Vísir - 30.04.1940, Side 1

Vísir - 30.04.1940, Side 1
Riísfcjóri: Kristján OuðSaugsson Skri/stofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 30. apríl 1940. Ritstjóri ] Biaðamenn Sími: Augiýsinciaf , 1660 Gjaidkeri 5 íínur Atgreiösla j 99. tbl. Hætta Italir sér út í styrjöld meö Þjóöverjum? Dagskrá Hættuleg aðstaða ítala ef þeir fara í styrjöld með Þjóðverjum. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Það var tilkynt í London í gær, að þeir Halifax lá- varður, utanríkismálaráðheira Bretlands, og Bastianini, sendiherra Ítalíu í London, hefði byrjað umræður um helgina, varðandi viðskiftamál. Það, sem um er að ræða, að sinni, er fyrst og fremst að komast að raun um, hvort það mundi bera árangur, að hefja á ný viðræður um verslun og viðskifti, og önnur skyld mál, og taka þar við, sem-frá var horfið eigi alls fyrir löngu. Hef jist viðræðurnar á ný, er svo ráð fyrir gert, að Bretar sendi viðskiftanefnd til Rómaborgar. Fregnir um þetta vekja allmikla athygli, ekki síst vegna þess, að ítalir virðast nú, að margra áliti, vera í þann veginn að taka ákvörðun um að fara í styrjöldina, og þá með Þjóðverjum, og Ummæli þýskra og sumra ítalskra leiðtoga hafa óneitanlega hnigið í þá átt. Af öðrum er þó á það bent, að afstaða ítalíu sé enn óviss, og að ítölum sé mestur hagur að því, að forðast þátt- töku í styrjöldinni. Þeir, sem þessum skoðunum fylgja, segja, að þrátt fyrir það, að ítalir hafi öflugan loftflota og herskipaflota, verði að ganga út frá því, að Bretar, Frakkar og Tyrkir, hafi svo sterka aðstöðu sameiginlega á Míðjarðarhafi, að þeir geti króað Itali þar inni. ítalir hafi ekki bolmagn til þess að taka Suezskurðinn, en ólíklegt, að þeir hætti sér út í styrjöld gegn bandamönnum, nema þeir teldi sig færa um það, en geti þeir það ekki myndi her Bandamanna og Egipta fljótlega takast að ná undir sig öllum Afríkunýlendum ítala, sem þeir hafa lagt f jölda mannslífa og mikið fé til þess að eignast. Að trú ítala á sigur Þjóðverja sé svo sterk, að þeir telji sig geta unnið það upp í Evrópu, sem þeir misti í Afríku, er álitið vafamál. Loks er því haldið fram, að ítalska þjóðin sé síður en svo fús til þess að fara í styrjöld við Bandamenn. Hinsvegar er augljóst, að Þjóðverjar vilja fá ítali algerlega á sveif með sér hið fyrsta, og Bandamenn vilja að sjálfsögðu stuðla að því sem þeir geta, að ítalir verði hlutlausir. Leggja þeir kapp á, að sannfæra ítali um það, að þeir eigi að fylgja lýðræðis- þjóðunum að málum, en vinna gegn þeim, sem kúga smáþjóð- irnar og óvirða alþjóðalög og reglur. Síðustu tilraunir Bandamanna í þessa átt eru þær, sem að framan getur, að Bretar bjóða nú ítölum raunverulega að hefja samkomulagsumleitanir um viðskifti, og ítalir geta nú vafalaust komist að góðum kjörum — og —, að byrjað er að, útvarpa á ít- ölsku frá Ástralíu, og hóf Mr. Menzies, forsætisráðherra, útvarp- ið í gærkveldi, og hvatti ítali eindregið til samstarfs við lýðræðis- þjóðirnar. Þá er þess skamt að minnast, að Paul Reynaud, franski for- sætisráðherrann, lýsti yfir því fyrir skömmu, að Frakkar hefði áhuga fyrir að ná samkomulagi við ítali um Miðjarðarhafsmálin. Það má því segja, að Bandamenn, Bretar og Frakkar rétti ít- ölum hendina, en — það er enn vafamál, hvort þeir taka í hana, eða snúast gegn þeim og fara í stríð með Þjóðverjum. Að svo stöddu verður ekki sagt um, hvað ofan á verður hjá ítölum um það er lýkur. fyrir hátíðahöld stjálfstæðisfé- laganna í Reykjavík 1. maí 1940 1. Útifundur hjá Varðarhús- inu, liefst kl. 1,15 með því að Lúðrasveitin Svanur leikur. — Ræður flytja af svölum Varðar- hússins: Kristinn Árnason, bif- reiðastjóri, varaformaður Óð- ins, setur fundinn, Ólafur Thors atvinnumálaráðherra, Jakoh Möller fjármálaráðherra, Sig- urður Halldórsson verkamaður, varaform. Dagsbrúnar, Guðrún Guðlaugsódttir frú, Bjarni Benediktsson háskólakennari, Jóhann Ilafstein lögfræðingur, Gunnar Thoroddsen bæjarfull- trúi. 2. Skemtun í Gamla bíó kl. 3. — Skemtiskrá: 1. Lúðrasveitin Svanur leikur. 2. Ræða: Sveinn Sveinsson iðnaðarmaður. 3. Tví- söngur: Ágúst Bjarnason og Ja- koh Iiagstein. 4. Ræða: Magnús Jónsson alþm. 5. Úpplestur: Frú Marta Indriðadóttir. 6. Ræða: Frú Soffía Ólafsdóttir. 7. Alfred Andrésson leikari syngur gam- anvísur. — Aðgöngumiðar á 1 kr. seldir í Gamla Bíó kl. 11—12 fyrir hádegi og við innganginn. 3. Barnaskemtun í Nýja Bíó kl. 3. — Skemtiskrá: 1. Barna- kórinn Sólskinsdeildin, undir stjórn Guðjóns Bjarnasonar lcennara. 2. Barnasögur: Séra Friðrik Ilallgrímsson. 3. Syst- urnar Mjöll og Drífa skemta. 4. Barnasögur: Ungfrú María Maack. 5. Barnakvikmynd. — Aðgöngumiðar á 50 aura seldir kl. 11—12 fyrir hádegi og við innganginn. 4. Kvöldskemtun að Hótel Borg. Hefst kl. 9 síðdegis. — Skemtislcrá: Nokkrar ræður. 2. Lúðrasveitin Svanur leikur. 3. Ágúst Bjarnason og Jakob Haf- stein syngja. 4. Blástakkatríóið. 5. Brynjólfur Jóhannesson og Lárus Ingólfsson skemta. 6. Dans. — Aðgöngumiðar á kr. 2.50 seldir í Varðarhúsinu frá kl. 10 f. h. Merki Málfundafélagsins Óð- ins værða seld á götunum og kosta 50 aura. Barnamerki 25 aura. — Tímaritið Þjóðin, helg- að 1. maí, kemur út og kostar í lausasölu 75 aura. Bandamenn setja lið á land á tveim nýjum stöðum. Einkaskeyti til Vísis. London í morgun. Þjóðverjar gerðu fjórar loft- árásir á Namsos í N.-Þrænda- lögum í gær og beindu sprengj- unum aðallega á höfnina, þar sem verið er í sífellu að skipa á land hergögnum og liði Bandamanna. Manntjón varð lítið, ellefu franskir hermenn biðu bana en 27 særðust. Loftvarnir bæjarins eflast óð- um og voru flugvélarnar neydd- ! ar til þess að fljúga í mikill hæð lil þess að forðast skotliríðina. Frá Steinkjer-vígstöðvunum herast þær fréttir, að flugvélar Þjóðverja liafi síg þar mjög í frammi. Fljúga þær lágt yfir þorpin þar í kring og varpa nið- ur sprengikúlum og skjóta úr vélhyssum. Herstjórn Bandamanna gaf út tilkynningu í morgun svo- ldjóðandi: Slegið hefir í har- daga milli hersveita vorra og Þjóðverja. — Fjandmennirnir voru hraktir á flótta og féllu margir af þeim, en nokkrir voru teknir til fanga. í Stokkhólmi er opinberlega tilkynt, að Bandamenn hafi sett lið á land á tveim stöðum enn í Mið-Noregi. Er það við Norður- fjörð, nyrst í Sygnafylki, 100 km. í suðvestur af Andalsnesi og við Sundalsf jörð á Mæri, 50 km. í norðaustur af Andalsnesi. Norðurfjörður er skamt fyrir sunnan Stadlandet, þar sem Bandamenn lögðu tundurdufl- unum forðum. Liðinu, sém sett var á land á Sundalseyri við Sundalsfjörð á að fara til liðs Slys á Gufunesi. Kl. laust fyrir 12 var hringt frá Gufunesi og beðið um að- stoð, vegna þess að maður liefði dottið i sjóinn. — Sendi lög- reglan menn inn eftir og hafði hún meðferðis útbúnað til þess að slæða. — Einhverjar tilraun- ir munu hafa verið gerðar inn- fx-á til þess að bjai-ga mannin- um, en þær báru elcki árangur. við sveitir Bandamanna í Hjer- kinn og Ullsberg, sem eru á jámbraUtax'línunni frá Dombás norður til Þrándheims, en til þeirra staða eru Þjóðvei-jar nú komnir eftir bílvegum úr Aust- urdal. Flugmálaráðuneytið í London gaf í morgun út tilkynningu um að breskar flugvélar hefði i nótt gert ánás á Torne-bu-flugvöll- inn við Oslo. Eyðilögðu Bretar flugvélar fyrir Þjóðverjum. Starfsfólk Féiagsprentsmiðjunnar h.f. $ .4 Sigurður Halldórsson, formaður Óðins: í efstu röð frá vinstri: Sigurður Þ. Guðmundsson, Árni Guðlaugsson, Arngrímur Ólafsson, Sig. Guðmunds- son, Valur Jóhannsson, Ivarl Jónasson, Jón Thorlacius, Sig. Sigurðsson, Vilhjálmur Sigurjónsson, Gunnar Gissurarson, Ólafur Sveinsson. — í annari röð: Jóhanncs Jóhannesson, Vilhelm Stefánsson, Garðar Sig- urðsson, Magnús Ó. Magnússon, Sigurður S. Ólafsson, Hrólfur Benediktsson, Þorvaldur Þorkelsson, Guðm. K. Eiríksson, Guðjón Gíslason, Gestur Pálsson, Þorvaldur Kolbeins. — í þriðju röð: Guðbjörg Guðmunds- dóttir, Guðrún Karlsdóttir, Gyða Kjartansdóttir, Sigurbergur Árnason, Hafliði Helgason, Sigríður Péturs- dóttir, Agnes Steinadóttir, Sigriður Þorgeirsdóttir, Gunnhildur Árnadóttir. — í fjórðu röð: Þorvaldur Guð- mundsson, Ingólfur Steinsson, Sigurður Gunnarsson og Ólafur Hallbjörnsson. — Á myndina vanla: Axel Ström og Súsönnu Ásgeirsdóttur. (Sjá bls. 4—5). Takmarkið er: Ópólitísk hagsmunasam- tök íslenskrar alþýðu og eining verkalýðsins. Baráttan fyrir einingu verkalýðsins hefir þessa síðustu daga beðið alvarlegt skipbrot. Margra ára vonir íslenskrar alþýðu unx ópólitísk hátíðahöld 1. maí, hafa enn einu sinni orðið að þoka fyrir flokkspólitískum einstrengingshætti hinna hálaunuðu eig- inhagsnxunamanna innan verkalýðssamtakanna. Mistökin á að skapa full- konrna einingu á þessum al- menna liátíðisdegi alþýðunnar, hafa ox-sakað sár vonbrigði lijá öllum þeirn verkamönnum, sem setja hagsmuni stéttarinnar ofar flokkspólitískum áróðri og sér- réttindum. En þeir verkamenn, sem þannig liugsa, rnunu ekki leggja árar í bát, þó að á móli kunni að blása í bili. Þeir munu þvert á móti stælast við hvei-ja mótbáruna sem ris, uns þeir að lokum liafa náð liinu setta marki, en það er ópólitísk hags- munasamtök íslenskrar alþýðu. Einingin 1. mai gat táknað grunnmúrinn að þeirri uppbygg- ingu verkalýðssamtakanna. Verkamenn verða þvi að gera sér það vel ljóst lxverjar voi'U lielstu liindi'anir þess, að eining gæti náðst að jxessn sinni rneðal allra vei'ltalýðs- og iðnfélaga bæjarins, um liin sameiginlegu liagsmunamál allrar alþýðu. En til þess að blekkja hvorki sjálfan sig né aðra, er rétt að slá því hér föstu, að möguleikarnir á slíkri einingu liafa fram að síðustu tímum verið mjög litlir eða tak- markaðir. Það er staðreynd, sem ekki þarf langrar skýringar við. Það eru til tveir stjórnmála- flokkar hér á landi, sem tárum saman hafa barist um yfirráðin í verklýðssamtökimum, á kostn- að einingar verkamanna í hags- munamálunum. F orvígismenn þeirra flokka liafa sett sinn valdagíruga smásálarskap öllu öðru ofar. Þeir liafa margtvístr- að samtökum íslenskrar alþýðu í pólitísku liefndarskyni hvorir við aðra, og ldofið annaðlivert verkalýðsfélag i landinu, eftir þvi livort þeir hafa verið þar í meirihluta eða ekki. Þessir tveir flokkar, Alþýðuflokkurinn og kommúnistar, bera þvi einir alla ábyrgð á þeirri sUndrung og eyðileggingu, sem enn í dag hamlar íslenskum verkamönn- um að standa hlið við hlið í liagsmunabaráttunni. En þegar þessa er gætt, er það ekki nema eðlilegt, þó að erfið- lega gangi með að endurskapa þá einingu, sem átti sér stað inn- an verkalýðssamtakanna, áður en þessir pólitísku æfintýra- menn tóku að gera þar usla. Og þó verður það ef til vill enn slcilj- anlegra, þegar það er tekið með í reikninginn, að þessir fornu samherjar liafa á undanförnum árum reynt að læðast livor aftan að hinum með alskonar svikum og prettum. Það þarf sterlc átök I og mikla þrautseigju til þess, að sá fræi einingar i slikan jarðveg, svo að gagni megi koma. Þetta em i raun og sannleika höfuðorsakirnar fyrir því, að ■ V SIGURÐUR HALLDÓRSSON, ekki tókst að sameina alía verka- menn hér í Reykjavik, i eina ó- pólitíska fylkingu 1. maí. Alt annað er því aðeins aukaatriði, en sem vert er þó að athuga og draga ályktanir af. Sá grundvöllur sem lagður var af l.-maí-nefnd Dagsbrúnar fyrir hinum sameiginlegu há- tiðaliöldum, var mjög traustur og eftirbreytnisverður, ef sams- konar skilyrði hefðu verið fyrir hendi hjá öðrum verlialýðs- og iðju-félögum bæjarins. Það gat orðið þjóðleg eining, senx aldrei hæfir átt sinn líka hér á landi áður. En liugnxyndin var jafn- vel of vegleg til að geta étt sam- leið með veruleikanum. Og eg skal ekki neita þvi að okkur sjálfstæðismönnunum, sem átt- um sæti í nefndinni, þótti and- stæðingar okkar frá upphafi ískyggilega eftirlátir á kröfur Frh. á 5. síðu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.