Vísir - 22.04.1940, Qupperneq 1
Ritstjóri:
ECréstján Guðlaugssors
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, mánudaginn 22. apríl 1940.
P.itsfcjóri
Blaðamenn Sími:
Augíýsingar g 660
Gjaidkeri 5 línur
Afgreiösla
92. tbí.
Aðstaða Norðmanna
betri en Pólver
eftir innrásina í
Setnlid 9»JéðverJa á hiiiiiau ýimsfi
stöðnm í Meregi befir að einisi
samhand sín a milli loftleiðis.
Bandamenn og: Morðmenn treysta aðstöðn §ína - -
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Samkvæmt fregnum frá áreiðanlegustu heimildum er mótspyrna norska liersins
gegn Þ jóðver jum stöðugt harðnandi. Eins og kunnugt er var hervæðingin ekki
fyrirskipuð fyrr en innrás Þjóðverja var hafin og gerði það Norðmönnum
ákaflega erfitt fyrir, að þeir voru með öllu óviðbúnir innrásinni. Nú er hervæðingunni
lokið og norsku hersveitirnar, sem að undanförnu hafa orðið að hörfa undan, vegna þess
að þær voru of fámennar, hafa fengið liðsauka, og tekið sér nýjar stöður. En það er
ekki eingöngu það, að hervæðingunni er lokið, að aðstaða Norðmanna hefir batnað. Lið-
flutningur Bandamanna til Noregs hefir haft gífurleg áhrif í Noregi og einnig í Sviþjóð.
iVegna þess liðs, sem Bandamenn setja nærri daglega á land, hefir Norðmönnum aukist
kjarkur, og þeir trúa þvi nú, að takast muni að hrekja Þjóðverja úr Noregi. Norska
herinn skortir nútíma hergögn til þess að mæta hinum vel útbúnu hersveitum Þjóð-
yerja, en lið Bandamanna hefir meðferðis öll nútíma hergögn, flugvélar, skriðdreka,
brynvarðar bifreiðar, og alt annað, sem þarf til þess að heyja hernað á nútíma vísu. Það
er fyrst nú, að Bandamenn eru famir að geta orðið Norðmönnum að liði á landi, og
það er lögð áhersla á það, að undangenginn hálfan mánuð hefir Norðmönnum víðast
lekist að hindra verulega framsókn Þjóðverja inn í landið, að undanteknum Austur-
Noregi, en þar hafa Þjóðverjar sótt talsvert fram, þótt Norðmenn hafi gert þeim erfitt
fyrir á ýmsa lund, með þvi að sprengja brýr o. s. frv.
1 Narvik, Bergen, Niðarósi og fleiri bæjum, þar sem t>jóð-
verjar hafa komið sér fyrir, eru þeir raunverulega innikróaðir.
Úti fyrir höfnunum eru herskip Bandamanna. en utan horg-
anna hefir lierlið Norðmanna tekið sér stöðu. Þjóðverjar verða
nú aðallega að reiða sig á flutninga loftleiðis. til þess að flytja
setuliði sínu í liinum norsku bæjum aukið lið og ýmsar hern-
aðarlegar nauðsynjar, en þeir flutningar verða æ erfiðari. vegna
hinna tíðu loftárása Bandamanna á flugstöðvar Þjóðverja í
Noregi, og nú seinast i Danmörku.
Er aðstaða Norðmanna til varnar talin mun betri en Pólverja
fyrst eftir innrás Þjóðverja í Pólland.
i
FREGNIR UM AÐ BANDAMENN HAFI TEKH) HAMAR
ENN ÓSTABFESTAR.
Fregnir bárust um það í gærkveldi og voru endurteknar
snemma í morgun, að herlið Bandamanna og Norðmanna hefði
tekið Hamar. En fregnir þessar eru óstaðfestar. Svo og fregnir
um sókn Bandamanna á öðrum stöðum. Líklegt þykir, að Banda-
menn flytji að enn meira lið og birgðir, áður en þeir hef ja stór-
felda sókn.
STÖÐUGT VAXANDI HÆTTA AÐ SVÍÞJÓÐ DRAGIST INN í
STYRJÖLDINA.
Gremja manna í Svíþjóð yfir hinum tíðu hlutleysisbrotum-
um Þjóðverja er stöðugt að aukast. í Stolckhólmi hefir verið til-
kynt opinberlega, að Þjóðverjar hafi 11 sinnum brotið alþjóða-
lög, með því að fljúga yfir sænskt land.
M. a. hafa þýskar flugvélar flogið yfir Gotland. sem er ram-
lega viggirt sænsk eyja, og hafa tvær þeirra orðið að nauðlenda.
Flugmennirnir kveiktu í flugvélunum, áður en tókst að liand-
sama þá og kyrrsetja. Vegna liinna tíðu lilutleysisbrota er hætt
við, að til alvarlegra árekstra komi, og að Svíþjóð dragist inn í
styrjöldina, þrátt fyrir það, að Svíar fylgi eindregið lilutleysis-
stefnunni.
LOFTÁRÁSIR BRETA Á FLUGSTÖÐVAR I NOREGI.
Flugmálaráðuneytið breska tilkynnir, að breskar hernaðar-
flugvélar hafi gert einn eina loftárásina á flugstöðina við Staf-
angur. Var loftárás þessi gerð í gærkveldi. Var slcotið af miklu
kappi af loftvarnabyssum á flugvélar Breta. Þrátt fyrir það er
lalið að flugmönnum Breta hafi tekist að varpa niður fjölda
sprengikúlna og íkveikjusprengja, því að mikil eldur kom upp
i flugstöðinni. Líklegt er, að eyðilagðar hafi verið fyrir Þjóð-
verjum margar flugvélar. -— Allar hresku flugvélarnar komu
aftur heilu og höldnu til bækistöðva sinna.
BRETAR SETJA LIÐ Á LAND
I MOLDE.
Fregnir hafa borist um, að
Bretar hafi sett lið á land i
Molde, 150 kílómetrum fyrir
sunnan Niðarós.
Þýskar flugvélar hafa verið á
sveimi fyrir sunnan Namsos,
þar sem Bretar hafa nú herlið,
og liafa Þjóðverjar látið her-
menn svifa til jarðar í fallhlíf-
urn, að rússneskri fyrirmynd.
Herlið Bandamanna
og Norðmanna sam-
einast við Mjösen.
Yfir helgina liafa borist
fregnir um, að herlið Banda-
manna berjist nú með Norð-
mönnum í Austur-Noregi. Hefir
norska herstjórnin staðfest
þetta, en að öðru leyti hefir
ekkert um þetta borist nema
frá sænskum heimildum. Sam-
kvæint sænsku fregnunum settu
Bandamenn lið á land í Vestur-
Noregi og var það flutt á járn-
braut og í bifreiðu mtil Mjösen,
þar sem herlið Bandamanna og
Norðmanna sameinaðist, fyrir
norðan vatnið. Fregn um, að
þetta lið hafi tekið Hamar, hefir
ekki verið staðfest, né heldur
að Þjóðverjar hafi tekið Litla-
Hamar, sem er enn norðar, og
sést af þessu hversu lítt ber
saman fregnum frá Noregi nú.
Vafalaust er þó rétt fregn um,
að lierlið Bandamanna sé komr
ið á þessar vigstöðvar, þar sem
opinber tilkynning hermir að
svo sé.
Herlið Bandamanna, sem hér
um ræðir, kvað vera ágætlega
útbúið, og hefir það skriðdreka,
vélbyssur, loftvarnahyssur og
öll nýtísku vopn.
Loftárásir hafa Þjóðverjar
gert á Namsos, Litlahamar og
Dombaas. I Ioftárásinni á Nam-
sos varð mikið tjón á liúsum og
breskum togara þar í höfninni
var sökt. Herlið Bandamanna,
en þeir liafa þar nú setulið, varð
ekki fyrir neinu tjóni. Á Litla-
hamri varð og mikið tjón. Flug-
mennimir skutu af vélbyssum,
er þeir flugu lágt yfir borgina.
I Dombaas hafa Þjóðverjar
reynt að eyðileggja járnbrautar-
stöðina og járnbrautina, og
styður það fregnimar um, að
lið Bandamanna á leið til Mjö-
sen liafi farið þar um.
Domhaas er mikilvæg járn-
brautarstöð á Dofra- og Rauma-
járnbrautinni, og liggur hún við
þjóðveginn um Guðbrandsdal-
inn. Á þessum slóðum lentu úr
flugvélum nokkrir tugir þýskra
hermanna. Svifu þeir til jarðar
í fallhlífum og höfðu meðferð-
is vélbyssur, reiðhjól o. fl. Þess-
ir hermenn munu hafa átt að
hindra, að lið Bandamanna og
Norðmanna næði saman, með
því að eyðileggja járnbrautir og
brýr. En þarna lenti i bardaga
milli þýsku hermannanna og
Norðmanna og bám Norðmenn
sigur úr býtum. Um 50 Þjóð-
verjar voru liandteknir, en 20
til 30 féllu.
Viðureignir milli Namsos
og Niðaróss.
Fregnir berast stöðugt um
viðureignir milli Namsos og
Niðaróss, en ekkert hefir verið
tilkynt um þær opinberlega. —
Það er farið að koma æ betur í
ljós, að Þjóðverja skortir lið og
nauðsynjar lianda liði sínu,
enda er þeim gert stöðugt erf-
iðara fyrir um liðflutninga. —
Flugvélaflokkur þýskur í lier-
liðsflutningi varð fyrir árás
hreskra flugvéla og neyddist til
þess að leggja á flótta.
Nýjar loftárásir á Stafangur
og Álaborg.
Bæði á laugardagskvöld og í
gærkveldi voru gerðar loftárás-
ir á flugstöðina við Stafangur
og ný loftárás hefir verið gerð
á flugstöðina við Álaborg, með
miklum árangri. Þegar fyrri
loftárásin var gerð var flugstöð-
in upplýst og kom árásin Þjóð-
verjum algerlega á óvart.ísiðari
árásinni komust flugmennirn-
ir að raun um, að eldur logaði
enn í flugstöðinni eftir fyrri á-
rásina. Bretar mistu enga flug-
vél i árásirini. Mikill árangur
var á loftárásinni á Kristians-
sand. Skotið var af vélbyssum
á flugstöðina og eldur kom upp
i flugvélaskýlum.
Sex þýskar flugvélar skotnar
niður í gær og sjö í fyrradag.
Bretar skutu niður 6 þýskar
flugvélar yfir vesturvígstöðvun-
um í gær, og Bretar og Frakkar
7 í fyrradag. Bretar mistu enga
flugvél, en ein þeirra nauðlenti,
og var flugmaðurinn særður, en
ekki hættulega.
Fyrsti leliisio á
eseajislt
Bretar varpa sprengjum á
flugstöðina í Alaborg, sem
er í höndum Þjóðverja.
London i morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Breska flugmálaráðuneytið
tilkynpir, að breskar hernaðar-
hættulegt starf
EINHVERSSTAÐAR úti á sjó eru þessir Þjóðverjar a'ð
,,dufla“, ef svo má að orði kveða. Þeir eru að leita uppi rekdufl
og gera þau óskaðlegt. Er það gert með því að sltrúfa af þeim
sprengjuhornin. Það er hættulegt starf, þvi að ef manninum
verður einliver skyssa á, þá er hann húinn að vera.
flugvélar hafi gert loftárásir á
flugstöðina í Álaborg á Jót-
landi, og hafi orðið miklar
skemdir af völdum árásarinnar.
Þetta er fyrsta loftárásin sem
gerð er í Danmörku, og segja
Bretar, að hún liafi verið gerð,
vegna þess að flugstöðin sé í
höndum Þjóðverja og séu þarna
hin ágætustu skilyrði til þess
að hafa bækistöð fyrir herflutn-
ingaflugvélar, og þaðan hafi
hafið sig upp flugvélar þær,
sem Þjóðverjar hafi notað til
herflutninga til Noregs (Staf-
angurs).
(Álahorg stendur sunnan
megin Limafjarðar og er fjórða
mesta borg Danmerkur. Flug-
stöðin er að öllu gerð með ný-
tisku fyrirkomulagi og er mjög
rúmgóð).
Tök
Danmörku
harðnandi.
London i morgun.
Breska útbreiðslumálaráðu-
neytið tilkynnir:
Frekari vitneskja hefir nú
fengist um aðferðir Þjóðverja
til að „vernda“ nágrannariki
sín. Meðlimir bresku sendisveit-
arinnar í Kaupmannahöfn hefir
látið svo um mælt við bresku
blöðin í gær, að meðal hinna
íyrstu, sem komu á skrifstofur
sendisveitarinnar til fram-
kvæma rannsókn og handtaka
starfsmennina liafi verið for-
stjóri þýsku ferðamannaskrif•
stofunnar i horginni og þýskur
farandsali, umboðsmaður fyrir
kvikmyndafélag, sem ferðast
með vegabréf, er ber farand-
sala-„visum“.
Þessi embættismaður skýrði
frá því, að Þjóðverjar liefðu
getað umkringt eða ráðist á Jót-
land, Fjón og Sjáland frá 3—4
stöðum, ef Danir hefðu reynt
að standa á móti. Til að byrja
með hefði innrásarher Þjóð-
verja verið tiltölulega lítill, en
hann hefði verið aukinn jafnt
og þétt, þrátt fyrir það, þótt
engin mótstaða væri veitt. Fer
ekki hjá því, að tök Þjóðverja
Yfirlýsing deGee
forsætisráðherra
Hollands.
London í morgun.
Yfirlýsing hollenska forsætis-
ráðlierrans, Jonkhear de Gee,
hefir vakið mikið umtal í
hresku blöðunum. „Yorskhire
Post“ fer svofeldum orðum um
ræðu hans:
„Hollenska stjórnin hefir lát-
ið sér viti Noregs að varnaði
verða og hefir gert víðtækar
ráðstafanir til að verjast leift-
urinnrás. Það er fyllilega hægt
að skilja það á ræðu forsætis-
ráðherrans, að Þýskaland getur
ekki komið neinni „vernd“ við
í Hollandi. Yfirlýsing hans um,
að Holland hafi ekki í hyggju
að leita aðstoðar neins ríkis, þó
að á það verði ráðist, er bersýni-
lega ætluð til þess að fyrir-
byggja að Hitler geti leikið þar
sama leikinn og í Noregi og hið
sama, sem Þjóðverjar léku
1914, er þeir réðust inn i Belgiu,
nefnilega að taka landið undir
„vernd“ vegna yfirvofandi inn-
rásar annara styrjaldaraðila. A'ð
vísu er ekki líklegt að Hitler
liætti við innrás i Holland, ef
hann áformar hana, af því að
liann vanti afsakanir. En í Hol-
landi mun liann mæta harðvit-
, ugri mótstöðu frá litlum en
i liarðsnúnum her, auk þess sem
Holland er mjög vel víggirt frá
náttúrunnar hendi.
Hollendingar hafa liaft nógan
tíma til undirbúnings og þeir
hafa notað hann vel. Það er nú
orðið svo þrengt að kosti Hitl-
ers, að liann þolir ekki lengur
viðskiftabann Bandamanna, og
það er nú komið að þvi sem
spáð var, að með vorinu myndi
hann reyna að brjótast út. Inn-
rásin í Noreg hefir mistekist og
nú bíða þess allir, að hann ráð-
ist á annað hlutlaust riki. Verð-
ur það Holland eða Belgía, eða
verður sókninni beint suður á
Balkan ?
á Danmörku verði smátt og
smátt liarðari og yfirgangur
þeirra meiri og meiri, enda
verður þegar vart vaxandi
, gremju meðal almennings i
garð Þjóðverja.