Vísir - 26.02.1940, Blaðsíða 1
&
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Rbtst jórnarskrifstof ur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSÍNGASTJÓRI:
Sími: 2834.
30. ár.
Reykjavík, mánudaginn 26. febrúar 1940.
47. tbl.
Rússar að linast í
sókninni á Vibor
Þeim er því hættara sem
þek sækja lengra fram.
EINKASKEYTI frá United Press. K.höfn í morgun.
Frá Helsingf ors er símað, að undanfarna daga
hafi verið hríðarveður á vígstöðvunum í Finn-
landi og hafi Rússum veist erfiðar fyrir um
alla aðflutninga. Vegna undanhalds Finna nýlega úr
fyrstu virkjaröð Mannerheim-víggirðinganna í aðra,
urðu Rússar að flytja fallbyssur sínar og það hefir
gengið erfiðlega fyrir þeim, bæði veðurs vegna og að
Finnar hafa haldið uppi skothríð á þá. Hafa þeir sent
f lokka út á svæðið f yrir framan víggirðingarnar í þessu
skyni. Um þessar mundir eru vindar vestlægir og hríð-
arveður mikil.
Er nú farið að draga mikið úr skothríð Rússa á Vi-
horg. Það er bent á það, að því lengra sem Rússar sæki
fram í áttina til Viborgar því hættara sé liði þeirra
vegna skothríðarinnar frá strandvirkjum Finna á
Bjarkarey.
i Öllum árásum Rússa á aðra hluta vígstöðvanna hefir
verið hrundið. Bardagar héldu áfram á Kuhmovíg-
stöðvunum, eftir seinustu fregnum að dæma, en yfir-
leitt hefir dregið úr bardögum vegna hríðarveðurs og
fannfergis.
Noríurlönd fylgja
áfram hlutleysis-
stefnunni.
Fullra bóta krafist
fyrir skipatjón.
Einkaskeyti frá United Press.
K.höfn í morgun.
—r Utanríkismálaráðherrar
Norðurlanda komu saman á
fund í K.höfn í fyrradag og stóð
f undurinn þar til síðdegis í gær.
Það var kunnugt áður en fund-
urinn var haldinn, að rætt
mundi verða um siglingamál
Norðurlandaþjóðanna, og biðu
menn með talsverðri óþreyju
tíðinda af fundinum, því að
gremja manna á Norðurlönd-
um út af árásunum á skip
þeirra fer sivaxandi. Einnig
voru Finnlandsmáhn rædd.
í tilkynningu, sem gefin var
út að fundinum loknum, er lát-
in í ljós von um, að samkomu-
lag náist, sem leiði til þess að
deilur Finna og Rússa jafnist.
Þá er þvi neitað, að erlend ríki
leitist við að hafa áhrif á hvern-
ig Norðurlönd framkvæmi
hlutleysisstefnu sína. Hlutleys-
isstefnunni verður fylgt áfram.
Um árásirnar á skip Norður-
landaþjóða segir, að brotin séu
alþjóðalög með þvi að sökkva
skipum þeirra og verði krafist
fullra bóta fyrir alt það tjón,
sém þær verði fyrir.
í tilk. er lögð áhersla á að
mótmæla alvarlega núverandi
sjóhernaðaraðferðum, sem
brjóti i bág við gildandi al-
þjóðalög, en afleiðingin sé stór-
kostlegt manntjón fyrir hlut-
lausu þjóðirnar og eignatjón.
Ráðherrarnir sendu kveðju-
símskeyti frá fundinum, til ut-
anríkismálaráðherra Finnlands
og forsætisráðherra Islands.
Leynileg bresk
útvarpsstöð.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Útvarpshlustendur í Rret-
landi heyrðu í gær útvarp frá
leynilegri útvarpssstöð og var
ráðist mjög hvasslega á Cham-
berlain. Var þessu útvarpi hag-
að þannig, að hlustendur héldu
að um væri að ræða fyrsta dag-
sknárlið hjá breska útvarpinu í
gærkveldi.
1 útvarpstilkynningum þess-
um var m. a. sagt, að Randa-
mönnum mundi aldrei takast að
tvistra Þjóðverjum, þeir myndi
verða sameinaðir áfram og ein-
huga, eins og þeir hefði verið,
og væri einingin orðin rótföst í
huga þeirra. Einnig var veist
allmjög að Chamberlain fyrir
stefnu hans.
Ráðstafanir hafa verið gerðar
til þess að komast að raun um
hverjir eru hér að verki og
hindra starfsemina.
Eins og menn muna hefir
svo nefnd „frelsisstöð" þýsk,
iðulega útvarpað ásökunum á
hendur Hitler og nasistum. Lít-
ur svo út sem hér eigi að gera
tilraun til þess að viðhafa svip-
aða aðferð og ráðast a bresku
stjórnina með leynilegum út-
varpssendingum.
Suier lllis 09
. Tiylir, oriou-
rekar Roosevelts
- - komnlr til italf u
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Sumner Welles, aðstoðarut-
anrikismálaráðherra Randa-
ríkjanna og Mr. Taylor, einka-
erindreki Roosevelts, komu til
Rómaborgar í gær. I gærmorg-
un komu þeir til Neapel á it-
alska hafskipinu Rex. Við kom-
una til Rómaborgar voru við-
staddir til þess að taka á móti
þeim sendiherra Randarikjanna
í Rómaborg og einkaritari Ci-
ano greifa, utanríkismálaráð-
herra ítalíu. Mr. Taylor fer á
fund páfa sem einkaerindreki
Roosevelts forseta.
Það hefir aðeins verið látið
uppi opinberlega, að Sumner
Welles fari til þess að kynna
sér ástand og horfur i Evrópu
með tilliti til alþjóðlegra mála.
Orðrómurinn um, að ný tilraun
verði gerð til þess að koma á
friði, hjaðnar ekki, það sé að
minsta kosti það sem fyrir
Roosevelt vaki, að kynna sér
likurnar fyrir þvi hvort það
muni bera nokkurn árangur að
gera slika tilraun. Vekur sér-
staka athygli, að Roosevelt
sendir sérstakan erindreka til
páfa.
Sumner Welles hefir neitað
að láta blaðamenn hafa neitt
eftir sér um erindrekstur sinn.
Viðræður við italska stjórn-
málamenn hefjast þegar í stað.
A FUND MUSSOLINl.
Það er búist við, að Summer
Welles verði 3—4 daga í Róma-
borg. Hann ræddi við Ciano
greifa, utanrikismálaráðherra
Italíu í dag, en kl. 5 síðdegis í
dag fer hann á fund Mussolini.
ATVINNUMÁLIN
1939.
í kveld kl. 8.20 flytur Ólaf-
ur Thors útvarpserindi er
hann nefnir „Atvinnumálin
1939". Fjallar erindið, eins
og nafnið bendir til, um at-
vinnumálin á síðasta ári og
ýmsar athuganir í því sam-
bandi.
Fljótandi veðurstöðv-
ar á Atlantshafi.
Einkaskeyti frá United Press.
K.höfn. í morgun.
Pan-American Airways hefir
tilkynt, að frá 15. mars verði
ekki komið við í Rermuda í
flugfei'ðunum yfir Atlantshaf,
og styttist þvi flugtíminn. —
Þetta er gerlegt vegna þess, að
Randarikjasjórn hefir ákveðið
að láta tvö skip hafast við um
miðbik Atlantshaf, til þess að
láta flugvélum i té veðurskeyti
og koma þeim til aðstoðar, ef
þörf krefur.
V.K.F. Framsókn
heldur fund annað kvöld kl. 8j4
í Alþý'ðuhúsinu viÖ Hverfisgötu.
| Fundarefni mörg félög. Ennfrem-
ur flytur Haraldur Guðmundsson
alþni., erindi um verkalýÖsmál. —
Konur, fjölmenniÖ.
SÆNSKIR SJÁLFROÐALIÐAR AÐ STÖRFUM. — Það voru sænskir sjálfboðaliðar, sem byrj-
uðu að berjast fyrstir allra sjálfboðaliða í Finnlandi. Þeir hafa m. a. veriðsendir til Norðurvígstöðv-
anna og myndih sýnir Svía við loftvarnabyssu á þeim slóðum.
Þjóðverjair og
oiía RimeiaB
Clodius væntanlegnp
EINKASKEYTI frá United Press. K.höfn í morgun.
Fyrir nokkuru var tilkynt, að Clodius, viðskiftasamninga-
maður þýsku stjórnarinnar, sem verið hefir í Rómaborg að und-
anförnu væri væntanlegur til Rukarest, til frekari samninga
við Rúmena. Nú hefir frést, að Clodius komi til Rúkarest í dag,
til þess að gera kröfur til Rúmena um aukinn útf lutning olíu
til Þýskalands. Ennfremur er gert ráð fyrir, að hann muni ræða
önnur mál pólitísks eðlis, við rúmensku stjórnina.
Samningar um viðskifti milli Itala og Þjóðverja voru und-
irskrifaðir í gær.
FLJÓT ENGLANDSFÖR,
Sunnudagskvöld eitt fyrir
nokkuru lagði vélskipið Helgi
frá Vestmannaeyjum af stað
þaðan til Englands. Hafði
skipið fullfermi af fiski og
seldi afla sinn laugardaginn
á eftir.
Þegar búið var að setja
fiskinn á land var skipið
| hlaðið kolum til Vestmanna-
eyja.. Lagði Helgi af stað
heimleiðis frá Englandi á
miðvikudag, eftir 4 daga legu
i í höfn og kom til Vestmanna-
eyja næsta mánudag. —
Munu menn vera sammála
um að þetta sé mjög fljót
ferð.
Aðalfundur Slysavarna-
félagsins í gær.
Gudbjartur Ólafsson kosinn
forseti.
Aðalfundur Slysayarnafélags íslands fór fram í gær í Varð-
arhúsinu og höfst kl. 4 síðd. ólafur R. Rjörnsson af Akranesi
var kosinn fumlarstjóri, en fundarritarar: Arnór Guðmunds-
son og Hafsteinn Rerþórsson.
Forseti félagsins, Friðrik Ól-
afsson, gaf skýrslu um starf-
semi félagsins á 8.1. ári, en hún
er nú orðin mjög víðtæk, eins
og menn munu geta rent grun í.
Á árinu druknuðu hér við'
land eða á landi 25 manns, en
þar af voru 12 lögskráðir sjó-
menn. Er þetta lægsta drukn-
anatala frá því að Slysavarna-
félagið fór fyrst að safna skýrsl-
um um þessi efni.
Þá skýrði forseti frá aðstoðar-
starfi Sæbjargar, er var mjög
mikilvægt, og loks skýrði haiin
frá aukningu félagsins á s.l. ári,
þar sem stofnaðar voru 30
deildir víðsvegar um landið.
Starfa þær allar af áhuga og
krafti.
Þá voru lesnir upp reikningar
félagsins og samþyktir. Var þvi
næst gengið til stjórnarkosn-
inga.
Friðrik ólafsson, skólastjóri,
baðst undan endurkosningu í
forsetasæti, en i hans stað var
þá kosinn Guðbjartur Ólafsson,
hafnsögumaður.
Magnús Sigurðsson, banka-
stjóri, baðst einnig undan end-
mkosningu í gjaldkeraembætti,
enda þótt fundarmenn sýndu
það óspart, að þeir kysu að hafa
hann áfram. Var þá Kristján
Schram, skipstjóri, kosinn i stað
Magnúsar og Hafsteinn Rerg-
þórsson endurkosinn ritari.
Meðstjórnendur voru kosnir
Friðrik Ólafsson og Sigurjón
Ólafsson.
Þá urðu langar umræður um
lagabreytingar, sem laganefnd
hafði haft til undirbúnings.
Lauk þeim umræðum á þá leið,
að breytingunum var visað aft-
ur til nefndarinnar og jafnframt
ákveðið að leita umsagnar deild-
anna um þessar breytingar.
Verða tillögurnar síðan lagðar
fyrir næsta aðalfund.
Að lokum var rætt um tal-
stöðvar í bátum, en v.b. Krist-
ján, sem nú er talinn af, hafði
enga talstöð. Var samþykt á-
skorun um að ávalt yrði hér
fyrirliggjandi nægt efni í tal-
stöðvar. Síðan var fundi slitið.
Útgerð og jarðrækt í
Borgamesi.
Hlutaútgerðarfélag hefir ný-
lega verið stofnað í Rorgarnesi,
er nefnist Rrák, og hefir félag-
ið þegar tekið línuveiðarann
Sæfara á leigu yfir vetrarvertíð-
ina, og fór skipið í fyrstu veiði-
förina sunnudaginn annan en
var.
Hefir verið ráðist í útgerð
þessa til þess fyrst og fremst að
bæta atvinnuskilyrði i Rorgar-
nesi, og gera menn sér góðar
vonir um aukna útgerð þar efra,
komist féiagið yfir byrjunarerf-
iðleikana á þessum vetri.
Stjórn félagsins skipa þeir:
Þorkell TeitssQn form., Magnús
Jónsson og Jónas Kristjánsson.
Ræktunarfélag Rorgarness
starfar nú af miklum áhuga, og
hefir félagið þegar fengið út-
mælt 25 ha. land úr Hamars-
landi til ræktunar og hefir verið
unnið að framræslu í haust, en
strax er vorar verður hafist
handa um önnur ræktunar-
störf.
Stjórn Ræktunarfél. skipa
þeir: Jónas Kristjánsson, Ölafur
Sigurðsson og Geir Jónsson.
Slys vid
liöfnlna.
Slys varð í morgun við höfn-
ina, þar sem verið var að skipa
kolum upp úr bv. Raldri.
Vildi þetta til með þeim hætti,
að slitnaði úr blokkum og varð
maður undir kolunum, sem
niður féllu. Meiðsli mannsins
urðu þó ekki mikil. Rifbeins-
brotnaði hann.
•Maður þessi heitir Guðmund-
ur Ólafsson.