Vísir - 25.05.1940, Síða 1

Vísir - 25.05.1940, Síða 1
Ritstjóri: Kristján Guðiaugsson Skrifstofur: Féíagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, laugardaginn 25. maí 1940. Ritstjóri , Blaðamenn Sími: Auglýsingar I 660 Gjaldkeri S línur Afgreiðsla 118. tbl. I KÖIM UMBFERÐ Víðtækar ráðstafanir í ULSTER og EIRE (írska fríríkinu) til þess að kæfa byltingartilraun írskra ... V. -. *. 'j.. wi.w’wr4 * lýðveldissinna. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. Frá Belfast í Irlandi er símað, að miklar æsingar og kviði sé ríkjandi um gervalt Irland, bæði í Ulster og Eire, og margskonar orðrómur á kreiki, um byltingar- tilraun Irska lýðveldishersins (írskra lýðveldissinna — I. R. A.). Stjómin í Ulster og friríkisstjómin hafa gripið til skjótra og víðtækra ráðstafana til þess að koma í veg fyrir, að byltingartilraunin hepnist. Það er talið, að fríríkisstjórnin hafi fyrst fengið veð- ur af hvað til stóð, er leyniskjöl fundust í Dublin. Var einn af foringjum lýðveldissinnanna liandtekinn og hafði hann í fórum sínum grunsamleg skjöl, m. a. áskoranir til lýðveldissinna um að mæta á fundum og gegna „trúar-skyldum sínum“ 8. maí til 24. maí, svo og að hafa alt tilbúið í leyni-vopnabúrum flokksins. Talið er, að þennan thna hafi átt að vinna að undir- búningi tilraunar til þess að steypa stjómum Ulster og Eire, en aðal-slagurinn átti að standa skömmu eftir 24. maí. Lögreglan um gervalt Irland hefir haft miklu að sinna í alla nótt og hefir liún gert húsrannsóknir á fjölda mörgum stöðum og handtekið f jölda manna. írski lýðveldisherinn er, eins og kunnugt er, félagsskapur rót- tækra íra, sem vilja knýja fram kröfurnar um sameinað írskt lýðveldi með vopnavaldi, undir eins og færi gefst. Það er þessi flokkur eða menn úr honum (Irish Republican Army — I. R. A. mennimir), sem valdir hafa verið að fjölda hermdarverka i Bretlandi. Þeir hafa þó Iítil spjöll unnið þar í seinni tíð, enda f jölda margir þeirra verið gerðir landrækir og aðrir undir stöð- ugu eftirliti. Jafnframt hafa þeir í seinni tíð fært sig upp á skaft- ið heima fyrir í írlandi. Þjóðverjar senda áfram herlið til Boulogne. Adstada Bandamanna vird— ist ekki Itafa batnad. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Bandamenn viðurkenna í tilkynningum sínum, að Þjóðverjar hafi getað kpmið meira liði um skarðið í áttina til Boulogne — og ennfremur er viðurkent að Þjóðverjum hafi tekist að koma meira liði til strandar en Bandamenn ætluðu í fyrstu. f tilkynningum í gærkveldi var getið um mikla bardaga við Cambrai, Valenciennes og víðar, en eftir tilkynningum í dag að dæma, hefir dregið úr bardög- unum aftur. Frakkar segjast hafa gert gagnáhlaup með góð- um árangri á Sedan-vígstöðvun- um. Miklir loftbardagar hafa verið háðir og virðast flugflot- ar Breta og Frakka halda uppi stöðugum árásum á herflutn- ingalestir Þjóðverja og birgða- stöðvar. Bretar segjast hafa skotið nið- ur 80 þýskar flugvélar frá því síðastliðinn fimtudagsmorgun. Á Sommevígstöðvunum segj- ast Bandamenn hafa búist bet- ur um, en á Scheldevígstöðvun- um, þar sem Þjóðverjar eru í sókn, hafa Bandamenn hörfað undan til nýrra stöðva. pjíSnrjar oera lolt- áráslr á Yorkshire oo Eist Hnlia. Einkaslceyti frá United Press. London í morgun. Átta menn særðust, þar af þrír svo, að þeir voru fluttir í sjúkrahús, er þýskar flugvélar gerðu loftárás á North-Riding í Yorkshire. Nokkurt eignatjón varð. Sprengikúlum var einnig varpað niður í sveitahéruð í East Anglia og skemdust tvö hús lítils háttar. Skolið var á flugvélarnar af loftvarnabyss- um, og er breskar árásarflug- vélar komu á vettvang, lögðu þýsku flugvélarnar á flótta. — Bandaríkjamenn senda hafskip fil írlands eftir Bandaríkja- þegnum. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Frá New York er símað, að hafskipið President Roosevelt sé Iagt af stað til Galway í ír- landi, og er væntanlegt þangað þ. 1. júní. Skipið flytur Banda- ríkjaþegna frá ýmsum Evrópu- löndum. Tilkynning var birt um þetta fyrir skömmu og var tekið fram, að þess væri vænst, að skipið fengi að fara óáreitt ferða sinna af styrjaldaraðilum. Tekið var fram, að vestur yfir haf flytti skipið aðeins Banda- ríkjaþegna. 500.000 Þjððverjar hafa fallið, segja Frakkar. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. pranska útvarpið birti í fyrra- dag áætlun um manntjón Þjóðverja í innrásunum í Hol- land, Belgíu og Frakkland, og var það áætlað lágt reiknað 500 þúsund manns. í tilefni af þessu birti þýska útvarpið og þýsk hlöð þær fullyrðingar, að eng- inn fótur væri fyrir þessu og að þessi fregn væri „ekkert ann- að en áróður“. Franska útvarp- ið heldur samt fast við þessa fullyrðingu og hæðist að því, hve nasistar séu farnir að óttast það mjög, að Þjóðverjar hlusli á hinar þýsku tilkynningar franska útvarpið að þetta sé tal- andi dæmi þess, að nasista- stjórnin treysti nú ekki lengur á bann það, sem lagt hefir verið á það, að hlusta á útlendar sendi- stöðvar. Ennfremur sýni Iiin skjótu tilþrif þýska útvarpsins, Þessi mynd var tekin einn af seinustu frostdögunum á Vesturvígstöðvunum í vor. Hún sýnir þýska liermenn ganga framhjá virki i Siegfried-línunni. Þeir eru á leið fram í fremstu víglínu og eiga að fara í rannsóknarferð út I „Aleyðn“, þegar dimma tekur. Umhverfis virkið — til hægri — eru háir staflar af gaddavír. Ræða Georgs VI. Bretakonungs: Vér snðuœ okkur til guðs EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Samveldisdagurinn var hátíðlegur haldinn um gervalt Breta- veldi í gær. Kl. 8 í gærkveldi flutti Georg VI. Bretakonungur ávarp sitt til þegna sinna hvarvetna. Gerði hann aðallega styrj- öldina að umtalsefni, hvatti þjóðina til samheldni og fórnfýsi, og lýsti þeirri trú sinni, að Bandamenn myndi sigra með hjálp guðs. Ivonungur mintist þess i upp- liafi. máls sins, að á seinasta samveldisdegi hefði Iiann verið í Kanada og ávarpað þegna sína jiaðan. llefði hann þá talað um þær friðar-, frelsis- og réttlætis- hugsjónir, sem breska rikja- samhandið hvíldi á. Þá hefði breskar þjóðir epn notið friðar, en síðar liefði dregiö hliku á loft. Vonirnar um framhald á friði og þróun á öllum sviðum hefði ekki ræsl, en „vér höfum góða samvisku“, sagði konung- ur, „þvi að vér liöfum gert alt, sem í voru valdi stóð, til þess að afstýra styrjöld, en nú væri liún háð í allri sinni grimd gegn óskum vorum. Á þessuni reynslustundum munuð þér ekki vilja annað en, að eg mæli af hreinskijni, og það mun eg gera.“ Enginn ]>arf að fara í graf- götur um það, sagði konungur, að það scm fyrir óvininum vak- ir. er að kollvarpa breska lieimsveldinu, og öllu sem það táknar og hreskum þjóðum er heilagt, til þess svo að hrjóta undír sig allan heiminn. Hafin væri barátta um líf og dauða fyrir oss alla, og þetta væri breskum þjóðum og þeim þjóð um, sem þeim væri velviljaðar, fylíilega ljóst. Stefna vor hefir ávalt verið friður. Vér komum heiðarlega fram, en mættum ódrenglyndi, sýndum trygð og mættum svik- semi, réttlæti og urðum fyrir ofbeldi. Konnngur lýsti trú sinni á sigrinum, en að treysta á sigur- inn væri ekki nóg. Þjóðir Breta- veldis yrði að herða sig í har- áttunni, sýna hugrekki, festu og að nasistar óttist nú ekkert meir | en það, að þýska þjóðin komist j að sannleikanum um það, hve miklum mannafla hcl'ir verið fórnað í hinni gegndarlausu framsókn þýska hersins. fórnfýsi, og frá heimalandinu og öllum löndum Bretaveldis myndi koma straumur manna, lil þess að taka þátt í liinni miklu baráttu. Á hinni örlaga- ríkustu stundu snúum vér oss, eins og forfeður vorir, til guðs. Lýsti konungur yfir þvi, að næstkomandi sunnudag yrði al- menriur hænadagur Iialdinn, og hvatti menn til þess að taka þátt í bænagerð og fela málstað Bandamanna guði. í ræðulok hvatti konungur alla þegna sína til ]iess að vinna samhuga að settu marki, með brosi á vör og „berum liöfuðið hátt og ineð guðs hjálp inun svo fara, að vér liöfum ekki til einskis I)arist.“ Fall Boulogne um- ræðuefni breskra blaða. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Aðalumræðuefni bresku blað- anna í morgun er fall Boulogne- borgar og' ræða konungs í gær- kveldi. „Times“ bendir á það, hve mikil liætta stafi af framsókn þýska hersins til Ermarsunds, m. a. það, að Þjóðverjum, muni e.t.v. takast að liindra aðflutn- inga til Bandamannahersins í Norður-Frakklandi og Belgíu. Aftur á móti telur blaðið, að Bandamenn hafi bætt stöðu sína að mörgu leyti og sé nú þýska innrásarhernum síst minni liætta ú því, að Bandamönnum takist að rjúfa samband fram- varðanna við meginherinn, enda virðist sókn Bandamanna bein- ast í þessa átt. Blaðið bendir á, að Hitler hafi á hálfum mánuði tekist að ná þeirri stöðu, sem Á hverju vori kemur þessi dagur og guðar á glugga ykkar, góðu Reykvíkingar. Hann býð- ur ykluir lítið blóm, Mæðra- hlómið, sem hann biður ykkur að kaupa og hera þenna dag. Og hver er sá, sem vill ekki verða við þessari litlu bón. Alt það, sem blómasalan gefur af sér, fer til þess að búa þreyttum niæðrum og börnum þeirra dvöl uppi í sveit. Þessi starfsemi hefir nú verið rekin í nokkur ár og hafa altaf verið fleiri um- sóknir um sumardvöl, en liægt hefir verið að sinna. Og þá lief- ir undanfarin sumur ekki neitt óvænt horið hér að höndum. Nú er öðru máli að gegna; við vit- .um öll og finnum, að friðsæld lands okkar getur orðið rofin. Og fari svo, þá verður það Reykjavík, sem fyrir þvi verð- ur. — Þess vegna er nú meiri þörf en riokkru sinni fyr að hörnin geti komist hurt úr hænum. Að ]>essu vinna nú margir aðiljar, einn þeirra er Mæðrastyrks- nefndin, sem liefir hug á að geta aukið starf sitt í sumar frá því sem áður var. Hversu þetta megi takast byggir hún að miklu levti á árangri þessa dags. Vonar nefndin, að allir bæjar- húar sjái nauðsyn þess máls, er liún vinnur að, og styrki hana til að framkvæma það. Kaupið Mæðrahlómið! þýsku horforingjunum 1914 sást yfir að ná. Aftur á mótí hafi honum ekki tekist að rýra sjálfstraust Bandamanna né samheldni þeirra, eins og ætlan hans liafi verið. „Ef nokkur ör- vænting hefir gripið fólk hérna megin Ermarsunds, þá er liún sprottin af því, að það liarmar það, að geta ekki verið nær aðal- vigstöðvunum og lagt sinn skerf til bardaganna“, segir blaðið að lokum. „Daily Telegrapli“ ræðir um ávarp Bretakonungs. „Enginn þekkir betur en konungur vor, I hvers þjóðin er megnug í sjálfs- fórn og baróttuhug. Sá þegn- skaparvottur, sem konungi barst í gær, sýnir betur en nokk- úð annað, liver samheldni nú ríkir í ölluin, löndum hans.“ i

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.