Vísir


Vísir - 24.04.1940, Qupperneq 1

Vísir - 24.04.1940, Qupperneq 1
Sliistjóri: Kristján Guðiaiígssors Skrifsícfur: Féiagsprenísmiöjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 24. apríl 1940. Bandamenn í sókn • 7iT»i á flestum vígstöðv- um i Noregi Þjóðverjar halda áfram liðflutningum loftieiðis yflr Svíþjóð til Noregs EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Frá Stokkhólmi er símað að fregnir hafi borist um það frá landamærum Noregs, að miklir bar- dagar standi yfir milli norsks og þýsks herliðs í nánd við Rena við Glommu, fyrir norðan Elverum. Sprengdu Norðmenn þar í loft upp brú eina, er Þjóð- ver jar voru að fara yfir hana, og biðu margir hinna þýsku hermanna bana, en fleiri særðust. Síðar tókst Þjóðverjum að koma liði á járnbraut gegnum Austur- dalinn að bænum Lösset, 50 kílómetrum fyrir norðan Rena, en nánari fregnir vantar af viðureignum á þess- um slóðum, en yfirleitt benda fregnir nú til, að herlið Breta og Norðmanna sæki víðast fram. Bretar halda áfram liðflutningum sínum til Andals- ness fyrir norðan Þrándheim og hafa þeir sent lið til stuðnings Norðmönnum frá Andalsnesi í tvær áttir. Annað liðið fer um Guðbrandsdal í áttina til Litlaham- ars, en hitt eftir Folladalnum norður á bóginn. Bretar gera tilraun til þess að komast inn í Austurdal með aulcinn liðsafla, til þess að stemma stigu við frek- ari framsókn Þjóðverja þar. Frá Niðarósvígstöðvunum berast þær fregnir, að Bretar sæki fram í Gaudal, i þeim tilgangi að komast til Röros. Þjóðverjar halda áfram að gera loftárásir á bæi og þorp í Renadalnum. Herlið Breta í Namsos virðist hafa járnbrautina það- an á valdi sínu, þvi að þeir hafa flutt herlið eftir braut- inni langt suður á bóginn, eða talsvert á annað hundrað kílómetra. Einnig er sagt, eftir sænskum fregnum, að norskt og breskt herlið nálgist Niðarós að sunnanverðu. Til bardaga hefir komið við Levanger í Þrændalögum. Frá Narvik liafa ekki borist nýjar fregnir, en talið er að bardagar standi þar yfir, og haldi Bretar og Norð- menn áfram tilraunum sínurn til að ná bænum, en her- lið Þjóðverja á þessum vígstöðvum er afkróað á þrem- ur stöðum, eins og getið var í skeytum í gær. Norðmenn hafa fengið liðsauka fyrir norðan Elverum og er mótspyma þeirra þar harðnandi. Framsókn Þjóðverja á þeim slóðum virðist algerlega stöðvuð. Norðmenn halda áfram að sprengja brýr í loft upp og leggja margskonar tálmanir í veg Þjóðverja. Þá halda Norðmenn áfram að treysta varnir sínar og eru þeir nú að reyna að koma sér fyrir í traustari varnarlínu á þessum vígstöðum. Það er nu viðurkent í hemaðartilkynningum Breta og Þjóð- verja, að til átaka hafi komið þeirra milli á ýmsum stöðum í Noregi. LIÐFLUTNINGAR ÞJÓÐVERJA LOFTLEIÐIS. Þjóðverjar halda áfram liðflutningum sínum til Noregs loft- leiðis. Eftir fregnum frá Svíþjóð að dæma hafa þeir hætt að nota flugstöðina í Alaborg sem bækistöð fyrir herflutninga- flugvélar, en Bretar hafa nú gert þrjár árásir á flugstöðina þar. Hafa Þjóðverjar því gripið til þess ráðs, að senda herflutninga- flugvélar yfir Svíþjóð. Hafa sést margar þýskar flugvélar yfir Svíþjóð á norðurleið. Þykir þetta benda til þess, að það sé rétt, sem haldið hefir verið fram í breskum fregnum, að svo hafi verið krept að Þjóðverjum á sjóleiðum, að þeir hafi neyðst til þess að senda æ meiri liðsafla og hergögn loftleiðis til Noregs, en það er ekki talið, að Þjóðverj- ar geti til lengdar flutt nægan liðsauka og vopn í lofti, sérstaklega þar sem Bandamenn halda stöðugt áfram herliðsflutningum til ýmissa staða í Noregi. Þá er leidd athygli að því að Þjóðverjar verði að nota óhemju mikið af bensíni, ef þeir haldi áfram lið- flutningi til Noregs í stórum stíl loftleiðis, en bensínbirgðir Þjóð- verja eru ekki meiri en það, að þeir verða að fara gætilega í þeim efnum. Svíar hafa lagt fram strengileg mótmæli gegn lilutleysisbrot- um Þjóðverja. Fer gremja Svía hratt vaxandi í garð Þjóðverja, en í þýskum blöðum og útvarpi er farið hörðum orðum um fréttastarfsemi þá, sem rekin er í Svíþjóð og talin er Banda- mönnum og Norðmönnum í vil. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Styrjöid sú, sem Bretar nú eiga í, er hin fjárfrekasta, sem þeir liafa nokkuru sinni háð, sagði Sir Jolin Simon í útvarps- ræðu, sem liann flutti í gær, til þess að hvetja þjóðina til hinn- ar ítrustu sparsemi. Hið opin- bera jafnt og einstaklingar þjóðarinnar verða að fara sem gætilegast með fé, og aldrei hef- ir þörfin verið meiri en nú, sagði hann. Samanlögð útgjöld Breta á næsta fjárhagsári eru áætluð 2670 miljónir stpd., en þar af ganga til styrjaldarþarfa um 2000 milj. stpd. Fjárins er aflað með sköttum og tollum og nýj- um lántökum. Lagður verður á nýr skattur, sölu- eða viðskiftaskattur, á þær vörur, að undanteknum matvörum, sem seldar eru úr lieildsölu til smásala. Ríkis- stjórnin ákveður hve háan liundraðshlut af heildsöluverði skuli leggja iá. Skattar verða ekki lagðir á eldsneyti, rafmagn og vatn. Skattar verða liækkað- ir á bjór, whisky, tóhaki og eld- spýtum, og burðargjald bréfa liækkar, nema til hennannanna á vigstöðvunum. Talsíma og rit- símagjöld liækka. Yfirskattur verður greiddur af 1500 stpd. tekjum í stað 2000 áður. Blöðin gera fjárlagaræðu Sir Johns að umtalsefni í morgun. Blöðin eru þeirrar slcoðunar, að ekki sé við öðni að búast en að miklar hyrðar verði lagðar á alla skattgiæiðendur á styrjald- artímum, en láta í ljós þá skoð- un, að þjóðin mun bera slíkar byrðar af hugrekki og möglun- arlaust, eins og altaf áður, þeg- ar framtið Bretaveldis og lýð- ræðis og frelsis í heiminum er undir þvi komið, að sigur vinn- ist í styrjöld. Bresku blöðín um fjárlaga- frumvarpið. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Fjárlögin, sem lögð voru fyr- ir hreska þingið í gær, eru að- alumræðuefni Lundúnahlað- anna. Eru blöðin yfirleitt á einu máli um nauðsynina á að afla ríkinu aukinna tekna, en hlöðin greinir vitanlega á um ýms einstök atriði. „Times“ segir m. a.: „Skattana á að nota í þágu fjármálastefnu ríkisins. Það er nauðsynlegt að yfirfæra % liluta allrar kaupgetu þjóðar- innar til ríkisins, og þetta verð- ur að gera, hvort sem það er ffiveoær hag^uýta lieir sér fræðsluna? Þessi mynd er tekin í lyrkneskum liðsforingjaskóla. Það er verið að kenna liðsforingjunum liern- aðarvísindi og til frelcari skýringar er notast við upphleypt landakort. — Hvenær skyldi þessir ungu menn fá tækifæri til þess að beita þessari kunnáttu sinni? Eða verða þeir svo hepnir að lieyja aðeins orustur á „pappirnum“ eða upplileypta kortinu? gert með auknum álögum eða af frjálsum vilja þegnanna.“ t forystugrein hlaðsins er farið liörðum orðum um hækkun póstgjalda og ennfremur látinn í ljós efi um að viðskiftaskatt- urinn muni vega upp á móti minkaðri umsetningu vjerslana.“ Greininni lýkur á þessa leið: „Kostnaðurinn við styrjöld- ina er nú öllum almenningi ljós. Stjórnin hefir ekki gert minstu tilraun til að halda honum leyndum, heldur lagl fram djarfmannleg fjárlög til að mæta honum. Þannig á af- staða vor til stríðsins að vera. Erfiðleikarnir skulu herða þjóðina til enn meiri og karl- mannlegri átaka.“ „Daily Telegraph“ lætur sér vel líka skatta-aukninguua á bjór, vínföngum, tóbaki og eld- spýtum og bætir því við, að rétt sé að ríkið leggi eins mikið og frekast sé auðið á allan mun- að. r I r naiiinoiiir ;litsr ritir um i Iforeit. London í morgun. Vikublaðið „Spectator“ birt- ir grein eftir hermálasérfræð- ing sinn um striðið í Noregi. Segir þar, að svar bandamanna við innrás Þjóðverja liafi ver- ið hernaðaraðgerðir svo skjót- ar og gagngerðar, að Þjóðverj- ar hafi nú mist alla von um að geta haldið þeim svæðum, sem þeir í byrjun náðu tökum á. í Bandamenn hafi byrjað á því j að girða fyrir alla flutninga | Þjóðverja á sjó, með því að j eyðileggja næstum lielming af flota þeirra. Þjóðverjar liafi j treyst um of á flutninga sína ' og ekki reiknað með flota- styrkleik Bandamanna. Næsta skrefið hafi verið að eyðileggja flugvelli Noregs, til þess að flugvélar Þjóðverja gætu ekki flutt hermenn og vislir til Nor- egs. Er nú svo komið, að Þjóð- verjar geta ekkert notað til flutninga, nema sjóflugvélar, Fyrrveranrti innanríkis- ráðherra Júgoslaviu handtekinu. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Fregn barst um það frá Bel- grad í gær, að stjórnmálamaður sá, sem var innanríkisráðherra í ráðuneyti Stoyadinovitch — sem var handtekinn á dögunum, — hafi verið handtekinn. Eins og Stoyadinovitch var hann grunaður um ólöglega starfsemi og var gerð húsrannsókn hjá henum. Hefir þessi fyrrv. inn- anríkisráðherra verið einangr- aður í afskektu sveitaþorpi, eins og Stoyadinovitch, og hafðar gætur á honum. Til ýmissa frekari varúðar- ráðstafana hefir verið gripið í Jugoslaviu, vegna starfsemi nas- ista, og hafa margir menn ver- ið handteknir. Bretar skiíta um aðalkonsúl Mr. Bowering á förum. Mr. Bowering, aðalræðismað- ur Breta hér, er nú á förum héð- an bráðlega. Verður hann aðal- konsúll í Sviss. Hinn nýi aðal- konsúll Breta, Mr. F. M. Shep- herd, er nýkominn hingað. Mr. Shepherd hefir ekki verið hér áður. Hann er 47 ára að aldri og hefir verið í utanríkisþjón- ustu Breta nokkur undanfarin ár. Hefir liann verið i San Fran- cisco, Buenos Aires, Lima og víðar í Ameriku, auk þess sem hann hefir verið í Barcelona og Dresden og var í Danzig, þegar innrásin hófst. Mr. Shepherd stundaði nám við Grenoble-háskólann. Hann er ókvæntur. en þær hafa minna burðar- magn en landflugvélar og verða þar að auki að þræða strandlengjuna, þar sem floti Bandamanna er á verði. Dagur barnanna er á morgun. Á öðrum stað hér í blaðinu er birt auglýsing um dagskrá barnadagsins á morgun. Menn geta séð af auglýsingunni, að skemtanir dagsins eru nú fjöl- breyttari og fleiri, en nokkuru sinni áður. En er þelta ekki eðlilegt? Eftir þvi sem meira her á árangrinum af starfi Sumargjafar, eftir þvi eykst skilningur manna á gagn- semi félagsins. Það byrjar í smáum stíl, eins og margt ann- að þjóðþrifafyrirtækið, en verð- ur smánx, saman að stórveldi, með því að vinna af alliug og einlægni að marki sínu. F orvigismenn Sumargjafar finna þvi mun frá ári til árs, hversu skilningur almennings vex á starfi þeirra. Til eru þó einstaka menn, sem velja starf- inu nöfn eins og snikjur o. þ. h. Þessir menn finna þó hvergi hljómgrunn og andúð þeirra er eingöngu sprottin af vanþekk- ingu á starfi Sumargjafar. Jafn- skjótt og þeir kynnast þvi, munu þeir skifta um skoðun. Á morgun sýna Reykvíkingar hug sinn til Sumargjafar, með því að bera merki dagsins og sækja skemtanirnar. Miki! næturfrost á NoE’ðiBrlaiMlI. Fréttaritari Yísis á Siglufii’ði skýrði blaðinu svo frá í sím- tali í morgun, að þar nyrðra sé alt tíðindalítið. Iðnskóla og gagnfræðaskóla verður slitið þessa dagana, og hefir töluverð aðsókn verið að þeim í vetur. Yeðurfar er frekar kalt nyrðra. Sólbráð er á daginn að vísu, og snjór tekinn að réna, en þó eru enn skaflar á götum Akureyrar. Næturfrost eru mik- il og hamlar það að sjálfsögðu öllum gróðri. Samgöngur ex’U nú komnar í lag við nærsveitir Akureyrar og vegir orðnir færir bifreiðum um alla dali.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.