Vísir - 01.04.1940, Side 1

Vísir - 01.04.1940, Side 1
't"— '1 ------------ Ritstjóri: t'KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. h Riritst jórnarskrif stof ur: félagsprentsmiðjan (3. hæð). fá 30. ár. Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla Bretar óttast að afskiíti Vatikanríkisins á Balkan- skaga verði Þjóðverjum og ítölum í hag. rT7“7Tr“ EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London, í morgun. Fulltrúi Vatikanríkisins í London, William God- f rey, hef ir sent Vatikanríkinu skýrslu, þar sem skýrt er frá því, að breska stjórnin hafi á- hyggjur út af starfsemi Vatikansins á Balkanskaga. Breska stjórnin mun vera þeirrar skoðunar, að hér sé um pólitíska starfsemi að ræða í þágu ftalíu, og þar af leiðandi verði Þýskalandi einnig hagur að, vegna sam- vinnu þeirrar, sem er milli Þjóðverja og ítala. Sérfræðingar vatikanríkisins undirbúa svar við skýrslunni og verður svarið sent bresku stjórninni til athugunar. f svari þessu mun vera lögð áhersla á, að öll starfsemi Vatikansins sé trúarbragðaleg, og að barátta páf aríkisins á Balkanskaga hafi staðið minst tvær aldir, og sé markmið hennar að vinna að því að þjóðirnar í suðausturhluta Evrópu f ylki sér undir merki rómversk- kaþólskrar kirkju. Frakkar búast við sjó- orustu í nánd við Noreg bráðlega. I þýskum og frönskum blöð- um er nú afarmikið rætt um það, að Bandamenn ætli að herða hafnbannið gegn Þýska- landi, með strangara siglinga- eftirliti við strendur Noregs og Danmerkur. Er litið svo á, að yfirherráð Bandamanna hafi teklð mikilvægar ákvarðanir í þessu efni á seinasta fundi sín- um í London. Frönsk blöð búast við þvi, að bráðlega verði mikil sjóorusta háð á siglingaleiðum við Noreg eða Danmörku. Það er aðallega flutningur á málmgrjóti frá Sví- þjóð (um Noreg) til Þýskalands, sem Bandamenn vilja hindra. NRP—FB. AHir norskir sjómenn fá sérstakan hjörgunar- klæðnað. Með konunglegri tilskipun, út- gefinni i Noregi, hefir verið á- kveðið að allir norskir sjómenn, sem ferðast um hættusvæðin, skuli hafa sérstakan björgunar- klæðnað, og hefir siglingamála- stjórninrii verið falið að annast framkvæmdir. Tilskipunin gengur i gildi eftir 4 vikur. — NRP—FB. ar hygðust að ná á sitt vald höfnum í Norður-Noregi og Sviþjóð, og kvað slika fjar- stæðu ekki þess verða, að um hana væri rætt. Molotov lýsti yfir þvi, að Rússar myndi fylgja sömu hlut- leysisstefnu og áður í styrjöld þeirri, sem nú geisaði í Evrópu. Burgos-strandið. Áhöfnin af norska skipinu Burgos, 22 menn, er komin til London. Skip þetta var skotið í kaf við Orkneyjai* fyrir skömmu. Skipverjar fengu á- gæta aðhlynningu, nýjan klæðn- að o. fl. í Bretlandi. Nokkrir skipverjar voru svo þjakaðir, að þeir eru enn í sjúkrahúsi. NRP -FB. ; ; ý;i:i Flugferðir milli Oslo og Amsterdam. Daglegar farþega- og póst- flugferðir milli Oslo—Kristi- anssand—Amsterdam byrja á morgun, 2. apríl. Notaðar verða Douglas-flugvélar, sem rúma 17 farþega. NRP—FB. Einkaskeyti frá United Press. K.höfn í morgun. Frá Helsingfors er símað, að verið sé að meta tjónið af völd- um styrjaldarinnar. Það er giskað á, að það muni nema a. m. k. eitt þúsund miljónum finskrá marka, og er þá ekki reiknað með verðmæti þess, sem Finnar urðu að láta af hendi við Rússa. Tjónið, sem varð í Tammerfors, er metið 10 miljónir finskra marka og í Turku (Ábæ) 30—40 miljónir finskra marka. 1 engri finskri borg (að Viborg undantekinni, en hana fengu Rússar) varð eins mikið tjón, af völdum loft- árása, sem i Ábæ. Skipakaup Banda- manna í styrjödinni Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. í fregnum frá Waslúngton segir, að Bretar og Frakkar liafi keypt flutningaskip í Banda- ríkjunum, samtals 119.307 smál., frá því í styrjaldarbyrj- un. Hlutlausar þjóðir hafa keypt þar flutningaskip samtals 244,707 smál. Roo§evelt talar við blaðamenn. Roosevelt Bandaríkjaforseti talaði um árangurinn af viðræð- um Sumner Welles við stjóm- málamenn Evrópu á seinasta Itrcika þingið kei nr §aman a lorgun Hafnbannsáform Bandamanna. Krafa Rússa um hafn- EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London, í morgun. ir í Noregi f jarstæða, segir Molotov. í ræðu þeirri, sem Molotov, forsætis- og utanríkismálaráð- lierra Sovét-Rússlands flutti á fundi æðsta ráðs sovét-ríkjanna í Kreml, mótmælti hann því, að Norðurlönd og Finnland gerði með sér varnarbandalag. Voru ummæli hans í þessu efni mjög ákveðin og lcvað hann vera hér um að ræða tilraun til þess að rjúfa samkomulagið milli Finn- lands og Rússlands, og til þess að hefna sín á Rússlandi. Molotov gerði einnig að um- talsefni orðróminn um, að Rúss- Breska þingið kemur saman á morgun og er það fyrsti fund- ur, sem haldinn er eftir páska. Chamberlain forsætisráðherra flytur ræðu í neðri málstofunni og búast menn við, að hann birti mjög mikilvæga yfirlýsingu. Lundúnablöðin, sem út komu í morgun, spá því, að yfirlýsingin fjalli m. a. um víðtækar ráð- stafanir til þess að herða á hafnbakkinu gegn Þýskalandi, þar sem kunnugt er, að Bretar og Frakkar eru staðráðnir í að koma í veg fyrir, að Þjóðverjar geti haldið áfram að flytja járnmálm frá Svíþjóð um Narvik í Norður-Noregi, og muni verða gerðar ráðstafanir til þess að hindra að Þjóðverjar geti notað norska landhelgi sem siglingaleið fyrir skip sín, er flytja ófriðarbann- vöru til Þýskalands. Daily Mail segir, að búið sé að ganga frá áætlun um að herða á hafnbanninu og komi hún til framkvæmda þegar. M. a. segir blaðið að í ráði sé að gera ráðstafanir til þess áð draga úr inn- flutningi Þjóðverja á hráefnum frá Balkanlöndunum, með því að auka sem mest hráefnakaup Bandamanna í þessum löndum. ÞÝSKIR HERMENN I „VÉLBYSSUHREIÐRI“ Á VESTURVÍGSTÖDVUNUM. Um kl. 11 s.d. á laugardag sá maður, sem býr utan við bæinn, allmikinn vígahnött, sem stefndi yfir Faxaflóa frá vestri til austurs. Var hnötturinn allstór, og birtan mitt á miíií birtu sólar óg tungls og vottaði fyrir liala, er hann sveif austur yfir. Braut hnattarins virtist mynda 10—15 gráður við lárétta línu. Það mun tiltölulega óvenju- legt, að slíkir vígahnettir sjáist liér, og væri æskilegt, ,að menn þeir, sem séð liafa hnöttinn gæfu um það upplýsingar. Margrét Ciriksdóttir: Píanóhljómleikar 0 á morgun. Með línum þessum vil eg vekja athygli manna á hljóm- leik okkar fremsta kvenpíanó- leikara í Gamla Bíó á morgun. Margrét er dóttir Eiriks Hjaif- arsonar raffræðings. Hún á að Orðsending frá Ót- hlutnnarskrifstofn fundi sínum með blaðamönn- um. Sagði forsetinn, að þær upplýsingar, sem Welles hefði fengið, benti ekki til, að árang- ur næðist, þótt reynt væri að stilla til friðar nú. NRP—FB. 5000 manna verkfall í Noregi. Seinustu tilraunir til þess að leysa með samkomulagi deil- una um kjör landbúnaðarverka- manna á Austurlandi í Noregi hafa mistekist, og liófst vinnu- stöðvun á laugardag, sem 4000 —5000 menn taka þátt i. Það eru að eins þeir, sem vinna fyrir daglaun, sem um er að ræða, ekki fastráðnir vinnumenn, sem liirða gripi o.s.frv. Orsök verk- fallsins er, að „Norsk skog- og landarbeiderforbund“ hefir ekki getað fallist á tillögur, sem fram eru komnar um dýrtiðar- uppbót. NRP-FB. Hundruð bæjarbúa á skíðum í gær Skiðafólkið hefir verið hepp- ið með veður um helgina, og mun óhætt að fullyrða, að dag- urinn í gær hafi verið einhver hinn allra besti, sem komið hefir nú um langt skeið, með tilhti til færis og veðurs. Glaðasólskin hélst allan dag- inn, logn var og hiti mikill, fær- ið ágætt og fjallasýn liin ákjós- anlegasta. Bifreiðarnar skiftu tugum, bæði við Skíðaskálann í Hveradölum og við Kolviðarhól og taldi sá, er þetta ritar, um tuttugu stóra vagna framan við Skiðaskálann í einu, en þar fyr- ir utan voru smáu bifreiðamar. Skíðafólkið fór viða um, sum- ir í langa leiðangra, en aðrir héldu sig i brekkunum i ná- grenni Skíðaskálans og Kolvið- arhóls og iðkuðu æfingar. Ekki var vitað um nein slys í gær i sambandi við skíðaferðirnar. 1 K.R.-skálanum gistu 80 manns, en auk þess komu þang- að 60 menn í gærmorgun, auk 20 starfsmanna Landssímans og 30 Hafnfirðinga. í Ármannsskálanum gistu 44, en alls voru þar um 100 manns. Allir eru á sama máli um það, að betra veður og skíðafæri liafi ekki komið allan veturinn. Reykjavíkur. Fólk, sem þarf að fá skift hveitimiðum fyrir rúgmiða í aprilmánuði, samkv. læknis- vottorði er beðið að fá sig af- greitt nú i þessari viku. Að gefnu tilefni vill skrifstof- an taka fram, að samkv. ákvörð- un Skömtunarskrifstofu rikis- ins verða engin aukaleyfi veitt vegna ferminga eða þ. h. Verslanir (og brauðgerðar- hús), sem selja skömtunarvör- ur eru ámint um að senda alla reiti (rétt talda) fyrir siðasta mánlið til skrifstofunnar dag- ana 1.—5. þ. m„ ásamt skýrslu um söluna. Er þeim veitt mót- taka daglega frá kl. 9—12 f. h. og 1—5 e. li. — Athygli verslana skal vakin á þvi, að afgreiðslu- tími fyrir innkaupsleyfi er frá kl. 10—12 f. h. og 1—3 e. li. daglega allan mánuðinn, nema á laugard., þá frá kl. 10—12 f. li. *’iv * Slys í Sundhöllinni: Drenoiir ðettir aí háa brettiao á steiniil. Um kl. 9 x/i í gærmorgun skeði það slys í Sundhöllinni, að lítill drengur féll niður af háa brett- inu á steingólfið fyrir neðan og skarst mjög á höfði. Var drengurinn strax fluttur MARGRÉT EIRÍKSDOTTIR baki sér glæsilegan námsferil, skaraði fram úr á Tónlistar- skólanum hér í bænum, hélt síð- an liljómleika hér við góðan orðstír. Siðan stundaði hún frainhaldsnáin í London og skaraði þar einnig fram úr. Á siðastl. vori vann hún 1. verð- laun i London i allsherjarkepni pianóleikara og hlaut vandaðan verðlaunagrip, svonefndan Beethovensbikar. Áður hafði hún einnig unnið 1. verðlaun pianóleikara þar í borg og fékk þá lieiðurspening úr silfri. Þessi afrek bera getu liennar og gáf- um fagurt vitni. Annar íslensk- ur pianóleikari hefir einnig orð- ið þjóð sinni til sóma á svipaðan hátt, en það var Haraldur Sig- urðsson; hann vann tvisvar sinnum Mendelsohnverðlaunin í Þýskalandi á sínum tíma. Ungfrúin mun spila verk eft- ir Beethoven, Bralims, Chopin, Debussy og sónötu eftir Hall- grim Helgason. Eg vil hvetja alla þá, sem góðri tónlist unna, að sleppa ekki tækifærinu til að hlýða á liinn snjalla píanó- leik ungfrúarinnar. Baldur Andrésson. á Landspitalann og var sárið saumað saman, en síðan var drengurinn fluttur heim. Var sárið djúpt, en meiðslin voru ekki hættuleg að öðru leyti.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.