Vísir - 29.04.1940, Side 1
P.itstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Fétagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Bbðamcnn Sími:
Augiýsingar lééO
Gjaidkeri 5 línur
Afgreiðsia
30. ár.
Reykjavík, mánudaginn 29. apríl 1940.
aRBKcaaaanoaraaijagasnaKngaB^uiuaw^M^ ■ ■mhobmbbmm
98. tbl.
rja i uoiraij
Norska stjómin og Hambro
Stórþingsforseti svara
von Ribbentrop - -
Norðmenn staðráðnii* í
að berjast við ÞJóðverja
uns þeir hafa fengið
frelsi og sjálfstæði á ný
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Von Ribbentrop, utanríkismálaráðherra Þýska-
lands, birti allítarlega greinargerð um afstöðu
Þýskalands til Noregs, s. 1. laugardag, þar sem
ínnrás Þjóðverja í Noreg er réttlætt með því
að Bandamenn hafi áformað innrás í Noreg. Þetta hefir
orðið til þess, að mótmæli hafa verið borin fram gegn
staðhæfngum von Ribbentrops af hálfu Breta og Norð-
manna,
Norska stjórnin hefir birta látið yfirlýsingu, þar sem hún lýs-
ir yfir þvi að hún sé staðráðin í að halda áfram styrjöldinni við
Þýskaland, þar til Þjóðverjar hafi verið hraktir úr Noregi og
þjóðin hafi endurheimt sjálfstæði sitt og frelsi. í yfirl. er því
haldið fram, að innrásin í Þýskaland hafi vex-ið áformuð og und-
irhúin löngu áður en hún var gei-ð, og kveðst norska stjóniin
hafa sannanir fyrir þessu. Yar sendihex-ra hennar í Berlín kunn-
ugt um það nokkrum dögum áður en innrásin liófst, að þýskt
herflutningaskip létu úr höfn og er liann gerði fyrirspurn um
þetta fékk hann það svar, að engir herliðsflutningar væri áform-
aðir til Noregs. í yfirlýsingu þessari er þvi einnig lialdið fram,
að Norðmenn hafi ekki haft bandalag við neina þjóð og eklti á
nokkurn hátt ti*oðið öðrum þjóðum um tær, heldur viljað í liví-
vetna varðveita hlutleysi sitt. Stjórnin ásakar Þjóðverja um of-
beldi i garð smáþjóða og brot á alþjóðalögum, og lætur í Ijós
ósk og von um, að Bandamenn sigri, og þakkar stuðning j>eii*ra
við Norðmenn.
Hambro, forseti Stórþingsins
norska sem enn dvelst i Svijijóð,
liefir i viðtali gert staðhæf-
ingar von Ribbentrops að um-
talsefni. Neitar hann því, að
Bandamenn liafi áformað inn-
rás í Noreg. Hambro birtir
liarðar ásakanir i garð þýska
ræðismannsins i Narvik, sem
liann telur hafa átt manna
mestan þátt í undirbúningi
innrásarinnar. Ræðismaður
þessi var i Le Havre, segir
Hambro, þegar línuskipið Par-
is brann, og gefur i skyn, að
hann háfi verið bendlaður við
það mál, því að hann segir, að
ræðismanriinum hafi þótt
hyggilegast að hverfa lieim til
Þýskalands skömmu siðar.
Ilambro varaði við að tekin
væri gild útnefning þessa
manns sem ræðismanns i Nar-
vik, en aðvörun hans var ekki
sint. Þá lieldur Hambro þvi
fram, að Þjóðverjar liafi siglt
lierflutningaskipum til Noregs
fyrir innrásina undir fánum
annar þjóða, og tilnefnir þýskt
skip, sem fékk leiðsögn hafn-
sögumanns inn Oslofjörð, og
liafði það uppi Bandarikjafán-
ann. Fyrir þessu og því, að neit-
að var, að þýsk herflutningaskip
ætti að sigla til Noregs, kveðst
liann liafa sannanir fyrir
hendi.
Baráttan um Niöar-
ós heldur áfram.
Sókn Þjóðverja stöðvaðist í gær.
Kyrt á öðrum vígstöðvum yfir helgina.
EINKASKEYTI frá United Press. — London, í morgun.
Samkvæmt fregnum sem bárust frá Noregi í gær hafa Banda-
menn enn sett aukið herlið á land á Andalsnesi. Ekki var kunn-
ugt hversu mikið lið var sett á land, en opinber tilkjnnning var
birt um þetta í London, og tekið fram, að liðflutningurinn hefði
gengið að óskum. Einnig bárust fregnir um, að sókn Þjóðverja
í Guðbrandsdal hefði verið stöðvuð.
Það er talið mjög mikilvægt,
að Bandamönnum tókst að
koma auknu liði til Andalsness
einmitt nú, því að Þjóðverjar
höfðu sótt allliratt fram sunn-
an að í áttina til Niðaröss, og
j>að var talið vafasamt, að auð-
ið mundi að stöðva það. Jafn-
vel í breskum og norskum til-
kynningum var viðurkent, að
borfurnar væri tvísýnar. Fregn-
ir liöfðu borist um, að Þjóðverj-
Einkaskeyti frá United Press.
Fregnir frá landamærum
Noregs haf a borist til Stokk-
hólms þess efnis, að orusta
sé byrjuð milli herliðs Þjóð-
verja, sem fór frá Röros
yestur yfir f jöllin, og Breta.
Orustan stendur við Hjer-
kinn í Dofrafjöllum, við
ána Driva. Er þar járnbraut-
arstöð á línunni frá Dom-
baas til Stören, en bílvegur
liggur þangað frá Austur-
dal.
Eins og getið er á öðrum
stað fóru véladeildir Þjóð-
verja úr Austurdal vestur
yfir til þess að reyna að slíta
járnbrautarsambandið milli
Dombaas og Stören. Er mik-
ið undir komið úrslitum
þeirrar orustu, sem nú er
hafin, samkvæmt fregninni
hér að ofan.
ar liefði lagt af stað úr Austur-
dal vestur yfir til Guðbrands-
dals, í þeim tilgangi að slíta
samgöngurnar milli Stören og
Dombaas, tveggja mikilvægra
bæja, sem Bandamenn hafa á
valdi sínu. Yar tekið fram, að
þetta væri vélaherdeildir og
fóru þær liratt yfir. Hinsvegar
hermdu fregnir í gækveldi, að
nýjum árásum Þjóðverja við
Kvam í Guðbrandsdal, þar sem
Bandamenn höfðu áður stöðvað
Þjóðverja, hefði verið hrundið.
Og enn sem komið er liafa ekki
horist fregnir um, að Þjóðverj-
um liafi orðið frékara ágengt. í
Dombaas og Stören, einkanlega
i Dombaas, liafa Bandamenn
mikið lið og þeir fá nú aðstöðu
til, vegna hins aukna liðs, sem
þeir hafa fengið, til þess að búa
enn betur um sig þar og í Stör-
en, og á öðrum mikilvægum
stöðum á þessum slóðum.
Eins og fyrr var að vikið, er
markmið Þjóðverja, að ná sam-
bandi við lið sitt í Niðarósi, en
það væri Þjóðverjum hinn
mesti liuekkir að missa borgina.
Misliepnist Þjóðverjum sóknin
til Niðaróss frá Osló, batna lík-
urnar stórlega fyrir því að Nið-
arós falli áður langt líður í
hendur Bandamanna.
Á öðrum vígstöðvum hefir
verið tiltölulega kyrt yfir helg-
ina. — Þjóðverjar hafa haldið
uppi loftárásum á herflutninga-
skip og hernaðarlegar bæki-
stöðvar Bandamanna, einkan-
lega á Andalsnesi og i Guð-
brandsdal, en þrátt fyrir loftá-
rásir þessar, segir breska her-
málaráðuneytið, að landganga
liðsins hafi gengið að óskum.
Þjóðverjar segja hinsvegar, að
loftárásirnar liafi borið góðan
árangur. : \ i
„Forðum í Flosaporti",
nýja revyan, verður frumsýncl í
kvöld, og er alt löngu uppselt.
Næsta sýning verður annað kvöld.
Aðalæfing fór fram í gær, og var
allmargt áhorfenda. Skemtu þeir
sér ágætlega.
Eiigm á-staFsMot • • •
Þessir frönsku hermenn hafa skýrt fallbyssuna sína — sem er með 155 mm.
hlaupvídd — „Rosalie“, en annars er það nafn frönsku hermannanna á byssu-
stingnum. Þeir ætla að fara að senda Þjóðverjum kúlu, cii það er varla ástarkúla.
Sorglegt slys.
4ra ára
drengur
bíður bana.
Það sorglega slys varð um
tíuleytið í morgun, að fjögra
ára gamall drengur slasaðist
svo á höfði, að hann beið bana
af. —
Slysið varð með }>eim liætti,
að verið var að flytja steypu-
lirærivélnorðurBergstaðastræti.
Stökk drengurinn upp á vélina,
en féll af henni aftur og rakst
um leið með liöfuðið á járn-
skúffu á vélinni og skarst mjög
á höfði. Lést liann á leiðinni til
sjúkrahúss.
Slysið skeði móts við Bergs-
staðastræti 52, en drengurinn
var sonur Nikulásar Steingrims-
sonar, bifreiðaviðgerðarmanns,
sem á lieima á Bergsstaðastræti
53. : *• ;
Ágætur afli
hjá togur-
unum.
Togararnir veiða nú ágætlega
og hafa gert síðan um miðja
síðustu viku. Kom aflahrota
fyrir um hálfum mánuði, en
dró úr henni aftur, þangað til
veiðin jókst aftur í s.l. viku.
Vísir átti tal við mag. Árna
Friðriksson, fiskifræðing, i
morgun og spurði hann um
horfurnar á miðunum. Kvað
Árni þær miklu betri nú, yngri
fiskur kominn á miðin, en Iiefði
verið þar að undanförnu.
’Hefir hann fengið allmikið af
prufum, en ekki gefist tími til
þess ennþá að vinna úr þeim að
öllu leyti. Að því leyti, sem
hann hefir kynt sér þær, telur
liann liorfur vænlegar um á-
framhaldandi góðan afla. Er
þessi ungi fiskstofn um allan
sjó fyrir vestan og suðvestan
land.
Dagsbrún tekor ekki
hátíðahöldtmum
1. maf.
Á fundi 1. maínefndar Verkamannafélagsins Dagsbrún 27. þ.
m. var samhljóða tillaga samþykt, sem álit meirihluta nefndar-
innar:
Full vissa er nú fyrir því, að eining um sameiginleg hátíðar-
höld verkalýðsfélaganna 1. maí getur ekki orðið á grundvelli
þeim er fullkomið samkomulag náðist um í 1. maí nefnd Dags-
brúnar, af eftirtöldum ástæðum:
1. Nokkur félög sem eru meðlimir Alþýðusambands íslands,
hafa þegar neitað þátttöku,
2. Stjórn fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, sem eru í Alþýðu-
sambandinu neitar méð öllu þátttöku í sameiginlegum há-
tíðarhöldum 1. maí, nema undir rauðum fána með þrem
örvum, sem er fáni Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins.
3. Stjóm fulltrúaráðsins neitar með öllu að gera samkomulag
við 1. maí nefnd Dagsbrúnar, þó fallist væri á fyrra skilyrðið
um örvafánann.
4. Þar sem fjórir nefndarmenn, sem tilheyra Áíþýðuflokknum
og Sjálfstæðisflokknum í 1. maí nefnd Dagsbrúnar telja nú
útilokað að fullkomin eining geti orðið um hátíðarhöldin 1.
maí óháð öllum pólitískum flokkum, eins og þeir ætluðust
til á fyrsta fundi nefndarinnar, vilja þeir nú afturkalla sam-
þykki sitt fyrir sameiginlegri samþykt þessa fundar.
Af framangreindum ástæðum telur 1. maínefnd Dagsbrúnar
að hún geti ekki að þessu sinni sameinað alla meðlimi félagsins
og aðra launþega í bænum um sameiginleg hátiðahöld 1. maí
og afturkallar því ákvörðun sína um hópgöngu og útifund þann
dag, og lýsir hún yfir að verkamannafélagið Dagsbrún muni ekki
taka þátt í neinum hátiðahöldum 1. maí næstkomandi.
Undir tillögu þessa skrifuðu eftirtaldir nefndarmenn:
Guðmundur ó. Guðmundsson. Þorlákur Ottesen.
Sigurður Halldórsson. Sveinn Sveinsson.
Einar Björnsson.
Tveir nefndarmenn voru fjarverandi:
Sigurður Guðnason og Marteinn Gíslason.
Með skírskotun til framangreindrar samþyktar meiri hluta
1. maí nefndar verkamannafélagsins Dagsbrún, er það sýnt að
úr sameiginlegri hópgöngu og útifundi 1. maí n. k., með þátt-
töku allra verkalýðsfélaga í bænum getur ekki orðið, þar sem
meðal annars flest verkalýðs- og iðnfélög innan Alþýðusam-
bands Islands og auk þess félög innan Landssambands íslenskra
stéttarfélaga hafa neitað þátttöku, telur Dagsbrún öll hátíðar-
höld 1. maí næstkomandi sér algerlega óviðkomandi.
Stjóm verkamannafélagsins Dagsbrún.