Vísir - 21.02.1940, Qupperneq 1
Ritst jóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Rintst jórnarskrifstof ur:
iFélagsprentsmiðjan (3. hæð).
Af greiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
30. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 21. febrúar 1940.
43. tbl.
Rússar hafa ekki tekið
Koivisto og Björkö, segja Finnar
Rús§a til
þe§s að §ækja fram
yfii* ^nvantavatn
mi§kepna§t.
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun.
Edward Beattie, fréttaritari United Press á víg-
stöðvunum í Finnlandi símar í dag:
Rússar halda áfram tilraunum sínum til þess
að brjótast gegnum . Mannerheimvíggirðingarnar.
Sendu þeir hverja hersveitina á fætur annari yfir Su-
vantovatn í gær, en Finnar hrundu öllum áhlaupum
þeirra.
Rússar hafa birt tilkynningar um, að þeir hafi náð
Koívisto á sitt vald og Björkö, en á báðum þessum stöð-
um hafa Finnar ramger strandvirki. í Helsingfors er
því algerlega neitað, að þessar fregnir séu réttar.
!>a!ð er litið svo á, að sigrar Finna fyrir norðaustan og norðan
Ladogavatn séu mjög mikilvægir, þar sem þeir geti bráðlega,
eða er þeir hafa „hreinsað til“ nokkuru betur á þessum slóðum,
flutt herlið, þaðan til Kyrjálaness.
Finnar hafa nú tekið sér stöðu í annari virkjaröð Manner-
heimvíggirðinganna ,en þau virki eru miklu ramgerari en þau
í fremstu röðinni. Öllum áhlaupum Rússa á hinar nýju aðal-
vamarstöðvar Finna, hefir verið hrundið.
AFSTAÐA NORÐMANNA
1 ALTMáRK-MÁLINU.
Norðmenn segja, að málið
sé rætt a£ litlum skilningi
í blöðum Bandamanna og
hafi þeir í hótunum.
1 norskum blöðum er lögð
mikil áhersla á þá yfirlýsingu
Halvdan Kolit utanríkismála-
ráðherra, að á Altmark hafi ver-
ið dregið að hún flagg, sem
sýndi, að skipið var í þjónustu
þýska rikisins og bæri því að
líta svo á, að það væri herskip,
og undanþegið skoðun á norsk-
um siglingaleiðum — skips-
hafnirnar á norskum eftirlits-
skipum liefði ekki haft rétt til
annars en að sannfæra sig um,
hvaða skip væri um að ræða, og
það hefði verið gert með því
að fara fram á að sjá skips-
skjölin, sem einnig sýndu, að
skipið var útbúið með loft-
varnabyssum. Þetta gerðist út
af Þrándheimsfirði, en þegar
svo annað norskt eftirlitsskip
stöðvaði skipið fyrir utan Berg-
en, neitaði skipstjórinn að
sýna skipsskjölin á ný, þar sem
hann hefði þegar sýnt þau skip-
herra á norsku eftirlitsskipi.
í breskum og frönskum hlöð-
um er málið rætt af litlum
skilningi í garð Noregs. Það er
kvartað yfir athafnaleysi Norð-
manna og jafnvel haft í hótun-
um við þá, og er það í litlu sam-
ræmi við það, að vesturveldin
Iiafa altaf sagst hera umhyggju
fyrir hlutlausum smáþjóðum
og virða réttindi þeirra. Um-
mælin í breskum og frönskum
hlöðum eru mjög einhliða og
yfirleitt hallað á Norðmenn, en
Iiinsvegar er málstaður þeirra
eindregið studdur í blöðum
Norðurlandaþjóðanna.
Mikill mannfjöldi var við-
staddur er þýsku sjómennirnir
6, sem féllu í bardaganum í
Jössingfirði, voru jarðsungnir.
Flokkur norskra sjóliða stóð
heiðursvörð og þýski sendiherr-
ann í Oslo og skipstjórinn á Alt-
mark fluttu ræður. Skipstjór-
inn á norska eftirlitsskipinu,
sem nú er í Jössingfirði, lagði
sveig á gröfina. Einnig var lagð-
ur sveigur á hana frá Hitler og
þýska flotamálaráðuneytinu og
auk þess voru fjölda margir
sveigar aðrir með þýskum lit-
um. — Sjöundi þýski sjómað-
urinn, sem særðist í bardagan-
um, lést í sjúlcrahúsi í gær í
Kristianssand. — NRP—FB.
60 franskir
kommúnist-
ar gerðir
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Fulltrúadeild franska þjóð-
þingsins hefir samþykt með 492
atkvæðum gegn engu, að svifta
rétti til þingsetu 60 þingmenn
kommúnista. Bar ríkisstjórnin
fram frumvarp hér að lútandi
fyrir nokkuru og hefir sérstök
nefnd liaft það tii meðferðar.
Um leið og frumvarpið var lagt
fram var tilkynt, að þeir þing-
menn kommúnista, sem segði
sig úr kommúnistaflokkinum
og hætti öllu samstai'fi við j
kommúnista, yrði undanþegnir j
ákvæðum laganna. Þetta not-
uðu sér sjö af þingmönnum
kommúnista og sögðu sig úr
flokkinum og hættu öllu sam-
starfi við kommúnista í
Moskva. Nefndin lagði til, að
þessir sjö þingmenn héldi þing-
mannsréttindum sinum og félst
deildin á það.
Þjóðverjar leigja
ítölsk olíuflutninga-
skip.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Þýskt félag hefir tekið á leigu
fjögur ítölsk olíuflutningaskip
með það fyrir augum, að flytja
olíu frá Rússlandi (Batum í Ge-
orgíu við austanvert Svartahaf)
til búlgarskra hafna, en þaðan
vei'ður olían flutt á jórnbraut til
Þýskalands.
Með þessu er stigið mikilvægt
skref til þess að tryggja Þýska-
landi olíubirgðir.
í BÆKISTÖÐ ÞÝSKRA FLUGMANNA — á einni af eyjunum við vesturströnd Þýskalands. Þar
liafa bækistöðvar flugvélar þær, sem gera árásir á skip á siglingaleiðum við Bretland. Eins og
myndin sýnir eru tjöld flugmanna máluð þannig, að erfitt er að sjá þau úr lofti.
■ ai
§1
sí--
segi? I>ýska stjópnin.
—o—
Eins og áður er getið sendi
norska stjórnin orðsendingu til
þýska stjórnarinnar varðandi
þrjú skip sem sukku við Nor-
egsstrendur í desember. Þýska
stjórnin hefir nú svarað orð-
sendingunni, eftir að ítarleg
rannsókn hefir farið fram, að
það geti ekki hafa verið þýskir
kafbátar, sem söktu þessum
skipum, því að engir þýskir kaf-
biátar voru á þessum slóðum,
þegar skipin fórust. NRP—FB.
'IVeiinBsi* Kijai'^íu)
aí 18 sias&Bisia
stliöfn.
Það hafa nú fengist áreiðan-
legar upplýsingar um, að skip-
inu Eika frá Kragerö var sökt
með tundurskeyti 29. jan. Að
eins 2 af 18 manna áhöfn kom-
ust af. NRP.—FB.
Tyrkir Inia §ig:
nndir §t^r|öld.
K.höfn 1 morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
í fregnum frá Istanbul í
morgun segir, að lilgangur
tyrknesku stjórnarinnar með
því að láta landvarnalögin
koma til framkvæmda, sé sá, að
gera viðtækar ráðstafanir til
þess að auka innanlandsfram-
leiðslu og afla hráefna, mat-
væla o. fl., með það fyrir aug-
um, að nægilegar birgðir verði
fyrir liendi, ef Tyrkir skykli
lenda í styrjöld.
Svar Noregsstjórnar við fyrirspurn-
um Halifax lávarðs verður afhent
í London í dag.
EINKASKEYTI til Vísis. — London í morgun.
Það er búist við því í London, að svar Noregssstjómar við
fyrirspurnum og mótmælum Halifax lávarðs f. h. bresku stjórn-
arinnar út af Altmarkmálinu, verði afhent í breska utanríkis-
málaráðuneytinu í dag.
Menn gera ráð fyrir, að frekari orðsendingar muni fara
milli ríkisstjórnar Bretlands og norsku ríkisstjórnarinnar, þar
sem þegar hefir komið fram mikill ágreiningur um hversu
skilja beri alþjóðalög um réttindi herskipa til þess að fara inn í
og sigla í landhelgi hlutlausra þjóða með fanga innanborðs.
CHAMBERLAIN UM '
AFSTÖÐU NORÐMANNA.
Chamberlain- flutti ræðu í
neðri málstofunni í gær og
sagði, að eftir ræðu þá, sem
Koh t utanríkismálaráðherra
Noregs hefði flutt í Stórþinginu,
væri enn erfiðara en áður að
skilja afstöðu Noregsstjórnar í
; þessu máli. Væri ekki anrtað
’ sjáanlegt en Norðmenn léti sig
! það litlu skifta hversu þýsk her-
I skip misnotuðu norska land-
! Iielgi, þar sem eftir skoðun
Kolit gæti lierskip flúið inn í
landhelgi og siglt liundruð
milna vegalengd í landhelgi með
fanga styrjaldar-gagnaðila inn-
anborðs. Væri þetta alt annar
skilningur en Bretlandsstjórn
legði í ákvæði alþjöðlegra laga
um þetta efni og á þennan skiln-
ing Norðmanna gæti hún ekki
fallist undir neinum kringum-
stæðum. Liti Bretlandsstjórn
svo á, að Noregsstjórn hefði
verið skylt að láta framkvæma
skoðun í skipinu, en liún hefði
Tves:§:|a vél-
Sæfara frá Flatey og
Kristjáns frá Rvílc.
Sæfari funtdimi, en leit liald-
Ið áfpam að ve b Kpistjáúi.
Slysavamafélagið lét útvarpa í gær tilkynningu til skipa og
voru þau beðin að svipast eftir v.b. Kristjáni frá Reykjavík, en
það er 15 smál. bátur, gerður út frá Sandgerði. Ennfremur voru
gerðar ráðstafanir til þess, að leitað væri að v.b. Sæfara frá
Flatey, sem gerður er út frá Stykkishólmi á yfirstandandi vertíð
V.b. Sæfari fór í róður að-
farnaótt mánudags og óttuðust
menn uin hann, er veður
spillist nú upp úr lielginni. Voru
sendir tveir bátar frá Stykkis-
liólmi í gær til þess að leita
lians, og fann annar þeirra
hann undir Bjarneyjum. Hafði
Sæfari leitað þangað í skjól.
V.b. Kristján fór 1 róður á að-
faranótt mánudags. Þegar veð-
Norskt skip skot-
ið í kaf við
írlandsströnd.
—o—
11 menn bjargast eftir mikla
hrakniga, en 15 eru taldir af.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Ellefu menn af norska eim-
skipinu Teenstad(?), sem var
skotið í kaf með tundurskeyti
þ. 15. þ. m. við vesturströnd íi'-
lands, hafa bjargast á land á
eyju við írland, eftir fimm daga
Iirakninga í opnum bát. Menn-
irnir voru mjög þjalcaðir. 1
öðrum björgunarbát voru 13
menn. Ilefir ekki spurst til lians
og óttast menn, að þeir hafi
farist.
ekki notað sér mörg tækifæri,
sem henni buðust til þess og
ekki gætt skyldu sinnar sem
hlutlausrar þjóðar gagnvart
Brellandi sem styrjaldaraðila.
Ræðu Chamberlains var vel
tekið, jafnt af stjórnarsinnum
sem stjórnarandstæðingum.
ur spiltist gerði Slysavarnafé-
lagið þegar ráðstafanir til þess
að leitað væri að bátnum, og
fór björgunarskútan Sæbjörg
úl á mánudagskvöld og er enn
að leita. Dimmviðri var svo
mikið á miðunum i gær, að ald-
rei sást meira en svo sem 100
faðma frá skipinu og því varla
von, að leitin bæri árangur.
í morgun var sæmilega bjart
og fóru 10 stórir vélbátar frá
Sandgerði til þess að taka þátt
í leitinni.
Innbrotsþjófur að
verki á Akureyri.
Nýlega var innbrot framið á
Akureyri í hinn svokallaða
Nýja-Sölutum, en hann stendur
við aðalgötu bæjarins.
Hurðin að tuminum er með
smárúðum og hafði ein þeiri'a
verið brotin og á þann hátt leit-
ast við að opna turninn, en það
tókst ekki, með því að auk
smekklássins hafði honum verið
læst með lykli.
Þegar hér var komið málum
greip þjófurinn til þess ráðs að
brjóta stóra rúðu í útstillingar-
glugga og úr glugganum hafði
hann á brott margskyns sæl-
gæti, vindlinga o. fl.
Þrátt fyrir þessar aðfarir varð
fóllc eklci þjófsins vart og vissu
menn ekki um innbrotið fyr en
risið var úr rekkju um morg-
uninn. Málið er nú í rannsókn
en ekki hefir enn tekist að hafa
upp á þeim, sem innbrotið
framdi.