Vísir - 16.03.1940, Side 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
'h
Rií'itst jórnarskrifstof ur:
félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, laugardaginn 16. mars 1940.
64. tbl.
Finska þingið samþykkir
friðarsamningana með 145
gegn 3 atkvæðum
Ryti fopsætisrádherra
flutti aðalræðuna.
Finskir
flóttamenn
til Kanada.
Boöafoss fer elli
frí BaiMfyra
póstieilai sr leyst
Samningar Bretlands
og Bandarikjamanna.
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun.
Finska þingið kom saman í gær til þess að ræða
fullnaðarsamþykt (ratifikation) friðarsamn-
inga Finna og Rússa. Umræður stóðu liðlega
hálfa þriðju klukkustund og voru friðarsamningarnir
samþyktir að þeim loknum með 145 gegn 3 atkvæðum.
Þeir, sem fæður fluttu, gerðu grein fyrir atkvæði sínu
og samflokksmanna á einn veg, að Finnum hefði verið
nauðugur einn kostur, að hætta vörninni, þar sem þeim
barst ekki næg hjálp að, og var þá ekki nema um eina
leið að ræða, að ná samkomulagi við Rússa,
Það kom fram í ræðu Ryti forsætisráðherra, sem
flutti aðalræðuna, að finska stjórnin haf ði oftlega reynt
að koma því til leiðar, að samkomulagsumleitanir yrði
hafnar, en því var neitað með skírskotun til yfirlýsingar
sovét-stjórnarinnar, að hún viðurkendi að eins Kuus-
inen-stjórnina, sem Rússar settu á stofn í Teriyoki, en
eftir því sem stríðið stóð lengur og Rússum gekk erfið-
legar á ýmsum vígstöðvum þóttu líkurnar batna fyrir,
að hægt yrði að fá Rússa til þess að ræða við Helsing-
forsstjórnina, og tókst það að lokum með aðstoð Svía.
Friðarsamningarnir, sem liggja hér fyrir framan mig,
eru árangurinn af þessum samkomulagsumleitunum,
sagði Ryti, og gerði því næst grein fyrir því, hvers vegna
Finnar urðu að hætta stríðinu, þ. e. vegna þess að þeim
barst ekki nóg og skjót hjálp erlendis frá, en finski her-
inn var uppgefinn orðinn eftir mánaða hvíldarlitla
bardaga.
í ræðulok hvatti Ryti finsku þjóðina til þess að vinna
samhuga að viðreisninni, með sverð í annari hendi og
reku í hinni, og glata ekki trú sinni á framtíðina.
Hið fyrirhugraða rarnarbandalag:
Fimia. Svía og' Horðinanua aðalum-
ræðnefni heimsblaðanna,
Enn hefir að eins náðst samkomu-
iag um að athuga skilyrðin til að
stofna siík bandalag.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
í Kanada hafa komið fram
tillögur ,um, að verja fé því
sem safnað liefir verið þar í
landi til stuðnings Finnum
vegna s tyr j aldarerf iðleika
þeirra, verði varið til þess að
flytja finska flóttamenn til
Kanada og koma þeim þar fyr-
ir. Uppástunga þessi hefir feng-
ið góðar undirtektir meðal
þeirra, sem stóðu að fjársöfn-
uninni, og stjórnarvalda lands-
ins.
240:0
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Umræðunum í öldungadeild
frakkneska þjóðþingsins er nú
lokið. Eins og áður var símað
var rætt um Finnland og styrj-
öld Bandamanna og Þýska-
lands. Daladier forsætisráð-
lierra flutti langa x-æðu og gerði
grein fyrir gangi styrjaldarinn-
ar. Ennfremur fyrir afstöðu
Bandamanna til Finnlands. Lét
hann í ljós aðdáun og samúð i
garð Finna. Umræðunum, sem
hófust í fyrradag, lauk með þvi,
að deildin samþykti ályktun,
þar sem látin var í Ijós aðdáun
á Finnum fyrir frækilega vörn
Krafa Breta um eftirlit
með póstsendingum að og frá
Ameríku, virðist ætla að leiða
til nokkurra átaka milli
þeirra og Bandaríkjastjórnar
og til margvíslegra óþæginda
fyrir hlutlausu löndin, ef ekki
rætist úr.
Bandaríkin hafa þegar
svarað kröfu þessari með því,
að banna öllum Skandinav-
iskum skipum að -halda úr
höfnum, nema því aðeins að
þau flytji með sér póst. Bret-
ár krefjast. hinsvegar að öll
þau skip, sem amerískan póst
taka, komi í breska eftirlits-
höfn tíl skoðunar. Um þetta
standa nú yfir samningar
millum stjóma Bretlands og
Bandaríkjanna, en ómögulegt
er að vita hve lengi þeir
kunna að dragast, með því að
hér er um erfitt deiluefni að
ræða.
Goðafoss átti að fara frá
New York kl. 5 sd. í gær, en
vegna þessarar deilu liggur
hann þar enn, og lætur ekki
úr höfn fyr en deilan er leyst.
Kann alt þetta að valda hin-
um mestu erfiðleikum fyrir
viðskifti okkar Islendinga við
Vesturheim.
þeirra og mikil samúð þeim til
handa, og ríkisstjórninni vottað
traust með 240 atkvæðunx gegn
engu.
Finnar sópast bnrt fir hór-
nönnnm, sem Rfissar fá.
Um gervöll Norðurlönd og raunar um heim allan var mest
rætt í gær um hið fyrirhugaða varnarbandalag Norðurlanda-
þjóða. Fregnin um það, að finska stjómin hefði snúið sér til
ríkisstjóma Noregs og Svíþjóðar með tilmæli um, að athuguð
væri skilyrðin til þess að koma á slíku bandalagi, vakti svo mikla
eftirirtekt, að aðrar fregnir dagsins þóttu lítilfjörlegar í sam-
bandi við hana.
Það verður að viðurkenna, að aðstaða Noregs og Svíþjóðar
hefir versnað eftir friðarsamningana, og það mælir með því,
að Noregur og Svíþjóð athugi skilyrðin til þátttöku í slíku varn-
arbandalagi, að skoðun norskra stjórnmálamanná, en málið er
varhugavert að mörgu leyti, a. m. k. frá sjónarmiði Norðmanna,
sem yrði að endurskipuleggja allar landvarnir sínar. Ennfrem-
ur er tekið skýrt fram í Svíþjóð, að svo sé litið á, að það ákvæði
finsk-rússnesku friðarsamninganna, að Finnar skuli ekki taka
þátt í neinum samtökum gegn Rússum, hindri ekki að þeir taki
þátt í varnarbandalagi.
Koht utanríkismálaráðherra Norðmanna sagði í útvarpsræðu
í fyrrakvöld, að hin opinbera fyrirspurn Vesturveldanna um
hvort. Noregur vildi veita leyfi til herflutninga til Finnlands,
hefði ekki borist fyrr en daginn áður en samkomulagið náðist
í Moskva.
Ennfremur upplýsir Koht, að norska stjórnin hafi ekki feng-
ið nein tilmæli varðandi varnarbandalag Norðurlanda fyrr en
11. mars. Sé það því ekki rétt, að slík tilmæli hafi komið fram
áður en finsku samningamennirnir fóru til Moskva. Norska
stjórnin hefir ekki skuldbundið sig til annars en að athuga skil-
yrðin til þess að koma á slíku varnarbandalagi, og enn Iiggur
ekki fyrir uppkast að neinum samningi. Hinsvegar, sagði Koht,
að margt mælti með því, að málið væri tekið til alvarlegrar íhug-
unar. — NRP.—FB.
Enxinn Finni vill búa við rússneska stjórn.
Flutningar frá Kyrjálanesi og öðrum landsvæðum í Finnlandi,
sem Rússar fá, eru þegar hafnir í stórum stíl. Allir íbúarnir á
þessum svæðum ætla á brott þaðan.
Enginn Finni viU ala aldur sinn þar sem sovét-stjórn-
in tekur við völdum.
öll flutningatæki landsins hafa verið tekin til notkunar við
flutningana. Hlutverk stjórnarinnar er að sjá yfir 400.000 manns
fyrir nýjum heimilum og skilyrðum til þess að komast af. Fólk-
ið úr Viborgarléni verður flutt til Mið-Finnlands, en fólkið frá
Hangö til Vestur-Finnlands. — NRP.—FB.
Edward Beattie fréttaritari
United Press í Finnlandi, símar
í morgun:
70.000 FJÖLSKYLDUR FÁ NÝ
HEIMKYNNI.
Fólkið streymir nú í þúsunda-
lali frá þeim landsvæðum Finn-
lands, sem Bússar fá samkvæmt
friðarsamningunum, til annara
landshluta. Hersveitir fara lxægt
eftir og eru fólkinu til margvís-
legrar aðstoðar, m. a. við flutn-
ing á húsmunum þess.
Rússneskar skriðdrekasveitir
og hersveitir eru nú á förum frá
Norður-Finnlandi.
Finskir flóttamenn frá Norð-
ur-Noregi eru nú famir að
flykkjast lieim.
Öll flutningatæki landsins
liafa verið tekin í notkun við
flutningana, járnbrautarlestir,
vöruflutningahílar og einkabil-
ar.
MESTA TJÓNIÐ
AÐ MISSA SKÓGANA.
Það er talið, að mesta tjón
Finna vegna friðarsamninganna
sé að missa skógan á Kyrjála-
nesi, en þar eru fjölda margar
sögunarmylnur og verksmiðjur.
Hinsvegar lialda þeir kopar- og
nikkelnámum sínum.
HEIFTARLEGAR ÁRÁSIR Á
SANDLER, FYRRVERANDI
UTANRÍKISMÁLARÁÐHERRA
SVÍA, 1 ÞÝSKU BLAÐI.
Völkisclier Bebacliter ræðst
Frh. á 2. bls.
KRONBORG SÉÐ FRÁ GULLFOSSI.
Vegna ísalaga i dönsku sundunum gekk ferð Gullfoss, hin
síðasta, mjög erfiðlega. Fór liann héðan hinn 6. fehrúar, en kom
til Kaupmannahafnar eftir 20 daga, en þar af liafði hann verið
8 sólai'hringa frá Porsgrund. Naut skipið aðstoðar ísbi'jóta til
þess að komast leiðar sinnar, og gekk ferðin að lokum greiðlegar
en lijá mörgum öðrum skipum, sem orðið liöfðu samflota er
ísbi'jótai'nir komu til sögunnar. Visir lxitti m. a. einn farþegann
að máli í gær, og fékk hjá honum mynd þá, sem hér birtist og
gefur hún góða hugmynd um hvernig isinn hefir brotnað og
haldist upp i sundunum. Myndin er tekin af þilfari Gullfoss. —
Ófært npp að
Kolviðarhóli
Hríðarveður það, sem verið hefir hér í bænum í morgun mun
að líkindum breiðast um alt landið, að því er Veðurstofan tjáði
Vísi í morgun. Má e. t. v. búast við að veðurhæðin aukist eitt-
hvað. Hinsvegar bjóst Veðurstofan við því að hríðinni slotaði
bráðlega hér í bænum og nágrenni eins og nú hefir komið á
daginn.
Ófært er nú orðið að Kolvið-
ai'lióli og var þar í morgun tals-
verð lu'íð. Enn er fært suður
méð sjó og upp i Mosfellsdal.
Var ætlunin að skíðamenn
fæii upp eftir kl. 10 fyrir há-
degið, en þegar til kom varð
ekkert úr því og er óliklegt tal-
ið, að skíðagangan geti farið
járnvarðliðsléllDii í
Rúmeniu enöorreist.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Karl konungur i Rúmeníu og
stjórn hans liafa tekið jánivai'ð-
liðsmennina eða fascista i sátt.
Félagsskapur þeiri’a hefir verið
bannaður fi'á því er Kalinescu,
forsætisráðheri'a Rúmeníu, var
nxyrtur.
í gær var Karli konungi af-
lient bréf undirritað af 250
helstu stuðningsmönnunx fé-
lagsskaparins og lxétu þeir kon-
unginunx liollustu sinni. Sam-
tímis gekk nefnd úr flokki
járnvai’ðliðsmanna á fund Tat-
ai'escu foi’sætisráðherra og ósk-
aði þess, að fá leyfi stjórnarinn-
ar til samvinnu við hana, með
því að ganga i eina stjórnmála-
flolclc landsins, sem leyft er að
síai'fa.
Leiðtogum járnvarðliðsmanna
í Rúmeníu var nýlega slept úr
fangabúðum og fangelsum, en
þeir höfðu verið í haldi á slík-
um stöðum víðsvegar um land-
ið.
Orðrómur gengur um, að
þeirn leiðtogum jáx'nvai'ðliðs-
manna, sem á sínum tíma tókst
að flýja til Þýskalands, hafi ver-
ið lxoðið að lcoma lieim.
Mai’gir telja liina skyndilegu
breytingu stafa af vaxandi þýsk-
um álirifum vegna finsk-rúss-
nesku friðarsamninganna.
fram i dag. Var beðið um að
snjóbillinn, sem er á Kolviðar-
hóli, færi til móts við híl, sem
færi með keppendur og starfs-
menn, en því var neitað, að
hann færi út í hríðina — það
væri engin leið að rata í sort-
anunx.
Verði veður eða færð svo á
morgun, að ekki verði hægt að
láta neitt fara fi'am af þeim
kappgreinum, sem keppni á að
fara fram í á Thulemótinu,
mun vei’ða reynt að láta göng-
una fara fram á mánudag til
þess að hinir norðlensku skíða-
nxenn fari ekki fýluferð hing-
að, en þeir hafa vei’ið að Kolvið-
arhóli og i Skiðaskálanum und-
anfarna daga.
Mikill fjöldi bæjai'búa ætlaði
upp i Hveradali um þessa helgi,
en eins og nú horfir eru ekki
nxikiar líkur á að ixxargir kom-
ist upp eftii’.
Lögfreglan leitar
fsikotmanna.
Kl. 10 í gærkveldi var lögregl-
an beðin að hef ja leit að tveim
unglingsmönnum, sem farið
höfðu á „skytterí“ út á sjó um
daginn, en Voru ekki komnir
fram.
Brá lögreglan YÍð, fékk bát
lánaðan og lióf leitiixa. Fann
hún memxina og flutti til laixds.
Var þá klukkan um 2 eftir mið-
nætti.
Þegar lögreglan fanii menn-
ina voru þeir komnir upp i Ak-
ui'ey. Höfðu þeir brotið aðra ár-
ina og þvi ekki getað lialdið
lengra, en á eyjunni fundu þeir
kofa, þar sem þeir gátu látið
fyx'ir berast.
Voru þeir lagstir til svefns,
þegar lögreglan kom að þeinx,
og leið vel, því að þeir höfðu
fundið í kofanum spýtnarusl og
sprek, sem þeir gátu kveikt í og
yljað sér við.