Vísir - 12.06.1940, Page 1
Ritstjóri:
Kristján GuðSaugsson
Skrifstofur:
Féiagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 12. júní 1940.
Ritstjóri . 1
Blaðamenn j Sími:
Augiýsingar 1660
Gjaldkeri Afgreiðsla 5 línur
133. tbl.
Úrslitaorustan um Paris
stendur yfir í dag
Þjódverjar sækja fram til Le Mavre
og Cherbourg, til þess ad rjófa
samband Breta og Frakka. Reims
reyna þeir einnig ad umkringja.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
amkvæmt fregnum frá París í gær eru allar hernaðarlega mikilvægar stöðvar á
bardagasvæðinu enn í höndum Bandamanna. Hvert einasta þorp milti víg-
stöðvanna er nú ramgert virki, segir í þessum fregnum. Flóttamannastraum-
urinn frá París heldur áfram, en íbúarnir, sem eftir eru, eru rólegir, þratt fvrir það,
að undirbúningur sé hafinn til þess að verja borgina götu fyrir götu.
Herstjórnin í París liefir fyrirskipað að allir íbúar 17 ára og yngri skuli hverfa á
brott úr borginni þegar í stað, svo og aðrir að undanteknum þeim sem eru á herskyldu-
aldri, eða falið hefir verið að gegna þar sérstökumstörí‘um,eðaliafafengið undanþágu.
Bankarnir í Paris eru teknir til starfa annarsstaðar. —
Þjóðver jar iialda áfram sókn sinni fyrir norðaustan og norðvestan París. Við Ourcq-
fljótið hittu Þjóðverjar að eins fyrir hersveitir, sem vörðu undanhald Frakka, sem
hörfuðu undan á þessum slóðum. Þá er tilkynt,aðÞjóðverjar haldi áfram tilraunum til
þess að umkringja Rheims. Sækir herlið þeirra fram í dölunum, sem kendir eru við
Ardre og Vesle. Ennfremur segir í tilkynningum Frakka, að Þjóðverjar hafi gert til-
raunir til þess að leggja flotbrýr yfir Signu milli Rouen og Vernon. Flugherir Breta og
Frakka hafa verið í stöðugri sókn og eyðilagt f jölda margar brýr fyrir Þ jóðverjum.
Franskar flotaflugvélar hafa gert árás á Heinkelflugvélaverksmiðjurnar í Rostock
við Eystrasalt. Einnig hafa franskar flugvélar gert árás á hernaðarstaði við Mann-
heim, Frankfurt og víðar. Breskar sprengjuflugvélar gera árásir á hernaðarstaði í Vest-
ur-Þýskalandi á hverri nóttu.
Framsókn Þjóðverja í Norð-
tir-Frakklandi vekur hina
niestu athygli um allan lieim og
er nú svo að sjá, sem bardag-
aruir standi fyrir dyrum París-
arborgar. Þjóðverjar fram-
fylgja nú hernaðaráætlun
Schlieffens herforingja til hins
ílrasta, en árið 1914 hvarflaði
Moltke greifi frá henni og voru
það lalin stórvægilég mistök af
hernaðarsérfræðingum síðar.
Schlieffen hershöfðingi dó
nokkrum árum fyrir upphaf
heimsstyrjaldarinnar, og er
•sagt að síðasta ráðlegging hans
á hanabeðnum, til Þjóðverja,
hafi verið: „Munið að gera
liægri arminn sterkan.“
Árið 1914 komst þýski herinn
aldrei að Ermarsundi og gat
aldrei rofið fult samstarf Breta
og Frakka. Nú hafa þeir flestar
þýðingarmestu borgir við Erm-
arsund á valdi sinu, en aðrar
eru stöðugt undir kúlnaregni og
loftárásir á þær gerðar til þess
að torvelda flutninga og aðstoð
Breta við Frakka. Telja Þjóð-
verjar að þeir muni á þennan
liátt mola alla andstöðu Banda-
manna og innan skamms muni
abar hafnir við Ermarsund vera
i þeiixa höndum. Við Rouen
sækir fram 40 þús. manna
lier til Le Havre og Cher-
bourg, og ennfremur her með
ströndinni að norðan. Þjóðverj-
ar halda því fram, að þeir hafi
brotið andstöðu Frakka við
Soissons á bak aftur, og hafið
hraða sókn beint til Parísar, og
hafi þeir í gær náð fram til
Marne, og farið yfir fljótið á
nokkrum stöðum. Sé þýski her-
inn nú i 20 milna fjarlægð frá
París.
Sókninni haga Þjóðverjar
J>annig, að fremst fara vélaher-
sveitir þeirra og skriðdrekar, þá
fótgöngulið með vélknúin her-
gögn, en þétt á eftir fylgir aðal-
lierinn, en loftherinn styður
framsóknina. Telja Þjóðverjar
að her Frakka eigi nú i miklurn
erfiðleikum, —- miklu meiri en
nokkuru sinni 1914, — en J>að
stafi af J>ví, að nú reyni gííur-
lega á vörn þeirra miðja, en
armar hersins geti ekki komið
þeirri vörn til aðstoðar eins og
1914, með þvi að sótt sé fast
fram á öllum vígstöðvum.
Þá gera Þjóðverjar mikið úr
J>eim óróa, sem sé í París, og
telja ekki ósennilegt, að J>ar
brjótist út uppreist skjótlega
vegna ‘æsinganna, J>rátt fyrir
allar varúðarráðstafanir og víg-
girðingar á vegum og í J>orpum,
sem liggja í nánd við París,
hefjist úrslitahríðin um borg-
ina innan skamms.
Að vestan telja Þjóðverjar
sig hafa brotist yfir Signu á
mörgum stöðum og sælci her-
deildir þeirra þar einnig fram
í áttina til Parísar.
Stöðugum loftárásum hefir
verið haldið uppi á Cherbourg
og aðrar liafnarborgir, sem enn
eru á valdi Bandamanna, og á
skip, sem flutningum halda
uppi. Kveður J>ýska herstjórnin
að árásunum hafi aðallega ver-
ið beint að vörubirgðastöðvum,
flutningabrautum og bensín-
birgðastöðvum.
Yörn Frakka.
Vörn frönsku hersveitanna er
svo vaskleg og hugrekki her-
mannanna svo traust, að engin
dæmi munu finnast slíks í sög-
unni. Þeir iiafa valdið Þjóðverj-
um stórkostlegu tjóni með
hörðum gagnárásum, og berj-
ast um hvern J>umlung lands,
sem þeir láta af hendi. Ilins-
vegar eiga þeir við ofitrefli að
etja, með því að þýsku liersveit-
irnar eru taldar miklu fjöl-
mennari.
Meginlier Frakka á miðvig-
stöðvunum hefir tekið sér stöðu
fyrir norðan, norðvestan og
norðaustan París, og er búist
við, að lokaviðureignin um
París hefjist þá og þegar. Menn
gera sér hvarvetna ljóst, að
það eru örlög Parísarborgar,
sem nú er um barist.
Flóttinn frá París.
Flóttamannastraumurinn er
óslitinn frá París og heldur á-
fram eftir öllum J>jóðvegum,
sem liggja frá horginni inn i
landið og í suðvestur til strand-
arinnar. Öll farartælci liafa ver-
ið tekin í notkun, og menn
flytja alt það lauslegt með sér,
sem nauðsynlegt er og unt er að
hafa meðferðis. Er talið, að ein
miljón manna hafi þegar yfir-
gefið borgina. Hefir mikill
fjöldi J>essara manna orðið að
leggja af stað fótgangandi, með
J>ví öll að farartæki, sem völ
var á, hafi verið tekin í J>águ
flóttafólksins.
Þeir, sem enn dvelja eftir í
r i Bní-
íiur.
Undanfarnar tvær vikur
hefir fiskmarkaður í Bret-
landi verið afar óhagstæður.
Mörg skip héðan hafa selt
fiskinn með stórtapi svo að
nemur tugum þúsunda á
skip. Verst hefir útkoman
verið hjá þeim skipum, sem
keypt hafa fiskinn. Hjá tog-
urunum, sem sjálfir fiska,
hefir tapið verið minna. Ef
markaðurinn breytist ekki
næstu daga eitthvað til batn-
aðar, er sýnilegt, að mörg
skip muni hætta fiskflutn-
ingum. — Áhættan við þessa
flutninga er mjög mikil og
er vitanlegt, að skip hafa tap-
að 30—35 þús. kr. í einni
ferð.
borginni, er varnarliðið og
verkamenn J>eir, sem. i verk-
smiðjunum vinna, væntanlega
aðallega að hergagnafram-
ieiðslu.
Breski og franski loftflotinn
lieldur uppi stöðugum árásum á
lið Þjóðverja, og veldur J>vi
stórkostlegu tjóni.
ALT MEÐ KYRRUM KJÖRUM
Á LANDAMÆRUM FRAKK-
LANDS OG ÍTALÍU.
Það var tilkynt í Paris árdeg-
is í dag, að Italir hefði eklci enn
gert neina árás á landamærum
Frakklands og Ítalíu. Franskar
sprengjuflugvélar liafa gert á-
rásir á ýmsar liernaðarlegar
stöðvar í Norður-Italíu.
FYRSTA HERNAÐAR-
TILKYNNING ÍTALA.
Italir liafa enn sem komið er
birt að eins eina hernaðartil-
kynningu og er J>ar að eins sagt
frá loftárásunum á Mialta og
loftbardögum yfir Austur-Libíu.
TYRKIR BÆRA A SER
Tyrkir ætla að standa við
allar skuldbindingar sínar
gagnvart Bandamönnum.
Ikii §ieÍT vtljjsi líka koma sér vel vid
Bú§§a.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Fregn frá Istambul hermir, að stjórnmálamenn þar hafi lýst
yfir því, að Tyrkland muni vissulega standa við allar skuldbind-
ingar sínar við Bandamenn, en tyrkneska stjórnin hafi farið, að
dæmi Breta, og „bíði og sjái hvað setur“, eins og sakir standa.
Það er leidd athygli að því, að þótt Tyrkir ætli að standa við
skuldbindingar sínar, ætli þeir ekki að flana út í neitt. Allar
ákvarðanir, tyrknesku stjómarinnar verða þó teknar með tilliti
til þeirra samninga, sem gerðir hafa verið við Breta og Frakka.
Það er talið, að Tyrkir bíði átekta, til þess að sjá hvaða af-
stöðu Rússar taka, nú þegar ítalir eru komnir í stríðið.
Vegna yfirráðanna yfir Dardanellasundi kjósa Tyrkir að hafa
sem besta sambúð við Rússa, og vilja Tyrkir fá ákveðnar upplýs-
ingar um hvað Rússar ætlast fyrir, áður en þeir taka fullnaðar-
ákvarðanir.
Það var opinberlega tilkynt í Ankara í gærkveldi, að viðskifta-
sambandinu milli Tyrklands og Ítalíu hafi verið slitið. Viðskifti
ítala og Tyrkja voru öll á „clearing“-grundvelli.
TYRKIR eru skyldir til að veita Bandamönnum lið, þar sem It-
alir hafa farið í stríðið. Myndin sýnir þrjá æðstu menn Tyrkja,
J>ar sem J>eir eru staddir á heræfingum: Frá vinstri: Ismet Ino-
nu, forseti, Falireddin Altay, yfirhershöfðingi og dr. Refik Say-
dam, forsætisráðherra.
Italir hafa gert 8
loftárásir á Malta
Bretar telja her þeirra undir þýskri stjórn.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Kanada, Nýja Sjáland, Ástralía og Suður-Afríka eiga nú í
styrjöld við Ítalíu, og búist er við, að, Egiptaland slíti stjórnmála-
sambandi við Ítalíu í dag, og mun þess þá að líkindum skamt
að bíða, að Egiptaland taki þátt í síyrjöldinni.
Það vakti mikla furðu víða um lönd, að ítalir skyldi ekki verða
fyrstir til árása, er þeir höfðu sagt Bretum og Frökkum stríð á
hendur. Það voru Bretar, sem að þessu sinni, urðu fyrstir til
árása. I gærkveldi bárust fregnir um það frá aðalbækistöð
breska flughersins í Egiptalandi, að breskar Blenheim-sprengju-
flugvélar hefði flogið yfir Abessiniu til flugstöðva Itala í ítölsku
Austur-Afríku, og valdið þar miklum skemdum. Er talið að tjón-
ið sé svo mikið, að það muni hafa lamandi áhrif á lofthernaðar-
legar aðgerðir ítala við Rauðahaf fyrst um sinn. Jafnframt var
' tilkynt, að breskar sprengjuflugvélar hefði gert árásir á flug-
stöðvar ítala í austurhluta Libyu, og valdið þar miklum skemd-
um á flugvélum á jörðu niðri, en olíugeymar stóðu í ljósum loga
að árásinni liðinni.
Italir gerðu loftárás á Malta
i gærmorgun snemma og siðar
í gær og gærkveldi margar
fleiri tilraunir til árása á eyj-
una. Bretar segja, að tjón liafi
ekki orðið á neinum hernaðar-
lega mikilvægum stöðum, en
manntjón orðið, m. a. særst
konur og börn, og sprengja
hafi eyðilagt sjúkrahús. En það
stóð autt. Margar sprengjur
féllu í sjóinn. Tvær ítalskar
flugvélar voru skotnar niður.
Til árása á landi kom ekki
í gær, en menn höfðu búist við,
að ítalir myndi þegar í gær-
morgun liefja árásir á landa-
mærum Ílalíu og Frakklands.
Italir mistu þegar fyrsta dag
styrjaldarinnar 30 skip. Meðal
J>eirra eru allmörg skip, sem
voru stödd í höfnum í löndum
Bandamanna, og komust ekki
J>aðan. Önnur voru liertekin og
nokkrum söktu áhafnir skip-
anna.
Breska flotamálaráðuneytið
tilkynti í gær, að tundurdufl-
um liefði verið lagt í Feneyja-
flóa (inst i Adríahafi), Quar-
neroflóa í Adríahafi, — sem
borgin Fiume stendur við, —
við Albaníustrendur, við vest-
urströnd Sikileyjar og hæl og
tá Ítalíu, við Rhodoseyju i aust-
urhluta Miðjarðarhafs, — en
þessi eyja er eign Italiu, — og
loks meðfram endilöngum Li-
bíuströndum.
FYRSTA AÐVÖRUN UM
LOFTÁRÁS I RÓMABORG.
I nótt sem leið var í fyrsta
sinni gefin aðvörun um að loft-
árás væri í aðsigi. Yar það kl.
1.33. Tuttugu minútum síðar
voru gefin merki um, að liætt-
an væri liðin lijá. Öll ljós voru
slökt í borginni. Ekki lieyrðist
til neinna flugvéla í borginni
sjálfri.
ítalir tilkynna, að flugvélar
þeirra hafi gert loftárásir á
Malta og Aden, við innsigling-
una til Rauðahafs að austan-
verðu.
MUSSOLINI TEKUR
YFIRHERSTJÓRNINA
I SlNAR HENDUR.
Mussolini tilkynti i Róma-
borg í gær, að Yictor Emmanu-
el hefði falið sér yfirlierstjórn
í styrjöldinni, og eru því æðstu
herráð jafnt í landher, fluglier
og flota í höndum Mussolini.
Stjórn landhersins er í höndum
Graziani, en Badoglio marskálk-
ur verður aðstoðarm. Musso-
lini.
Ennfremur var tilkynt, að
Ciano greifi hefði verið skipað-
ur majór i flughernum.
Sbr. bls. 3.