Vísir - 28.02.1940, Síða 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
RL itstjórnarskrifstofur:
iPélagsprentsiniðjan (3. hæð).
30. ár.
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400. .
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
49. tbl.
Tyrkneska stjórnin telur
horfurnar síversnandi —
Oll tpknesk §kip
kölluð heim.
EINKASKEYTI til Vísis. — London í morgun.
Fregnir frá Istanbul herma, að ákvörðun hafi ver-
ið tekin um að kalla heim þegar í stað öll tyrk-
nesk skip, sem eru í siglingum. Eins og kunn-
ugt er af fyrri skeytum komu landvarnalögin svo köll-
uðu til framkvæmda fyrir skemstu í Tyrklandi, en þau
heimila mjög víðtækar ráðstafanir á ýmsum sviðum, ef
ástæður þykja til að óttast, að Tyrkland verði fyrir árás
eða ef líkur benda til, að erfitt verði að komast hjá þátt-
töku í styrjöld af öðrum ástæðum. Var skipuð sérstök
nefnd til þess að samræma allar þær varúðarráðstafan-
ir, sem gerðar verða, oe- er það þessi nefnd, sem tók á-
kvörðunina um að kalla heim skipin.
Nefndin hefir ákveðið, að, engin skip, sem sigla undir tyrk-
nesku flaggi, skuli framvegis og þar til annað verður ákveðið,
vera í förum til annara landa.
Það hefir ekki verið gefin nein skýring á þessari ákvörðun af
hálfu stjómarinnar, en það er alment litið svo á, að þessi ákvörð-
un hafi verið tekin, vegna þess að ríkisstjóm Tyrklands telji
horfumar enn hafa versnað, að miklum mun.
Fregnir hafa að undanförnu borist um mikinn liðssafnað
Rússa í Kaukasus og víðar þar syðra, en ekki er kunnugt, hvort
varúðarráðstafanir Tyrkja stafi af því, að þeir óttist árás af
Rússa hálfu.
Daladier fær
traustsyfir-
lýsingu.
öll fulltrúadeildin að
kalla styður stjómina
Einkaskeyti frá United Press.
K.höfn í morgun.
Dáladier forsætisráðherra
Frakklands skýrði frá því í gær,
að stjórnin áformaði að kóma
á fót sérstöku upplýsinga- og
útbreiðslumálaráðuneyti. Ýms-
ar stjórnardeildir hafa annast
störf þau, sem hér að lúta, en
tilgangurinn með stofnun nýs
ráðuneytis er að samræma störf
þessi undir einni stjórn á ein-
um stað.
Fulltrúadeildin hefir vottað
Ðaladier og stjórn hans traust
sitt með 450 atkv. gegn 1.
Tveimur þýskum
kafbátum sökt.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Winston Churcliill skýrði svo
frá i ræðu, sem hann flutti í
gær, að Þjóðverjar hefði átt um
70 kafbáta i byrjun stríðsins, og
um áramót síðustu hefði verið
búið að granda helmingi þessa
flota. Nokkurir nýir kafbátar
myndi hafa verið teknir í notlc-
un, en sennilega ekki yfir 15.
Frá áramótum hefir nokk-
ui'um kafbátum verið sökt. í
gær siðdegis barst fregn frá
París þess efnis, að franski tog-
arinn Simon, sem var við eftir-
lit á siglingaleiðum undan
Spánarströndum , hafi sökt
þýskum kafbát undan Finister-
rehöfða á vesturströnd Spánar.
Var varpað djúpsprengjum
að kafbátnum og sást olía
fljóta á yfirborði sjávar eftir á-
í'ásina.
Þá hefir borist fregn um að
norska skipið „Arnfinn“, 1400
—1500 sinál., hafi rekist á kaf-
bát á Norðursjó, og muni kaf-
báturinn hafa sokkið. Norska
skipið varð fyrir stórskemdum
og yfirgaf áhöfnin það, en
danskt skip bjargaði henni.
Engar vörur yfir Rúss-
land til Norðurlanda.
Einkaskeyti frá United Press.
London, í morgun.
Fregn frá Czernowitz í Rú-
meníu hermir, að rúmenskum
kaupsýslumönnum hafi verið
tilkynt, að rússneska stjórnin
hafi tilkynt þýsku stjórninni, að
framvegis muni liún ekki leyfa
neina vöruflutninga yfir rúss-
nesk lönd frá Rúmeniu til
Norðurlandaþjóðanna.
Er talið, að þetta stafi af vax-
andi gremju Rússa í garð
Norðurlandaþjóðanna fyrir
stuðning þeirra við Finna.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
í fregn frá Bukarest segir, að
undanfarinn hálfan mánuð hafi
Rúmeníustjórn fengið frá Bret-
landi 66 nýtísku hernaðarflug-
vélar, m. a. margar Blenheim-
Finnar verjast enn
við Vibory.
Miklir bardagar á norður-vígstöðvunum.
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í ntorgun.
Frá Helsingfors er símað í morgun, að Rússum hafi ekki orð-
ið frekara ágengt í sókn sinni til Viborgar. Finnar hafa enn ekki
hörfað úr vamarstöðvum sínum fyrir sunnan borgina og það
gerir þeim kleift að treysta vamir sínar í skógunum í nánd við
borgina, en trén standa þar mjög þétt og em skógamir því
mjög ógreiðir yfirferðar og gott til vamar. Viborg sjálf er í
rústum og allir íbúarnir hafa verið fluttir á brott.
Framvarðasveitir Rússa eru nú 12 kílómetra frá borginni.
BARDAGARNIR Á NORÐURVÍGSTÖÐVUNUM. FINNAR Á!
UNDANHALDI OG BÚAST UM í NÝJUM, RAMGERÐUM
VARNARSTÖÐVUM.
Frá Svanvik berast fregnir um, að miklir bardagar standi
yfir á norðurvígstöðvunum. Finnar hafa hörfað undan 12—14
ikílómetra í Pasvik-dalnum, þar sem þeir hafa búið um sig í
nýjum, mjög ramgerum vamarstöðvum. Á undanhaldi sínu
kveiktu þeir í öllum húsum og Rússar komu að brennandi þorp-
um eða rústum einum.
AUan daginn var barist heiftarlega og fram eftir nóttu, í ná-
vígi milli húsa, sem stóðu í björtu báli.
Rússar höfðu hundruð flugvéla á sveimi og gerði hver flug-
vélaflokkurinn á fætur öðrum árásir á Finna á undanhaldinu
og vörpuðu flugmennirnir á þá sprengikúlum og skutu á þá af
vélbyssum.
Finskir flugmenn hafa verið athafnasamari yfir öðmm stöð-
um, einkanlega að baki víglínu Rússa, og gert árásir á sam-
gönguleiðir þeirra og hernaðarlegar bækistöðvar.
Hinar nýju varnarstöðvar Finna á norðurvígstöðvunum eru
bygðar með svipuðu fyrirkomulagi og á Kyrjálanesi. Þar em
steypt fallbyssustæði, vélbyssubyrgi og skriðdrekagildrur o. s.
framv.
Afli glæðist í
Vestm.eyjum
Allir bátar á sjó i gær.
Vestm.eyjum í morgun.
Flestir bátar héðan voru á
sjó í fyrradag þrátt fyrir í-
skyggilega veðurspá frá kvöld-
inu áður. Sem betur fór, rættist
sú spá ekki, því strax um morg-
uninn var hér einhver sú mesta
blíða, sem hér hefir verið, það
sem af er þessum vetri, og hélst
það allan daginn.
Afli varð sá besti, sem enn
hefir komið á þessari vertið, en
var þó nokkuð misjafn. Á einn
bátinn, ísleif, formaður Ár-
mann Friðriksson, fengust um
1500 hundruð fiskjar, þar af
um tonn af ýsu. Þykir það mjög
gott.
Ármann er ungur maður, en
talinn þó þegar með fengsæl-
ustu formönnum hér.
1 gær var besta veður og allir
bátar á sjó.
Loftur.
sprengjuflugvélar og Hurricane
árásarflugvélar. Fleiri hernað-
arflugvélar frá Bretlandi eru
sagðar á leiðinni þangað.
Þá liafa Rúmenar fengið 40
þýskar hernaðarflugvélar —
Messersmitt árásarflugvvélar.
larðskjólftaspádOmðr.
Ef Edgár C. Thrupp í Van-
couvér í Kanada Kefir á réttu að
standá, þá er þyngdarlögmál Sir
Isaks Newton alrangt. Thrupp
hefir nefnilega spáð allmörgum
jarðskjálftum, t. d. jarðskjálft-
unum í Anatolíu, eftir kertning-
um, sem fara í-bága við lögmál
Newtons.
t júni s.L spáði Thrupp 24
jarðskjálftum og hræringum
fyrir árið 1939 og 1940. Hann
skrifaði ýmsum vísindamönn-
um úti um heiin um þetta og
um miðjan janúár höfðu ellefu
spádóma lians rætst. Segist
Thrupp hafa „endurskoðað“
þyngdarlögmál Newtons og lag-
fært það.
Svo mikið er a. m. k. víst, að
Konunglega stjörnufræðifélag-
ið í Kanada hafði nánar gætur
á spádómum Thrupps og hvort
þeir kæmi fram.
Hann sagði fyrir segultrufl-
anir 1. ágúst s.l. og það kom
heim. Hann spáði einnig segul-
stormi 10. ágúst ög flugmenn
Imperial Airways, sem voru á
leið yfir Atlantshafið nóttina
milli 10. og 11. ágúst urðu lians
varir.
Thrupp spáði því, að 8.—20.
nóv. yrði hættutími og það stóð
heima, Landskjálftar fundust i
.Tapan, Kaliforniu, Oregon,
Washington, Bresku Kolumbiu,
LOFTVARNABYSSUR PARÍSAR voru þöglar í þrjá mánuði
þangað til i fyrrinótt. Þá varð tveggja flugvéla vart yfir borg-
inni, en þær voru hraktar á brott. — Myndin sýnir Lebrun,
Frakklandsforseta (fremst) vera að skoða loftvarnabyssur, sem
komið er fyrir inni í miðri box-ginni.
49 þátttakendnr I Skíða-
móti Beykjavikor.
Fyrsta skíðamót ársins, Skíðamót Reykjavíkur, hefst næst-
komandi laugardag að Kolviðarhóli og lýkur sunnudaginn eftir.
Þátttakendur í mótinu verða 49 frá þrem félögum, Ármanni, í.
R. og K. R — Skíðadeild í. R. sér um mótið.
Fyna dag mótsins, laugar-
daginn 2. mars, vei'ður kept í
skíðagöngu og lxefst hún kl. 3
síðd. Kept verður i þrem ald-
ui-sflokkum og verður gangan
höfð styttri fyrir hina yngri
flokka, en hinn elsta.
Austui'-Bandarikjunum, Nica-
ragua, Alaska, Tj'rklandi og i
Missisippi-dalnum dagana 7.,
12., 14., 20. og 23. nóv.
Loks spáði Thrupp því, að
milli 25. des. og 10. jan. myndi
vei’ða jarðskjálftai', sem myndu
jafnast á við jarðskjálftana í
Cliile í jan. 1939. Þetta stóð
einnig heima, þvi að 27. des.
liófust hinir ógurlegu jarð-
skjálftar í Tyrklandi.
Ef einhvei’n skyldi langa til
þess að vera var um sig hér, þá
er rétt að tilfæra tvo af spádóm-
um Thrupps, sem eiga eftir að
rætast ef til vill.
20. júlí til 5. ág.: Þá munu
koma ægilegustu jai’ðskjálftar
þessarar aldar, að líkindum í
sömu löndum og þeir liafa orð-
ið áður. Aðalkippirnir munu
verða milli kl. 1—4 eftir mið-
nætti (isl. tími). Þessir land-
skjálftar munu jafnast á við þá,
sem urðu í Litlu-Asíu 13. ág.
og 5. sept. 1822, þegar 20 þús.
manna biðu bana.
20. okt. til 10. nóv. er aftur
hætt við miklum jarðskjálftum.
Aðalkippirnir munu verða kl.
11—1 að nóttu (isl. timi).
Það er vonandi, að þessir
spádómar rætist ekki, þótt all-
margir sá farnir að hafa trú á
Thrupp og telja hann vita
lengra nefi sínu.
I 1. aldursflokki verða menn
á aldrinum 20—35 ára. Gánga
þeir 18. km.
I 2. aldursflokki verða piítar
17—19 ára og ganga þeir lt)
km,
í 3. flokki eru piltar 15—16
ára garnlir og verður ganga
þeirra 5 km.
Keppendur i görigunni verða
alls 28. I fyi'sta flökki 13, í öðr-
um 7 og i þriðjá 8.
Sunnudaginn 3. mars hefst
skiðastökk kl. 11 áx’degis. Ekki
véi’ður stókkið af hinum stóra
stökkpalli í. R. heldúr verðúr
bygður minni pallur, því að
eingöngu þaulæfðir stöklcmerin
geta farið þann stærri.
Þátttakendur í stökkkeþninni
eru fimm að tölu.
Loks verður kept í svigi eftir
hádegið á sunnudaginn og liefst
það kl. 2. Þá verður kept í
tveim aldursflokkum, 13—15
ára og 16 ára og eldri. í síðar-
nefnda aldursflokknúm verða
þátttakendur 30, en þrir í yngri
flokknuivi. Ætlunin var áð hafa
svigkepni fyrir konur en engin
gaf sig fram.
Á mótinu verða seld merki,
sem gilda sem einskóriar að-
göngumiðar og kosta þéir 50
aura fyrir fullorðna og 25 aura
fyrir börn. Eiga menn að gera
sér það að reglu að kaupá þessi
merki í stað þess að liliðra sér
hjá þvi, eins og margir reyna.
Tekjurnar af merkjasölunni
eru einu tekjurnar af mötinu
og verði þær litlar sem engar,
dregur það úr líkindunum fyr-
ir því, að liægt sé að halda þessi
mót.