Vísir - 01.06.1940, Síða 1

Vísir - 01.06.1940, Síða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, laugardaginn 1. júní 1940. Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 124. tbl. Um hálfri miljón manna komið undan úr Flandern Gort lávarðor berst met þeim, sem vernda nndanhaldiö. - - Mannfall Þjóðverja 6-7 sinnnm meira en okkar, segja Bretar. €ORT. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. I*að var tilkynt í London í morgun, að að áttatíu af hverjum hundrað hermönnum, sem voru í Flandern hafi nú verið komið undan og fluttir heim til Englands. Er hér um að ræða um hálfa miljón manna, og eru flestir þeirra Englendingar, en auk þess sé þúsundir franskra hermanna og belgiskra, sem neitað hafa að leggja niður vopn, þeirra á meðal. Brottflutningnum er þó ekki að fullu lokið. Fyrir 96 klukkustundum, eða eftir að Belgíukonungur hafði fyrirskipað her sínum, að leggja niður vopn, leit helst út fyrir að Þjóðverjar myndi geta brytjað allan Banda- mannaherinn niður, eða meira en hálfa miljón manna. Uppgjöf Belga opnaði Þjóð- verjum leið til þess að koma Bretum í opna skjöldu, en þeim tókst, þótt ógerlegt virtist að koma í veg f yrir það. Blöð víða um heim tel ja þetta undanhald eitt mesta þrekvirki, sem unnið hafi verið í hemaðarsögu heimsins, enda hafa aldrei verið jafn miklar skipaferðir frá megin- landinu til Bretlands eins og síðustu viku. Þeir sem kunnugir eru, segja að þessir flutningar hafi verið framkvæmdir með jafnmikilli nákvæmni eins og um fyrirfram ákveðna flutninga hafi verið að ræða. Það má segja um þessa flutninga, að hver sótraftur hafi verið á sjó dreginn, því að hver einasta fleyta, sem nothæf var, hefir verið tekin til notkunar. Fréttaritari United Press, sem fylgist með þessu í Belgíu, segir að hermönnunum hafi bókstaflega verið sópað upp af f jörunum og síðan settir á land, þar sem næst var í Bret- landi í tugþúsundatali. Herskip Bandamanna liggja úti fyrir ströndunum og láta þau skothríðina dynja í sífellu á hersveitum Þjóð- verja, sem gera hvert áhlaupið á fætur öðru, svo að aldrei verður hlé á. Jafnframt halda þeir uppi svo ægi- legri skothríð, að gamlir hermenn, sem tóku þátt í Heimsstyrjöldinni, segja, að mestu skothríðirnar sem þá var haldið uppi hafi verið hreinasti barnaleikur í samanburði við þetta. Það myndi vera hvíld að lenda í orustunni við Yerdun. Hersveitirnar, sem verja undanhaldið eru allar sjálf- boðaliðar, þ. e. heilar sveitir hafa gefið sig fram og boð- ist til þess að láta fyr lífið í vörninni, fremur en að láta einn einasta þýskan hermann komast í gegn — nema sem fanga. Gort lávarður, sem hafði yfirherstjórn breska hersins í Bretlandi stjórnar sjálfur vörn þessara liðgsveita. ÞJÓÐVERJAR HÖGGNIR NIÐUR EINS OG HRÁVIÐI. United Press átti í gærkveldi tal við undirforingja, sem um tíma tók þátt í vörn í undanhaldinu. Fullyrti þessi maður, að mannf all Þjóðverja væri að minsta kosti sex til sjö sinnum meira en mannfall Bandamanna. Lýsti þessi undirforingi þannig orustunni við Lou- vain, að þar hef ði Þjóðverjar sótt fram í þéttum fylking- um, svo að ekki þurfti annað en skjóta á hópinn, það hefði verið óþarfi að miða neitt sérstaklega. Þetta hefði verið fjöldamorð, en ekki bardagi. Sumsstaðar hefði valkestirnir verið mannhæðar háir. Brottflutningur liðsins þykir frækilegt afrelc — og ekki síður vörn hinna aðþrengdu her- sveita, því að þær liafa harist dögum saman án hvíldar, en Þjóðverjar hafa miklu meira lið. Víglína Bandamanna við Dunkerque liefir hvergi bilað, og er það mikill stuðningur varnarliðinu, að tekist hefir að veita sjó yfir allstór landsvæði heggja megin Dunkerque, og er þar nú ófært yfirferðar véla- liersveitum og fótgönguliði. Samkvæmt tilkynningum Frakka í morgun hafa franskar hersveitir náð aftur nokkuru landi úr höndum Þjóðverja við Ahheville og tekið nokkur hundruð fanga. Eftir ýmsum fregnum að dæma húast Þjóðverjar við, að ítalir fari hráðlega í stríðið. Jafnframt eru stöðugt birtar fregnir frá Italíu, sem sýna andúð fasista gegn Bretum og Frökkum, og gert sem mest úr því, að þeir hafa farið halloka fyrir Þjóðverjum, og Bretar og Frakkar jafnvel taldir sigraðir, þeir liafi getið sér lítinn orðstír, en jafnvel Þjóðverjar viður- kenna, að Bandamenn hafi bar- ist frækilega í Norður-Fland- ern. ítölsk blöð halda áfram að ala á kröfunum um Korsiku og Nizza. ■* Annar undirforingi lét svo um mælt í viðtali við Uni- ted Press, að undirmenn hans hefði ekki kipt sér upp við bardagana sjálfa en sprengju-regn þýsku flugvél- anna hefði verið „helvíti á jörðu“. Þýsku flugvélarnar hefði komið í stórhópum, „svo að dró fyrir sólu“ og þær hefði haft svo yfirhöndina í loft- inu að þær flugu í hringjum meðan þær létu sprengjum rigna á vígstöðvar Bandamanna og að baki þeim. Stund- um hefði þær komið í flokkum, sem var fylkt eins og þórshamarsmerki. BRETAR VERJAST ENNÞÁ í CALAIS. Breskar liðssveitir, sem eru innikróaðar í Calais verj- ast ennþá með aðstoð flotans, sem skýtur á Þjóðverja. í gær voru þær orðnar svo aðþrengdar, að breskar flug- vélar voru látnar færa þeim drykkjarvatn og skotfæri. Flugvélarnar fóru niður í alt að 50 feta hæð og vörp- uðu niður vatnsdunkum og handsprengjum. ikir geriir rfkis- stiórnarinnar. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Eins og áður hefir verið sím- að, hefir helgiska stjórnin sam- þykt yfirlýsingu þess efnis, að Leopold konungur liafi gerst brotlegur við stjórnarskrá landsins með þvi að semja við óvinaþjóð, og sé herinn, em- bættismenn allir og þjóðin ekki lengur bundin þeirri skyldu, að hlýða konungi, og sé hann ekki lengur fær um að fara með stjórn landsins. Þingið i Belgíu sem kom saman í Frakklandi í gær, samþykti til fullnustu (ratified) þessa yfirlýsingu stjórnarinnar. Stjórn landsins er þvi i liöndum rikisstjórnar- innar, sem hefir heitið Banda- mönnum fullum stuðningi, með öllum þeim meðulum, sem liún hefir yfir að ráða. Sendiherrar Belgíu i löndum Bandamanna liafa tekið sömu afstöðu og þing og ríkisstjórn. Landstjóranum i Belgiska Kongo hefir verið skip- að að hlýða aðeins fyrirmælum Belgíustjórnar. — Æfingar hins nýja belgiska hers eru byrjaðar i Frakklandi og sameinast hon- um hinir belgisku hermenn, sem lcomist hafa undan til Bret- lands frá Norður-Flandern. Margir belgiskir flugmenn hafa komist undan og verða belgisk- ar flugsveitir endurskipulagðar i Frakklandi. Kemst friðnr á í Kína? EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. Fregn frá Tokio hermir, að hið japanska ráð, sem hefir Kínamiáhn til meðferðar, hafi náð samkomulagi, sem vonast er til, að af leiði, að styrjöldin í Iíína verði til lykta leidd. Samkomnlagið innifelur tillögur um grund- vallarskilyrði friðarsamn- inga. Telja Japanir horfur á því, vegna samkomulags þessa, að Kínverjar fallist á að viðurkenna stjórn Wang- cliing-wei. (Hann stofnaði stjórn í Kína, sem er raiin- vendega japönsk leppstjórn). Yfirherráð Bandamanna á fundi í Paris. Yfirherráð Bandamanna kom saman á fund í gær til þess að ræða liorfurnar í styrjöldinni. Teknar voru ýmsar mikilvægar ákvarðanir, og var enginn á- greiningur um neina þeirra. Fundinn sóttu æðstu ráðherrar og æðstu menn landvarnanna í báðum löndunum, af Fraklca hálfu m. a. auk Reynauds, Pe- tain og Weygand. í tilkynningu sem Winston Churchill gaf út frá nr. 10 Downing Street í morgun segir, að Bandamenn liafi aldrei verið eins einliuga og nú um að halda áfram styrjöldinni, þar til fulln- aðarsigur sé unninn. KEMUR HÚN NÚ AD HALDI? ■ London er umlukt stálvíragirðingu, sem lialdið er iá lofti með loftbelgjum. Myndin hér að ofan sýnir pramma á Thames, sem er að senda einn slíkan loftbelg upp. Nú búast Bretar við mikl- um loftárásum á London, þegar Þjóðverjar eru búnir að búa um sig í Belgíu og N.-Frakklandi og er þá að vita hversu vel þessi girðing reynist. Það hefir eklcei-t komið til hennar kasta ennþá. jr Italir slíta samkomulags- umleitunum við Breta um verslunar- og siglingaeítir- litsmáL Fregnin þykir benda til, að ítalir ætli bráðlega að láta kylfu ráða kasti og hefja þátttöku í strídinu. EINKASKEYTI frá United Press. Uondon í morgun. Sú fregn barst til London í gær, að ítalir hefði slitið samkomu- lagsumleitunum þeim, sem hófust fyrir nokkuru, milli þeirra og Breta, um viðskiftasamninga og siglingaeftirlitsmál. Fregn þessi vekur feikna athygli. í fyrsta lagi vegna þess, að fyrir nokkur- um dögum var talið vel horfa, að samningar tækist. Sir Wilfred Green, aðalsamningamaður Breta I Rómaborg, kom til London, og gaf stjóm sinni skýrslu um samningaumleitanimar, og var þá litið svo á í London, — og vafalaust í Rómaborg líka, að sam- komulagsgrundvöllur væri fenginn, og viðskiftasérfræðingar ítala og Breta héldu áfram að. vinna að samkomulagi. í gær- kveldi barst svo sú fregn til London, að ítalir hefði slitið sam- komulagsumleitununum. Með því skrefi, sem ítalir hafa nú tekið, er litið svo á, að enn meiri líkur séu fyrir því en áður, að þeir hef ji þátttöku í styrjöldinni bráðlega. Öttinn við þetta hefir stöðugt magnast Ósigimnn sner- ist í sigur — segja bresk blöð. London i morgun. Lundúnablöðin í morgun ljúka miklu lofsorði á afrek breska hersins í Norður-Frakk- landi, og lcomast mörg þannig að orði, að það gangi krafta- verki næst, live miklum hluta hersins hafi tekist að bjarga undan sókn Þjóðverja. að undanförnuogífyrradag birti Vísir fregn þess efnis, að Musso- lini hefði sagt, að það væri að eins spuming um daga, hvenær ítalir færi í stríðið. Mörg blöðin taka meir að segja svo djúpt í árinni, að þau segja, að breski herinn og flot- inn hafi snúið ósigrinum í sigur með liinni hetjulegu fram- komu einstaklinga og heilla herdeilda. „Times“ getur þess, að í öll- um hernaði sé ekkert verk hættulegra eða örðugra en skipulegt undanhald hers, sem er fámennari en árásarlierinn. En þó kastar tólfunum, þegar sá her þarf að komast um horð Frh. á 4. síðu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.