Vísir - 16.03.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 16.03.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. 'h Rií'itst jórnarskrifstof ur: félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 30. ár. Reykjavík, laugardaginn 16. mars 1940. 64. tbl. Finska þingið samþykkir friðarsamningana með 145 gegn 3 atkvæðum Ryti fopsætisrádherra flutti aðalræðuna. Finskir flóttamenn til Kanada. Boöafoss fer elli frí BaiMfyra póstieilai sr leyst Samningar Bretlands og Bandarikjamanna. EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun. Finska þingið kom saman í gær til þess að ræða fullnaðarsamþykt (ratifikation) friðarsamn- inga Finna og Rússa. Umræður stóðu liðlega hálfa þriðju klukkustund og voru friðarsamningarnir samþyktir að þeim loknum með 145 gegn 3 atkvæðum. Þeir, sem fæður fluttu, gerðu grein fyrir atkvæði sínu og samflokksmanna á einn veg, að Finnum hefði verið nauðugur einn kostur, að hætta vörninni, þar sem þeim barst ekki næg hjálp að, og var þá ekki nema um eina leið að ræða, að ná samkomulagi við Rússa, Það kom fram í ræðu Ryti forsætisráðherra, sem flutti aðalræðuna, að finska stjórnin haf ði oftlega reynt að koma því til leiðar, að samkomulagsumleitanir yrði hafnar, en því var neitað með skírskotun til yfirlýsingar sovét-stjórnarinnar, að hún viðurkendi að eins Kuus- inen-stjórnina, sem Rússar settu á stofn í Teriyoki, en eftir því sem stríðið stóð lengur og Rússum gekk erfið- legar á ýmsum vígstöðvum þóttu líkurnar batna fyrir, að hægt yrði að fá Rússa til þess að ræða við Helsing- forsstjórnina, og tókst það að lokum með aðstoð Svía. Friðarsamningarnir, sem liggja hér fyrir framan mig, eru árangurinn af þessum samkomulagsumleitunum, sagði Ryti, og gerði því næst grein fyrir því, hvers vegna Finnar urðu að hætta stríðinu, þ. e. vegna þess að þeim barst ekki nóg og skjót hjálp erlendis frá, en finski her- inn var uppgefinn orðinn eftir mánaða hvíldarlitla bardaga. í ræðulok hvatti Ryti finsku þjóðina til þess að vinna samhuga að viðreisninni, með sverð í annari hendi og reku í hinni, og glata ekki trú sinni á framtíðina. Hið fyrirhugraða rarnarbandalag: Fimia. Svía og' Horðinanua aðalum- ræðnefni heimsblaðanna, Enn hefir að eins náðst samkomu- iag um að athuga skilyrðin til að stofna siík bandalag. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. í Kanada hafa komið fram tillögur ,um, að verja fé því sem safnað liefir verið þar í landi til stuðnings Finnum vegna s tyr j aldarerf iðleika þeirra, verði varið til þess að flytja finska flóttamenn til Kanada og koma þeim þar fyr- ir. Uppástunga þessi hefir feng- ið góðar undirtektir meðal þeirra, sem stóðu að fjársöfn- uninni, og stjórnarvalda lands- ins. 240:0 London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Umræðunum í öldungadeild frakkneska þjóðþingsins er nú lokið. Eins og áður var símað var rætt um Finnland og styrj- öld Bandamanna og Þýska- lands. Daladier forsætisráð- lierra flutti langa x-æðu og gerði grein fyrir gangi styrjaldarinn- ar. Ennfremur fyrir afstöðu Bandamanna til Finnlands. Lét hann í ljós aðdáun og samúð i garð Finna. Umræðunum, sem hófust í fyrradag, lauk með þvi, að deildin samþykti ályktun, þar sem látin var í Ijós aðdáun á Finnum fyrir frækilega vörn Krafa Breta um eftirlit með póstsendingum að og frá Ameríku, virðist ætla að leiða til nokkurra átaka milli þeirra og Bandaríkjastjórnar og til margvíslegra óþæginda fyrir hlutlausu löndin, ef ekki rætist úr. Bandaríkin hafa þegar svarað kröfu þessari með því, að banna öllum Skandinav- iskum skipum að -halda úr höfnum, nema því aðeins að þau flytji með sér póst. Bret- ár krefjast. hinsvegar að öll þau skip, sem amerískan póst taka, komi í breska eftirlits- höfn tíl skoðunar. Um þetta standa nú yfir samningar millum stjóma Bretlands og Bandaríkjanna, en ómögulegt er að vita hve lengi þeir kunna að dragast, með því að hér er um erfitt deiluefni að ræða. Goðafoss átti að fara frá New York kl. 5 sd. í gær, en vegna þessarar deilu liggur hann þar enn, og lætur ekki úr höfn fyr en deilan er leyst. Kann alt þetta að valda hin- um mestu erfiðleikum fyrir viðskifti okkar Islendinga við Vesturheim. þeirra og mikil samúð þeim til handa, og ríkisstjórninni vottað traust með 240 atkvæðunx gegn engu. Finnar sópast bnrt fir hór- nönnnm, sem Rfissar fá. Um gervöll Norðurlönd og raunar um heim allan var mest rætt í gær um hið fyrirhugaða varnarbandalag Norðurlanda- þjóða. Fregnin um það, að finska stjómin hefði snúið sér til ríkisstjóma Noregs og Svíþjóðar með tilmæli um, að athuguð væri skilyrðin til þess að koma á slíku bandalagi, vakti svo mikla eftirirtekt, að aðrar fregnir dagsins þóttu lítilfjörlegar í sam- bandi við hana. Það verður að viðurkenna, að aðstaða Noregs og Svíþjóðar hefir versnað eftir friðarsamningana, og það mælir með því, að Noregur og Svíþjóð athugi skilyrðin til þátttöku í slíku varn- arbandalagi, að skoðun norskra stjórnmálamanná, en málið er varhugavert að mörgu leyti, a. m. k. frá sjónarmiði Norðmanna, sem yrði að endurskipuleggja allar landvarnir sínar. Ennfrem- ur er tekið skýrt fram í Svíþjóð, að svo sé litið á, að það ákvæði finsk-rússnesku friðarsamninganna, að Finnar skuli ekki taka þátt í neinum samtökum gegn Rússum, hindri ekki að þeir taki þátt í varnarbandalagi. Koht utanríkismálaráðherra Norðmanna sagði í útvarpsræðu í fyrrakvöld, að hin opinbera fyrirspurn Vesturveldanna um hvort. Noregur vildi veita leyfi til herflutninga til Finnlands, hefði ekki borist fyrr en daginn áður en samkomulagið náðist í Moskva. Ennfremur upplýsir Koht, að norska stjórnin hafi ekki feng- ið nein tilmæli varðandi varnarbandalag Norðurlanda fyrr en 11. mars. Sé það því ekki rétt, að slík tilmæli hafi komið fram áður en finsku samningamennirnir fóru til Moskva. Norska stjórnin hefir ekki skuldbundið sig til annars en að athuga skil- yrðin til þess að koma á slíku varnarbandalagi, og enn Iiggur ekki fyrir uppkast að neinum samningi. Hinsvegar, sagði Koht, að margt mælti með því, að málið væri tekið til alvarlegrar íhug- unar. — NRP.—FB. Enxinn Finni vill búa við rússneska stjórn. Flutningar frá Kyrjálanesi og öðrum landsvæðum í Finnlandi, sem Rússar fá, eru þegar hafnir í stórum stíl. Allir íbúarnir á þessum svæðum ætla á brott þaðan. Enginn Finni viU ala aldur sinn þar sem sovét-stjórn- in tekur við völdum. öll flutningatæki landsins hafa verið tekin til notkunar við flutningana. Hlutverk stjórnarinnar er að sjá yfir 400.000 manns fyrir nýjum heimilum og skilyrðum til þess að komast af. Fólk- ið úr Viborgarléni verður flutt til Mið-Finnlands, en fólkið frá Hangö til Vestur-Finnlands. — NRP.—FB. Edward Beattie fréttaritari United Press í Finnlandi, símar í morgun: 70.000 FJÖLSKYLDUR FÁ NÝ HEIMKYNNI. Fólkið streymir nú í þúsunda- lali frá þeim landsvæðum Finn- lands, sem Bússar fá samkvæmt friðarsamningunum, til annara landshluta. Hersveitir fara lxægt eftir og eru fólkinu til margvís- legrar aðstoðar, m. a. við flutn- ing á húsmunum þess. Rússneskar skriðdrekasveitir og hersveitir eru nú á förum frá Norður-Finnlandi. Finskir flóttamenn frá Norð- ur-Noregi eru nú famir að flykkjast lieim. Öll flutningatæki landsins liafa verið tekin í notkun við flutningana, járnbrautarlestir, vöruflutningahílar og einkabil- ar. MESTA TJÓNIÐ AÐ MISSA SKÓGANA. Það er talið, að mesta tjón Finna vegna friðarsamninganna sé að missa skógan á Kyrjála- nesi, en þar eru fjölda margar sögunarmylnur og verksmiðjur. Hinsvegar lialda þeir kopar- og nikkelnámum sínum. HEIFTARLEGAR ÁRÁSIR Á SANDLER, FYRRVERANDI UTANRÍKISMÁLARÁÐHERRA SVÍA, 1 ÞÝSKU BLAÐI. Völkisclier Bebacliter ræðst Frh. á 2. bls. KRONBORG SÉÐ FRÁ GULLFOSSI. Vegna ísalaga i dönsku sundunum gekk ferð Gullfoss, hin síðasta, mjög erfiðlega. Fór liann héðan hinn 6. fehrúar, en kom til Kaupmannahafnar eftir 20 daga, en þar af liafði hann verið 8 sólai'hringa frá Porsgrund. Naut skipið aðstoðar ísbi'jóta til þess að komast leiðar sinnar, og gekk ferðin að lokum greiðlegar en lijá mörgum öðrum skipum, sem orðið liöfðu samflota er ísbi'jótai'nir komu til sögunnar. Visir lxitti m. a. einn farþegann að máli í gær, og fékk hjá honum mynd þá, sem hér birtist og gefur hún góða hugmynd um hvernig isinn hefir brotnað og haldist upp i sundunum. Myndin er tekin af þilfari Gullfoss. — Ófært npp að Kolviðarhóli Hríðarveður það, sem verið hefir hér í bænum í morgun mun að líkindum breiðast um alt landið, að því er Veðurstofan tjáði Vísi í morgun. Má e. t. v. búast við að veðurhæðin aukist eitt- hvað. Hinsvegar bjóst Veðurstofan við því að hríðinni slotaði bráðlega hér í bænum og nágrenni eins og nú hefir komið á daginn. Ófært er nú orðið að Kolvið- ai'lióli og var þar í morgun tals- verð lu'íð. Enn er fært suður méð sjó og upp i Mosfellsdal. Var ætlunin að skíðamenn fæii upp eftir kl. 10 fyrir há- degið, en þegar til kom varð ekkert úr því og er óliklegt tal- ið, að skíðagangan geti farið járnvarðliðsléllDii í Rúmeniu enöorreist. London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Karl konungur i Rúmeníu og stjórn hans liafa tekið jánivai'ð- liðsmennina eða fascista i sátt. Félagsskapur þeiri’a hefir verið bannaður fi'á því er Kalinescu, forsætisráðheri'a Rúmeníu, var nxyrtur. í gær var Karli konungi af- lient bréf undirritað af 250 helstu stuðningsmönnunx fé- lagsskaparins og lxétu þeir kon- unginunx liollustu sinni. Sam- tímis gekk nefnd úr flokki járnvai’ðliðsmanna á fund Tat- ai'escu foi’sætisráðherra og ósk- aði þess, að fá leyfi stjórnarinn- ar til samvinnu við hana, með því að ganga i eina stjórnmála- flolclc landsins, sem leyft er að síai'fa. Leiðtogum járnvarðliðsmanna í Rúmeníu var nýlega slept úr fangabúðum og fangelsum, en þeir höfðu verið í haldi á slík- um stöðum víðsvegar um land- ið. Orðrómur gengur um, að þeirn leiðtogum jáx'nvai'ðliðs- manna, sem á sínum tíma tókst að flýja til Þýskalands, hafi ver- ið lxoðið að lcoma lieim. Mai’gir telja liina skyndilegu breytingu stafa af vaxandi þýsk- um álirifum vegna finsk-rúss- nesku friðarsamninganna. fram i dag. Var beðið um að snjóbillinn, sem er á Kolviðar- hóli, færi til móts við híl, sem færi með keppendur og starfs- menn, en því var neitað, að hann færi út í hríðina — það væri engin leið að rata í sort- anunx. Verði veður eða færð svo á morgun, að ekki verði hægt að láta neitt fara fi'am af þeim kappgreinum, sem keppni á að fara fram í á Thulemótinu, mun vei’ða reynt að láta göng- una fara fram á mánudag til þess að hinir norðlensku skíða- nxenn fari ekki fýluferð hing- að, en þeir hafa vei’ið að Kolvið- arhóli og i Skiðaskálanum und- anfarna daga. Mikill fjöldi bæjai'búa ætlaði upp i Hveradali um þessa helgi, en eins og nú horfir eru ekki nxikiar líkur á að ixxargir kom- ist upp eftii’. Lögfreglan leitar fsikotmanna. Kl. 10 í gærkveldi var lögregl- an beðin að hef ja leit að tveim unglingsmönnum, sem farið höfðu á „skytterí“ út á sjó um daginn, en Voru ekki komnir fram. Brá lögreglan YÍð, fékk bát lánaðan og lióf leitiixa. Fann hún memxina og flutti til laixds. Var þá klukkan um 2 eftir mið- nætti. Þegar lögreglan fanii menn- ina voru þeir komnir upp i Ak- ui'ey. Höfðu þeir brotið aðra ár- ina og þvi ekki getað lialdið lengra, en á eyjunni fundu þeir kofa, þar sem þeir gátu látið fyx'ir berast. Voru þeir lagstir til svefns, þegar lögreglan kom að þeinx, og leið vel, því að þeir höfðu fundið í kofanum spýtnarusl og sprek, sem þeir gátu kveikt í og yljað sér við.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.