Vísir - 16.05.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 16.05.1940, Blaðsíða 1
Ritst jóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, fimtudaginn 16. maí 1940. Ritstjóri Btaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 fínur Áfgreiðsla 110. tbl. EIN MIUON MANNA BERST VIÐ SEDAN Skotdrunurnar frá Belgíu heyrast alla leið til Englands Bandamenn hafa hrakið Þjóð- verja ÍO km. aftnr hjá Neda.ii. Ægrilesrt mamifall á káða bóg’a. Allii* Baiiditi'íkjjaln^iiar liverfa á Xirott lir Evropn. Italir fara þá og þegar í stríðið. §egir Tinies. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Seinustu fregnir frá París herma, að yfir miljón hermanna taki þátt í orustunni mildu við Sedan. Er orustan hin ógurlegasta og tefla báðir styrjaldaraðilar fram miklum fjölda skriðdreka, en flugvélar í hundraðatali taka þátt í árás- unum. Þ jóðver jum hafði tekist (sbr. annað skeyti), að reka fleyg inn i víggirðingar Frakka við Sedan, en Frökkum hefir nú tekistaðhrekjaÞjóðverjaúrnokkuriimvirkj- anna, sem þeir voru búnir að ná fótfestu í. 1 hinum öflugu gagnárásum hafa Frakkar þegar náð miklum árangri. Hafa þeir hrakið Þjóðverja til baka tæpa 10 kílómetra. Frá aðalbækistöð breska hersins hefir borist tilkynning um að eftir harðar orustur i gær hafi framsókn Þ jóðverja verið stöðvuð. - Skothriðin á þessum hluta vígstöðvanna var svo mikil, að alt lék á reiðiskjálfi í borg- um og bæjum í suðurhluta Belgíu. Gluggarúður brotnuðu í fjölda mörgum húsum. Skothríðin heyrðist alt til Suður-Englands eins og í mestu orustum heimsstyrjaldar- innar. Bardagarnir um Sedan, sem er fyrir framan Maginotlínuna, ’hafa verið mjög harðir. Á vígstöðvunum milli Liége í Belgíu og Sedan hefir einnig mikið verið barist. Þjóðverjar segjast hafa tekið Dinant og Givet, sem eru við Meuse-fljót, en ekki er það viðurkent í hernaðartilkynningu Belgíumanna. Svæði það, sem Þjóðverjar gera tilraunir til þess að sækja fram á, er tæplega 500 kílómetrar, en á þessu svæði liafa bardagarnir verið einna harðastir við Sedan. Einnig þar fyrir norðan, þar sem Þjóðverj- um lókst að komast yfir fljótið, en voru hraktir til baka yfir það. í breskum og frönskum tilkynningum er talað um þessa sókn Þjóðverja, sem upphaf mestu orustunnar, sem liáð hefir verið, og takist Bretum og Frökkum að hefta framsókn Þjóð- verja nú, getur það haft liin mikilvægustu áhrif á allan gang styrjaldarinnar eftir þetta. Breskar hersveitir eru nú komnar í viglinuna i Belgíu. Hafa þær gert gagnárásir á Þjóðverja við Louvain í Belgíu og stöðvað framsókn þeirra þar. í lilkynningum Frakka er lögð áhersla á það i dag, að har- dagarnir standi yfir á opnu svæði,« þar sem auðvelt sé að koma við vélaliersveitum — bardagarnir standi ekki um Maginotvirkin heldur fyrir austan þau. Maginotvirkin eru hvarvetna órofin, segir í hinni frönsku tilkynningu. Nánarí upplýsingar eru ekki gefnar um hernaðaraðgerðirnar, en sam- kvæmt fregnum frá fréttarit- nrum, harðnar viðureignin stöðugt, báðir aðiljar tefla fram æ meira liði og framsókn Þjóðverja hefir veríð stöðvuð, að minsta kosti í bili, á sumum mikilvægustu stöðvum víg- stöðvanna. Það er ekki aðeins við Sedan, sem Þjóðverjar hafa orðið að hörfa undan, lieldur hefir framsókn þeirra til Briiss- el einnig stöðvast í bili. Flugherinn breski hefir veitt Frökkum 'og Belgiumönnum hinn mesta stuðning. Sumar flugvélasveitirnar liafa flogið mjög lágt og varpað sprengi- kúlum yfir herflutningalestir Þjóðverja, og flugmennirnir hafa skotið af flugvélum á her- menn Þjóðverja. Þjóðverjar Iiafa reynt að gera loftárásir á flugstöðvar Breta, en þær hafa ekki borið árangur. í morgun voru tvær Heinkel-sprengju- flugvélar skotnar niður og ein bresk hrapaði til jarðar i ljós- um loga, en flugmenniniir björguðust á land í fallhlífum. 1 loftárásum Breta undangengin 2 dægur hafa þeir mist tæplega 40 flugvélar, en flugvélatjón Þjoðverja er mikið meira. SJÓNARVOTTUR RITAR UM VIÐUREIGNIRNAR. Stríðsfréttaritari ,Daily Mail‘ skrifar blaði sínu á þessa leið: Ilingað til liefir sókn þýska liersins gengið eftir alvikum vel, en sókninni má líkja við það, að spilamaður spili út ásn- um fyrst. Bandamenn virðast halda betur á sínum trompum og gera sér það. ljóst, að það er síðasta orustan, sem úrslit- ur ræður, livernig svo sem liin- ar fyrstu hafa gengið. Það er reynsla fyrir þvi, að vélaárásir, eins og þær, sem Þjóðverjar nota, hljóta að linast af sjálfu sér, livað sem allri mótstöðu líður. Þannig var það í pólska stríðinu, að skriðdrekasveitir urðu oft að halda kyrru fyrir dögum saman, þó að þeim væri engin mótstaða veitt. Þess verð- ur að gæta, að enginn maður endist til að aka skriðdreka nema takmarkaðan tima, auk þess sem gæta verður þess að liafa jafnan á reiðum liöndum Frh. á 2. síðu. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Roosevelt Bandaríkjaforseti hefir gert enn eina tilraun til þess að koma í veg fyrir, að styrjöldin breiðist út. Hefir sendiherm Bandarikjanna i Rómaborg verið falið, að leggja tilmæli Rooscvelts í þessa átt fyrir Mussolini, en Roosevelt fer þess á leit við hann, að hann I>eiti áhrifum sínum í framannefndu augnamiði. Það er ekki luinnugt nánara um þetta, en það vekur sérstaka at- hygli, að Roosevelt skuli snúa sér til Mussolini, þar sem víða kemur fram ótti við, að ítalir leggi út í styrjöldina þá og þeg- ar. Það er þó á það bent af ýms- um, að þessi hætta hafi iðulega verið talin yfirvofandi, og vona margir enn, að ítalir lialdi hlut- leysisstefnu sinni, þrátt fyrir fregnir þær, sem fná Ítalíu liafa horist í seinni tið. Það er talið góðs viti, að it- ölsku yfirvöldin liafa nú tekið sig fram um að koma í veg fyrir, að fólk væri æst upp til andúðar gegn Bandamönnum. Hefir kröfugöngumönnum, sem söfn- uðust saman fyrir utan Fen- eyjahöll verið dreift. Skip þau, sem nú láta úr ít- ölskum höfnum og leggja Ieið sína vestur yfir haf, hafa livert farþegarúm fullskipað, aðallega eru það Bandaríkjamenn, sem dvalist hafa í Ilollandi, Belgíu, LEIFTURSÓKN. — Mynd þessi er að vísu tekin í Póllandi, en hún gæti alveg eins verið tekin í sókn Þjóðverja í Hollandi. Hún sýnir þýska hermenn luaða sér með létta loftvarnabyssu á eftir fót- gönguliðinu, til þess að verja það fyrir flugvélaárásum fjandmannanna. Bandameim hafa hafið öflagar gagn- sókDir til þess að stöðva Þjððverja. Bardagar á 500 km. svæði. Takist að stödva sókn Þjóðverja nú hefir það mikilvæg áhrif á allan gang styrjaldarinna r hér á eftir. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. Frakkar hafa hafið öfluga gagnsókn hjá Sedan og neytt Þjóðverja til þess að hörfa nokkuð undan. Þjóðverjum hafði tekist að komast inn í virki Frakka á þessum slóðunt, en það er tekið fram í París, að þessi virki séu ekki hluti Maginotlínunnar, og hafi Þjóðverjum hvergi tekist að komast inn í hana. Þjóðverjar hafa þegar verið hraktir úr nokkurunt hluta virkja þeirra, sem þeir tóku. Báðir aðilar tefla nú fram ntiklu liði og orustunum er haldjð áfram í fullum krafti. Alla síðastliðna nótt héldu breskar og franskar sprengjuflugvélar uppi grimmilegum árásum á hersveitir Þjóðverja og birgða- stöðvar þeirra. Var mörgum hersveitum tvístrað, skotfærabirgðir sprengdar í loft upp, brýr eyði- lagðar, þar sem' Þjóðverjar voru að gera tilraunir til þess að komast yfir Meuse o. s. frv, „Times“ hirtir í morgun grein um orustuna við Meuse og kemst að eftirfarandi niður- stöðu: A'ð öllu samanlögðu er það augljóst, að herstjórn vor er nú í töluverðum vanda stödd. Ó- vinirnir hafa gert mjög hörku- lega árás og virðast álcveðnir í að fylgja henni eftir með öll- um ráðum, sem þeir hafa og berjast til úrslita. Ilerstjórn vor verður að ákveða, livort hún á að bíða með að gera gagnárás, þar til mesti hitinn er liorfinn úr sókn óvinanna, eða gera snögga gagnárás þeg- ar í stað. í fyrra tilfellinu liafa óvinirnir hafl tíma til að húa um sig bak við herlínur sínar, en í seinna tilfellinu verður að berjast við óþreyltar hersveit- ir, sem eru í hálfgerðri vímu Italíu og fleiri löndum, sem vestur fara. Bandaríkjamönnlim á Italíu, en þeir eru um 20.000 talsins, hefir verið ráðlagt að halda heimleiðis, undir eins og þ#ir fá tækifæri til þess. út af þeim sigrum, sem Þjóð- verjar geta þegar hrósað sér af. Það hefir mikil áhrif á þá ákvörðun, sem tekin verður, livernig á slendur með loft- liernað. Nú er það vitað, að enn sem komið er, standa óvinir vorir mun hetur að vigi í þessu efni. Það væri rangt, að gera sér ekki fulla grein fyrir því, en það er hinsvegar engin á- stæða til að örvænta um horf- urnar. I annari grein segir blaðið svo frá um þátttöku samveldis- landanna í styrjöldinni: Þátttaka samveldislandanna er þegar orðin svo mikil, að handamönnum er orðinn veru- legur styrkur að henni. Er hún áreiðanlega orðin miklu meiri en Hitler liefir nokkurn tíma gert sér í hugarlund. Þetta hefir hann gert sér ljóst, og það er ein af ástæðunum til þess, að liann hefir nú fyrir- skipað svo liroðalega sólcn. Ætlun hans er án efa að þvinga fram úrslit, áður en hið mikla varalið bandamanna frá samveldislöndunum kemur á vettvang. En þetta lið er m. a. hið íullkomna fluglið, sem ver- ið er að æfa í Kanada, Ástralíu og víðar, en það tekur m. a. við þeim flugvélum, sem pant- aðar hafa verið í Bandaríkjun- um. Þessi tilraun lilýtur að mis- takast, því að mótstaða handa- manna í Belgíu er miklu öfl- ugri en hann liefir nokkru sinni reiknað með og það mun áreið- anlega takast að hindra fram- sókn þýzka hersins, þangað til nægilegur mannafli liefir verið fluttur á vettvang til þess að vinna á Þjóðverjum. HOLLENDINGAR YERJAST ENN. Hollendingar í Zeeland-fylki verjast enn. Wilhelmina drotn- ing liefir skipað nýjan lierfor- ingja til þess að sfjórna vörn- inni þar. I London er leidd athygli að því, að nú liafi Bandamönnum bæst allur hinn mikli kaupskipa- floti Hollendinga, en það meira en vegur upp á móti því tapi, sem Bretar liafa orðið fyrir i : styrjöldinni af völdum kafbáta- ; hernaðarins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.