Vísir - 24.02.1940, Síða 1

Vísir - 24.02.1940, Síða 1
Ritstjóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. Sími: 4578. Riíttstjórnarskrifstof ur: Réiagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, laugardaginn 24. febrúar 1940. Afgreiðsla: HVERFISGÖTU 12. Sími: 3400. A UGL ÝSING ASTJÓRI: Sími: 2834. 46. tbl. Hlé á sókn talið líklegt. 4000 Rússar fallnir í ba rdögiin iiin m Björkö. -- Viborg eim í IiöikIiibii Finna. EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun. Ralph Forte, fréttaritari United Press í Finnlandi, símar í morgun: — Rússar náðu ekki Viborg á sitt vald í gær, á 22. afmælisdegi rauða hers- ins, eins og ýmsir óttuðust. Það er talið, að Rússar hafi lagt svo mikið kapp á sóknina að undanförnu, sem reynd ber, vitni, til þess að geta unnið afrek á vígstöðv- unum í tilefni dagsins, en þar sem það tókst ekki búast menn við, að Rússar kunni að fara sér hægara í bili. Það hefir þó ekki enn dregið úr árásunum að ráði. Yfirstandandi sókn byrjaði um mánaðamótin síðustu og hafa Rússar beðið ógurlegt manntjón í þessari 24 daga látlausri sókn sinni. Manntjón þeirra hefir komist upp í 3—4000 á dag og eru þá að eins taldir þeir, sem fallið hafa. Rússar hafa lagt mikla áherslu á það að undanförnu að ná Björkö á sitt vald, vegna virkjanna sem þar eru (sbr. uppdrátt í blaðinu í gær, sem sýnir legu Björkö). Til þess að ná Björkö hafa Rússar teflt fram hverri hersveitinni á fætur annari og hafa a. m. k. 4000 menn fallið á þessum slóðum. Finnar hafa haft þá aðferð að láta Rússa sækja fram, og gera svo hliðarárásir til þess að hindra undanhald. Þvi næst er hafin miskunnarlaus vélbyssuskothríð á hinar innikróuðu hersveitir. Ýmislegt bendir til, að Rússar ætli að halda áfram ógnarstyrjöld í lofti — þar að eins hafi þeir enn skil- yrði til þess að hafa betur. En margir ætla að þeim muni skammgóður vermir að því, að þeir hafa margfalt fleiri flugvélar en Finnar, því að aðstaða finska flughersins batnar óðum. m Afitaða breikn ogr fröiiiku verka- lýðisfélagranna til Finnlands. Nefnd bresku og frönsku verklýðsfélaganna, sem hefir verið á fundi í París, samþykti ályktun þess efnis að hvetja til þess að Finnum verði veittur allur nauðsynlegur stuðningur, því að Finnar berðist fyrir sömu hugsjónir og verðmæti og Banda- menn, og jafnmikilvæg úrslit gæti orðið á vígstöðvum Finn- lande sem á vesturvígstöðvunum. Lýðræðisþjóðimar berjast fyrir frelsi, mannúð og uppræting ofbeldis, þær vilja ekki styrj- aldir, en hafa neyðst til þess að grípa til vopna, til þess að unt verði að uppræta meinsemdir ofbeldis og ógnunar, og koma á nýrri skipan í álfunni, svo að félagslegt réttlæti verði í heiðri haldið. Þá er lögð áhersla á það, að í öllum skiftum verkalýðs og atvinnurekenda verði bygt á jafnrétti og lýðræðislegum grund- velli. Fínnar fá lán í Bandaríkjunum af því að þeir hafa alt af horgað skilvíslega vexti og aföorganiraf styrjaidarlánum sínum. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Bankamálanefnd fulltrúa- deildar þjóðþingsins hefir sam- þykt með 18 atkvæðum gegn 5 að samþykt verði frv. til laga, sem af leiðir, að Finnar fá 20 milj. dollara lán í Bandarikjun- um. Fénu má ekki verja til her- gagnakaupa. Líklegt þykir að Finnar kaupi farþegaflugvélar í j Bandarikjunum, af þeirri gerð, sem auðvelt er að brevta í liern- aðarflugvélar. í frv. er heimil- að að auka fjármagn Útflutn- ings- og innflutningsbankans um 20 milj. dollara og er að- eins heimilt að lána þetta fé þeim þjóðum, sem staðið hafa í skilum með vexti og afborg- anir af heimsstyrjaldarskuldum sínum í Bandaríkjunum. En allar styrjaldarþjóðirnar skulda Bandaríkjamönnum enn meira og minna fé frá þeim tíma — nema Finnar. RÚSSAR ÓTTAST BRESKA FLOTANN. —o—- Það liefír valdið miklum kvíða í Rússlandi, að bresk flotadeild hefir sést á sveimi fyrir utan Petsamo og Mur- manskströndina. — NRP. Rússa Herlög geng- in í gildi í Tyrklandi? —o— Símasambandslaust við Istanbul. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Óstaðfestar fregnir herma, að herlög séu gengin í gildi í Tyrk- landi og sé hér um að ræða var- úðarráðstöfun, sem gripið var til eftir að ákveðið hafði verið að láta landvarnalögin koma til framkvæmdá. Fréttaritarar United Press í Budapest, Belgrad, Sofia og Amsterdam hafa ekki getað náð sambandi við fréttaritara Uni- ted Press í Istanbul. Hefir Verið sambandslaust við Istanbul í alla nótt. Það er þó fullyrt, að þetta stafi ekki af því, að sím- anum í Istanbul hafi verið lok- að vegna pólitískra viðburða, heldur sé um bilanir að ræða. K.höfn í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Fregnir frá Istanbul síðdegis í gær herma, að tyrkneska stjórnin sé búin að gefa fyrir- skipanir um margskonar fram- kvæmdir með skírskotun til landvarnalaganna, sem nú eru komin til framkvæmda. Fyrir- skipað hefir verið eftirlit með framleiðslu og verðlagi, út- flutningi o. s. frv. Menn búast við, að símasam- bandið 'við Tyrkland muni bráð- lega komast í lag. Það er ekki kunnugt um það, hvernig á því stendur, að ekki hefir tekist að ná sambandi við Istanbul í nótt. Fypipspurn frá Henderson. Einkaskeyti frá United Press. London, í morgun. C' Fregn frá Osló hermir, að norska ríkisstjómin hafi til íhugunar, að skjóta deilunni út af Altmarkmálinu undir úr- skurð gerðardóms ef ekki tekst méð samkomulagsumleitunum að jafna ágreining Breta og Norðmanna út af þessu máli. Arthur Henderson hefir borið fram fyrirspurn til Chamberla- in forsætisráðherra, sem kemur til umræðu í neðri málstofunni 28. febr. Fyrirspurnin er á þá leið hvort ríkisstjórnin vilji, þar sem hún hafi alt aðra skoðun en norska ríkisstjórnin í Alt- markmálinu, leita úrskurðar alþjóðadómstólsins í Haag varðandi þau álcvæði alþjóða- TA „EGG“ HANDA ENGLENDINGUM. — Myndin sýnir flutning sprengju um borð i þýskar flug- vélar, áður en þær fara til Englands og „vei-pa“ þar þessum „eggjum“ sínum. Sumner Welles kom- inn til Gibraltar. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Sumner Welles, aðstoðarut- anríkismálaráðherra Bandaríkj - anna, kom til Gibraltar í gær á ítalska hafskipinu Rex, sem er á leið til Ítalíu frá New York. Sumner Welles ætlar sem kunnugt er að hafa tal af stjórn- málamönnum í styrjaldarlönd- unum til þess að kynna sér ástand og horfur og gefa Roose- velt forseta skýrslu um, en full- yrt er, að Sumner Welles hafi engar tillögur meðferðis frá Roosevelt. Sumner Welles neitar að gefa blaðamönnum nokkurar frekari upplýsingar um ferð sína, en þegar hafa gefnar verið. Hann hefir nýlega legið í inflú- ensu og vart búinn að ná sér. ÞEGAR E.S. STEINSTAD SÖKK. Breskur togari tekinn í land- helgi. í gær tók varðbáturinn Óðinn breska togarann Kópanes, að veiðum innan landhelgi undan Höfnum. Kópanesið var þarna i hópi fleiri breskra togara, sem allir voru vopnaðir, en enginn þeirra, annar en Kópanesið, var fyrir innan landhelgislínu. Óðinn setti menn um borð i hinn breska togara og var lion- um síðan siglt hingað. Kom Kópanes hingað i gærkveldi, en réttarhöld hófust í morgun. Dómur var kveðinn upp i málinu kl. 2 eftir hádegi í dag. Skipstjórinn var dmdur í 29.000 gullkróna sekt, en afli og veið- arfæri voru gerð upptæk. Skip- stjórinn liefir aldrei verið tek- inn fyrir landlielgisbrot hér áð- ur. — hefst í nótt. Tímanum á að breyta, skv. tilkynningu frá ríkisstjórninni, kl. 2 í nótt, þannig að þá á að flýta klukkunni um 1 klst Með þessu hefst sumartíminn hér á landi og er þessi breyting gerð með hliðsjón af samskonar breytingu sem árlega er gerð í Englandi. Þessi breyting er gerð fyr nú, I heldur en síðast, og mun það I stafa af því, að í nágrannalönd- unum hefir verið tekið það ráð, að flýta klukkunni fyr en venju- lega. WimMlm i iiatns- tnýrinni á næstunni. Eimskipið Steinstad frá Oslo, 2470 smálestir, var skotið i kaf með tundurskeyti við vest- urströnd Irlands fimtudaginn 15. febr. Ellefu menn af skips- höfninni björguðust á land sár- þjakaðir eftir mikla lirakninga í öðrum skipsbátnum. Skip- stjórinn og 12 menn aðrir voru í hinum bátnum. Höfðu þeir segl. Flugvélar hafa leitað hans árangurslaust. í bát þeirra, sem björguðust, var mótor. - NRP. BADOUIX HERFORINGI SANNFÆRÐUR UM, AÐ RÚSSUM TAKIST EKKI AÐ BRJÓTAST í GEGN. Belgiski herforiiiginn Ba- douix, sem hafði með-yfirum- sjón með byggingu Manner- heimvíggirðinganna, hefir kom- ist svo að orði, að hann sé ekki í minsta vafa um, að önnur virkjaröðin muni standast öll áhlaup Rússa. — NRP. laga, sem um er deilt, þ. e. um rétt herskipa og kafbáta til þess að fara um norska landhelgi á stríðstíma. -—NRP. j í dag hófust yfirheyrslur í sjórétti i Osló út af Altmarlc- j málinu. Margir yfirmenn af Altmark eru komnir til yfir- heyrslu. Sjórétturinn er haldinn fyrir luktum dyrum. — NRP. Skákþingld: ísmiimlur v 2ui n fyrsto ikákina. Eins og Vísir skýrði frá í gær, lieyja |>eir einvigi um Skákmeistartitilinn Eggert Gil- fer og Ásmundur Ásgeirsson. Fær sá titilinn, sem fyr fær þrjá vinninga, en jafntefli eru ekki talin með. Fyrsta skákin var tefld í gær og lauk henni með sigri Ás- mundar. Hafði hann hvítt og náði óviðráðanlegri kongssókn, eftir harða viðureign. Mátaði hann Gilfer í 42. leik. Næsta skák verður tefld á miðvikudagskvöld. Leitinni að v. b. Kristjáni hætt. Leitinni að v.b. Kristjáni var haldið áfram í gær og nótt. Leituðu Ægir og Sæbjörg á öðrum slóðum, en Sandgerðis- bátarnir um daginn. Ægir fór dýpra en áður hafði verið farið. Skygni var gott, en ilt í sjóinn. Sæbjörg leitaði vest- ur af Jökli og þar suður af. Hvorugt skipanna varð nokkurs vart. Þegar Vísir átti tal við Slysa- 1 Rflfl MANNS hafa sótt Awww sýningu Flugmodel- félagsins í Þjóðleikhúsinu og er meiri hluti þess fullorðnir. Eru ummæli mjög á einn veg, að sýningin sé hinum ungu mönn- um til sóma. Það fer nú að styttast þang- að til sýningunni verður lokið, en félagsmenn eru að undirbúa modelflugdag, sem halda á í Vatnsmýrinni. Geta bæjarbúar þar fengið að sjá modelflugurn- ar á flugi og sýnir það best, hvað áhugi og handlagni drengjanna getur afrekað. Þá hefir og komið til mála, að sýn- ingin verði flutt til Akureyrar og jafnframt haldið námskeið þar. Þetta er þó ekki fullráðið ennþá. Sýningin i Þjóðleikhúsinu hefir opnað augu fjölda ung- linga og fullorðinna fyrir gildi þessara frístundavinnu drengj- anna og æskja nú svo margir j inngöngu í félagið, að félagið gæti vafalaust 100-faldað fé- lagatölu sína, ef það gæti aðeins veitt félögum viðtöku. En sakir efnisslcorts o. þ. h. er enn ekki hægt að fjölga meðlimunum. varnafélagið í morgun, var bú- ist við þvi að leitinni yrði hætt i dag. Er versta veður úti, að sögn Jóhanns skipherra á Ægi og stórsjór. Mun vera þýðingar- lítið að leita framar.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.