Vísir - 10.05.1940, Page 1

Vísir - 10.05.1940, Page 1
Ritsfcjóri: Kristján Gudiaugsson SStriístoíur: rálsgsprentsrriiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, föstudaginn 10. maí 1940. Ritstjóri Bíaðamenn Sími: Áiiglýsingar 1660 Gjaídkeri S íínur Afgreiðsía j 106. tbl. Hollendingar og Belgíumenn verjast innrásarhernum vel Hitler kominn til Vesturvígstöðvanna. Allihei'jarlimæðing: í Svisslandi Þjóðverjar réðust inn í Holland, Belgíu og Luxem- bourg samtímis og tók flugherinn þátt í innrásinni með landhernum. Gerði flugherinn árásir á flugstöðvar og borgir og einnig gerði hann tilraunir til þess að setja hermenn á land á ýmsum stöðum. Svifu þeir til jarðar í fallhlífum og hefir þegar komið í ljós, að margir þeirra eru í hollenskum einkennisbúningum. Innrásinni var þegar veitt mótspyrna bæði í Hollandi og Belgíu. Jafn- framt því, sem loftárásir voru gerðar á borgir og bæi í Hollandi, flugu þýskar flugvélar inn yfir Frakkland og gerðu tilraunir til loftárása á ýmsa staði, m. a. París og Dunquerque. Yfir París sáust nokkrar flugvélar, en þær voru hraktar á brott. Mikil skothríð úr loftvarna- byssum heyrðist um tíma. Þýskar flugvélar voru og yfir Thems-árósum og víðar í Suður-Englandi og voru þær hraktar á flótta. Sendiherrar Hollands og Belgíu fóru í morgun snemma á fund Halifax lávarðs í utanríkismálaráðu- neytinu og gerðu honum aðvart um innrásina. Fóru þeir fram á, að Bandamenn veitti Hollandi og Belgíu að- stoð, og lýsti Halifax lávarður yfir því þegar í stað, að Bandamenn myndi hjálpa Hollandi og Belgíu með öll- um þeim meðulum, sem þeir hefði yfir að ráða, en Bandamenn hafa verið við því búnir að hjálpa þessum löndum, ef Þjóðverjar skerti hlutleysi þeirra með inn- rás. Var þegar í stað gefin út fyrirskipan um að láta koma til framkvæmda fyrirframgerða áætlun um skjóta og mikla aðstoð fyrrnefndum löndum til handa, og hjáipin er þegar farin að berast þangað. Það er kunnugt orðið, að Hol- lendingar hafa þegar veitt vatni yfir land sitt, samkvæmt fyrir- fram gerðri áætlun og gekk það vel og skjótlega. Þjóðverjar réð- ust inn í landíð á nokkuram stöðum og munu hafa komist lengst um 10 mílur enskar. Landher og flugher Hollands verjast innrásarhemum vask- lega. Franski herinn er hvar- vetna reiðubúinn. í Frakklandi hafa menn trú á því, að Banda- mönnum muni auðnast að verj- ast innrásarhemum. Hitler hefir ávarpað her- inn og sagt, að örlög Þýska- lands og framtíð um næstu 1000 ár séu undir því komin, að bardagamir sem byrjuðu i morgun, verði upphafið að fullnaðarsigri Þjóðverja. Það er engum vafa bundið, að Þjóðverjar eru hér að gera til- Þýsku fangarnir á hafnarbakk- anum. raun til úrslitasóknar, þar sem eini möguleiki þeirra til að sigra sé í leiftursókn. — Hitler er sagður kominn til vesturvígstöðvanna. Um loftárásimar á Frakkland segir, að árásir hafi verið gerð- ar á marga bœi, en margar ó- vinaflugvélar hafi verið skotnar niður. Á vesturvígstöðvunum í Frakklandi hefir enn ekkert gerst. Þjóðverjar réðust inn í Belgíu að minsta kosti á 4 stöðum. Briissel hefir verið lýst óvíggirt borg og verði enginn her hafður þar. Er því óheimilt að alþjóða- lögum, að gera árás á borgina. í loftárásinni í morgun varð mik- ið tjón í miðhluta borgarinnar, en eldur kom upp á nokkurum stöðum í úthverfunum. 1 Hol- landi hafa brýr yfir stærstu Við bústað þýska ræðismanns- ins. fijótin verið sprengdar í loft UPP- Það er talið mjög mikilvægt, að japanska stjórnin hefir lýst yfir, að hún ielji ástandið ó- breytt í Hollensku Austur-Indíu, og er það skilið svo, að Japanir muni ekki gera neina tilraun til þess að taka nýlendur Hollend- inga austur þar. Er og vitað, að Bandaríkjamenn láta framtíð og öryggi nýlendnanna sig miklu skifta og hafa herskipaflota við Hawai, til þess að sýna að þeim er alvara. HOLLAND í STYRJÖLD VIÐ ÞÝSKALAND. Því hefir verið opinberlega lýst yfir í Haag, að Holland sé í styrjöld við Þjóðverja. Wil- iielmína drotning liefir í ávarpi til þjóðarinnar fordæmt innrás- ina, og hvatt þjóðina til eining- ar og samheldni í hinum ör- lagaþrungnu tímum, sem nú eru í Hollandi. Hollendingar eru staðráðnir i að berjast til liinsta blóðdropa. BELGÍUMENN ÁKVEÐNIR. Belgíumenn telja innrásina í Belgíu enn glæpsamlegri en inn- rásina 1914. Innrásin nú hafi verið gerð fyrirvaralaust og eft- ir að margendurtekin liafi verið loforð um, að virða hlutleysi landsins. I Belgíu er hernaðai’- ástand ríkjandi um alt land og hervæðingin fer fram i fullum krafti. Belgíska þjóðþingið kem- ur sanxan á fund í dag. — I loft- lárásunum á flugstöðina við Ant- werpen og fleiri stöðvar og bæi hafa tekið þátt 30—40 þýskar flugvélar í hverri árás. loftárásirnar Á BRETLAND. Breska flugmálaráðuneytið tilkynnir, að þýskar flugvélar, sem gerðu tilraunir til loftárása á bæi í Suður-Englandi, liafi ver- ið hraktar á brott. Fimm þýskar flugvélar voi’U skotnar niður. Þýskar flugvélar höfðu sig og mikið í frammi yfir Ermar- sundi, að því er virðist til þess Frh. á 3. síðu. Á verði við olíustöð B. P. á KIöpp. Varðmenn í anddyri Lands- Beitiskipið „Berwick“ á ytri h,öfninni, símastöðvarinnar. Aðalbækistödvar Bpeta i nágrenni Reykj avikur ? Ýmsar ráðstafanir, sem gerðar baia verið eftir landgönguna. Enska herliðið hefir unnið að því í dag að koma sér fyrir í bænum og í nágrenni hans. Aðal bækistöð hefir það haft í Hafnarhúsinu (ekki Mjólkurfélagshúsinu eins og , sagt var í aukaútgáfu blaðsins í morgun), og húsnæði hefir verið tekið á leigu hjá Eim- | skipafélagi íslands, og er þar geymdur farangur herliðsins, sem er æði mikill og marg- | víslegur. i | Bifreiðar hafa stöðugt verið á ferð um bæinn og út úr bænum með farangur. Helstu hús, sem hér hafa verið tekin til af nota, önnur en þau, sem talin voru í morgun, eru þau, er hér greinir: Franski spítalinn, Iðnskólahúsið, Austurbæjarskólinn, K.R.-húsið, Í.R.- húsið, en foringjar hafa aðsetur að Hótel Borg. Mikill liðsflutningur hefir farið fram út úr bænum, og er auðsætt að herliðið mun hafa aðalstöðvar utan bæjarins, og er getið til að það muni hafa aðsetur í nánd við ; Sandskeið og í Hvalfirði, en það skal sérstaklega tekið fram að slíkt eru getgátur einar, en engin vissa. . 30—40 menn hafa verið sendir með Laxfossi til Akra- ness, og mun það lið hafa aðsetur þar. Þá hefir heyrst, að herlið hafi verið sett á land á Akur- eyri, og ef til vill víðar, en þar sem ekkert símasamband er við Norðurland, verður ekkert um það sagt með vissu. Ef sú verður raunin á að hið breska herlið hafi aðal- stöðvar sínar utan bæ jar, má tel ja líklegt að ástand það, sem nú er rík jandi í bænum standi ekki nema nokkura daga. Vísir hefir fengið nánari frásögn af handtöku Þjóð- verja þeirra, sem hér hafa dvalið í bænum að undan- förnu, til viðbótar því, sem frá var sagt í morgun. Að Hótel Skjaldbreið bjuggu yfirmenn strandmanna þeirra,, sem bjargað var af Bahia Blanca, og voru þeir teknir til fanga og fluttir á brautu. Ymsir Þjóðverjar, sem hér hafa dvalið undanfarin ár hafa verið teknir til fanga og fluttir um borð í hin bresku skip. Eru þar á meðal ýmsir kaupsýslumenn, sem vel eru kunnir hér, og sumir kvongaðir íslenskum konum. Mr. Howard Smith, hinn nýkomni sendiherra Breta gekk á fund rikis- stjórnarinnar kl. 11 árdegis í morgun, ásamt ræðismanni Breta hér í hæ, Mr. Shephard og formanni breska hluta íslensk bresku viðskiftanefndarinnar, Mr. Harris og tilkynti liann íslensku ríkisstjóminni komu sína, og gerði grein fyrir aðförum Breta á svipaðan hátt og gert var í tilkynningu þeirri er herstjórnin gaf út í nótt. Atti hann hálfrar stundar viðræður við ríkisstjómina, en gekk því næst á brautu. Ríkisstjómin sat á fundi til kl. 1 e. h. og ræddi málið. Mun svar hennar ekki væntan- legt fyr en á morgun. Létt hríðskotabyssa rétt hjá Landssímastöðinni. irmu'-f ri _imJ~ i Skipað upp úr b.v. Sindra. Lýst af sjónarvotti, Gunnari Sigurðssyni (frá Selalæk) Eg var óvenju snemma á fót- um, um fimmleytið í morgun, og gekk niður á skrifstofu, sem eg er að flytja í við Hafnar- stræti 4. Gluggarnir blasa við höfninni. Eg sá að fáir her- menn, 1—3, stóðu við þau götu- horn, er eg sá yfir. Þa8 skifti nu engum togum, að herskip rendi að liafnargarðinum og þekti eg þá brátt gunnfánann breska. Þegar skipið var lagst að, gengu allmargar smáherfylk- ingar skipulega á land. Ein tók sér stöðu við pósthúsið, önnur við símastöðina, þriðja við lög- reglustöðina, fjórða við Her- Frli. á 2. siðu. Fatapokar bornir upp í Hafn- arhús.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.