannig, að erfitt er að sjá þau úr lofti. ■ ai §1 sí-- segi? I>ýska stjópnin. —o— Eins og áður er getið sendi norska stjórnin orðsendingu til þýska stjórnarinnar varðandi þrjú skip sem sukku við Nor- egsstrendur í desember. Þýska stjórnin hefir nú svarað orð- sendingunni, eftir að ítarleg rannsókn hefir farið fram, að það geti ekki hafa verið þýskir kafbátar, sem söktu þessum skipum, því að engir þýskir kaf- biátar voru á þessum slóðum, þegar skipin fórust. NRP—FB. 'IVeiinBsi* Kijai'^íu) aí 18 sias&Bisia stliöfn. Það hafa nú fengist áreiðan- legar upplýsingar um, að skip- inu Eika frá Kragerö var sökt með tundurskeyti 29. jan. Að eins 2 af 18 manna áhöfn kom- ust af. NRP.—FB. Tyrkir Inia §ig: nndir §t^r|öld. K.höfn 1 morgun. Einkaskeyti frá United Press. í fregnum frá Istanbul í morgun segir, að lilgangur tyrknesku stjórnarinnar með því að láta landvarnalögin koma til framkvæmda, sé sá, að gera viðtækar ráðstafanir til þess að auka innanlandsfram- leiðslu og afla hráefna, mat- væla o. fl., með það fyrir aug- um, að nægilegar birgðir verði fyrir liendi, ef Tyrkir skykli lenda í styrjöld. Svar Noregsstjórnar við fyrirspurn- um Halifax lávarðs verður afhent í London í dag. EINKASKEYTI til Vísis. — London í morgun. Það er búist við því í London, að svar Noregssstjómar við fyrirspurnum og mótmælum Halifax lávarðs f. h. bresku stjórn- arinnar út af Altmarkmálinu, verði afhent í breska utanríkis- málaráðuneytinu í dag. Menn gera ráð fyrir, að frekari orðsendingar muni fara milli ríkisstjórnar Bretlands og norsku ríkisstjórnarinnar, þar sem þegar hefir komið fram mikill ágreiningur um hversu skilja beri alþjóðalög um réttindi herskipa til þess að fara inn í og sigla í landhelgi hlutlausra þjóða með fanga innanborðs. CHAMBERLAIN UM ' AFSTÖÐU NORÐMANNA. Chamberlain- flutti ræðu í neðri málstofunni í gær og sagði, að eftir ræðu þá, sem Koh t utanríkismálaráðherra Noregs hefði flutt í Stórþinginu, væri enn erfiðara en áður að skilja afstöðu Noregsstjórnar í ; þessu máli. Væri ekki anrtað ’ sjáanlegt en Norðmenn léti sig ! það litlu skifta hversu þýsk her- I skip misnotuðu norska land- ! Iielgi, þar sem eftir skoðun Kolit gæti lierskip flúið inn í landhelgi og siglt liundruð milna vegalengd í landhelgi með fanga styrjaldar-gagnaðila inn- anborðs. Væri þetta alt annar skilningur en Bretlandsstjórn legði í ákvæði alþjöðlegra laga um þetta efni og á þennan skiln- ing Norðmanna gæti hún ekki fallist undir neinum kringum- stæðum. Liti Bretlandsstjórn svo á, að Noregsstjórn hefði verið skylt að láta framkvæma skoðun í skipinu, en liún hefði Tves:§:|a vél- Sæfara frá Flatey og Kristjáns frá Rvílc. Sæfari funtdimi, en leit liald- Ið áfpam að ve b Kpistjáúi. Slysavamafélagið lét útvarpa í gær tilkynningu til skipa og voru þau beðin að svipast eftir v.b. Kristjáni frá Reykjavík, en það er 15 smál. bátur, gerður út frá Sandgerði. Ennfremur voru gerðar ráðstafanir til þess, að leitað væri að v.b. Sæfara frá Flatey, sem gerður er út frá Stykkishólmi á yfirstandandi vertíð V.b. Sæfari fór í róður að- farnaótt mánudags og óttuðust menn uin hann, er veður spillist nú upp úr lielginni. Voru sendir tveir bátar frá Stykkis- liólmi í gær til þess að leita lians, og fann annar þeirra hann undir Bjarneyjum. Hafði Sæfari leitað þangað í skjól. V.b. Kristján fór 1 róður á að- faranótt mánudags. Þegar veð- Norskt skip skot- ið í kaf við írlandsströnd. —o— 11 menn bjargast eftir mikla hrakniga, en 15 eru taldir af. London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Ellefu menn af norska eim- skipinu Teenstad(?), sem var skotið í kaf með tundurskeyti þ. 15. þ. m. við vesturströnd íi'- lands, hafa bjargast á land á eyju við írland, eftir fimm daga Iirakninga í opnum bát. Menn- irnir voru mjög þjalcaðir. 1 öðrum björgunarbát voru 13 menn. Ilefir ekki spurst til lians og óttast menn, að þeir hafi farist. ekki notað sér mörg tækifæri, sem henni buðust til þess og ekki gætt skyldu sinnar sem hlutlausrar þjóðar gagnvart Brellandi sem styrjaldaraðila. Ræðu Chamberlains var vel tekið, jafnt af stjórnarsinnum sem stjórnarandstæðingum. ur spiltist gerði Slysavarnafé- lagið þegar ráðstafanir til þess að leitað væri að bátnum, og fór björgunarskútan Sæbjörg úl á mánudagskvöld og er enn að leita. Dimmviðri var svo mikið á miðunum i gær, að ald- rei sást meira en svo sem 100 faðma frá skipinu og því varla von, að leitin bæri árangur. í morgun var sæmilega bjart og fóru 10 stórir vélbátar frá Sandgerði til þess að taka þátt í leitinni. Innbrotsþjófur að verki á Akureyri. Nýlega var innbrot framið á Akureyri í hinn svokallaða Nýja-Sölutum, en hann stendur við aðalgötu bæjarins. Hurðin að tuminum er með smárúðum og hafði ein þeiri'a verið brotin og á þann hátt leit- ast við að opna turninn, en það tókst ekki, með því að auk smekklássins hafði honum verið læst með lykli. Þegar hér var komið málum greip þjófurinn til þess ráðs að brjóta stóra rúðu í útstillingar- glugga og úr glugganum hafði hann á brott margskyns sæl- gæti, vindlinga o. fl. Þrátt fyrir þessar aðfarir varð fóllc eklci þjófsins vart og vissu menn ekki um innbrotið fyr en risið var úr rekkju um morg- uninn. Málið er nú í rannsókn en ekki hefir enn tekist að hafa upp á þeim, sem innbrotið framdi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.