Vísir - 22.06.1940, Síða 1

Vísir - 22.06.1940, Síða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S línur Afgreiðsla 30. ár. Reykjavík, laugardagfinn 22. júní 1940. 142. tbl. FRAKKAR TAKA AKVÖRÐUN SÍNA í DAG. Franska stjórnin hélt fund í morgun. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. Franska stjórnin kom saman á fund í morgun til þess að ræða vopnahlésskilmála Þjóðverja, sem voru afhentir sendimönnum Frakka í Compiegneskógi síðdeg- is í gær, í viðurvist Hitlers. — Franska stjórnin á ekki um nema tvent að velja: Hafna kostunum eða samþykkja þá óbreytta. Franska stjórnin mun taka ákvörðun sína í dag. Það verður enn sem komið er ekki sagt með vissu hvað franska stjórnin gerir. Hún á erfitt aðstöðu. Franski herinn verst enn að vísu, en allar líkur eru til að Þjóð- verjar vaði yfir alt Frakkland á skömmum tíma, ef vopnaviðskifti hætta ekki. Á hinn bóginn er svo á það að líta, að franski flotinn er heill og ósigraður og Frakkar hafa enn að baki sér hið mikla nýlenduveldi sitt, Bretaveldi og loforð Bandaríkjamanna um stuðning. Frakkar hvarvetna um heim hvetja frönsku stjórnina til þess að verjast áfram hverjar sem afleiðingarnar verði. Franska stjórnin á úr vöndu að ráða. Það hvílir mikil ábyrgð á Lebrun ríkisforseta og Petain og samstarfsmönnum hans í stjórninni en enginn efast um, að þeir muni taka þá ákvörðun, sem þeir telja Frakklandi fyrir bestu, eins og komið er. Og ákvörðunín verður tekin með tilliti til skilmála Þjóðverja, auk þess sem að framan var getið. Enn sem komið er verður ekkert sagt með vissu um skil- málana, en það er alment talið, að þeir séu mjög harðir. Skilmálarnir eru sagðir vera um 30 vélritaðar síður, Skilmálarnir voru afhentir Frökkum í Compiegneskógi kl. S.30 *— þeim hinum sama skógi, þar sem Frakkar afhentu Þjóð- vérjuíft skilmála sína 1918. Sami járnbrautarvagninn var not- aður. Nú var sólskin og fagurt veður í lundinum, sem kallaður var „Friðarlundurinn“, eftir fund Þjóðverja og Frakka þar í nóvember 1918. Sá fundur var haldinn á hráslagalegum haust- degi. Hitler sjálfur var viðstaddur, er skilmálamir voru afhentir. Með Hitler voru Göring, von Ribbentrop, Rudolf Hess, herfor- ingjamir von Brauchitch, Keitel, Raeder aðmíráll. Þjóðverjar voru einkennisklæddir og ennfremur sendimenn Frakka, nema Noel sendiherra. Kl. 3.30 hófst athöfnin í járnbrautarvagninum. Þegar frönsku samningamennirnir komu var skifst á kveðjum. Hitler heilsaði hverjum um sig með nazistakveðju. Keitel las formála fyrir friðarskilmálunum. í formála þessum gerir þýska stjómin grein fyrir afstöðu sinni og stefnu út á við. Heldur hún því fram, að Þjóðverjar hafi ekki viljað styrjöld 1914 og að það hafi verið að tilefnislausu, að Stóra-Bretland og Frakkland sögðu Þýskalandi stríð á hencjur í septembermánuði síðastliðnum. í formálanum er því einnig haldið fram, að Þjóðverjar hafi sætt hinni ósanngjömustu með- ferð af hálfu Bandamanna við gerð friðarsamninganna. 1 for- málanum víkja Þjóðverjar óbeinlínis að efni friðarskilmálanna, að því að í honum er tekið fram, að tryggja verði, að vopnavið- skifti haldi ekki áfram, að þeir hafi ömgga aðstöðu til þess að halda áfram stríðinu gegn Bretlandi, og að skapaður verði grundvöllur að „nýjum og betri friði.“ Bandaríkjaþing: vill liindra herskipasöl- íii* til Bandamanna. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Fyrir skemstu barst fregn um, að 24 Bandaríkjaherskip öll lítil og engin ný hefði verið seld Bandamönnum. Bandaríkja- þing, sem nú hefir samþykt gífurlega aukningu flotans, telur nú nauðsynlegt, að trygt verði, að ekki séu látin af hendi nein herskip eða annað, sem Bandaríkin kunna sjálf að hafa þörf fyrir. Hefir öldungadéildin samþykt frumvarp, sem fulltrúadeildin hefir þegar samþykt, og miðar að því, að koma í veg fyrir sölu mikilvægra hergagna og m. a. sölu 23 torpedo-báta og kafbáta til Breta. f frumvarpinu er ákvæði sem bannar að nokkurar slíkar söl- ur fari fram af birgðum hers og flota, nema floíamálastjórnin eða herforingjaráðið, staðfesti, að um sé að ræða herskip eða hergögn, sem Bandaríkin geti komist af án. Ötvarpið á morgun. Kl. ii.oo messa í dómkifkjimni -•(Prédikun: séra Sigurbjörn Ein- arsson. Fyrir altari: séra Friðrík Hallgrimsson). 12.10—1-3.00 Há- degisútvarp. 14.00 Útvarp frá úti- hátíð Vestmannadags í Reykjavík: Ræður frá svölum Alþingishússins (Jakob Möller, fjármálarh., Gunn- ar B. Björnsson ritstjóri).— Lú'ðra- sveit Reykjavikur leikur. 19.30 HI jómplötur: KJassiskir dansar. London í morgun. Einkaskeyti frá Unted Press. Flugmálaráðunetyið breska og öryggismálaráðuneytið tilk. að þýskar flugvélar hafi gert á- rásartilraunir á ýmsa staði í Englandi s.l. nótt. Sprengja kom niður í liúsi í Suffolk og hiðu þrír menn hana þar — lijón og harn þeirra, sem liöfðu Ieitað skjóls í garði við liúsið. — Á öðrum stöðum varð ekki annað manntjón, nema að þrír menn særðust. Eldur komu upp í einu hér- aði í auslurhluta landsins, af völdum sprengikúlu. Hver flug- vélahylgjan á fætur annari fór yfir norðausturhluta landsins og var varpað sprengikúlumj en flestgr komu niður á bersvæði. — Sprengikúla kom niður á timburbirgðastöð og lék alt á reiðiskjálfi í liúsum í alt að þriggja mílna fjarlægð. Enn hafa ekki verið hirtar fregnir um, að nokkrar þýskar flug- vélar hafi verið skotnar niður. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Jóns- messuhátíð í Svíþjóð (Jón úr Vör). 20.55 Hljómplötur: Sænskir al- þýðusöngvar. 21.00 Útvarp frá Vestmannafagnaði að Hótel Borg. Ávörp og ræður (Ásmundur P. Jó- hannsson, Árni Eggertsson, o. f 1.), söngur, hljóðfraleikur. 22.00 Frétt- ir. 22.10 Danslög til 23.00. Útvarpið á mánudag. Kl. 12.00—13.00 Hádegisútvarp. r um u r r ) mofflun. flugvélum, sem flugu hátt yfii' horginni. — Fréttaritari United Press segir, að þetta liafi verið í fyrsta skifti, sem aðvaranir um loftárásir voru gefnar í Berlín. Engar loftvarnarhyssur voru teknar i notkun, en kast- ljós voru notuð. Merki um, að hættan væri liðin lijá, voru gef- in kl. 2. — Fréttaritari United Press segist hafa heyrt skothríð í fjarska — að því er virtist fyr- ir sunnan borgina. Að því er frést hefir samkv. áreiðanlegum heimildum, voro óvinaflugvélar á leið til Berlín- ar að suðvestanverðu frá, en voru liraktar á flótta. Hvort nokkrum, sprengjum var varpað er enn ókunnugt. V í'^í ma 11 níiilas*iii‘iiiii á lllOrgllll. Fjölþættar skemtanip haldnar hér í bænum. Á morgun verður annar Vestmannadagurinn hátíðlegur hald- inn, en svo sem mönnum er kunnugt var sú nýbreytni tekin upp í fyrra, að helga löndum vorum vestan hafs einn dag á ári, með sérstökum hátíðahöldum. I fyrra fóru skemtanir fram á Þingvöllum og þóttu takast prýðilega, þótt veður væri alt ann- að en gott. K. R. og Fram á mánudag. Næsti leikur í Reykjavíkur- mótinu fer fram á mánudags- kvöld og eigast þá við Fram og K. R. Eins og skýrt er fra annars- staðar í blaðinu í dag skipa þessi félög sem stendur 3. og 4. sætið. Síðustu leikir virðast þó hera það með sér ,að þau sé að spjara sig nú og ætli að reyna að hækka eitthvað í tigninni. Verður leikurinn milli þeirra vafalaust spennandi. Nú hefir verið liorfið að því ráði að halda skemtanir þessar hér í bæ, aðallega af ótta við veðurfarið, sem hefir að undan- förnu verið furðulega leiðinlegt. Hátiðahöldunum verður í stórum dráttum hagað svo sem hér segir: KI. 2 síðd. leikur Lúðrasveit Reykjavikur nokkur lög, en Jakoh Möller fjármálaráðherra flytur ræðu af svölum Alþingis- hússins, og kemur þar fram fyr- ir liönd rikisstjórnarinnar. Þvi- næst mun Gunnar B. Björnsson ritstjóri flytja kveðju frá Vest- ur-íslendingum. Um kvöldið verður svo lcynn- ingarkvöld að Hótel Borg, og verður því samkvæmi þannig hagað, að sem flestir eigi þess kost að sækja það, og heiðra með því Vestur-íslendinga og styrkja starfsemi Þjóðræknisfé- lagsins. Þar syngur karlakórinn Fósthræður, undir stjórn Jóns Halldórssonar, flutt verður kvæði til Vestur-lslendinga eftir Jakob Tliorarensen skáld, og ennfremur halda þeir ræður Ás- mundur P. Jóhannesson, Árni Eggertsson, síra Friðrik Hall- grímsson og Ásgeir Ásgeirsson f. h. Þjóðræknisfélagsins. Verður þetta án efa hin besta skemtun, sem vert er að fjölsótt verði allra orsaka vegna. London i morgun. Einkaskeyti frá Unted Press. Áðvaranir um yfirvofandi loftárás voru gefnar í vestur- hluta Berlínar kl. 1.40 s.l. nótt. Voru aðvörunarmerki gefin 4 sinnum, en ekki um alla borg- ina. Ekki sást til neinna flug- véla, en sumir þóttust heyra í 19.30 Hljómplötur: Valsinn, eftir Ravel. 20.00 Fréttir. 20.30 Sumar- þættir (Árni Friðriksson fiskifræð- ingur). 20.50 Erindi: Prestlistin 500 ára (Hallbjörn Halldórsson prentari). 21.20 Útvarpshljómsveit- in : Sænsk alþýðulög. 21.45 Fréttir. Háskóla- byggingin. Eindreguar óskir um að al- menningi verði gefið nýtt tækifæri til þess að skoða bygginguna. Visi hafa borist fyrirspurnir um það frá ýmsum, livort al- menningi verði ekki gefið nýtt tækifæri til «ð skoða liina nýju og véglegu háskólabygg- ingu. Urðu margir frá að hveífa ) þá tvo daga, sem byggingin var opin fyrir almenning. Eins og allir vita liafa verið lítil hlýindi að undanförnu og ýmsir, sem lengi höfðu beðið og var orðið kalt, munu liafa farið lieim aft- ur, án þess að hafa skoðað bygg- inguna, eftir að liafa beðið þar alllengi. Það er ekki nema eðli- legt, að þeir, sem eigi hafa skoðað bygginguna, óski eftir að fá tækifæri til þess, og hafa ýmsir, sem fyrr var getið, heðið Vísi að koma óskum um þetta á framfæri. — Gerir Vísir það hér með, fullviss um, að ósk- um manna verður sint ,ef unt JúnsmessuhátíO i tvo daga. Gróða veðrið kemur eins og kallað. Hljómskálagarðurinn hefir tekið miklum stakkaskiftum í nótt. Fánar blakta allsstaðar umhverfis hann, veitinga- tjöld hafa verið reist og danspallur smíðaður. Alt er tilbúið til að taka á móti þeim mörgu Reykvíkingum, sem vilja styrkja hið góða málefni með því að sækja Jónsmessuhátíðina, sem á að standa í tvo daga. er. Langstökkið og 5 km. hlaupið í gær Langstökkið og 5 km. hlaupið fór fram í gær, eins og til stóð, langstökkið áður en leikur Fram og Vals hófst, en hlaupið í hálf- leik. í langstökkinu varð Jóhann Bernharð (K. R.) hlutskarpast- ur. Stökk hann 6.27 m., en Sig. ÞaÖ er eins og forsjónih hafi Iágt hiössuu síná ýfir þessi liá- tiðahöíd, |)ví áð gó'öa veðrið kemur einmitt, þegar undirbún- ingurinn undir þau byrjar þarna suðurfrá. Er því ekki rétt að fagna góða veðrinu um leið og Jónsmessunni með þvi að sækja skemtanirnar ? Eg held nú jxið, munu allir góðir menn segja. Veitingarnar, sem Verða þai’iia á boðstólum verða fjölbreyttar og góðar. Á það hefir verið lögð sérstök áhersla. Dagskrána liafa allir kynt sér í hlöðunum og vita því að hún er fjölbreytt, eitthvað fyrir alla. Sigurður Eggerz, bæjarfógeti, flytur ræðu, Ármenningar sýna glímu, karlakór syngur, Alfreð Norðdahl stökk 6.26. Þriðji var Sigurður Sigurðsson (í. R.), stökk 6.10 m. í 5000 m. hlaupinu fór þannig, að Sigurður Ársælsson (Á.) varð fyrstur á 16:14 mín., 2. Har. Þórðarson (S) 16:53.6 m. 3 sek. Indriði Jónsson (K. R.) 16:57.5 og 4. Evert Magnússon (Á) 17:23.0. Metið er 15:23.0, sett af Jóni Kaldal. Ándrésson skemtir og lúðra- sveitin Svanur leikur öðru hverju. Bæjai’völdin, sem lánað hafa Hljómskálagarðinn, hafa sýnt Reykvikingum mikið traust, þvi að þar sem mikill mannfjöldi er saman kominn á slikum stað, er altaf hætt við að einhver spjöll sé framin. En ef ménn fara var- lega, er engin liætta á sliku. Fólki er heimilt að vera á gang- stéttunum syðst og vestast í garðinum, þar sem húið er að slá grasið. Þar mega hörn leika sér eins og þau vilja, en aðrir geta legið þar í sólinni og látið hana baka sig. Framkvæmdanefnd starfsem- innar hefir gefið út skrautleg merki, sem alhr eiga að bera þessa tvo daga. Foreldi'ar eiga að hvetja börn sín til þess að selja þessi merki, en það á ekki að þurfa að livetja bæjarbúa til þess að kaupa þau, þeir eiga að gera það ótilkvaddir. Dagskrá skemtunarinnar á morgun verður dálítið breytt frá því sem er í dag.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.