Vísir - 08.04.1940, Page 1

Vísir - 08.04.1940, Page 1
Rrtstjóri: Kristján Guðiaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Bladamenn Slmh Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 linur Afgreiðsla 30. ár. Reykjavík, mánudaginn 8. apríl 1940. 80. tbl. Bretar leggja tundurdufl- um við strendur Noregs til þess að stöðva siglingar þýskra skipa. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London, í morgun. Bandamenn hafa tekið mikilvæga ákvörðun, sem er líkleg til þess að hafa víðtækar afleiðingar. Ákvörðunin er sú, að leggja tundurduflum við strendur Noregs, til þess að koma í veg fyrir, að Þjóð- ▼érjar geti notað norska landhelgi sem siglingaleið fyr- ir skip sín. Tundurduflasvæðin eru ekki í norskri land- kelgi, en í námunda við hana, og hafa svæðin þegar ver- ið valin, og eru bresk herskip þegar komin á vettvang, ty þess að gæta tundurduflalagninga-skipa flotans, sem Munu vera í þann veginn að byrja að leggja tundurdufl- Ujnum. Hvað Norðmenn gera út af þessu er enn ekki kunnugt, né hvaða gagnráðstafana Þjóðverjar grípi til, eh víst er, að aðstaða Noregs hefir orðið enn erfiðari en áður. Sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að koma í veg fyrir, að skip fari inn á tundurduflasvæðin, með síendurteknum aðvörunum í útvarpinu. Það hefir verið búist við því að undanfömu, að Bandamenn myndi grípa til einhverra víðtækra aðgerða, til þess að koma í veg fyrir, að Þjóðverjar notuðu norska landhelgi sem siglinga- leið. Chamberlain hafði áður boðað, að Bandamenn mjmdi ekki þola þetta lengur, og á fundum þeim, sem haldnir vom síðustu viku, var mál þetta rætt, af stjórnum Bretlands og Frakklands og sérfræðingum þeirra. Bandamenn hafa gefið út tilkynningu, þar sem gerð er grein fyrir tildrögunum að, þessari ráðstöfun. Er þar m. a. minst á hinar sífeldu árásir Þjóðverja á skip hlutlausra þjóða og skipa- og manntjón þeirra af þeim sökum. Norðmenn hafi orðið harð- ast úti allra hlutlausra þjóða, bœði að því er skipatjón og mann- tjón snerti, en samt noti Þjóðverjar landhelgi Noregs sem sigl- íngaleið. Þetta ætli Bandamenn sér nú að koma í veg fyrir. 1 iilk. er því haldið fram, að þar sem Þjóðverjar brjóti öll al- þjóðalög og reglur í sjóhernaði sínum, sé réttmætt að Banda- tnenn grípi til mótaðgerða slíkra sem þeirra, er nú hefir ákveðin verið að Ieggja tundurduflum við Noregsstrendur. f tilkynningum Bandamanna segir, að ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að koma í veg fyrir, að af tundurduflalagning- unum leiði nokkur óþægindi fyrir norskar millilanda- eða strandferðir. UM ALLA ÁLFUNA ÓTTAST MENN AÐ NORÐURLÖND DRAGIST INN í STYRJÖLDINA. — ÞÝSK INNRÁS í NOREG MEB STUÐNINGI RÚSSA. Óttinn við, að Norðurlönd dragist inn í styrjöldina, vex stöð- Ugt, en þó vona Norðurlandaþjóðimar og margar þjóðir aðrar enn, að Norðurlönd verði ekki orustuvöllur. Kemur víða fram sú skoðun, að ef Norðurlönd neyðist til þátttöku í stríðinu breið- ist styrjöldin út um alla álfuna. 1 Svíþjóð hafa þegar verið tekn- ar ráðstafanir til eflingar landvamanna vegna þess hversu nú horfir. I fregnum frá vatikanríkinu segir, að páfinn hafi fengið skýrslu Suhrs biskups, þar sem látinn er í ljós ótti við afleið- ingar þess, ef Bandamenn skerði hlutleysi Noregs. Afleiðingar þess gæti orðið þýsk innrás í Noreg, með stuðningi Rússa. í niðurlagi skýrslunnar er mælst til þess, að páfinn snúi sér þegar í stað til stjómarvaldanna í ófriðarlöndunum með til- mælum um, að sneiða hjá öllu, sem af gæti leitt, að styrjöldin hreiddist út til fleiri landa. mál til íhugunar, eftir að fregnir höfðu borist um, að bresk her- skip liefði lekið 3 jugoslavnesk skip og flutt til breskra eftir- litshafna. K.höfn í morgun. EINKASKEYTI. Fregnir frá Römaborg herma að ríkisstjórnir íaliu og Jugo- slavíu hugleiði, að loka Adria- hafi, til þess að koma í veg fyr- ir, að styrjöldin breiðist út til þessa hluta álfunnar. Rikisstjórnirnar tóku þessi Finnar opna sendiherra skrifstofn i Moskva á ní. Einkaskeyti frá United Press. K.liöfn í morgun. Fregnir frá Moskva lierma, að finska stjórnin hafi opnað aftur sendiherraskrifstofu sina í Moskva, en hún liefir verið lokuð síðan er finsk-rússneska styrjöldin braust út. Paasikiivi, samníngamaður Finnlands í Moskva, opnaði skrifstofuna. — Þjóðverjar fá hráefni frá Jugoslaviu. Einkaskeyti frá United Press. K.höfn í morgun. Berlinarfregnir herma, að samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum liafi Þýskaland og Jugo- slavia gert með sér sáttmála, til þess að endurnýja samning, er gerður var fyrir stríð milli Austurrikis og Jugoslaviu. Sam- kvæmt samningnum áttu Jugo- slavar að greiða 16 milj. ríkis- marka og fá nú Þjóðverjar hrá- efni hjá þeim fyrir þá upphæð. Skákmótið: Úrslit kunn í 1. og 2. fL, en tvísýn í meist- araflokki. í gær var tefld næstsíðasta ’ umferð í Meistaraflokki og fóru leikar þannig: Gilfer vann Áka, Sæmundur vann Jóhann og Hafsteinn vann Ásmund, en biðskák varð milli Árna Snævars og Einars Þor- valdssonar. Annars vakti sú skák mesta athygli, sökum þess hve hún gat og getur enn orðið ( afleiðingarík fyrir úrslit móts- ins. Þegar skákin fór i bið hafði Snævarr 3 peð og hrók móti 2 biskupum. Möigum kom á óvart, að Ás- mundur skyldi tapa fyrir Haf- steini, þótt hann kæmist eftir venju í mikið tímahrak, þvi hann hafði haft betra tafl lengst af. Virðast nú möguleikar hans til sigurs vera famir að þverra, jafnvel þótt hann vinni Gilfer í síðustu umferðinni. Nú standa þvi vinningarþann- ig hjá þeim efstu: Eanar 6 vinn. (af 7 tefldum), Gilfer 5V2 v. (7), Ásmundur 5 v. (7), Snæ- varr 4 v. (6). Gilfer hefir sem sagt mesta möguleika, þá Ein- ar, svo Ásmundur og Snævarr. 1 1. flokki urðu úrslit þessi: 1. Jón Þorsteinsson 6 vinn. 2.— 3. Ingimundur Guðmundsson og Pétur Guðmundsson með 5 v. hvor. 4. Óli Valdimarsson 4% v. 5. Vígluridur Möller 3 v. 6. Helgi Kristjánsson 2% v. 7. Jón Ragn- ar Guðjónsson 2 v. 8. Aðalsteinn Halldórsson 0 v. í 2. flokki varð efstur Ólafur Einarsson með 7 vinninga, en vegna tveggja biðskáka er enn óvíst um næstu sætin. I kvöld verða tefldar biðskák- ir, en ;á miðvikudaginn liefst svo síðasta umferð í Meistaraflokki. Nkolakepui í koðiimdi. 1 kvöld kl. 9 fer fram slwla- kepni í boðsundi (skriðsundi) i Sundhöllinni. 1 desember fór fram boðsundskepni í brinffu- sundi off vann Háskólinn þá. Þessir skólar eru nú meðal Brunaslysið í Hveragerði 1 sambandi við brunaslys það, sem varð í Hveragerði um dag- inn og skýrt var frá hér í blað- inu, gefur Herbert Jónsson í Hveragerði eftirfarandi lýsingu á baðklefanum, þar sem slysið varð ásamt vottorðum frá mönnum, sem notað hafa klef- ann að staðaldri. Gufubaðsklefinn, sem er h. u. b. 1.5x2 m. að ummáli, er bygður yfir steinsteypta þró. í þró þessa er leitt vatn úr liver í 60—70 m. fjarlægð. Niðri í þrónni eru ofnar er liita upp vatn í miðstöð í íbúðarh. H. Á. Gólfið í klefanum er úr 1” borð- við, bornUin uppi af 4 sterkum bitum. Nokkur göt eru boruð í gólfið (m. 1” bor) svo gufan komist upp. 1 miðju gólfinu er op h. u. b. 30x50 cm. að stærð. Opið er haft til þess að hægt sé að tæma þróna og hreinsa ofn- ana. Yfir opinu er hafður hleri af sömu þykt og gólfið. Þegar baðið er notað er hlerinn tekinn en í hans stað sett grind, svo gufa verði meiri. Bæði hlerinn og grindin eru felt í fals svo ör- ugt sé að ekki liaggist. Drengurinn mun eittlivað liafa verið búinn að losa um grindina með höndum, en svo ætlað að fella hana í falsið aftur með fæti, en grindin þá látið undan eða drengnum skrikað fótur, og þvi farið sem fór. Það verður með engu móti kent „slæmrim útbúnaði“ að svona fór. Eina staðreynd vildi eg mega benda á við þetta tækifæri: Við þau brunaslys, sem komið hafa fyrir hér á Hveragerði síðustu 10 árin, hafa það verið aðkomu- menn eða konur, er fyrir þeim liafa orðið. Þetta stafar af þvi, venjulega, að fólkið hefir ekki farið eftir þeim leiðbeiningum eða gætt þeirrar varúðar er Hvergerðing- ar liafa gefið þvi. Vonandi verð- ur einhverju af slysum forðað i framtiðinni með Jieim ráðstöf- unum sem Slysavarnafélagið og deild þess liér eru nú að koma i framkvæmd. Verða sett upp liættumerki við hættuleg- ustu staðina og girðingum lcom- ið fyrir um þá. , Að því er Vísir hefir frétt líð- ur drengnum nú eftir atvikum vel. Skórinn hlifði honUm við bruna á tám, þannig að þægi- legra er að fást við brunasárin, en ella hefði orðið. þátttakenda: Háskólinn, Iðn- skólinn, Mentaskólinn og Versl- unarskólinn. Er kept í 10- manna sveitum. Rektor Háskólans, dr. Alex- ander Jóhannesson, hefir gefið fallegan bikar til kepninnar. Sundhöllinni er lokað í kvöld frá kl. 7V2 fyrir baðgesti, og fást aðgöngumiðar að boðsund- inu við innganginn. í 3ja þætti: Smart (Alfreð. Andrésson) og Adolf Benito Dux Puttalin (Brynjólfur Jóhannesson). »Stundum og stundum ekkiu Fpumsýniflgiii í gæpkveldi. Leikhúsgestir, sem farið liefðu á frumsýninguna á leiknum „Stundum og stundum ekki“, sem halda átti síðastliðið fimtu- dagskvöld, hefðu án efa lilegið töluvert það kvöldið, meðan á leiksýningu stóð, en að henni lokinni hefði öllum komið sam- an um, að leikurinn væri þunn- meti, — eins og liann á að vera frá höfundanna hálfu, — og teflt væri víða á tæpasta vað, en svo hefði hann sennilega grafist í gleymsku og þögn á sama hátt og revyurnar, sem sýndar liafa verið hér á undanförnum árum. En rás viðburðanna hefir valdið því, að þessi verða ekki örlög leilcsins, með því að það getur ekki verið neitt litilræði, sem kemur öllu dómsmálakevfinu á hreyfingu, sem kemur upp I „censur“ á 20. öldinni með öllu þvi, er fylgir og fylgja ber, og lætur að lokum alla landsbúa standa á öndinni, lineykslaða á leiknum eða eftirleiknum frá hendi hins opinbera, — svona alt eftir atvikum. Það er senriilegt að eftirleik- uririn verði þess valdandi, áð Leíkfélagið hdfi áldrei férigið betri áðsókn né fleiri sýningar, og getur þvi ságt með fullum rétti, að hið íílá liáfi snúist til góðs. Um það má með riókkrrim rétti deila, hvort Leikfálag Reykjavíkur eigi að halda uppi slíkum sýningum sem þessum, með því að það njóti opinbers styrks, en leikurinn sé full nær- göngull, miðað við íslenska stað- liætti og þjóðmálaviðliorf, en það liefir sennilega þótt við eiga, að taka það ekki fram, að allav persónur leiksins séu hreinn heilaspuni, en hafi ekki við veruleikann að styðjast, eins og stendur á flestum enskum „reyfurum“, með þvi að svo fjarri sé það, að hér sé sneitt að ákveðnum mönnum eða mál- efnum, enda er leikurinn soðinn upp úr erlendri fyrirmynd. — Leikfélagið á við hin erfiðustu vinnuskilyrði að búa, og fjár- skortur hamlar gegn fram- kvæmdum þess, og því er eklci óeðlilegt að það freistist til að sýna slíka leiki sem þessa, með því að fyrirfram er aðsóknin ör- ugg og ágóðinn tryggur. Það þýðir ekki að dæma þennan leik eftir almennum mælikvarða leikrita. Ætlunin er ekki að bera hér á borð lcræs- ingar, lieldur hversdagslega „lafskássu“ úr leifum þeim, sem haldið liefir verið til liaga til kvöldverðarins, og það á öll- um að vera ljóst, sem leikinn sjá, að hann gerir engar kröfur til annars og meira, en að á- horfendur hafi góðan og „hum- oristiskan sans“ til að bera, en brjóti ekki úr sér tennur vegna skorts á sliku, þótt lítilsháttar beinamulningur hafi slæðst i „lafskássuna“. Hitt er svo ann- að mál, að beinamulningurinn hefði að skaðlausu ekki þurft í henni að lenda. Brynjólfur Jóhannesson ber uppi leikinn, og ferst það prýði- lega, sem honum er ætlað. Hann hefir enn einu sinni skapað nýja manntegund, sem meriri liafa ekki fyr kynst á leiksviðinu, — en ef til vill á sumum opinber- um skrifstofum, — um það verða menn sjálfir að dæma. Jón Aðils fer einnig prýðilega með hlutverk Brúsa hót.ey*cjþraj — er sannur og eðlilegursvo sem best má verða, og svipað má segja um Indriða Waage, er fer með hlutverk Vatnalauga, bróð- ur BrúSá. Valur Gíslason, Alfred Andréssön og Vilhelm Norð- fjörð fara Iáglega með hlutverk Síri, og áðrir karlleikendur sæmilega, en þó virðist leikur Lárusar Ingólfssonar óþarflega ýktur. Aurora Halldórsdóttir leikur aðal kvenhlutverkið, — Hor- mónu Sexibil alþingiskonu, — mjög laglega. Það er gaman að kynnast því fyrirbæri, sem að vísu mun eiga fáa sína lika, en til eru þeir þó. Þóra Borg, Alda Möller og Ólafía G. Jónsdóttir fara allar þægilega með hlut- verk sín, en á aðra leikendur reynir minna. Að leil<sýningu lokinni voru leikendur og liöfundur klapp- aðir fram á leiksviðið, og á- varpaði þá Indriði Waage áhorf- endur. Fór hann nokkrum orð- um um gagnrýni þá, er leikur- inn hefði sætt, og lagði áherslu á, að leikurinn væri að eins slundargleði, en væri ekki ætl- að að móta inenn til frambúðar. Menn, sem leilcinn sæju, þyrftu að kunna að lilæja og í rauninni annað ekki.Það gætu þeir lært með þvi að kynnast leiknum og liöfundum hans, — en um- fram alt mættu menn ekki taka sýningu leiksins of alvarlega. K. G.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.