Vísir - 18.06.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 18.06.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 18. júní 1940. Ritstjóri 1 Blaðamenn Sími: Áuglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgroiðsia J 138. tbl. Styrjöldin kann að breið- a§t ut til A§ín þá og: þegar Japanir liafa 100.000 nianna lier reiHii- biimii til þe§s að ráðast iim í Franska- Indo-Kína. — Bandaríkin hafa Asíuflota §inn reiðnhninn. EÍNKASKEYTl frá Uttited Press. London í morgun. regnir frá Sanghai herma, mikill ótti sé hvarvetná ríkjaildi út af því, að Jap- anir kunni að gera tilraun til þess að leggja undir sig Franska Indo-Kína. Hefir lengi verið mikil gremja ríkjandi út af því að Kínverjar hafa fengið vopn og skotfæri frá Franska Indo-Kína, en nú lítur út fyrir, að Japanir ætli að nota tækiféerið, ítteðan Frakkar eiga sem erfiðast og leggja það undir sig. Mikill ótti er einn- % íikjandi í Hollensku Austur-Asíu. Fregnir hafa borist um að Japauir hafi 100.000 manna her reiðubúinn á Hainan, og eigi það að verða hlutverk þessa hers, að leggja Franska Indo-Kína undir Japan. I Talsmaður japönsku herstjórnarinnar í Canton í Kína boðaði það í fyrradag, að Jap- anir kynnu að hef ja hernaðarlegar aðgerðir gegn Franska Indo-Kína, þar sem Franska Indo-Kína væri fjandsamlegt Japan. BANDARÍKJAMENN HÆTTA YIÐ AÐ SENDA FLOTA SINN FRÁ HONOLULU. Bandaríkjamenn hafa um nokkurt skeið haft öflugan flota í Honolulu. Ákveðið hafði verið, að flotinn kæmi í heimsókn til Kyrrahafshafna Bandaríkjanna í júlímán- uði næstkomandi. í gær tilkynti James Richardson aðmíráll, að þessari heimsókn f lot- ans væri frestað. Mun það stafa að því að hsrfurnar í Asíu eru ískyggilegri en nokkuru sinni. Frakkar ætla ekki aO gefast npp skilyrðislaost, ea aðstaða landhers þeirra fer hríðversnandi. Bpeta? vilja stofna breskt-franskt samríki Mussolini og Hitler á fundi. í gær var boðað í London, að Winstoii Churchill forsætisráðherra myndi flytja ræðu í neðri mál- stofunni og gera að umtalsefni styrjaldafhöi'furnar, orðsendingu Petains marskálks til Þjóðverja, afstöðu Bandaríkjanna til Bandamanna, og yfirleitt gCra grein fyrir hinum miklu viðburðum und- angenginna dægra. Jafnframt var boðað, að Winston Churchill mundi ávarpa bresku þjóðina í útvarpsræðu. Útvarpsræðu sína flutti hann þegar í gærkvéldí og var það fyrr en búist hafði verið við. Útvarpsræða Churchills var stutt, tók þrjár mínútur. í ræðu sinni lýsti Churchiil yfir því, að hin alvarlegustu tíðindi héfðí borist frá Frakklandi, en ekkert myndi nokkuru sinni breyta hugarfari Breta í garð Frakka né áfstoðu Breta til Frakklands. Hann kvað Breta nú berjast eina fyrir málstað allra þjóða, og baráttu sinfíí myndí þéír halda áfram, þar til nazisminn væri gersigraður. Lét Churchill í ljós sterka trú á því, að sigurírtrt muridi falla Bandamönnum í skaut um það er lyki. Bresku blöðin lögðu þegar í gærmorgun fast að. Frökkum að verjast áfram. Var þá éfeki kunriugt, að Petain hafði snúið sér til Þjóðverja og farið fram á, að þeir semdi við Frakka uni „heíðarlegari frið“. 1 gærkveldi varð svo kunnugt, að breska stjómin hafði þegar s. I. sunnudag tekið, hið mifeiÞ vægasta skref til þess að örva Frakka til þess að halda áfram vörninni. Lagði sendiherra Breta í Frakklandí, Sir Ronald Campbell, hinar merkilegustu tillögur, fyrir frönsku stjómina s. 1. suririu- dagskvöld, tillögur, sem munu eins dæmi í sögunni. Tillögur þessar eru uppkast að bresk-frönskum samríkissátt- mála. í honum er Frökkum heitið allri þeirri hjálp, sem Breta- veldi getur látið í té. Höfuðatriði uppkastsins eru þessi: Stofnað verði breskt-franskt samríki. Franskir ríkisborgarar skuli fá borgararéttindi í Bretlandi og breskir ríkisborgarar borgararéttindi í Frakklandi. Þing Bretlands og Frakklands verði sameinuð. Landvarnir, fjármál, utanríkismál, viðskifta- og fjárhagsmál oll skulu saméiginleg. Stofnuð skal breSk-frönsk stríðsstjóm, sem fer með yfirstjóm landhers, flughers og flota beggja þjóðanna. Bretar og Frakkar bera sameiginlega öll styrjaldarútgjöld og greiða alt tjón, sem af því hlýst, sameiginlega, svo og kostnað af viðreisnarstarfinu eftir stríðið. Gert er ráð fyrir, áð hið nýja samríki, snúi sér til Bandaríkj- anna, og skori á þau, að veita því alla þá aðstoð, sem þau geta látið í té, með því að láta af 'hendi 'flugvélar og hverskonar her- gögn, hráéfni o. s. frv. Frakkar gefast ekki upp skij- yrðislaust. — Hitler ráðgast við Mussolini. Baudoin, utanríkismálaráð- herra Petamstjornarmnar flutti ræðu í Bordeaux í gærkveldi. Ilann gerði grein fyrir því skrefi, sem Petain tók, er hann sneri sér til Þjóðverja og fór frarn. á, að samið yrði um heið- arlegan frið. Baudoin kvað Frakka aldrei niundu fallast á ncina skilmála, sem þeir teldi sér vansæmd að. Frakkar gef- ast ekki upp skilyrðislaust. Þeir hafa altaf metið þjóðarheiður sinn meira en alt annað, og þeir munu ekki að þessu sinni frek- ar en áður, er á móti hlæs, varpa honum fyrir borð. Við- námsþróttur frönsku þjóðar- innar er ekki bugaður. Vér er- RÆfiA CHDRCHILLS f DAG Hvað verður um franska flotann og frönsku nýlend- urnar, ef Frakkar semja frið ? Einkask. frá United Press. London í morgun. Það er alment litið svo á, að ræða sú, sem Churchill flytur í neðri málstofunni síðdegis í dag, verði hin mik- ilvægasta, sem hann hefir flutt síðan er hann tók við stjórn landsins. Stjórnmálamenn fullyrða, að hann muni endurtaka fyrri yfirlýsingar urn það, að Bretar séu ákveðnir í að berj- ast til þrautar, jafnvel þótt þeir verði að berjast einir síns liðs. Menn gera sér vonir um, að ChurchiII muni veita mik- „Ivægar upplýsingar; sem verði til skýringar á ýmsu, sem menn nú eru í vafa um, svo sem um stöðu franska flotans í Miðjarðarhafi, frönsku nýlendurnar og franska herinn í hinum ná- lægu Austurlöndum. um, reiðubúnir að leggja niður vopnin, ef vér fáum heiðarlega skilmála, en fáist þeir ekki, veit lierinn og þjóðin öll hvað henni ber að gera. Hún mun verjast, þótt tortíming og dauði blasi við. Baudoin lauk miklu lofs- orði á Breta og aðrar þjóðir, sem berjast fyrir sama málstað og Frakkar. Samkvæmt fregn frá Berlín í gær ákvað Hitler að ráðgast víð Mussolini áður en liann svaraðí Petain. Þýska frétta- stofan bírti fregn um það í gær- kveldi, samkvæmt skeyti frá Rómaborg, að þeir Mussolini og Ciano greífi liefði lagt af stað til móts við Hitler kl. 8.30 í gær- kveldi. Ekki var tilkynt hvar fhndurinn yrði haldinn. Ciano greifi var ekki staddur í Rómaborg þegar Mussolini fékk tilmæli Hitlers, en kvaddi Ciano greifa þegar á fund sinn, og fór hann loftleiðis til Róma- borgar. Áður en Mussolini lagði af stað ræddi liann við Badoglio marskálk, forseta ítalska her- foringjaráðsins. Aðstaðan á vígstöðvunum í Frakklandi. Horfurnar á vígstöðvunum í Frakklandi eru ákaflega í- skyggilegar. Bardagar héldu á- fram á öllum vígstöðvunum i gær. Á vesturhluta þeirra berj- Minjagripur írá 1914-18. BRESKIR HERMENN, sem voru að grafa skotgrafir við Somme. rákust á þenna þýska stálhjálm frá heimsstyrjöldinni 1914—18. Egiptar í þann veginn að fara í stríðið? EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Fregnir frá Kairo herma, að horfurnar séu mjög alvarlegar vegna loftárásar Itala á egipska stöð skamt frá landamærum Libýu. Varð nokkurt manntjón í liði Egipta. Biðu 2 yfirforingjar bana, en nokkrir hermenn særðust. Áður en þetta gerðist hafði forsætisráðherra Egiptalands lýst yfir, að ef einn einasti Egipti biði bana af völdum árása Itala, færir Egiptaland í strið við Ítalíu. Breski sendiheriann í Egiptalandi flaug til Alexandriu í gaér og veiíti Farouk konungur honum áheyrn. Því næst ræddi Far- ouk konungur í fullar þrjár ldukkustundir við forsætisráðherr- ann. Að þyí loknu kom rikisstjórnin saiuan á fund og var lionum frestáð, ári þéss fulinaðarákvörðun væri tekin. Egiptaland íiéfíR sém kunnugt er, slitið stjómmálasamband- inu við ítaliu, og virðisí sVo horfa, að þeir segi ítölum stiáð á liendur. Þó má vera, að tíðindi þau, sem gerst hafa í Frakklandi, kunni að gera Egipta liikandi. ast Bretar með Frökkum og þar liafa ekki, að því er virðist, orðið miklar breytingar, i nánd við Orleans hafa verið liarðir bardagar, en þar hafa Frakkar gert nokkur gagnáhlaup með góðum árangri. Horfurnar aust- as á vígstöðvunum eru alvar- legastar. Þar liafa Þjóðverjar hakhð áfram að sækja fram og vélahersveitir þeirra eru komn- ar alla leið til svissnesku landa- mæranna og virðast Þjóðverjar þvi þegar hafa einangrað eða a. m. k. vera á góðum vegi með að einangra Maginotlínuna. — Annars ber fregnum ekki sam- an um hversu ástatt sé á þess- um hluta vígstöðvanna. Sumar fregnir herma, að Frakkar verj- ist enn í ýmsum virkjum Magi-. notlínunnar, en aðrar að þeir eyðileggi virkin jafnóðum og þeir yfirgefi þau. Þjóðverjar segjast hafa brotist gegnum Maginotlínuna á mörgum stöð- um og m. a. tekið Metz, sem er ramlega víggirt. I tilkynningum Frafeka segir ennfremur, að bardagarnir hafi verið einna ákafastir við Orle- ans og í La Perte við Loire. Óvinaherinn er kominn inn í Dijon og hefir komist yfir skipaskurð, sem rennur sam- liliða ánni. Einnig hafa þeir komist yfir Oise og fram. hjá Autun, sem er nokkru fyrir norðan Le Creusot, sem er mik- il hergagnaframleiðsluborg. London í morgun. Fregn frá Riga hermir, að í dögum i gærmoi-gun hafi x-úss- neskt herlið farið yfir landa- mæri Lettlands. Höfðu Rússar sett Lettlendingum samskonar úrslitakosti og Litháum og Eist- lendingum. Enginn árekstur varð, er rússneskar skriðdrekasveitir komu til Riga. Öflugur rússneskur her er nú í Eystrasaltsríkjunum og eru stöðugt fluttar þangað fleiri hersveitir. Fregnir liafa borist urn liðs- safnað Rússa við landamæri Þýskalands. Hitler og Musso- lini ræðast við í Munchen. Einkaskeyti frá United Press. Rómaborgarfregn hermir, að von Mackensen, sendiherra Þjóðverja i Rómaborg, hafi far- ið með þeim Mussolini og Ciano greifa á fund Hitlers. Yiðræðu- fundurinn verður haldinn í Munchen. I Berlín er talið, að Þjóðverj- ar muni krefjast algerrar upp- gjafar af Frakka hálfu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.