Vísir - 08.03.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Riotst jórnarskrifstof ur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
30. ár.
Reykjavík, föstudaginn 8. mars 1940.
57. tbl.
HERFLUTNINGAR YFIR
^W»*tSÍ!^!f»!*T •"¦.írr:i3-ígfi;^
NORÐUR
Tíaiðs vill íá ír því skorlO, h?ort unt
sé að hjálpi Finnuin meðþvi að Baiida-
ffienn sendi her yfir Noreg og Sviþjáð.
Finnar kunna að bera fram
kröfu um fullan stuðning
Bandamanna þá og þegar.
Blaðið Time.s hefir birt grein til þess að leggja frekari
áherslu á það, sem sagt var í grein í blaðinu degi áður,
en í henni var þess krafist, að Finnum væri veitt skjót
og mikil hjálp. Greinarhöfundurinn heldur því fram,
að samkvæmt 16. grein sáttmála Þjóðabandalagsins sé
skylt að leyfa flutning herliðs yfir Norðurlönd, þar sem
þau séu i Þ jóðabandalaginu, en herflutningarnir fari
fram til hjálpar bandalagsþjóð, sem á hefir verið ráðist.
Undir þetta er tekið í ritstjórnargrein í Times. Jafn-
framt er bent á, að allar líkur séu til, að Finnland fari
bráðlega fram á, að Bandamenn veiti því fullan stuðn-
ing, og má því búast við því, að hvenær sem er verði
þetta spurning sem leysa þarf, þ. e. hvort Svíar og Norð-
menn leyfa herflutninga yfir lönd þeirra Finnum til
hjálpar. — NBP.-FB.
Allar tilraunir Rússa til þess að komast yfir Víborgarflóa hafa
mistekist. Pinnar hafa varðflokka hvarvetna með ströndum
fram, til þess að hindra landgöngu Rússa, en að eins smáflokk-
. um hefir tekist að ná landi, og voru þeir fljótlega umkringdir.
Mest stoð hefir Finnum verið í flugliði sínu, en flugmennirnir
hafa varpað niður sprengikúlum á ísinn, og eru víða komnar í
hann stórar vakir, en Rússar hafa mist mikið af hergögnum
niður um ísinn. — NRP.—FB.
Framtíð Norðurlanda
undir samkomulags-
umleitunum komin.
EINKASKEYTI frá United Press. K.höfn í morgun.
Fregnir frá Helsingfors herma, að þótt engin opinber stað-
festing hafi fengist á því, að gerð verði tilrauri til þess að miðla
málum milli Finna og Rússa, sé ekki um annað hugsað meðal
finsku þjóðarinnar.
Finnar líta svo á, að þær umleitanir sem kunna að vera byrj-
aðar eða eru á uppsiglingu, varði framtíð allra Norðurlanda.
Aðstaða Svíþjóðar til málamiðlunar er erfið, en þar fyrir er
sagt að Svíar vinni af áhuga og kappi að því, að friður verði
saminn hið fyrsta. Einnig er lögð áhersla á, að Þjóðverjar vilji,
að styrjöldin milli Finna og Rússa verði leidd til lykta sem fyrst,
áður en Bandamenn kunna að senda her til Finnlands.
Strangri skeytaskoðun hefir verið komið á í Svíþjóð og sam-
bandslaust er milli Kaupmannahafnar og Stokkhólms. — öll-
um samningaumleitunum er haldið stranglega leyndum.
í Moskva er því hvorki játað eða neitað, að samkomulagsum-
leitanirnar fari fram.
ORÐRÓMUR UM
FRIÐARTILRAUNIR.
í gær bárust fregnir frá
Stokkhólmi og París þess efnis,
að verið væri að gera tilraunir
til þess að miðla málum milli
Finna og Rússa. I einni fregn-
inni var sagt, að Svíar væri að
gera tilraunir í þessa átt. Eng-
in áreiðanleg vitneskja hefir
fengist um, hvað hæft er í liin-
um ýmsu fréttum, sem um þetta
Iiafa verið birtar, nema að
finska stjórnin hei'ir staðfest, að
liún viti, að Rússar áformi aS
í 4
Sinir Mes riiir
i Lebrun rikislir-
seta oq Oðlðir.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Sumner Welles, aðstoðarut-
anríkismálaráðherra Banda-
ríkjanna er nú kominn til Par-
ísar, til þess að raeða við stjórn-
málaleiðtoga Frakklands ástand
og horfur í alþjóðamálum. Hef-
ir hann, sem kunnugt er af fyrri
skeytum, áður verið i Róma-
borg og Berlín sömu erinda. —
Við komuna tóku fulltrúar
frönsku stórnarinnar og sendi-
herra Bandaríkjanna í Paris a
móti honum. — Þvi næst fór
Sumner Welles á fund Lebrun
Frakklandsforseta, sem efndi
til hádegisveislu honum til heið;
urs. AS henni lokinni hófust
viðræðurnar við Daladier for-
sætisráSherra og aSra helstu
stjórnmálamenn Frakklands. —
Frá París fer Sumner Welles
til London.
bera fram nýjar kröfur, en hefir
ekki vitneskju um í hverju þess-
ar kröfur verða fólgnar. En i
gær gátu blöð í París um hinar
nýju kröfur Rússa, sem þau
sögðu vera víStækari en þær,
sem þeir báru fram er sam-
komulagsumleitanir Finna og
Rússa stóðu yfir s.I. haust. ^-
Rússar vilja nú fá alt Kyrjála-
nes og landsvæði fyrir norðan
Ladogavatn, hafnarborgina
Hangö, Björkö, Petsamo-hofn
fl.
o
ítalskt skip
í björtu báli
a Norðursjó
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Þýsk árásarflugvél varpaSi
sprengjum i morgun á ítalskt
skip á NorSursjó, Amelio
Lauro, 5335 smálestír. Kvikn-
aði í skipinu og logaðí það
stafna millí, er siðast fréttist.
Að þvi er United Press hefir
fregnað bjargaði annað italskl
skip — Títania — áhÖfninni, og
er búið að setja hana á land í
hafnarborg á austurströnd Eng-
lands.
Þettá mun vera í fyrsta skifti,
seni loftárás er gerð á italskt
skip i styrjöldinni.
iininrtíti.
Einkaskeyti til Vísis.
Kaupm.höfn í morgun.
§
Amerískur verkfræðingur
af norskum ættum, A. Kro-
seng að nafni, sem hefir lengi
fengist við ýmsar uppfinning-
ar og fengið einkaleyfi á
þeim, hefir nú tekið einka-
leyfi á nýrri gerð björgunar-
báta.
Þykir sérfróðum mönnum
bátar þessir mikil framför
frá því, sem áður var og hafa
sérstakt gildi nú á stríðstím-
um.
Aðalkostirnir eru fólgnir í
því, að jafnskjótt og bátverj-
ar hafa komið sér fyrir, er
hægt að loka bátnum örugg-
lega, þótt hann sé annars eins
og venjulegir opnir björgun-
arbátar. Þá er þessi bátur út-
búinn mjög aflmikilli skrúfu,
sem gerir bátnum kleift að
komast frá skipshliðinni um
leið og hann snertir sjóinn.
Er þá sú hætta útilokuð, að
báturinn brotni við skipshlið-
ina.
Loftorusta í
24.000 feta
hæð.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Tvær Heinkelflugvélar vorn
skotnar niður í gær.. Lenti í
mörgum lof tbardögum við aust-
urströnd Bretlands og komust
Heinkelflugvélarnár inn yfir
land, en vörpUðu engum
sprengikúlum. Ein Heinkel-
flugvél sást fljúga hratt til hafs
og 5 Spitfire-flugvélar á eftir
henni, — Yfir Aberdeen réðust
breskar árásarflugvélar á
Heinkel-flugvél í 24.000 feta
hæð. Heinkelflugvélin varð fyr-
ir skötum og var hætt að láta
að stjórn, er hún hrapaði í sjó
niður. Bresku flugvélarnár
gerðu atlögu að henni til skiftis.
Sir Kingsley Wood flugmála-
ráðherra sagði í gær, að Spit-
fire-árásarflugvélarnar og Wéll-
ington-sprengjuflugvélarnar
hefði reynst svo yel, að hann
vildi ekki skifta á þeim og þýsk-
um flugvélum af sömu stærð.
Stöðugt er veríð að endurbætá
og fullkomna breskar herháð-
arflugvélar, sagði Sir Kingslay.
Sæbjörg dregur bát
til Keflavíkur.
Eftir hádegið í gær dró Sæ-
bjorg vélbátínn „Gullþór" frá
Seyðisfirði til Keflavíkur. Hafði
vél bátsins biláð.
Var báturinn að ljúka við að
draga línuna, þegar vélin stöðv-
aðist og var ekki hægt að korna
henni af stað áftur. Var þetta
um kl. 2.
Gullþór mun vera gerður út
frá Sandgerði.
DALAMER OG WILLIAM C. BULLITT. Mynd þessi var tekin,
er Wililam C. Bullitt, sendiherra Bandarikjanna í Paris ræddi
við Daladier (t. y. með hatt i hendi) um viðhorfið í alþjóðamál-
um, eigi alls fyrir löngu. — Nú er Summer Wells í París og ræðir
hann við Daladier f. h. Roosevelts, en Bullitt er viðstaddur um-
ræðurnar.
• 1 • <r
Jf ZUUJ OH
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Fregn frá Washington hermir, að Jesse Jones, yfir-
maður lánastarfsemi Bandaríkjanna hafi tilkynt, að
Útflutnings- og Innflutningsbankinn hafi veitt Kína 20
milj. dollara viðbótarlán, Danmörku 10 milj, dollara
lán og íslandi 1 milj. dollara lán. — Lán þessi eru til
vörukaupa og er tekið fram, að fénu megi ekki verja
til kaupa á hergögnum.
NB. Vísi barst skeyti þetta um hádegisbilið og
tókst ekki að fá staðfestingu á fregninni um lánið til
íslands áður en blaðið f ór í pressuna.
Vólbátup
Á fimta tímanum í fyrrinótt
fór vélbátur einn, sem Var á
leið til ísaf jarðar, framhjá
Skálavík og sá ljós inni í vík-
inni.
Sintu bátverjar því ekki og
héldu áfram ferð sinni. 1 gær,
eftir hádegið, komu skilaboð
um það frá Skálavík, aS v,b, Is-
björn, eign Samvinnufélags ís-
firSinga, hefSi strandaS í Skála-
vík kl. 4,30 i fyrrinótt. Er gert
ráS fyrir aS vélbáturinn, sem
fór þar framhjá kl. rúmlega 4,
hafi séS til Isbjarnar rétt áSur
en hann fór upp.
DimmviSri var allmikiS er
þetta skeSi og mun þaS hafa
átt sök á strandinu, þvi aS um
bilun á vél eSa útbúnaSi bátsins
var ekki aS ræSa.
Þegar Vísir átti tal viS ísa7
f jörð í morgun, voru bátverjai'
komnir þangaS. SögSu þeir aS
ekkí hefSi veríS sérlega ilt í sjó-
íiin, er Isbjörn strandaSi, og
hefSi þeir getaS komist í land
á björgunarbátnum.
Báturinn er nú runninn af
skerinu og sokkinn. Hann er vá-
trygSur hjá VélbátaábyrgSarfé-
lagi ísfirSinga og er félagiS nú
aS rannsaka möguleika á hjörg-
un bátsins. Þykir ólíklegt, að
hægt verði að bjarga bátnum,
en þó elcki útilokað. Að svo
ireir areng-
ir slasast
Héngu aífan i bíí
Kl. 11.55 var lögreglunni til-
kynt i síma, að tveir litlir dreng-
ir Væri suSur á Reykjavíkur-
vegi hjá GrímsstaSaholti og
væri þeir allblóSugir, Var haldið
að þeir hefði fallið af bil.
Lögreglan brá strax við og
fór á vettvang. Höfðu drengirn-
ir fengið áverka á þöfði, —
höfðu hangið aftan í bil og hlot-
ið þessi meiðsl, er þeir stukku af
bílnum. Drengirnir heita Þor-
steinn og Jóhann Egilssynir, Ás-
vallagötu 25, 5—6 ára gamlir.
Lögregluþjónarnir bjuggu um
meiðslin, fluttu drengina síðan á
Landspítalann og loks heim til
þeirra. ,
Þetta slys sýnir, að það verð-
ur aldrei nógsamlega brýnt fyr-
ir börnum og unglingum, hve
hættulegt það er, að hanga aft-
an í bílum. Ef slys hljótast af,
er ekki hægt að kenna bílstjór-
anum um hvernig fer.
komnu máli verður ekki um það
sagt.
Isbjörn var 43 smál. að stærð.
— Formaðurinn heitir Jakob
Gíslason.