Vísir - 27.05.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 27.05.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Blaðamenn Sími: Augl/singar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 30. ár. Reykjavík, mánudaginn 27. maí 1940. 119. tbl. Calais í höndum ÞjúOverja, að því er þeir sjálfir tilkynna. Bandamenn segjast þjarma æ meira að Þjóðverjum EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. Það er nú kunnugí, að Frakkar hafa hert allmjög sóknina gegn Þjóðverjum í Norður-Frakklandi, og verður hún vafalaust hert enn meira, þegar búið er að „hreinsa til“ í hernum. Það var tilkynt í París á laugardagskvöld, að 15 herforingjar í franska hernum hefði verið leystir frá störfum, og voru sumir þeina yfirmenn heilla herja (army commanders), en aðrir yfirmenn herfylkja (divisional commanders). Yngri menn, herdeilda foringjar, hafa verið skipaðir í þeirra stað. Þá hafa nokkurir héraðslögreglustjórar í Norður-Frakklandi verið leystir frá störfum. Eins og menn muna vék Reynaud forsætisráðherra að því í ræðu sinni um fyrri helgi, að „ótrúleg mistök“ hefði átt sér stað, og það er þeirra vegna, að mennirnir, sem ábyrgðina bera, verða að fara, en Weygand fær nú þá menn í þeirra stað, sem hann getur treyst. BARDAGAR VIÐ BOLOGNE OG CALAIS. Yfir helgina hefir verið barist mikið á vígstöðvunum í Norður- Frakklandi, en fregnum Banda- manna og Þjóðverja ber ekki saman. Þjóðverjar tilkynna framhald á sókn sinni og segjast liafa tekið Calais, en Banda- menn liafa aðra sögu að segja. Þeir láta að vísu lillar upplýs- ingar í té í opinberum tilkynn- ingum, en samkvæmt öðrum heimildum var Calais í höndum Bandamanna í gær og Boulogne að öllu eða miklu leyti. Miklir hardagar liafa átt sér stað í Boulogne og í nánd við borgina. Bresk herskip liafa haldið uppi skotliríð á skriðdrekasveitir Þjóðverja og stöðvar á strönd- Inni, þar sein þeir hafa komið sér fyrir, og það mun að minsta kosti mega telja víst, að höfnin í Boulogne sé á valdi Banda- manna, því að í skjóli flotans hefir tekist að koma flóttafólki úr borginni. Bretar liafa mist einn tundur- spilli við strendur Frakklands. Þá segja frönsk blöð, að her Frakka sæki fram að sunnan- verðu fná, og liafi Frökkum tekist að þrengja skarðið sem Þjóðverjar rufu í varnarlínu Frakka, og liafi aðstaða Frakka batnað svo, að vélahersveitum Þjóðverja, er brotist hafa i gegn, sé nú hvarvetna hætt við árás- um. BELGISKIR RÁÐHERRAR I LONDON. Belgiskir ráðherrar konm til London í fyrradag tit viðræðna við ríkisstjórn Bretlands. Meðal ]>eirra voru Pierlot forsætisráð- herra, Spaalc utanríkismálaráð- lierra o. fl. Þeir hófu viðræður sinar við Halifax lávarð i gær- kveldi. BREYTINGAR Á BRESKU HERSTJÓRNINNI. Sú mikilvæga breyting hefir verið gerð á bresku herstjórn- Inni, að Sir Edmond Ironside herforingi, forseti breska her- foringjaráðsins, hefir verið settur yfir heimaherinn hreska í stað Sir Walter Kirks. Er þessi breyting gerð végna þess liversu mjög hefir aukist hættan við innrás í Englandi og verður það nú hlutverk Sir Edmonds, að stjórna þeim her, sem er til varnar heima fyrir. Við starfi lians í herforingjaráðinu tekur Sir Jolin Dill herforingi. AUKIN LOTÁRÁSAHÆTTA. Þegar alt Holland er nú á valdi Þjóðvei'ja hafa skilyrði þeirra til loftárása á Bretland batnað að miklum mun, þar sem flug- vélar þeirra eiga miklu styttri leið að fara til árása, og óttast Bretar nú, að Þjóðverjar geri tilraunir til þess að flytja lið loftleiðis til Bretlands og hefir þvi verið gripið til víðtækra var- úðarráðstafana. Sérstakar varn- arsveitir gegn fallhlífahermönn- um er verið að stofna um land alt. Brottflutningur barna úr austurhéruðum landsins er liaf- inn til Wales og vesturhérað- anna. í seinustu tilkynningum Breta er því haldið fram, að vörn Bandamanna sé hvarvetna mjög harðnandi, og í fregnum frá Paris segir, að Bandamenn séu stöðugt að leggja meiri kraft i gagnsóknir sínar. Stöðugir bardagar standa yfir i Norður-Frakklandi og heyrast skotdrunurnar livarvetna á suð- urströnd Englands. í opinberum tilkynninguin er enn fylgt vandlega þei’rri reglu, að láta eltki neinar upplýsingar í té, sem óvinunum megi að gagui koma. Landvarnir itanda- ríkjanna öflng:rl en nokknrn siisni á frið- éll‘t IIRIIIIII. Þær verða enn treystar að miklum mun, segir Roosevelt í útvarpsræðu, Einkaskejdi frá United Press. London í morgun. Fregnir frá Washington herma, að Roosevelt Bandaríkjafor- seti hafi í útvarps-kveldrabbi sínu í gærkveldi sagt Bandaríkja- þjóðinni, að hann væri staðráðinn í að vinna stöðugt og rólega að því, að byggja upp landvamir Bandaríkjanna, lýðræðinu til vemdar gegn hverskonar ofbeldi og ágengni. Roosevelt livatti Bandaríkja- þjóðina til þess að vera rólega og taka ekki undir óp þeirra, sem æptu um að voði væri á ferðum, heldur bæri mönnum að taka með festu og öryggi hverju sem að liöndum bæri en vera reiðubúnir, ef liættuna hæri að garði. Bandaríkin hafa ekki, sagði forsetinn, svikið lýðræðishug- sjónirnar, sem stjórnsldpulag vort, menning og velferð hygg- ist á, lieldur höldum vér vörð um þær, og það verður styrkur vor í baróttunni gegn ofbeldinu. Bandaríkjastjórn hefir varið geipilegum fjárhæðum til land- varnanna, sagði hann ennfrem- ur, enda er svo komið að her og flugher Bandaríkjanna hefir aldrei verið eins vel æfður og vel búinn vopnum, á friðartím- um, og sama má segja um flot- ann. Takmark vort er, að friðar- tímastyrkleiki hers og flota verði meiri en dæmi eru til í heiminum. Mannafli sjóliðsins hefir verið aukinn úr 79.00 í 115.000 órin 1933 til 1940. Flotanmn liafa liæst 215 lierskip, að meðtöldum þeim, sem nú eru í smíðum, og flotinn ræður nú yfir samtats 2892 flugvélum. Hefir Banda- ríkjaflotinn aldrei verið öflugri en nú. Taldi forsetinn jafnvel, að flotinn stæði betur að vigi til ánása nú en í heimsstyrjöldinni. Fei* hún í heimsókn? JUNKERS-FLUGVÉL þessi, sem er af stærstu sprengjuflugvélagerð Þjóðverja, er nefnd eftir Hindenburg ganila, sigurvegaranum frá Tannenberg. Flugvélar af }>essari gerð voru notaðar við töku Danmerkur og Noregs. Nú óttasl Bretar mjög heimsókn jiessara flugvéla og að þær „verpi“ sprengjum og liermönnum með alvæpni yfir landsbygðina. Frá hæstarétti ni o 11 fallaægjandi, þ6tt eplendur gjald- eypir sé ekki fyrir liendi. maður Aug. Töpfer vildi ekki á þetta fallast og liöfðaði framan- greint mál til greiðslu uppliæð- arinnar í virkri mynt og máls- I dag var í hæstarétti kveðinn upp dórnur í málinu Kristján Jónsson f. h. Kiddabúðar gegn M. Thorlacius f. h. August Töp- fer & Co. Málavextir eru þeir, að þann 30. september f. á. féll í gjald- daga víxill samþyktur af Krist- jáni Jónssyni f. li. Kiddabúðar, en útgefinn af Aug. Töpfer A Co. Yar uppliæð víxilsins effec- tiv £6—18—9. A gjatddaga bauð samþykkjandi fram greiðslu í íslenskum krónum, svo og við afsagnargerð, er fram fór 3. okt f. á., en þeirri greiðslu var liafnað. Taldi sam- þykkjandi það töglegt greiðslu- tilboð af sinni hálfu, enda hefði hann gert allar löglegar ráðstaf- anir með útvegun gjaldeyris og innflutningsleysfis, sem af hon- um yrði krafist, og beri hann ekkí sök á því, þó bgnkinn liafi ekki getað yfirfært uppliæð vix- ilsins. Taldi hárirr að orðið eff- ecliv á vixlinum gæti ekki hafl þá þýðingu að liann væri skyldur til að greiða uppliæð- ina í erl. gjaldeyri, þar sem bankar hér liefðu að landslög- um einir umráð yfir öllum erl. gjaldeyri. Mótmælti liann sömu- leiðis greiðslu málskostnaðar og afsagnarkostnaðar, með þvi að slíkur köstnaður hefði verið óþarfur í þessu tilfelli. Umboðs- Fjölda handtökur Eíre. l>e Valcra lieldur ræðu. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Frá Dublin er símað, að lögreglan hafi gert húsrannsóknir á mörgum stöðum, og voru fjölda margir menn úr „írska lýð- veldishemum“ handteknir. Handtökumar fara fram með það fyrir augum, að uppræta starfsemi njósnara og annara, sem reka þjóðhættulega starfsemi. De Valera flutti ræðu í Alway í gær og hvatti unga menn til þess að gefa sig fram til þess að vinna sem sjálfboðaliða i þágu stjórnarinnar. Kvað De Valera uauðsynlegt, að stofnaðar væri sveitir ættjarðarvina um land alt, sem ynni gegn njósnurum og ættjarðarsvikurum, og gæfi yf- irvöldunum jafnliarðan upplýs- ingar um njósnir og aðra þjóð- liættulega starfsemi. kostnaðar og afsagnarkostnað- ar. Héraðsdómarinn leit svo á. að Kiddabúð tiefði tiorið að greiða víxilinn með þeirri mynt, er hann hljóðaði á og hefði þvi greiðslutilboð i íslenskum lcrón- j um ekki verið fullnægjandi. i Hæstiréttur tiratt þessari nið- urstöðu og segir svo í forsend- i unt hæstaréttardómsins: „Hér fyrir dómi liefir það komið frani, að hið stefnda I firina tiafði verslunarumboðs- mann hér í Reykjavík, er milli- ! göngu átti um þau skifti máls- aðilja, sem skutd áfrýjanda er af risin. Umboðsmanni þessum lilaut að vera það jafn kunnugt og áfrýjanda sjálfum, að áfrýj- andi hafði ekki á valdi sínu samkvæmt gildandi gjaldeyris- löguni að fullnægja loforði um greiðslu í erlendri mynt eftir efni þess. Kom það og fram á gjalddaga vixilsins, að áfrýj- anda var það ómögulegt. Stefndi átti þvi ekki að liafna tilboði áfrýjanda á gjalddaga um greiðslu i islenskri mynt, sem ómótmælt er, að hann hafi bæði viljað og getað staðið við. Af þessum sökum þykir ekki unt að dæma áfrýjanda til að inna greiðsluna af liendi i virk- um sterlingspundum. Hinsveg- ar þykir mega fallast á vara- kröfu stefnda hér fyrir dómi, sem er í samrænii við kröfu á- frýjanda, um greiðslu víxilfjár- liæðarinnar i islenskri mynt eftir því gengi, sem sterlings- pund hafði hér þann 30. sept- embei- 1939. Þá ber áfrýjanda og að greiða vexti af þeirri fjár- liæð eins og krafist er og %% upphæðarinnar í þóknun, svo og afsagnarkostnaðinn, kr. 9,85 þar eð afsögnin var réttmæt eins og á stóð. Eftir atvikum þykir rétt, að málskostnaður fyrir báðum dómum falli niður.“ Hrm. Ólafur Þorgrímsson flutti málið af hálfu Kiddabúð- ar, en hrm. Einar B. Guð- mundsson af hálfu Aug. Töpfer & Co. Kappreiðarnar. Aðsókn betri en búist var við. VEÐUR var hið óhagstæðasta í gær fyrir kappreiðar. Vegna rigninganna var stökkbrautin þung og sleip, svo að tímar hlaupagarpanna voru með lak- asta móti, en eins og kunnugt er, þarf vissan lágmarkstíma til þess að öðlast rétt til verð- launa. Áhorfendur úrðu fleiri, en húist liafði verið við. Hestavin- ir þessa bæjar láta það auðsjá- anlega ekki aftra sér frá að sjá kappreiðarnar, þótt þeir eigi á liættu að blotna dálítið. Á 250 m. skeiði "varð Faxi hlutskarpástiir, en mestur spenningur var úríi, 350 m. stökkið. Þar voi'U Drotning Þorgeirs í Varmadal og Geysir, happdrættisgæðingur Fáks, skæðastir keppinautar. Drotn- ing á metið á vegalengdinni, en Geysir vann fern fyrstu verð-, laun í fyrra. Leikar fóru svo, að Drotning varð fljótari. Þolhlaupið — 2 km. — fór ekki fram vegna ónógrar þátt- I töku. Til þess að það lilaup fari I fram, verða átta liestar að taka ! þátt í því. Knattspyrnumót Norðurlands K.A.: Þór 4:1. Einkaskeyti til Vísis. Akureyri í morgun. Knattspyrnumót Norðlend- ingafjórðungs fyrir Meistara- flokk liófst hér i gær og keptu Akureyrarféíögin Þór og Knatt- spyrnufélag Akureyrai’. Leikar fóru svo, að K. A. bar sigur úr býtum, setti 4 mörk, en Þór 1. Job. f inn til ReykjaÉur. Um kl. 3 sást hér úr bænum til ferða 10 skipa og voru þetta tveir liópar, 5 skip i lióp, tvö skipin í seinni flotanum voi'U mjög stór og er talið að liér sé um lierflutninga að ræða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.