Vísir - 12.04.1940, Side 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Slmi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, föstudaginn 12. apríl 1940.
84. tbl.
LOFTÁRÁS. — Það á vel við að birta þessa mynd núna. Hún
sýnir breska sjóliða búa sig undir að taka á móti þýskri loftárás.
Mýndin er tekin um borð á tundurspilli.
Bretar hafa her-
tekið Færeyjar.
Eíkiistjórnir Bretlandi og Kanada
hafa itöðn íilandi til athugiiiiar.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Winston Churchill flutti ræðu þá, sem boðað hafði
verið að hann mundi flytja, í neðri málstofunni í gær
síðdegis. Gerði hann að umtalsefni innrás Þjóðverja
og tildrög hennar, afstöðu Bandamanna og hlutlausra
jþjóða, viðureignirnar á sjó við Noreg að undanförnu
o. m. fl.
í ræðu sinni lýsti Churchill yfir því, að Bret-
ar væri að hernema Færeyjar, en að því er ís-
land snerti, sagði hann, er frekari athugunar
þörf, og bætti því við, að engum Þjóðverja yrði
leyft að stíga þar fæti á land, án þess hegnt
yrði.
McKenzie King forsætisráðherra Kanada
hefir lýst yfir því, að ríkisstjórn Kanada ræði
við bresku stjórnina um stöðu íslands og
* Grænlands.
Tilkynt hefir verið, að Bretar komi sér upp flota- og flug-
stöðvum á Færeyjum, og hafi eyjamar verið teknar, vegna
hernaðarlega mikilvægrar legu þeirra, milli Orkneyja og íslands.
Það er tekið fram, að hernámið standi yfir þar til eyjunum verði
skilað aftur í liendur Dana, þ. e. þegar Þjóðverjar hverfa úr
Danmörku.
BANDAMENN OG SMÁÞJÓÐIRNAR. .
Ummæli Winstons Churchills um smáþjóðirnar hafa vakið
mikla athygli. Hann kvað Bandamenn reiðubúna til þess að
hjálpa smáþjóðunum, til þess að verjast gegn ofbeldi og kúgun,
en þær ættu að taka til atligunar, að ekki sé unt að veita lijálp
þegar í stað, ef þær vilji ekki hafa Bandamenn alveg sér við hlið,
fyrr en þær hafa orðið að sæta vísindalega undirbúinni árás. Til
þess að kleift sé að hjálpa þarf að biðja um aðstoðina i tæka tíð.
Benti hann á innrásina í Noreg og afstöðu Norðmanna fyrir
innrasina til viðvörunar, en endurtók jafnframt loforð bresku
stjórnarinnar, að Bretar myndi berjast með Norðmönnum, þar
til þeir hefði endurheimt frelsi sitt og sjálfstæði.
MÓTSPYRNA NORÐ-
HARÐNANDI
Framsókn Þjóð-
verja stöðvuð á
ýmsum stöðum.
Loftárásir á Stavanger
Þjódverjar innikróaðir
í Narvik.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
amkvæmt fregnum frá Stokkhólmi er mót-
spyrna Norðmanna mjög harðnandi og her-
væðingunni er haldið áfram í fullum krafti
víðsvegar í landinu. Þjóðverjar hafa, eins og fyrr var
getið, sent herlið frá ýmsum þeim borgum, sem þeir
settu lið á land í, inn í landið, en framsókn þessara her-
sveita Virðist víða hafa verið stöðvuð, eftir hinum
sænsku fregnum að dæma,
Fréttaritari Stokkhólmsblaðsins Dagens Nyheter á
landamærum Noregs og Svíþjóðar, nálægt vígstöðvun-
um í Austur-tNoregi, símar í morgun, að mikil orusta
standi hjá Elverum og Kongsvinger, um 50 mílur norð-
Þjóðverjar hafa mist 4 beiti-
skip, 2 tundurspilla, 12 herflutn-
inga- og birgðaskip, 1 kafbát a.
m. k., en herskipið Scharnhorst
skemdist og 4 tundurspillar.
Bretar hafa mist 4 tundurspilla,
en lierskipin Rodney og Renown
og 2 beitiskip hafa laskast.
Forleikur
meiri atburða.
ChurchiII kvað það, sem gerst
Iiafði kunna að verða forleik
að stórkostlegri viðureign, og
gaf í skyn, að Þjóðverjar myndi
hefjast handa víðar. Hafa Bret-
ar og Frakkar gripið til ýmissa
varúðarráðstafana, m. a. frestað
öllum heimferðarleyfum her-
manna og flugmanna, og þykir
ekki ólíklegt, að til stórtiðinda
dragi á vesturvígstöðvunum, og
eins og segir í öðru skeyti er ótti
ríkjandi í Hollandi og hefir ver-
ið gripið þar til aukinna varúð-
aráðstafana, en Belgíumenn eru
viðbúnir öllu, sem fyrir kann að
koma.
Innrásin
undirbúin.
Winston Churchill sagði i
ræðu sinni, að kunnugt hefði
verið, að Þjóðverjar hefði lengi
undibúið innrás í Noreg og
Danmörku. í Eystrasaltshöfn-
um og víðar hefði þeir safnað
saman flutningaskipum og flutl
austur af Oslo,
Loftárásir á Elverum.
Bardagarnir við Elverum
hafa verið mjög harðir. Loft-
skeytastöðin i Stokkhólmi til-
kynnir, að allan daginn í gær
hafi Þjóðverjar haklið uppi
loftárásum á Elverum, og hafi
orðið mikið tjón af. Hefir
kviknað í fjölda mörgum hús-
um i borginni.
Sökum þess, hversu barist er
út í þali hergögn og herlið hefði
beðið reiðubúið í hafnarborg-
unum.
Heimaflotinn beið
reiðubúinn í
Scapa FIow.
Hann hafði verið þar i 5 vik-
ur, sagði Churchill, en við Scapa
Flow voru gerðar mjög víðtæk-
ar varnarráðstafanir, eftir að
þýskum kafbát tókst að komast
þar inn og sökkva hersltipinu
Royal Oak. Auk þess, sem
Churchill sagði um heimaflot-
ann, gat hann þess, að flotadeild-
ir hefði ávalt verið á eftirlits-
ferðum í norðurhöfum og víðar.
Þegar fregn barst Um það á
sunnudagskvöld, að herskip og
flutningaskip Þjóðverja væri á
leið norður á bóginn, lét flotinn
þegar úr höfn til þess að leggja
til atlögu viðhin þýsku skip. Áð-
ur hefði flotadeild verið send til
þess að leggja tundurduflum
undan Narvik og víðar. Hún
lagði úr liöfn á laugardagskvöld.
Eitt bresku lierskipanna, tund-
urspillir (Glowworm) varð við-
skila og lenti í orustu við þýsk
herskip og mun hafa verið sölct.
Fékst þannig mikilvæg bending
um, livar þýskra herskipa væri
að leita. Churchiíl gerði einnig
grein fyrir viðureignum þýskra
og breskra herskipa og skipa-
tapinu.
nálægt landamærúm Sviþjóðar,
eru sænskar flugvélar stöðugt á
sveimi yfir landamærunum og
aukið herlið hefir verið sent
þangað. Ef nokkur tilraun verð-
ur gerð til þess, að fara yfir
landamærin, loftleiðis eða á
landi, verður harðri mótspyrnu
að mæta frá Svíum.
Þýskar hersveitir
fluttar loftleiðis til Noregs.
Fregnir hafa borist um, að
Þjóðverjar sendi herafla loft-
leiðis til vígstöðvanna í Austur-
Noregi, sennilega frá Dan-
mörku. Ef þetta reynist rétt,
bendir það til, að Þjóðverjar
telji siglingaleiðina ótrygga
orðna til Suður-Noregs, eftir að
breskum herskipum tókst að
komast inn í Skagerrak og
Kattegat.
Loftárás á .Stafangur.
Flugmálaráðuneytið breska
tilkynnir, að breskar hernaðar-
flugvélar hafi gert tvær loftá-
rásir í gær á flugstöðina í Staf-
angri. Varpað var sprengikúlum
á olíubirgðastöð flugstöðvarinn-
ar og skotið á hana af vélbyss-
um. I seinni árásinni var varpað
sprengikúlum á þýskar flugvél-
ar, sem raðað liafði verið upp á
flugvellinum, og skemdust
margar þeirra. I fyrri árásinni
var skotið af loftvarnabyssum á
bresku flugvélarnar. Ein flug-
vél var skotin niður. Norskur
lautenant og einn borgari biðu
bana í árásinni, en margir menn
særðust.
Frá vígstöðvunum Við Hamar.
Sænskar fregnir herma, að
Þjóðverjar liafi orðið að láta
undan síga á vígstöðvunum við
Hamar. Hafa norskar liersveit-
ir knúið Þjóðvei'ja til undan-
halds og munu þeir liafa hörfað
undan 8 kílómetra.
Þjóðverjar í Narvik
króaðir inni.
Norskar hersveitir hafa búist
ramlega um í fjallaskörðunum
í nánd við Narvik og er talið,
að þýska herliðið í Narvik sé nú
króað inni. Bresk herskip eru
sögð komin inn undir Narvik,
til jiess að koma í veg fyrir að
hei*skip Þjóðverja í Narvik
komist á brott. í mynni Vest-
fjarðar, en Narvik stendur inn-
arlega við hann, hafa Bretar
lagt tundurduflum, sem fyrr
var frá sagt. Ekki er kunnugt
hversu mikinn liðsafla Þjóð-
verjar hafa í Narvik.
Þjóðverjar hafa
2000 manna lið
í Bergen.
Talið er, að Þjóðverjar muni
hafa um 2000 manna lið í Berg-
en og þar i grend. Norskar lier-
sveitir hafa búist til varnar i
fjöllunum i nánd við borgina.
Þjóðverjar hafa
fengið liðsauka
til Osló.
Þjóðverjar munú hafa fengið
nokkum liðsauka til Osló. Loft-
árás gerðu Þjóðverjar á Fred-
rikstad í gær.
Mesta oíiuflutningaskipi
Svía sökt.
Þýskur kafbátur hefir sökt
mesta olíuflutningaskipi Svía,
9000 smálesta skipi, við strend-
ur Skotlands. — Áhöfninni, 43
mönnum, hefir verið bjjargað.
Tekst hreskmn herskio-
London í dag.
Bresk herskip eru nú að gera
tilraun til þess að ryð ja sér braut
inn í Stóra Belti (milli Sjálands
og Fjóns) og Litla belti (milli
Fjóns og Jótlands). Komist
bresk herskip gegnum beltin inn
í Eystrasalt fá Bretar aðstöðu til
þess að leggja til atlögu við þýsk
herskip og flutningaskip í
Eystrasalti. Verður þá sigling-
um Þjóðverja ný og mikil
hætta búin, auk þess sem til á-
rása kann að koma á Eystra-
saltshafnir Þjóðverja.
Fundir Alþingis.
Alþingi hóf reglulega fundi
sina að nýju í gær, og í dag eru
fundir í báðum deildum, en að
þeim loknum kemur Sameinað
þing saman.
Helstu málin, sem fyrir verða
tekin í dag eru lcaupuppbótin og
saltfiskúthald togaranna, og
liggja þessi mál bæði fyrir
neðri deild.
Ef engir óvæntir atburðir
koma fyrir má vænta þess, að
þingstörfin gangi greiðlega úr
l>essu, en þó er með öllu óvíst
livenær þingi lýkur.
FREGNIR ÞJÓÐVERJA UM
AÐ FRANSKA HERSKIPINU
FOCH HAFI VERIÐ SÖKT
BORNAR TIL BAKA.
®
Einkaskeyti frá United Press
í þýsku útvarpi var frá þvi
skýrt í gær, að Þjóðverjar
hefði sökt franska herskip-
inu Foch og valdið tjóni á
herskipinu Dunquerce.
í ræðu, sem Paul Reynaud
forsætisráðherra Frakklands,
flutti í gær, sagði hann, að
franska flotamálarúðuneytið
liefði tilkynt, að hvorugí her-
skipanna hefði orðið fyrir
minsta tjóni.
Sænskt skip
leitar hér
hafnar.
Búist við fleiri Norð-
mrlandaskipum.
I nótt kom hingað sænskt
mótorskip, Annie Johnson, frá
Stokkhólmi. Leitar það hafnar
hér vegna atburðanna á Norð-
urlöndum og bíður átekta.
Annie Johnson er á leið frá
Ameríku með ávaxtafarm til
Sviþjóðar. Þoð er rúml. 4900
brúttó smál. að stærð og lestai'
rúml. 6000 smál. Það er bygt i
Gautaborg 1925.
Líklegt er að fleiri skip frá
Norðurlöndum muni koma
liingað næstu daga, að því er
Vísi var tjáð í morgun, er blað-
ið átti tal við skrifstofu hafn-
arinnar. Hefir blaðið heyrt því
fleygt, að von sé á 4 sænskum
skipum á næstunni.
Tnifiovi Biili bjarosr
islensku Miskipi.
Slysavarafélagið sneri sér til
h.f. Alliance í fyrradag með
beiðni um, að Tryggvi gamli,
sem nú er á Ieið til landsins,
kæmi m.b. Dóra frá Vestmanna-
eyjum til aðstoðar. Dóri hefir
verið í fiskflutningum milli
Vestmannaeyja og Bretlands.
Var hann staddur 140 sjómílur
norðvestur af Hebrides-eyjum á
leið til Islands, er vélin bilaði.
Náði Tryggvi gamli sambandi
við Dóra í gær og tókst að koma
dráttartaugum yfir í hann, en
þær siitnuðu oft, enda sjógang-
ur talsverður. Nú hefir verið
komið fyrir traustum taugum
milli skipanna, en sjógangur er
enn nokkur og getur Tryggvi
gamli ekki farið nema 6—7 sjó-
mílur með bátinn í eftirdragi,
eins og er. Má telja örugt, að
ferðin gangi eftir atvikum
greiðlega úr því sem komið er.
Ægir dregnr togara
til Vestmannaeyja,
Vestm.eyjum í morgun.
Varðskipið Ægir kom liingað
í morgun með enskan togara,
sem hafði fengið vír i skrúfuna
og var ósjálfbjarga. Viðgerð
fer fram hér.
Loftur.