Vísir - 24.02.1940, Side 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Riíttstjórnarskrifstof ur:
Réiagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, laugardaginn 24. febrúar 1940.
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
A UGL ÝSING ASTJÓRI:
Sími: 2834.
46. tbl.
Hlé á sókn
talið líklegt.
4000 Rússar fallnir
í ba rdögiin iiin
m
Björkö. -- Viborg eim
í IiöikIiibii Finna.
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun.
Ralph Forte, fréttaritari United Press í Finnlandi,
símar í morgun: — Rússar náðu ekki Viborg
á sitt vald í gær, á 22. afmælisdegi rauða hers-
ins, eins og ýmsir óttuðust. Það er talið, að Rússar hafi
lagt svo mikið kapp á sóknina að undanförnu, sem
reynd ber, vitni, til þess að geta unnið afrek á vígstöðv-
unum í tilefni dagsins, en þar sem það tókst ekki búast
menn við, að Rússar kunni að fara sér hægara í bili.
Það hefir þó ekki enn dregið úr árásunum að ráði.
Yfirstandandi sókn byrjaði um mánaðamótin síðustu
og hafa Rússar beðið ógurlegt manntjón í þessari 24
daga látlausri sókn sinni. Manntjón þeirra hefir komist
upp í 3—4000 á dag og eru þá að eins taldir þeir, sem
fallið hafa. Rússar hafa lagt mikla áherslu á það að
undanförnu að ná Björkö á sitt vald, vegna virkjanna
sem þar eru (sbr. uppdrátt í blaðinu í gær, sem sýnir
legu Björkö). Til þess að ná Björkö hafa Rússar teflt
fram hverri hersveitinni á fætur annari og hafa a. m. k.
4000 menn fallið á þessum slóðum.
Finnar hafa haft þá aðferð að láta Rússa sækja fram,
og gera svo hliðarárásir til þess að hindra undanhald.
Þvi næst er hafin miskunnarlaus vélbyssuskothríð á
hinar innikróuðu hersveitir.
Ýmislegt bendir til, að Rússar ætli að halda áfram
ógnarstyrjöld í lofti — þar að eins hafi þeir enn skil-
yrði til þess að hafa betur. En margir ætla að þeim muni
skammgóður vermir að því, að þeir hafa margfalt fleiri
flugvélar en Finnar, því að aðstaða finska flughersins
batnar óðum.
m
Afitaða breikn ogr fröiiiku verka-
lýðisfélagranna til Finnlands.
Nefnd bresku og frönsku verklýðsfélaganna, sem hefir verið
á fundi í París, samþykti ályktun þess efnis að hvetja til þess
að Finnum verði veittur allur nauðsynlegur stuðningur, því að
Finnar berðist fyrir sömu hugsjónir og verðmæti og Banda-
menn, og jafnmikilvæg úrslit gæti orðið á vígstöðvum Finn-
lande sem á vesturvígstöðvunum. Lýðræðisþjóðimar berjast
fyrir frelsi, mannúð og uppræting ofbeldis, þær vilja ekki styrj-
aldir, en hafa neyðst til þess að grípa til vopna, til þess að unt
verði að uppræta meinsemdir ofbeldis og ógnunar, og koma á
nýrri skipan í álfunni, svo að félagslegt réttlæti verði í heiðri
haldið. Þá er lögð áhersla á það, að í öllum skiftum verkalýðs og
atvinnurekenda verði bygt á jafnrétti og lýðræðislegum grund-
velli.
Fínnar fá lán í Bandaríkjunum
af því að þeir hafa alt af
horgað skilvíslega vexti og
aföorganiraf styrjaidarlánum
sínum.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Bankamálanefnd fulltrúa-
deildar þjóðþingsins hefir sam-
þykt með 18 atkvæðum gegn 5
að samþykt verði frv. til laga,
sem af leiðir, að Finnar fá 20
milj. dollara lán í Bandarikjun-
um. Fénu má ekki verja til her-
gagnakaupa. Líklegt þykir að
Finnar kaupi farþegaflugvélar í j
Bandarikjunum, af þeirri gerð,
sem auðvelt er að brevta í liern-
aðarflugvélar. í frv. er heimil-
að að auka fjármagn Útflutn-
ings- og innflutningsbankans
um 20 milj. dollara og er að-
eins heimilt að lána þetta fé
þeim þjóðum, sem staðið hafa
í skilum með vexti og afborg-
anir af heimsstyrjaldarskuldum
sínum í Bandaríkjunum. En
allar styrjaldarþjóðirnar skulda
Bandaríkjamönnum enn meira
og minna fé frá þeim tíma —
nema Finnar.
RÚSSAR ÓTTAST BRESKA
FLOTANN.
—o—-
Það liefír valdið miklum
kvíða í Rússlandi, að bresk
flotadeild hefir sést á sveimi
fyrir utan Petsamo og Mur-
manskströndina. — NRP.
Rússa
Herlög geng-
in í gildi í
Tyrklandi?
—o—
Símasambandslaust
við Istanbul.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Óstaðfestar fregnir herma, að
herlög séu gengin í gildi í Tyrk-
landi og sé hér um að ræða var-
úðarráðstöfun, sem gripið var
til eftir að ákveðið hafði verið
að láta landvarnalögin koma til
framkvæmdá.
Fréttaritarar United Press í
Budapest, Belgrad, Sofia og
Amsterdam hafa ekki getað náð
sambandi við fréttaritara Uni-
ted Press í Istanbul. Hefir Verið
sambandslaust við Istanbul í
alla nótt. Það er þó fullyrt, að
þetta stafi ekki af því, að sím-
anum í Istanbul hafi verið lok-
að vegna pólitískra viðburða,
heldur sé um bilanir að ræða.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Fregnir frá Istanbul síðdegis
í gær herma, að tyrkneska
stjórnin sé búin að gefa fyrir-
skipanir um margskonar fram-
kvæmdir með skírskotun til
landvarnalaganna, sem nú eru
komin til framkvæmda. Fyrir-
skipað hefir verið eftirlit með
framleiðslu og verðlagi, út-
flutningi o. s. frv.
Menn búast við, að símasam-
bandið 'við Tyrkland muni bráð-
lega komast í lag. Það er ekki
kunnugt um það, hvernig á því
stendur, að ekki hefir tekist að
ná sambandi við Istanbul í nótt.
Fypipspurn frá
Henderson.
Einkaskeyti frá United Press.
London, í morgun.
C'
Fregn frá Osló hermir, að
norska ríkisstjómin hafi til
íhugunar, að skjóta deilunni út
af Altmarkmálinu undir úr-
skurð gerðardóms ef ekki tekst
méð samkomulagsumleitunum
að jafna ágreining Breta og
Norðmanna út af þessu máli.
Arthur Henderson hefir borið
fram fyrirspurn til Chamberla-
in forsætisráðherra, sem kemur
til umræðu í neðri málstofunni
28. febr. Fyrirspurnin er á þá
leið hvort ríkisstjórnin vilji, þar
sem hún hafi alt aðra skoðun
en norska ríkisstjórnin í Alt-
markmálinu, leita úrskurðar
alþjóðadómstólsins í Haag
varðandi þau álcvæði alþjóða-
TA
„EGG“ HANDA ENGLENDINGUM. — Myndin sýnir flutning sprengju um borð i þýskar flug-
vélar, áður en þær fara til Englands og „vei-pa“ þar þessum „eggjum“ sínum.
Sumner Welles kom-
inn til Gibraltar.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Sumner Welles, aðstoðarut-
anríkismálaráðherra Bandaríkj -
anna, kom til Gibraltar í gær á
ítalska hafskipinu Rex, sem er
á leið til Ítalíu frá New York.
Sumner Welles ætlar sem
kunnugt er að hafa tal af stjórn-
málamönnum í styrjaldarlönd-
unum til þess að kynna sér
ástand og horfur og gefa Roose-
velt forseta skýrslu um, en full-
yrt er, að Sumner Welles hafi
engar tillögur meðferðis frá
Roosevelt.
Sumner Welles neitar að
gefa blaðamönnum nokkurar
frekari upplýsingar um ferð
sína, en þegar hafa gefnar verið.
Hann hefir nýlega legið í inflú-
ensu og vart búinn að ná sér.
ÞEGAR E.S. STEINSTAD
SÖKK.
Breskur togari
tekinn í land-
helgi.
í gær tók varðbáturinn Óðinn
breska togarann Kópanes, að
veiðum innan landhelgi undan
Höfnum.
Kópanesið var þarna i hópi
fleiri breskra togara, sem allir
voru vopnaðir, en enginn
þeirra, annar en Kópanesið, var
fyrir innan landhelgislínu.
Óðinn setti menn um borð i
hinn breska togara og var lion-
um síðan siglt hingað. Kom
Kópanes hingað i gærkveldi, en
réttarhöld hófust í morgun.
Dómur var kveðinn upp i
málinu kl. 2 eftir hádegi í dag.
Skipstjórinn var dmdur í 29.000
gullkróna sekt, en afli og veið-
arfæri voru gerð upptæk. Skip-
stjórinn liefir aldrei verið tek-
inn fyrir landlielgisbrot hér áð-
ur. —
hefst í nótt.
Tímanum á að breyta, skv.
tilkynningu frá ríkisstjórninni,
kl. 2 í nótt, þannig að þá á að
flýta klukkunni um 1 klst Með
þessu hefst sumartíminn hér á
landi og er þessi breyting gerð
með hliðsjón af samskonar
breytingu sem árlega er gerð í
Englandi.
Þessi breyting er gerð fyr nú,
I heldur en síðast, og mun það
I stafa af því, að í nágrannalönd-
unum hefir verið tekið það ráð,
að flýta klukkunni fyr en venju-
lega.
WimMlm i iiatns-
tnýrinni á næstunni.
Eimskipið Steinstad frá
Oslo, 2470 smálestir, var skotið
i kaf með tundurskeyti við vest-
urströnd Irlands fimtudaginn
15. febr. Ellefu menn af skips-
höfninni björguðust á land sár-
þjakaðir eftir mikla lirakninga
í öðrum skipsbátnum. Skip-
stjórinn og 12 menn aðrir voru
í hinum bátnum. Höfðu þeir
segl. Flugvélar hafa leitað hans
árangurslaust. í bát þeirra, sem
björguðust, var mótor. - NRP.
BADOUIX HERFORINGI
SANNFÆRÐUR UM, AÐ
RÚSSUM TAKIST EKKI AÐ
BRJÓTAST í GEGN.
Belgiski herforiiiginn Ba-
douix, sem hafði með-yfirum-
sjón með byggingu Manner-
heimvíggirðinganna, hefir kom-
ist svo að orði, að hann sé ekki
í minsta vafa um, að önnur
virkjaröðin muni standast öll
áhlaup Rússa. — NRP.
laga, sem um er deilt, þ. e. um
rétt herskipa og kafbáta til þess
að fara um norska landhelgi á
stríðstíma. -—NRP.
j í dag hófust yfirheyrslur í
sjórétti i Osló út af Altmarlc-
j málinu. Margir yfirmenn af
Altmark eru komnir til yfir-
heyrslu. Sjórétturinn er haldinn
fyrir luktum dyrum. — NRP.
Skákþingld:
ísmiimlur v 2ui n
fyrsto ikákina.
Eins og Vísir skýrði frá í
gær, lieyja |>eir einvigi um
Skákmeistartitilinn Eggert Gil-
fer og Ásmundur Ásgeirsson.
Fær sá titilinn, sem fyr fær
þrjá vinninga, en jafntefli eru
ekki talin með.
Fyrsta skákin var tefld í
gær og lauk henni með sigri Ás-
mundar. Hafði hann hvítt og
náði óviðráðanlegri kongssókn,
eftir harða viðureign. Mátaði
hann Gilfer í 42. leik.
Næsta skák verður tefld á
miðvikudagskvöld.
Leitinni að v. b.
Kristjáni hætt.
Leitinni að v.b. Kristjáni var
haldið áfram í gær og nótt.
Leituðu Ægir og Sæbjörg á
öðrum slóðum, en Sandgerðis-
bátarnir um daginn.
Ægir fór dýpra en áður hafði
verið farið. Skygni var gott, en
ilt í sjóinn. Sæbjörg leitaði vest-
ur af Jökli og þar suður af.
Hvorugt skipanna varð nokkurs
vart.
Þegar Vísir átti tal við Slysa-
1 Rflfl MANNS hafa sótt
Awww sýningu Flugmodel-
félagsins í Þjóðleikhúsinu og er
meiri hluti þess fullorðnir. Eru
ummæli mjög á einn veg, að
sýningin sé hinum ungu mönn-
um til sóma.
Það fer nú að styttast þang-
að til sýningunni verður lokið,
en félagsmenn eru að undirbúa
modelflugdag, sem halda á í
Vatnsmýrinni. Geta bæjarbúar
þar fengið að sjá modelflugurn-
ar á flugi og sýnir það best,
hvað áhugi og handlagni
drengjanna getur afrekað. Þá
hefir og komið til mála, að sýn-
ingin verði flutt til Akureyrar
og jafnframt haldið námskeið
þar. Þetta er þó ekki fullráðið
ennþá.
Sýningin i Þjóðleikhúsinu
hefir opnað augu fjölda ung-
linga og fullorðinna fyrir gildi
þessara frístundavinnu drengj-
anna og æskja nú svo margir
j inngöngu í félagið, að félagið
gæti vafalaust 100-faldað fé-
lagatölu sína, ef það gæti aðeins
veitt félögum viðtöku. En sakir
efnisslcorts o. þ. h. er enn ekki
hægt að fjölga meðlimunum.
varnafélagið í morgun, var bú-
ist við þvi að leitinni yrði hætt
i dag. Er versta veður úti, að
sögn Jóhanns skipherra á Ægi
og stórsjór. Mun vera þýðingar-
lítið að leita framar.