Vísir - 22.05.1940, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
115. tbl.
BRESKI HERINN I FRAKKLANDI,
ÓTVÍSTRAÐUR OG ÓSIGRAÐUR - - -
bíður fp*ir§ki|ranar nm að liefjn ga^n§ðkn, en slíkri fpir*
skipnn er búist við á hverjn au^nabiiki, til þe§§ að koma í
veg fpir að ÞJoðverjar taki Ermarsnndsborgirnar.
Bandamenn hafa náð Arras aftur.
♦ EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Breski Frakklandsherinn hefir beðið reiðubúinn til sóknar dögum saman. Hann
er ótvístraður og ósigraður og hefir haldið öllum þeim vígstöðvum í Frakk-
landi, sem honum var falið að verja. Á hverju augnabliki er búist við, að hann
fái fyrirskipun um að hef ja gagnsókn, til þess að verja hafnarborgirnar við Ermar-
sund, og berjast til seinasta manns, heldur en láta Þjóðverja hertaka þessar borgir.
Bretar eru undir það búnir að tefla fram öllum vélahersveitum sínum í Norður-
Frakklandi, skriðdrekum, brynvörðum bifreiðum, með öllum þeim stuðningi sem flug-
her þeirra getur í té látið. Jafnframt munu Frakkar hef ja gagnsókn á Þjóðverja að
sunnanverðu frá.
Ef Þjóðverjum tekst að ná Ermarsunds-hafnarborg-
unum, vofir hin mesta hætta yfir breska hernum í Norð-
ur-Frakklandi. Hermálasérfræðingar Breta og Frakka
viðurkenna, að horfurnar séu alvarlegar, en eru enn
all-bjartsýnir, og byggja bjartsýni sína á því, að herir
Breta og Frakka eru ósigraðir, og þeir geta teflt fram
ógrynni liðs, vel útbúnu, til þess að hef ja hina stórkost-
legustu gagnsókn.
Bretar og Frakkar hafa og allmikinn her í Belgíu. Þar sem
Þjóðverjum hefir nú orðið svo mikið ágengt í sókn sinni, að
þeir hafa komist til Ermarsunds, verður lið þetta sennilega ann-
aðhvort flutt burtu, en það er fyrirfram vitað, að Þjóðverjar
munu gera alt, sem þeir geta, til þess að hindra slíka herflutn-
inga, með ógurlegum loftárásum, — eða Bandamenn tefla þessu
liði einnig fram til árása á hægri arm Þjóðverja.
Alt, sem Bandamenn gera nú, miðast við þáð, að stemma stigu
við framsókn Þjóðverja til hafnarborganna, þótt þeir jafnframt
geri alt sem auðið verður, París til vamar, því að það er einnig
hætt við því, að Þjóðverjar haldi áfram sókn sinni þangað. Einn-
ig getur verið, áð Bandamenn neyðist til þess að halda þessu liði
í Belgíu, til vamar gegn Þjóðverjum þar meðan auðið er.
YON REICHENAU HERFORINGI SJÖTTA ÞÝSKA HERSINS
UM HORFURNAR.
Von Reichenau, herforingi 6. þýska hersins, sem hefir aðal-
bækistöð fyrir utan Briissel, hefir sagt í viðtali við erlenda blaða-
menn, að enn sem komið er hafi að eins verið um „forleik“ að
ræða að hinum ógurlegustu átökum. Vér höfum unnið fyrstu
leikina í þessu tafli, en meginorustan hefir enn ekki verið háð.
Von Reichenau sagði, að Bretar og Belgíumenn hefði tvö her-
fylki „andspænis 6. hernum“.
Um manntjón Þjóðverja sagði hann, að það væri ekki 1/10 af
tölu þeirra fanga, sem þeir hefði tekið, eða um 11.000, og hafa
því Þjóðverjar tekið til fanga yfir 100.000 menn.
Weygand má búast við hörðum bardögum næstu daga og
hann mun vafalaust skipa hverjum hermanni sínum, að hopa
hvergi — sigra eða falla. Vér horfum með trausti til framtíðar-
innar, sagði von Reichenau.
Viðtal við Mr. Howard
Smith, sendiherra Breta.
Ekki má gleyma því fyrir öðrum atburðum, hver viðurkenn-
ing felst í því um réttarstöðu lands vors, að Bretar hafa sent
hingað sendiherra. Við höfum enga ástæðu til að ætla, að sendi-
herra hefði ekki komið hingað frá Bretum, þótt ekki hefði verið
um hernám að ræða. Bandaríkin hafa viðurkent réttarstöðu
vora á sama hátt og Bretar og mun von á fulltrúa þaðan einhvern
næstu daga. Um hernám af þeirra hálfu er auðvitað ekki að
ræða. Þess vegna megum við ekki blanda þessu tvennu saman,
hernáminu og réttarviðurkenningunni. Hemáminu verður af-
létt að ófriðnum loknum. En réttarviðurkenningin verður við
lýði, svo lengi sem réttarstaða okkar breytist ekki. För breska
sendiherrans til Islands var ákveðin áður en ráðið var að senda
hingað herlið.
Bandamenn tilkynna, að þeir
hafi náð aftur borginni Arras úr
höndum Þjóðverja. Styður þessi
fregn það, sem bandamenn hafa
haldið fram, að það séu að eins
vélahersveitir Þjóðverja, sem
komist hafi til Amiens og Arras,
Ef Þjóðverjar hefði haft mikið
lið í Arras, er álitið ólíklegt, að
Bandamenn hefði náð borginni
aftur jafnfljótt og reynd ber
vitni. Með töku borgarinnar
eykst hættan fyrir Þjóðverja, að
það lið, sem lengra er komið,
missi sambandið algerlega við
liðið, sem á eftir fer. Virðist það
aðallega hafa vakað fyrir Þjóð-
verjum, að æða fram til strand-
ar, en þangað eru þeir ókomn-
ir enn — að því er Bandamenn
segja — og valda eins miklum
truflunum og auðið er hvar sem
þeir fara, til þess að veikja vörn-
ina, er til úrslitabardaga kemur.
Bardagamir um Arras virðast
hafa verið allsnarpir. Breskir
fréttaritarar segja, að barist
hafi verið á götunum í návígi.
Eldur kom upp í jámbrautar-
stöðvunum í Amiens og Arras í
gær og er talið, að þýskir fall-
hlífarhermenn hafi kveikt í
þeim.
Undanfarna daga hefir verið
heiðríkt veður og góð flugskil-
yrði, en nú hefir brugðið til úr-
komu, og versnar því sóknar-
skilyrði Þjóðverja.
Breskir flugmenn hafa haldið
uppi ákafri skothríð á stöðvar
Þjóðverja meðfram landamær-
um Belgíu og Frakklands og
hefir hver skotfærabirgðastöðin
á fætur annari verið sprengd í
loft upp. í einni fregn er talað
um, að á landamærunum standi
alt í ljósum loga eftir árásirnar,
sem stóðu yfir án þess nokkurt
lát yrði á í fullar f jórar klukku-
stundir.
Þýskar flugvélar hafa gert til-
raunir til árása á skip við strend-
ur Suður- og Austur-Englands
og einnig hafa nokkurar flug-
vélar flogið inn yfir England, en
allar þessar flugvélar voru
hraktar á flótta. í einu þorpi
varð þó nokkurt tjón — í
hænsnagarði.
breskra
Maða.
Lonuon, miðvikudagsmorgun.
Blöðin í London líta mjög al-
varlegum augum á ástand það,
sem skapast hefir á vesturvíg-
stöðvunum, en þó eru flest
þeirra mjög vongóð um úrslit-
in. „Daily Telegraph“ segir m. a.
í ritstjórnargrein:
„Vér skulum aldrei gefast
upp. Hvað sem á dynur skal
andstæðingunum sýnt, að vér
erum þjóð, sem alt af vinnur
síðustu viðureign, hversu erfitt
sem það kann að vera, að halda
velli. Hin karlmannlega ræða M.
Reynaud’s i gær er oss ekki síð-
ur hvatning heldur en Frökk-
um. Aldrei hafa þessar tvær
vinaþjóðir staðið fastar saman
en nú á stund hættunnar. Þess-
ar tvær miklu bandaþjóðir og
heimsveldi þau, sem að þeim
standa, verða ekki sigraðar með
einni leifturárás, hversu hörð
og liversu skelfileg sem hún
kann að verða. Það er ástæða til
að minnast þess, sem Foch sagði
1918, þegar hann tók við yfir-
herstjórninni: „Þér fáið mér i
hendur vonlausa orustu og seg-
ið mér að vinna hana“. Það var
ekki síður Weygand hershöfð-
ingja að þakka, að glæsilegur
sigur vannst 1918. Hann stjórn-
ar nú her bandamanna, og hann
hefir áður horfst í augu v ið
„tapaða orustu“ og unnið
liana.“
„Times“ segir m. a.:
„Vér skulum gera oss hið al-
vai'lega ástand fyllilega ljóst,
en það er engin ástæða til að
gefa upp vonina. Vonina þarf
Enginn efi er á því, að breska
Sendiherranum, Mr. Howard
Smith, liefði verið kærara, að
koma liingað án þess að lier-
menn hefðu tekið hér land
samtímis. Enda liefir hann lát-
ið það i ljósi.
Tíðindamaður Vísis fór ný-
lega á fund Mr. HoWard Smiths.
Það þurfti engar seremoníur
eða umstang til að ná tali af
sendiherranum. Hann býr á
Hótel Borg. Þegar barið er að
dyrum kemur þar enginn gull-
gallóneraður herbergisþjónn
með silfurbakka til þess að
taka á móti nafnspjaldinu. —
Sendiherrann kemur sjálfur til
aldrei að gefa upp i striði, með-
an nokkur hermaður lifir. Það
var þessi þrjóskulega hugsun
Foch’s, sem bjargaði sigri
bandamanna 1918,
M. Reynaud hefir nú skýrt
hreinskilnislega og af fullri ein-
lægni frá mistökum þeim, sem
urðu við Meuse-fljót, þegar
Þjóðverjar komust yfir það. —
Hin ögrandi hreinskilni hins
franska forsætisráðherra sýnir
oss betur en alt annað, hve fjar-
stætt það er, að bandamenn geti
beðið ósigur að lokum. Hvenær
mundi Hitler þora að segja þjóð
sinni jafn afdráttarlausan sann-
leika?“
„News Chronicle":
„Á slíkum tímum er ekki til
nema ein dygð: Hugrekki, og
ekki nema ein ódygð: kjark-
leysi. Frakkland er ekki sigr-
að. Níunda herfylkið hefir gold-
ið nokkuð afhroð, en megin-
hluti þess er eftir og á eftir að
berjast við óvinina. Óvinirnir
liafa ekki á valdi sínu nema
tæpan 30. hluta alls Frakk-
lands.“
„Daily Herald":
„Ef einhverjum hefir dottið
það í hug, að vér gætum sigrast
á nasismanum án þess að beita
öllum kröftum og öllum ráðum,
þá veit hann það nú, að það er
ekki hægt.“
dyranna og heilsar alúðlega.
Mr. Howard Smith er 47 ára
að aldri. Hann er hár maður
vexti, grannvaxinn, ofurlítið
liæruskotinn. Um þjóðernið er
ekki að villast, þótt ekki hefði
verið vitað fyrir. Sendilierrann
er framúrskarandi blátt áfram
og yfirlætislaus.
Viljið þér ekki segja okkur
eitthvað um yður sjálfan, spyi-
tiðindamaður.
Ja, hvað er um mig að segja.
Eg hefi starfað 27 ár í breska
utanríkisráðuneytinu. Síðast-
liðið liaust var ég skipaður
sendiherra í Kaupmannahöfn.
Eg kom þangað 8. október.
Dvöl mín þar var nákvæmlega
1 misseri. Hinn 9. apríl komu
Þjóðverjar. Eg hafði lilakkað
til að fá að skoða liið fagra og
frjósama land með vorinu. En
þetta fórst fyrir. Veturinn var
kaldur, snjóar og ísalög. Mér
blöskraði hvað kolareikningur-
inn í sendiherrabústaðnum var
hár. Eg fór hryggur i huga frá
Danmörku. Alt, sem eg kyntist
þar, bar vott um háa menningu
friðsamrar og atorkusamrar
þjóðar. Mér fanst mikið til um
hinar fögru byggingar borgar-
innar og ekki síður hitt, hversu
Kaupmannahöfn kemst hjá
ýmsum lakari einkennum hafn
arborganna, þótt skipin liggi
ekki steinsnar frá sumum
merkustu stöðum borgarinnar.
Búist þér við að fjölskylda
yðar komi hingað?
Nei, líklega ekki, fyrst um
sinn að minsta kosti. Dóttir
mín hefir sennilega nú fengið
atvinnu í London. Önnur dótt-
ir mín er i skóla. Svo konan á
tæplega heiman gengt.
Viljið þér segja okkur nokk-
uð frá viðskiftasamningum
þeim, sem nú standa yfir.“
Því miður get eg ekkert sagt
um það, fram yfir það, sem
áður er kunnugt. Mér er það
fyllilega ljóst, að þið hafið orð-
ið fyrir geysilegum viðskifta-
Iinekki af völdum styrjaldar-
innar. Við munum reyna að
bæta ykkur upji markaðsskell-
ina, svo sem við verður komið.
Er það rétt, að hér verði í
suraar reist hús yfir breska
lierliðið ?
Já, hjá því verður ekki kom-
ist. Við verðum að reisa her-
mannaskála handa liðinu.
Er ekki hugsanlegt, að ein-
hverjir Islendingar geti fengið
vinnu við það?
Jú, það þykir mér sénnilegt.
Eg hefi heyrt mn atvinnuvand-
ræði ykkar. Og eftir reynsluna
sem eg fékk af vetrarkuldun-
um í Danmörku, skil eg vel
hvílíkt áhyggjuefni ykkur hlýt-
ur að vera ef hitaveitan þyrfti
að stöðvast. Mér væri ljúft að
geta stuðlað að því að nauðsyn-
legt efni til hitaveitunnar gæti
komist hingað, ef þess væri
nokkur kostur.
Hvernig líst yður á landið?
Eg get eiginlega ekki sagt
mikið um það. Eg hefi til þessa
ekki séð annað en liöfuðborg-
ina, aðeins skroppið til Hafn-
arfjarðar sem snöggvast. Ef
tími vinst til, vona eg að geta
ferðast eitthvað um landið í
sumar.
Að endingu segir Mr. Ho-
ward Smith: Eg skil fyllilega
hvílíkum vonbrigðum það lief-
ir valdið ykkur, að geta ekki
verið alveg lausir við alla í-
hlutun hernaðaraðilja. En mér
skilst, að almenningur hafi átt-
að sig á því, að það sem hér
hefir gerst, er ekki annað en
það, sem nauðsynin hefir kraf-
ist. Eg hef gert rikisstjórn yð-
ar grein fyrir því, hvað það
var, sem leiddi til þeirra at-
burða, sem hér gerðust 10. mai.
Mér finst framkoma fólks bera
það með sér,.að það skilji af-
stöðu okkar. Við höfum enga
ástæðu til að kvarta yfir fram-
komu ykkar. Og það er min
heitasta ósk, að landar mínir
komi þannig fram í stóru og
smáu, að þeir atburðir, sem rás
viðburðanna hefir knúið fram,
þurfi ekki að varpa neinum
skugga á vináttu þeirrar þjóð-
ar, sem hefir sent mig og hinn-
ar, sem hefir tekið á móti mér.
íslandsgliman verður
háð 10. júní.
Islandsglíman verður háð hér
í Reykjavik 10. júni n. k. Þátt-
taka í glímunni nú mun verða
meiri en um mörg undanfarin
ár. -— Meðal annara keppenda
koma tveir Þingeyingar, þeir
Sverrir Sigurðsson frá Arnar-
vatni í Mývatnssveit og Geir-
finnur Þorláksson frá Skútu-
stöðurn í sömu sveit. Þátttak-
endur eiga að gefa sig fram við
formann Glímufélagsins Ár-
mann, Jens Guðbjörnsson, fyr-
ir 3. júní.