Vísir - 28.05.1940, Side 1

Vísir - 28.05.1940, Side 1
Ritstjóri: Kristján Guölaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 120. tbl. LE0P0LD BELGIUKONUNGUR HEFIR FYRIRSKIPAÐ HERNUM AÐ GEFAST UPP, en Belg:ín§tjorn ntofnar ii.vjan her. Bresk blöð viðurkenna, að horfurnar séu alvar- legri en nokkuru sinni. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. Iútvarpsræðu, sem Reynaud forsætisráðheiTa Frakklands flutti siðastliðna nótt, og hlustað var á í London, skýrði hann frá því, að Leopold Belgíukonungur hefði fyrirskipað hernum að gefast upp. Fregnin vekur feikna atliygli, þótt menn bíði enn, er þetta er símað, opinben'ar stað- festingar. Það er að vísu viðurkent af öllurn, að aðstaða Bandamanna í Belgíu sé hin erfiðasta, en fregnin hefir komið mönnum mjög á óvart, þar sem belgiska stjórnin kom ?iaman á fund í gærkveldi, og var samþykt, að halda áfram styrjöldinni við Þjóðverja, þar til yfir lyki. I útvarpsræðu, sem Pierlot forsætisráðherra flutti, lofaði liann Leopold .konung mikið fyrir hetjulega forystu hans.. Pierlot og fleiri belgiskir ráðherrar voru :um siðastliðna helgi i London og ræddu við bresku stjómina, og var ákvörðunin, sem tekin var um að halda styrjöldinni áfram, tekin í samráði við ríkisstjómir Bretlands og Frakklands. Bresk blöð viðurkenna í morgun, að horfurnar i Flandern séu hinar alvarlegustu. Ef fréttatilkynningar Þjóðverja eru réttar, segir Daily Herald, horfir sannarlega al- yarlega fyrir Bandamönnum, og enn alvarlegar en mátt hefir ætla af tilkynningum Breta og Frakka. Miðar blaðið þessi ummæli sín við þær fregnir, sem borist hafa fra Flandern í morgun. Daily Mail telur horfurnar einnig mjög alvarlegar. Birtir það ritstjórnargrein, þar sem svo er að orði komist, að aðstaða Bandamanna sé stórhættu- leg. Eftir að ofannefnt skeytijbarst hefir fregnin um uppgjöf belgiska hersins verið stað- fest í frönsku og þýsku útvarpi. 1 fréttum þeim, sem bárust frá Frakklandi í gær, var sagt, aö heiftarlegast væri barist við Tournai og Menin í Belgíu, en Belgíumenn voru til varnar nyrst á vígstöðvunum, og höfðu varist mjög vasklega, að því er hermt var í þessum fregnum. Með uppgjöf belgiska hersins versnar að sjálfsögðu aðstaða Banda- mannahersins, sem til varnar er sunnar, að stórmiklum mun. Af fregnunum í gær mátti sjá, að breski herinn hafði orðið að veita belgisku hersveitunum fyrir norðan sig stuðning, en eftir ofannefndum fregnum að dæma, hefir sá stuðningur ekki kom- ið að því gagni, að Leopold konungi þætti fært að halda áfram vöminni. llvar er bcsl að fiara? Myndin er frá bækistöð sprengjuflugvéla á Bretlandi. Biga flugmennirnir að fara í leiðangur inn yfir vígstöðvar Þjóðverja og athuga áður á kortinu, livar sé best að fara, til þess að lenda síst í kasti við þýska flugmenn. Óttinn við íhlutun ítala í styrjöldina magnast. Viðskiftasamkomulags-umleitanir ítala og Breta. Bretar og ítalir eiga í samningum um aukin viðskifti um þess- ar mundir og er talið, að samkomulagsgrundvöllur sé fenginn. Sir Wilfred Green, formaður sendinefndarinnar bresku í Róma- borg, er nýlega kominn aftur til London, til frekari viðræðna við ríkisstjóraina, en í Rómaborg vinna nú breskir og ítalskir sérfræðingar að því að gera uppkast að samningum, eftir að ít- alska ríkisstjómin hafði Iagt fram tillögur, sem Bretar telja við- unandi samningsgrundvöll. Horfurnar um, að takast muni að gera bresk-ítalskan viðskiftasamning, sem báðar þjóðirnar séu ánægðar með, hafa vakið ánægju í Bretlandi, en jafnframt og blöðin láta í ljósi ánægju yfir þessu, kemur það mjög fram, að menn furða sig á því, að stöðugt er látin í Ijós andúð gegn Banda- mönnum á Ítalíu, og að ítalir halda áfram stríðsundirbúningi, að því er flestum virðist með það fyrir augum, að fara í stríðið með Þjóðverjum. Ákvörðun Belgíukonungs varð fyrst kunn í Bretlandi, eins og vikið er að í skeytinu hér að framan, af útvarpsræðu Reynaud forsætisráðh. Frakka. Höfuðefni ræðu hans var: Að Leopold Belgíukonungur hefði tekið ákvörðun sína gegn óskum ríkisstjórnar sinnar, hers og þjóðar, og án þess að bera hana undir Bandamenn. Slíkt framferði ætti sér ekkert fordæmi í sögunni. Að Bandamenn héldi áfram stríðinu — ekkert gæti breytt þeirri ákvörðun. Að nýr belgiskur her yrði stofnaður í Frakklandi og væri þegar farið að æfa unga Belgíu- menn til herþjónustu. Að belgiska stjórnin hefði ekki breytt afstöðu sinní til Bandamanna og vildi vinna á- fram með henni að fullum sigri. Reynaud sagði, að næstum því upp á mínútu 18 dögum eftir að Þjóðverjar réðust inn í Belgíu, Iiefði Leopold konung- ur fyrirskipað her sínum að gefast upp, sami konungurinn, 'sem í uppliafi innrásarinnar leitaði til Bandamanna og bað þá um aðstoð. Nú væri svo komið, að Frakkar og banda- menn þeirra, Bretar, gæti ekki lengur reitt sig á stuðning belgiska hersins. Bretar og Frakkar berjist einir á víg- stöðvunum á Belgíu. Að svo búnu gerði hann nokkura grein fyrir þvi, hversu viðhorfið liefði breyst eftir að Þjóðverjar rufu víglínu Frakka Bandamannalicrinn i Belgíu hefði þá verið fráskilinn hern- um í Norður-Frakklandi. í Belgíu hefði lier Bandamanna tekið sér stöðu til varnar þann- ig,að Belgiumenn voru nyrst,en sunnan megin við þá Bretar og Frakkar, en Bandamenn sendu mikinn her inn í Belgíu Belgíu- mönnum til hjálpar; væriþarnú milcill hluti meginlandshers Breta og franskt herfylki. — Birgðastöð þess hers var Dun- querqe og með uppgjöf belgiska hersins hefir Þjóðverjum opn- ast leið þangað. Sunnan skarðs- ins, sem Þjóðvcrjar liafa rofið í herlínu Fraklca væri franskur her til varnar og liefði hann bú- ist vel um milli Aisne og Somme. Varnarlínan í Belgíu var seinast milli Norðursjávar til Menin og Caurtrai, og á þess- um slóðum liefir mikið verið barist undanfarna daga, og s.I. sunnudag var belgiski herinn svo aðþrengdur, að breskt fót- göngulið var sent honum til að- stoðar og franskar slcriðdreka- hersveitir. Reynaud lauk miklu lofsorði á lietjulega vörn Belgíumanna. Þeir, eins og Bretar og Frakkar, sem berjast í Belgíu, hefði getið sér liinn mesta orðstír með vörn sinni. Nú liefir belgiski herinn lagt niður vopnin, að fyrirskipun konungs sins, sagði Reynaud, liins sama konungs, sem leitaði til Bandamanna uin lijálp, hins sama konungs, sem í desember síðastliðnum neitaði að fallast á, að herforingjaráð Belgíu og Bandamanna ræddust við, hins sama konungs, sem til þess 10. mai s.I. kvaðst ekki hera meira traust til orðlieldni Banda- manna en Þjóðverja. Ákvörð- un sína tók konungurinn gegn óskum ríldsstjórnar sinnar og hers. Hin belgiska ríkisstjórn hefir ekki breytt afstöðu sinni í garð Bandamanna og vinnur að því, að nýr belgiskur her komist á fót í Frakklandi, til þess að aðstoða Bandamenn í vörninni. Heiður belgisku ríkisstjórnar- innar, hersins og þjóðarinnar er óskertur. Ávörðun konungsins liefir bakað oss nýja erfiðleika og hættur. En Bandamenn halda styrjöldinni áfram — liersveitir Breta og Frakka, munu þrátt fyrir alt, sein á móti blæs lialda láfram lietjulegri vörn sinni, og Frakkar slíðra ekki sverðið fyrr en sigur er unninn. Franska þjóðin hefir aldrei veríð eins samhuga og nú og hún gengur ótrauð út í nýjar orustur, með nýjum vopnum, með tifalt meira þreki og áhuga en áður, og fullu trausti á Weygand og Petain — vér liöfuni þraukað og liöldum áfram að gera það — Frh. á 3. síðu. Meðal þeirra blaða, sem gera þetta að umtalsefni er Times, sem segir að Bretar hafi áður viðurkent hversu mikilvægra hagsmuna, að því er siglingamál og viðskifti snertir, ítalir eigi að gæta í Miðjarðarhafi, og á þessu hafi engin breyting orðið, og sé ítölum það vel kunnugt. Kvartar blaðið og fleiri bresk blöð undan því, að um leið og setið sé með Bretum við samn- ingaborð, sé haldið uppi áróðri gegn Bandamönnum, og spilli það horfunum fyrir fullnaðar- samningum. En það er raunar í garð Þeir óttast njósnara og fallhlífahermenn. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. I Egiptalandi er stöðugt hald- ið áfram að grípa til æ víðtæk- ari varúðarráðstafana. Öll ljós eru nú slökt að næturlagi í öll- um borgum og bæjum landsins og stöðugt er unnið að því að leita uppi njósnara og stuðn- ingsmenn þeirra. Unnið er að stofnun sveita um land alt, til jæss að berjast við fallhlífar- hermenn. Byrjað er að gera húsrann- sóknir á ýmsum stöðum. Fjöru- tíu ungverskar, pólskar, spænskar og rússneskar dans- meyjar liafa verið gerðar land- rækar, segir í fregn fríl Alex- andria. Yfirheyrslur liafa farið fram i skóluni og bækistöðvum fé- laga. Yfirheyrslur nemenda fóru m. a. fram í breskum, ít- ölskum og egipskum skólum, en þær yfirheyrslur báru engan árangur. Foringi setuliðsins í Alexand- ria hefir stungið upp á því við ríkisstjórnina, að stofnaðar verð vopnaðar sveitir sjálfboða- liða til jiess að berjast gegn fallhlífarhermönnum og elta uppi njósnara. Er gert ráð fyr- ir, að í þessum. sveitum verði námsmenn, án tillits til af hvaða jijóð j>eir eru. Frakka, sem mestrar andúðar gætir í Italíu um þessar mundir. Kröfur Itala, sem bornar eru fram af allmiklum hávaða, um Nizza og Korsíku og jafnvel Tunis, eru aftur fram bornar. Eru þessar kröfur nú ræddar í blöðunum daglega. Mesta at- hygli vekur þó, að Farinacci, einn af helstu foringjum fasista, hefir sagt hreinskilnislega í ræðu, sem hann flutti í gær, að ítalir ætli að standa hlið við hlið Þjóðverjum í yfirstandandi styrjöld. Ræðu sína flutti hann í Flórenz. Hinsvegar er einnig bent á það, að það sé ekki ný bóla, að kröfur slíkar sem þessar séu fram bomar, án þess að afleið- ingin hafi orðið, að til stórtíð- inda drægi, og svo kunni enn að fara. Hinu verður ekki leynt, að óttinn við, að ítalir fari í stríðið með Þjóðverjum, hefir enn magnast. Mussolini hefir þó ekki sjálfur komið með neina yfirlýs- ingu, sem bendir til þess, að ít- alir ætli í stríðið, og vafasamt er, að tekist hafi að vekja nokkura styrjaldarhrifni meðal almenn- ings. Bretar og Frakkar fullyrða, að ítalir vilji frið, hvað sem fas- istaforingjamir segja. \

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.