Vísir - 27.06.1940, Blaðsíða 2

Vísir - 27.06.1940, Blaðsíða 2
VlSIR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar 1660 (5 línur). Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10 og 20 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Hermaðarsigrar íslendinga. STRÍÐSÞ.TÓÐIRNAR kunna að meta það, þegar lítil fleyta kemur heim úr liernaði og hefir orðið vel ágengt. Sjó- liðarnir verða að þjóðarhetj- um. Fánar eru dregnir að hún, bumbur barðar og lúðrar þeytt- ir. „Sko, þarna koma þeir, drengirnir okkar. Þeim tókst að sökkva stóru skipi með 350 manna áhöfn. Þeir lengi lifi!“ Og múgurinn ætlar af göflum að ganga yfir þessu hreysti- verki. Svona er nú heimurinn, þrátt fyrir alla okkar marglof- uðu nútimamenningu, að engin afrek komast í hálfkvisti við hernaðarafrek. Sá, sem gengur best fram í því að eyða verð- mætum óvinaþjóðar og fækka sonum hennar, er kjörinn ást- mögur sinnar eigin þjóðar. Við íslendingar erum vopn- lausir. Við eigum enga óvini. 12n við eigum okkar litlu fleyt- ur. Þær færa björg í búið, hæði okkur sjálfum og öðrum. Og slundum gera þær dálítið meira. 1 skammdeginu í vetur bjargaði íslenskur togari áhöfninni af þýska skipinu Bahiá Blanca, 60 —70 manns. Nú hefir annar ís- lenskur togari, Skallagrimur. bjargíið 350 manns, Þeir voru breskir. Þannig hafa báðar þær stórþjóðir, sem nú heyja hina ægilegustu baráttu, sem sögur fara af, notið góðs af litlu fleyt- unum okkar. Þetta er okkur fagnaðarefni, Við erum hlutlausir i styrjöld- inni. Okkur þykir vænt um, að geta dregið úr tjóninu og þján- ingunni, liver sem í hlut á. Við stundum ekki tortímingu. Við viljum fúsir bjarga, hvenær sem kostur er. Rás viðburðanna hefir hagað því svo, áð við höf- um með misseris millibili getað gert báðiun hernaðaraðiljunum sömu skil. Það er eins og for- sjónin hafi verið að hjálpa okk- ur til að sýna hlutleysi oklcar í verki. Við stöndum í þakkarskuld við þá, sem að björguninni standa, ekkert síður en stríðs- þjóðimar við þá, sem tortim- ingunni valda. Slíkir atburðir vekja athygli á hinni fræknu ís- lensku sjómannastétt. Við höf- um fulla ástæðu til að berja buinbur og þeyta lúðra. Reykja- vík hefir einhverntíma verið fánum skreytt af minna tilefni en því, sem björgunarafrek Skallagríms hefir nú gefið. Það hefir verið þröngt á Skallagrími, jiegar 350 manns höfðu bætst við á skipið. Þröngt mega sáttir sitja. íslendingar hafa aldrei talið eftir sér, að ganga úr rúmi, ef hrakta menn hefir borið að garði. Björgunarafrekin, sem unnin voru í vetur, og svo aftur nú, mega vel heita hemaðarsigur vor íslendinga. íslenski fáninn er ekki stríðsfáni. Við förum með friði, hvar sem við siglum. Sjómennirnir okkar verða ekki þjóðarhetjur á að sökkva skip- um og drepa menn. En þeir eiga skilið að verða þjóðarhetjúr fyrir að forða öðrum frá dauða. Þeir starfa í þágu lifsins, en ekki dauðans. Þeirra sigrar eru sígr- ar mannúðarinnar gegn tortim- ingunni. Við erum tómlátir íslending- ar. En væri ekki ástæða til þess að lieiðra þá menn, sem unnið hafa björgunarstörfin? Þeir hafa verið landi og þjóð til sóma. Þeir hafa unnið farsælt starf. Striðsþjóðirnar lieiðra þá, sem vinna hernaðarsigra. Björgunarafrekin eru okkar hernaðarsigrar, miklu glæsi- legri en nokkrir aðrir sigrar, sem í styrjöld eru unnir. Við eigum að sýna, að við kunnum að meta slíka sigra. Við eigum að fagna sigurvegurunum. Þeir hafa varpað ljóma á þjóð sina. Þeir eiga að vera okkar þjóðar- hetjur. a Tveir íslendingar haína boði frá „British Council“. Á síðastliðnu hausti bauð stofnun, er nefnist British Co- uncil, og vinnur að kynningu menningar Bretlands erlendis, tveimur íslenskum vísinda- mönnum til dvalar í Bretlandi, þeim dr. Einari Ól. Sveinssyni og Pálma Hannessyni rektor. Tóku þeir boði þessu þakk- samlega, en ýmsra orsaka vegna gátu þeir hvorugur kom- ið förinni við fyr en í vor. Frá því er þetta gerðist hefir inálum svo skipast, að afstaða Islands gagnvart Bretlandi ei- alt önnur en hún var, þar eð landið hefir verið hernumið af bresku liði. Hefir Vísir sann- frétt, að þeir vísindamennirnir liafa nú fyrir nokkru tilkynt þessari stofnun, að þeir geti ekki að svo konmu máli þegið hið góða boð. Prestasteínan hófst kl. 1 í dag. Prestastefnan hófst hér í bæn- um í dag kl. 1 með guðs- þjónustu í dómkirkjunni, en þar prédikaði síra Ilermann Hjart- arson á Skútustöðum. Presta- stefnan verður síðan sett kl. 4 síðd. í kapellu háskólans. Við setningu prestastefnunn- ar ávai-paði herra biskupinn, Sigurgeir Sigurðsson, presta og gaf skýrslu um starf hins síð- asta árs. Meðan prestastefnan stendur yfir verða flutt tvö erindi, er útvarpað verður. Síra Jón Auð- uns flylur fyrra erindið annað kvöld i dómkirkjunni, og nefn- ist það: „Kristindómurinn í dag“. Hitt erindið flytur síra Sigurbjörn Einarsson á Breiða- bólstað á föstudagskvöldið og nefnist það: „Vertu ekki hrædd, litla hjörð. Ennfremur flytur próf. Ásmundur Guðmundsson erindi fyrir synodusprestum, er hann nefnir „Grafarkirkjan í .Terúsalem.“ Aðalumræðuefni prestastefn- unnar að þessu sinni verður: Hlutverk nútímakirkjunnar, en þar hefir síra Bjarni Jónsson vígslubiskup framsögu. Hefjast umræður um þetta efni á föstu- dag og standa væntanlega yfir þann dag allan. Prestastefnunni lýkur á laug- ardag, en um kvöldið sitja prestarnir boð hjá biskupi. — Fjöldi presta er þegar kominn i bæinn og er talið að presta- stefnan verði mjög vel sótt að þessu sinni. Æskan, barnablaðið, er nýlega komið út. Er það fjölbreytt að efni, eins og venjulega og frágangur góður. Mesta björgunar- afrek ísL sægarpa Skallagrímur bjargar 350 skip- verjum af breska hjálparheiti- skipinu „Andania“ Þegar skipverjar á b. v. „Hafstein“ björguðu síðast- Iiðið haust skipshöfninni af þýska skipinu Bahia Blanca, sem fórst í ís undan Vestf jörðum, var það rétti- lega talið mesta björgunarafrek, sem íslendingar höfðu unnið. Nú hefir verið unnið annað björgunarafrek, sem tekur hinu fram — skipverjar á b.v. Skallagrími björguðu 350 breskum sjóliðum, er skipi þeirra hafði verið sökt með tundurskeyti. Tíðindamaður Vísis átti í morgun tal við Guðmund Sveins- son, skipstjóra á b.v. Skallagrími. Guðmundur lætur lítið yfir þessu afreki sínu og pilta sinna, finst það vera innifalið í dags- verkinu og óþarfi að vera að skrifa langar blaðagreinar um það. En slíkar afrekssögur eiga ekki að liggja í þagnargildi, enda er þetta einstakur viðburður og sjálfsagt að honum sé á lofti haldið. Fer liér á eftir frásögn Guð- mundar: „Við vorum á útleið, er við mættum stóra skipi, sem gaf okkur til kynna, að það vildi hafa tal af okkui’. Þetta var að morgni dags. Þegar skip stöðva okkur, spyrja þau venjulega, hvaðan við séum að koma, og hvert för- inni sé heitið, en að þessu sinni va.r brugðið út af þessari venju. Sagði skipstjórinn okkur, að Iiann hefði ástæðu til þess að ætla, að breskt skip hefði orðið fyi'ir kafbátsárás 40—50 mílur vestur af þeim stað, sem við voruin staddir á. Voi'um við beðnir að halda á vettvang til þess að reyna að bjarga skipshöfninni, ef því yrði við komið. Mun skipið, sem talaði við okkur, ekki hafa þótt óliætt fyrir sig að fara þangað, vegna kafbátahætlunn- ar, en auðvitað gat þetta verið alveg jafn bættulegt fyi'ir okk- ur. En liinsvegar gátunx við ekki neitað að verða við þess- ax’i hjálparbeiðni, snerum við og komum að hinu sökkvandi skipi eftir um fim.ni klukku- stunda siglingu. Veður var dágott, vindur að vestan 3 stig og nokkur und- ii’alda. Skipstjórinn á hjálpar- beitiskipinu, sem í-eyndist vera Andania (13.950 smál., smiðað 1922) vildi ekki yfirgefa skip sitt, kvaðst ekki mega það, með- an það væri enn ofansjávar. En það sökk smám saman og var horfið um kl. 7 um kveld- ið. — Komust allir skipverjar í bátana, fjórtán að tölu. Skip- verjar voru alls 350 eða 353 að tölu og komst eg aldrei að því, hvor talan var réttari. Tveir þeirra voru allsærðir og voru á sjúki’abörum. Björgunin tókst alveg slysa- laust, en engum bátanna var hægt að bjarga. Var engin leið að taka neinn þeirra upp, sakir þi-engsla. Þótti mér það þó súrt í brotið, því að tveir þeirra voru einkar fallegir og i'ennilegir vélbátar, eins og jieir, sein not- aðir eru til þess að flytja far- þega skemtiferðaskipanna, sem hér koma, milli skips og bryggju. Þegar allir voru komnir um borð hjá okkur og haldið var af stað, fór veðrið að versna, hvesti af suðvestan. Var Bret- /unum komið fyrir hvar sem var, jafnvel í kolaboxunum og á öllum hugsanlegum stöðum öðrum. — jafnvel inni í skáp- um. Við tjölduðum yfir „keis- inn“ og bátadekkið, svo að mennirnir gæti verið í skjóli þar, vélarúmið var fult af þeim, svo að ekki var hægt að þverfóta þar, lúkarinn var full- ur og sama var hægt að segja um hvern einasta stað á skip- inu. Hvergi var liægt að drepa niður fingri. Til allrar hamingju voru þetta vel agaðir sjómenn, því að annars liefði þetta ekki gengið jafnvel og raun ber vitni. Það liefði sannarlega verið öðru máli að gegna, ef við hefðum orðið að bjarga fólki af farþega- skipi. Skipstjórinn breski sagði mér, að þeir hefði aldrei kom- ið auga á kafbátinn og §kip- verjar myndi varla hafa vitað, hvaða skip það var, sem þeir söktu. Kvaðst hann gera ráð fyrir, að skotið hefði verið á skipið úr 4000 feta færi. Eitt tundurskeyti hæfði, en auk þess komu skipverjar auga á loftrákir úr þrem tundurskeyt- um, sem mistu marks. Um daginn fylgdist Súnder- land-flugbátur með okkur um líma, en daginn eftir hittum við tundurspilli. Var þó eklci strax iiægt að hugsa um að koma mönnunum um borð í hann vegna veðurs og voru Bretarnii' um borð hjá okkur í 36 klukku- stundir. Allan þann tíma var ekki hægt að elda neinn mat, og var aðeins liægt að liita le og kaffi. En hresku sjómennirnir liöfðu kex í fórum sinum, sem verið Iiöfðu í skipshátunum svo að enginn þurfti að svelta. Loks batnaði þó veðrið og var þá ákveðið að reyna að koma Bretunum um borð í tundur- spillinn. Tókst það ágætlega, en Aðalfundur Prestafélags Is- lands fór fram í gær. Hann hófst kl. 9'/2 árdegis með guðræknis- stund í kapellu Háskólans. Talaði þar fv. prófastur sira Ólafur Magnússon frá Arnar- bæli, og sálmar voru sungnir á undan og eftir. Var þessi stund í hinum fagra og bjarta helgi- dómi Háskólans liátíðleg og á- hrifarik. Síðan var fundur settur i ein- um af kenslusölum Háskólans, og er það fyrsta samkoman í Háskólabyggingunni nýju eftir vígslu hennar. Gat formaður fé- lagsins, próf. Ásm. Guðmunds- son, þess, er liann setti fundinn, og óskaði þess að það mætti reynast góð Spá og fagur fyrir- boði um framtiðarstarfið í þess- ari miklu mentabyggingu. Fundarritarar voru skipaðir próf. dr. Magnús Jónsson og sr. GUÐMUNDUR SVEINSSON það var ekki fyrri en þeir voru komnir um borð þangað, að okk- ur varð ljóst livílíkur feikna fjöldi liafði verið um borð hjá okkur. Það var hlátt áfram ótrúlegt, að allir þessir menn slcyldu hafa komist fyrir í litla skipinu okk- ar, enda hafði breski skipstjór- inn orð á þvi við mig. Fór hann síðastur frá borði og sagði áður en hann fór: „Hvar höfum við eiginlega getað komið öllum þessum mönnum fyrír?“ Var það að undra þótt hann spyrði? Þegar Bretarnir voru komnir um horð í tundurspillinn, kvöddu þeir okkur með húrra- hrópum og hélt hann síðan á brott, en við hélduin leiðar okk- ar.“ Lýkur hér frásögn Guðmund- ar og munu allir á eitt sáttir um, að hér hafi verið unnið afrek, sem á lofti mun vera, meðan ís- lendingar sækja sjóinn og leggja ótrauðir til baráltu við ægi til þess að draga björg í bú. í breskum fregnum hefir verið skýrt frá því, að kafbátur- inn liafi komið upp tvisvar. í síðara sinnið skutu skyttur Andania á liann og liæfðu turn- inn. Sprenging varð í kafhátn- um og fórst hann. — Öllum skipverjum á Andania var bjargað, en ekki greint frá livaða skip gerði það. Árni Sigurðsson fríkirkjuprest- ur. ■—- Þá flutti formaður ársskýrslu félagsins, skýrði frá ýmislegrí starfsemi í þarfir prestastéttar- innar, útgáfustarfsemi o. s. frv. Síðan las féhirðir, sr. Helgi Hjálmarsson, ársreikning fé- lagsins og skýrði liann. Sýndu þau reikningsskil batnandi fjár- liag Prestafélagsins. M hóf formaður umræður um útgáfu nýrra prestahug- vekna. Eftir stuttar umr. var fundi frestað til kl. 2. Eftir fundarblé hóf próf. Magnús .Tónsson umræður um kirkjuþing. Hafði nefnd innan félagsins liaft málið til með- ferðar og samið frnmvarp til laga fyrír kirkjuþing. Þá hafði og síðasti aðalfundur Prestafé- lagsins liaft frumvarp þetta til meðferðar og samþykt ályktan- Aðalfundur Prestafélags íslands. ir um nokkur höfuðatriði máls- ins. Eftir ræðu frummælanda hófust fjörugar og góðar urn- ræður. Var að þeim loknum samþ. svofeld ályktun í einu hljóði: „Fundurinn felur stjórn Prestafélagsins að undirbúa kirkjuþingsmálið og vinna að framgangi þess með liliðsjón af tillögum nefndáxinnar og um- ræðum þeims sem farið liafa fram um málið.“ I barnaverndarráð var endur- kosinn próf. Ásmundur Guð- mundsson. Þá liófust aftur uniræður um útgáfustarfsemi og tók fjöldi fundarmanna þátt í þeim. Sam- þykt var í umræðulok svofekl tillaga: „Fundurinn felur Prestafé- lagsstjórninni að lierða á söfn- un efnis í prestaliugvekjur á þessu ári, með það fyrir augum, að bókin verði gefin út við fyrstu hentugleika.“ Þá var borin upp og sam- þykt svofeld ályktun: „Fundurinn er mjög hlyntur þeirri liugmynd, sem fram hefir komið, að kristindómsfræðsla barna verði falin völdúin sér- kennurum, eftir því sem við verður komið. I þvi sambandi leyfir fundurinn sér að æskja þess af fræðslumálastjóminni, að hún lilutist til um það, að kennaraefnum eða kennurum, verði veittur kostur á aukinni mentun í kristnum fræðum við guðfræðideild Háslcólans eða á framhaldsnámskeiðum, við Kennaraskólann.“ Loks bar séra Gísli Skúlason prófastip- fram í tillöguformi ósk um það, að Prestafélags- stjórn undirbúi þær breytingar á prestskosningalögunum, sem brýna nauðsyn ber að gera. -— Tólcu fleiri fundarmenn undir þetta mál, og var svo félags- stjórn falið að atliuga það og undirbúa. Þá var komið að stjómar- kosningu. Var núverandi sjórn Prestafélagsins endurkosin I einu hljóði, en hana skipa: ÁSmundur Guðmundsson prófessor, Dr. tlieol. Magnús Jónsson prófessor, Friðrik Hall- grímsson prófastur, Árni Sig- urðsson fríkirkjuprestur og sr. Guðmundur Einarsson á Mos- felli. Endui’skoðendur voru og endurkosnir, þeir Þorsteinn Bríeni prófastur og Kristinn Daníelsson præp. hon. Að svo búnu var fundinum slitið með kveðjuorðum for- manns, próf. Ásmundar Guð- mundssonai’ og fagurri guð- íæknisathöfn undir stjórn hans í kapellu Háskólans. Fundinn sóttu rúmlega 40 andlegrar stéttar menn, og fór liann liið besta fram og án þess að yfir honum livildi nokkur drungi vegna þess ástands, er nú ríkii'. Bar hann þess vott, að þjónar kirkju íslands vilja geyma og muna orð frelsarans, er lesin voiu fyrir þeim í fund- ar’ok: „í heiminum hafið þér þreng- ingar, en verið hughraustir, eg hefi sigrað heiminn.“ Á. S. Gullhrirgaþjðfurinn fnndinn. Um miðjan marsmánuð s.l. var 36 gullliringum stolið úr sýningarglugga Árna B. Björns- sonar í Austurstræti. Fjórir liringanna fundust daginn eftir á götunni, en 32ja hringa var saknað. Nú liefir rannsóknarlögi’egl- an haft uppi á þjófnum. Er það 18 ára gamall piltur, sem liafði verið drukkinn að reika um göturnar umrædda nótt. Hefir hann ekki komist í kynni við lögregíuna áður. Þegar eftir þjófnaðinn leit-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.