Vísir - 19.03.1940, Qupperneq 1
a*
Ritst jóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Riiitst jórnarskrifstof ur:
f'élagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 19. mars 1940.
66. tbl.
BREM£RO.FUM>UBEIN
Því er enn haldið fram, að
tilraun verði gerð til þess
að koma á friði, en Bretar
segja, að ekki sé hægt að
semja við nazista
Rafmagnsbilnn enn.
Rafmagnið bilaði enn einu
sinni í morgun og var allur bær-
inn rafmagnslaus frá kl. 8.50 til
kl. langt gengin eitt.
Báðir jarðstrenginiir biluðu
að þessu sinni, en þeir eru of
mjóir til þess að þola það mikla
álag, sem þarf til þess að full-
nægja rafmagnsþörf bæjarbúa
á þeima tíma (lags, sem raf-
magnið er mest notað.
Verður að gera gangskör að
því, að þessu verði kipt í lag, svo
að örugt verði.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Mussolini og Hitler hittust í gær, eins og ráðgert
var, í Brennerskarði, í smáþorpinu Brennero,
og fóru viðræðurnar fram í hinni skotheldu
einkalest Mussolini. í Rómaborg hefir ekkert verið til-
kynt um fundinn opinberlega, enn sem komið er, en
í þýsku útvarp hefir verið skýrt frá því, að viðræðurn-
ar hafi farið mjög vinsamlega fram og af gagnkvæmri
hreinskilni, og núverandi viðhorf í álfunni rætt frá
öllum hliðum.
Lundúnablöðin bentu á það þegar í gær, að
það sé ógerlegt að semja frið við nasistastjórn-
ina þýsku, og Bandamenn muni ekki hlusta á
friðarumleitanir Hitlers.
Það kemur fram í sumum blöðunum, að menn búast við, að
viðræðumar kunni að leiða til þess, að ríkisstjómir Italíu og
Bandaríkja og páfi, geri tilraun til þess að koma á friði. En ut-
anríkismálaráðherra Bandaríkjanna, Cordell Hull, hefir þó lýst
yfir þvi opinberlega, að hlutverk Sumner Welles sé að eins að
kynna sér skoðanir stjómmálamanna og viðhorf, og skýra Roo-
sevelt forseta frá viðræðum sínum við stjórnmálamenn Evrópu.
Sumner Welles talaði við páfa og utanríkismálaráðherra hans í
gær, og í dag mun hann ræða við Mussolini og Ciano greifa.
1 London er lögð áhersla á það hversu mikið ósamræmi sé í
fregnum þeim, sem nú koma frá Berlín, og Italir bíði átekta og
vilja sem minst um Brennerofundinn segja að svo stöddu. Bretar
hallast enn að þeirri skoðun, að til standi að gera tilraun til þess
að koma á þeim friði, sem nasistar þarfnast svo mjög. I þýsk-
um fréttum er gefið í skyn, að m. a. hafi verið rætt um þátttöku
Ítalíu í styrjöldinni síðar, samvinnu Þýskalands og Ítalíu á Balk-
an og jafnvel forgöngu ítala og Þjóðverja í, að koma á nýrri skip-
an í Evrópu.
I þýskum. fréttum er lögð mikil áhersla á, að samvinna ítala
og Þjóðver ja hafi aldrei verið. traustari en nú.
Hinar þýsku fregnir hafa vakið nokkura undrun í Rómaborg,
þar sem menn eru þeirrar skoðunar, að Ítaiía muni verða hlut-
laus áfram, og enginn áhugi fyrir því, að Italir fari í styrjöldina
með Þjóðverjum. Af hálfu stjómarinnar hefir enn ekkert verið
sagt, sem bendir til, að nein breyting hafi orðið. En nú er beðið
með mikilli eftirvæntingu að í ljós komi hvaða ákvarðanir voru
teknar í Brennero.
\
FREGN UM AÐ DALADIER FARI TIL FUNDAR VÐ
MUSSOLINI BORIN TIL BAKA.
Daladier, forsætisráðherra Frakklands, ræddi við Lebrun rík-
isforseta í gær. Nokkuru eftir viðræður þeirra komst á kreik orð-
rómur um, að Daladier ætlaði sér til Genúa til fundar við Musso-
lini. Þessum orðrómi var opinberlega neitað í París í gærkveldi.
Breytingar á frönsku stjóminni em sagðar standa fyrir dyrum.
TELEKI GREIFI FER TIL ÍTALÍU.
Það var tilkynt í Budapest í gær, að Teleki greifi, forsætisráð-
herra Ungverjalands, mundi fara til Ítalíu sér til hressingar inn-
an skamms, en hann ætlaði að nota tækifærið um leið til þess að
ræða við Mussolini og Ciano greifa.
London á hádegi.
Samkvæmt seinustu fregnum
frá Rómaborg er talið ekki ó-
líklegt, að árangurinn af Bren-
nero-fundinum verði sá, að
lagðar verði fram friðartillög-
ur, í 11 Ijðum, og eru lielstu
tillögurnar þessar:
1. Stofnað verði óháð pólskt
ríki, er liafi um 10 miljónir
íbúa.
2. Stofnað verði Dónárríkja-
samband og verði í því
þessi ríki: Jugóslavía, Rú-
menía, Bæheimur, Slóvakía
og Ungverjaland.
3. Þýsku nýlendunum verði
skilað aftur á næstu 25 ár-
um.
4. Allsherjar afvopnun állra
þjóða samtimis á landi, í
lofti og á sjó.
Tillögur þessar, sem eru
gerðar að umtalsefni í hresk-
um blöðum í morgun, fá kulda-
legar móttökur. Leiða hlöðin
athygli að því, að Bretar verði
að krefjast þess, að svo tryggi-
lega verði frá friðarsamning-
um gengið, áð eklci þurfi að
óttast, að þeir verði rofnir.
Bandamenn liafi ekki neina
tryggingu fyrir þvi, að Þýska-
land standi við samninga sína,
og geti þeir ekki samið við hina
nazistisku stjórn, sem þar fer
með völd.
Bandamenn vilja heldur
herjast þar til yfir lýkur, segja
blöðin, heldur en friður verði
Finnar óttast drepsóttir
vegna hermannalíkanna
sem ekki hefir tekist að
jarða.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS — Khöfn í morgun.
Eitt af mestu vandamálunum, sem Finnar verða að
fást við i vor strax þegar snjóa fer að leysa, er að koma
í veg fyrir að drepsóttir geti brotist út á þeim stöðum í
landinu, þar sem mest hefir verið barist og flestir fallið
og í næstu héruðum þar í grend. Eru þar tugir þúsunda
hermannalíka, sem enginn kostur hefir verið á að grafa,
sérstaklega i Mið-Finnlandi.
Aðallega rúss-
neskir hermenn.
Þetla eru aðallega rússneskir
liermenn, sem hér um ræðir,
því að bæði liefir mannfall ver-
ið mörgum sinnum meira í liði
þeirra og svo hafa Finnar jafn-
an talið það skyldu sína, að
bjarga líkum fallinna félaga
sinna úr valnum og senda ætt-
ingjum og vinum liinar jarð-
nesku leifar þeirra, sem fallið
hafa fyrir föðurlandið, svo að
þeir sé ekki grafnir á víðavangi,
þar sem grafir þeirra hverfa
með tímanUm.
Flest eru lík rússnesku her-
mannanna í skógunum í Mið-
Finnlandi, þar sem Rússar mistu
þrjú herfylki — 44., 163. og 164.
stórfylkin — eða um 50—60
þús. manna. Þar liggja lílcin
sumstaðar í hrönnum, því að
fent liefir yfir þau og vetrar-
hörkurnar komið í veg fyiár að
hægt væri að koma þeim niður
í jörðina.
Jörðuðu aðeins
yfirmennina.
Víða þar sem Rússum hefði
gefist nægt tækifærí til þess að
jarða liina föllnu, voru aðeins
foringjar jieir, sem létu lifið,
grafnir.
Líkum allra óbreyttra lier-
manna var kastað í ár, sem ekki
saminn, sem verður sem hót á
gömlu fati.
Samkvæmt símfregnum frá
Berlín er talið, samkvæmt
áreiðanlegum heimildum, að
tilgangurinn með viðræðufundi
Hitlers og Mussolini hafi verið
að efla sem mest þýsk-ítalska
samvinnu á grundvelli gildandi
samninga Þýskalands og Italíu.
Stjórnmálamenn, sem best
fylgjast með, segja að Þýskaland
geri ekki tilraun til þess að fá
frið með því að leggja fram
friðarskilmála. Er þvi lialdið
fram af leiðtogum Þýskalands,
að Þjóðverjar hafi bolmagn til
þess að vinna sigur i styrjöldinni
við Bandamenn.
voru lagðar, eða vakir sprengd-
ar í stöðuvötn og líkUnum kast-
að i þær.
Varúðarráð-
stafanir Finna.
Finska heilbrigðismálaráðu-
neytið liefir tilkynt, að það hafi
þegar liugleitt, hvernig beri að
bjarga þessari yfirvofandi
hættu, en hinsvegar liggur ekk-
ert fyrir um það, að Rússastjórn
ætli að gera líkar ráðstafanir og
þá hverjar, ef einhverjar verða.
Búast menn við að heilbrigð-
ismálaráðuneytið sendi flokka
manna til vígvallanna og' láti þá
sprauta sótthreinsandi efnum
yfir líkin, til þess að tef ja fyrir
rotnun þeirra, áður en tekst að
grafa þau.
Bresk-danskur
ve rslunarsamningur.
Opinberlega hefir verið til-
kynt í Danmörku, að ríkis-
stjórnir Dana og Englendinga
hafi s.l. þriðjudag gert með sér
verslunarsamning, sem gilda
skal meðan styrjaldarástandið
er í álfunni.
Þessi samningur er gerður
með það sama fyrir augum og
margir aðrir samningar, sem
Bretar hafa gert, að auka versl-
unarviðskiftin eins og hægt er
eftir því sem núverandi kring-
umstæður leyfa.
Sérstök nefnd mun skera úr
ágreiningsmálum, sem rísa
kunna út af þessum nýja samn-
ingi og er þetta sama nefndin,
sem fjallaði um lík mál í sam-
handi við fyrra verslunarsamn-
ing Dana og Breta.
Fulltrúaráðsfundur
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
ver'b'ur haldinn kl. 8í kvöld á
venjulegum sta'Ö. Jakob Möller,
fjármálaráðherra, segir fréttir frá
Alþingi, en sí'ðan verða teknar á-
kvar'ðanir viðvíkjandi breytingum
á reglugerð fulltrúaráðs og loks
kosnar tvær nefndir.
Næturakstur.
Litla bílstö'ðin, Lækjartorgi, sími
1380, hefir opið í nótt.
Fiskimálanef nd lætur gera tilraun til síldveiða
Nú er svo komið að alger beituskortur er yfiryofandi á ver-
stöðvum, ef gæftir verða góðar og bátar geta stundað veiðar
reglulega. Hefir Fiskimálanefnd þvi verið falið af atvinnumála-
ráðherra að gera tilraunir með aði veiða síld til beitu og verður
sú tilraun hafin á morgun.
Beitubirgðir eru nú til sem
hér segir (miðað við 15. 3.) :
í Vestmannaeyjum 550 tunnur.
Við Faxaflóa 8255 —
Á Vesturlandi 1800 —•
Á Norðurlandi 810
Á Austurlandi 150 —
Mest er þetta sild, en nokkuð
af kolkrabba, t. d. 240 tn. á
Norðuriandi. Gert er ráð fyrir
að við Faxaflóa fari um 300 tn.
í róður, svo að beitubirgðir á
verstöðvum við Faxaflóa ættu
e.t.v. að nægja, en Vestmanna-
eyingar hafa alls ekki nóg. Eiga
þeir von á síld frá Noregi, en
hún er bæði dýr og lök að gæð-
um.
Fiskimálanefnd lét gera til-
raun til síldveiða í beitu í fyrra,
eu sú tilraun bar ekki árangur.
Ekki þarf það þó að vera til
þess, að sú tilraun, sem nú verð-
ur gerð, geti ekki gengið betur,
því að tilraunin í fyrra var gerð
í febrúar, eða mánuði fyr en
nú. Getur sá timi nægt til þess,
að nú sé komin síld liér í Faxa-
flóa og næstu mið við hann.
Tilraunir þessar gerir v.b.
Dagsbrún, RE 47, 29 smál. br.
að stærð. Verður liann látinn
leita um allan Faxaflóa, norður
i Jökuldjúp og suður fyrir
Reykjanes. Fer hann að likind-
um út á morgun.
F.r vonandi að þessi tilraun
beri tilætlaðan árangur, þvi að
öðrum kosti verður að leita til
Noregs um beitukaup, en ekki
að vita liversu vel það muni
ganga, né kaupin verða hag-
stæð, ef beita er fáanleg þar,
eins og nú er ástatt í heiminum.
1,LÍ* -ll
fr 8
Þ. 15. þ. m. voru vélbátar
landsmanna búnir að, afla um
4500 smál. — miðað við full-
verkaðan fisk, en mest af þeim
fiski hefir verið flutt út í ís. Um
sama leyti í fyrra var fiskaflinn
orðinn 9838 smál. og er þá tal-
inn með afli togaranna, en hann
er ekki talinn með í skýrslunni
fyrir þetta ár.
Auk þessa aflamagns, sem að
ofan getur, hafa verið lagðar á
land 154 smál. af ufsa til herslu
og 51 smál. af ufsa til flökunar.
Hafa togarar veitt hvorttveggja.
Á veiðistöðvunum í Sunn-
lendingafjórðungi hefir aflinn
orðið þessi:
Smál.
Vestmannaeyjar ........ 1838.0
Þorláksh., Selv........... 6.0
Grindavík................ 55.5
Hafnir ........!....... 24.0
Sandgerði .............. 474.0
Garður, Leira .......... 108.0
Keflavik, Njarðvikur .. 593.0
Vatnsleysustr., Vogar .. 63.0
Hafnarfj. (togarar) .. 38.0
(ufsi)
— önnur skip........ 35.0
MaDur slasast í
Grindavík.
Varð undir bát.
Um 2—3 leytið í gær yoru 2
menn í Grindavík að setja róðr-
arbát, og féll báturinn ofan á
annan manninn — á bafe hans
og slasaðist maðurinn mjög.
Átti Vísir tal við Sigvalda Kalda-
lóns, lækni, í morgun og skýrði
hann blaðinu svo frá þessu:
Mennirnir tveir voru hvor
sinu megin við bátinn, er hann
sviftist á hliðina og féll á bak
Sæmundi Níelssyni, formanni.
Kramdist Sæmundur mjög og
brákaðist hryggurinn svo, að
Sæmundur er máttlaus fyrir
neðan mitti.
Voru honum strax gefin
kvalastillandi meðul, þegar náð-
ist til læknis og var síðan flutt-
ur í sjúkraliús í Hafnarfirði.
Leið honum eftir vonum í
morgun, liafði sofið vel í nótt,
en engin breyting á máttleys-
inu. Er ekki að fullu rannsk-
að, hvort meiðslin sé viðtæk-
ari, en talið var i fyrstu.
Sæmundur er maður 45—50
ára að áldri og alþektur dugnað-
armaður.
Islensk ulL
Þær frúrnar Laufey Vilhjálms-
dóttir og Anna Ásmundsdóttir
hafa undanfarin ár beitt sér fyr-
ir þvi að íslenslc ull yrði unnin
og seld hér á markaði i liöfuð-
staðnum. Hafa þær keypt band-
ið að mestu frá sveitalieimilum,
en þvi næst hafa ýmsar konur
hér í bænum tekið við og prjón-
að margvíslega muni, og eru
þeir nú til sýnis að Suðurgötu
22, uppi.
Það, sem aðallega hefir unnið
verið að undanförnu eru skíða-
föt, vetlingar, peysur, sokkar,
nærföt sjóvetlingar o. m. fl. Er
allur frágangur þessa varnings
hinn prýðilegasti og ætti fólk að
nota tækifærið og kynnast sýn-
ingu þessari, sem er sölusýning
einnig.
Fyrirtækið liefir um 400 við-
skiftamenn í sveitum og konur,
sem unnið hafa á vegum þess
hér í bænum, og er þvi aUðsætt
að hér er um þarft fyrirtæki að
ræða, sem verðskuldar fullan
stuðning.
Reykjavik (togarar) .. 3.0
— önnur skip......... 76.0
Akranes................ 604.0
Alls hefir aflinn í Sunnlend-
ingafjórðungi orðið 4088 smál.,
Vestfirðingafjórðungi 420 smál.
og Austfirðingafjórðungi 39
smál.