Vísir - 27.06.1940, Blaðsíða 3
lil IiMb oo lonms
um Hvalfjörð, Dragháls og Skorradal eru bílferðir fimtudaga
kl. 9 f. h., laugardaga kl. 2 e. h. og mánudaga kl. 11 f. h.
FRÁ BORGARNESI: Þriðjudaga og föstudaga kl. liy2 f. li.
og sunnudaga kl. 6 e. h.
Afgreiðsla í Borgarnesi: Hótel Borgarnes. Simi 19.
BIFREIÐASTÖÐIN HEKLA. — Sími: 1515.
Aðalíundur
SfeófjpaelctapFélsgs íslaiids
veröur haldinn að Laugarvatni þann 29. júní 1940 kl.
4 e. h,
Dagskrá samkvæmt ielagslögum.
Þeir ,sem kynnu að vil ja fara úr Reyk javík, geta til-
kynt þátttöku sína á skrifstofu skógræktarstjóra, sem
annast farkost fvrir sanngjamt verð.
STJÓRNIN.
Verksmiðjarnar á
Barðnsstig 2
eru lokaðar á morgrun, föitu-
flag frá faádeg:l9reg:na jardar-
farar.
H.f. Hreinn
H.f. Brjðstsyknrsgerðin Nöi
H.f. Súkkulaðiverksmiðjan Síríns
Ársfundur
Verslnnarráðs tslands
verður haldinn í Kaupþmgssalnum í Reyk javík föstu-
daginn 28. þ. m. og hefst kJ. 14.
Þátttakendur utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
sæki aðgöngumiða að fundinum í skrifstofu Verslunar-
ráðsins.
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS.
Laxanet
og
Siliiiiganet
allar stærðir nýkomnar.
GEYSIR VEIÐARFÆRAVERSLUN
Ensk fataefni
nýkomin í fjölbreyttu úrvali.
G. lljiti'iiason «& Fjeldited e. m.
Aðalstræti 6.
Sundnámskeið
hefjast að nýju í Sundhöllinni mánudaginn 1. júlí. Þátttakend-
ur gefi sig fram í dag og á morgun kl. 9—11 f. h. og 2—4. —-
e. h. Uppl. á sömu tímum í síma 4059.
Ath. Að gefnu tilefni skal þess getið, að ekki verður hægt að
lialda námskeið í Auslurbæjarskólannm í sumar.
Sundliöll ReykjavíkiiF.
VISIR
Fyrsta útiskemtnn
i snmai'.
Varðarfélagið gengst fyrir úti-
skemtun að Eiði n.k. sunnudag.
Næstkomandi sunnud. halda
sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
og Hafnarfirði fyrstu útiskemt-
un sína á sumrinu að Eiði. Er
það landsmálafélagið Vörður,
sem hefir allan undirbúning að
skemtuninni með höndum að
þessu sinni.
Tíðarfarið liefir verið frá-
munalega leiðinlegt það sem af
er, og því ekki fært að -lialda
útiskemtanir, og má því búast
við að Reykvíkingar grípi þetta
tækifæri fegins hendi til þess að
hrista af sér göturyk og óholl-
ustu höfuðstaðarins og fjöl-
menni að Eiði á sunnudaginn.
Skenitanir, sem þarna verða
á boðslólum, verða margar og
margvíslegar, þrjár ræður verða
fluttar af þjóðkunnum ræðu-
snillingum og forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins, Lúðra-
sveitin Svanur leikur, söng-
flokkur syngur og íþróttasýning
fer fram, en að lokum verður
dans stíginn fram eftir kveldi,
Valur vann K.2L
4:0
U rslitin í leik Vals og K. A. í
gærkveldi gefa alls ekki
rétta hugmynd um styrkleika-
hlutföllin í liðunum. Yfirburðir
Vals voru ekki eins miklir og
þessi mikli munur gefur í skyn.
Valur kaus að leika undan
norðankalda í fyrra hálfleik og
tókst að setja þrjú m,örk áður
en honum lauk. Tvö þeirra
marka hefði vel þjálfaður og
öruggur markvörður átt að geta
varið mjögj hæglega. (Eitt
markanna gerði vinstri hak-
vörður K.Á.). Það verður að
segja það eins og er, að mark-
vörðurinn er liættulega veikur
maður á jafn ýeigamiklum
stað.
K.A. gerði nokkur upplilaup,
en fylgdi þeim ekki nógu fast
eftir, svo að þau urðu fljótlega
að engu og komst Valsmarkið
aldrei í verulega hættu.
Framherjar Vals voru eld-
fljótir, eins og venjulega, en þá
hrast oftast samleik til þess að
reka smiðsliöggið á úrslitin.
í siðara hálfleik lá að mestu
á Val og fékk Hermann ærið
nóg að gera, en K.Á. tókst aldrei
að koma neinu vérulega hættu-
legu skoti á mark. Valsmenn
gerðu mjög hættuleg upphlaup
og tókst loks í því síðasta að
skora, á síðustu mínútu.
Nokkuru áður en Ieikurinn
var á enda skullu þeir saman
Frímann og Helgi Schiöth og
sprakk fyrir á vinstri augabrún
á háðum.
Leikur K. A. var líkur og Ieik-
urinn við Víking. Sanileikurinn
var góður á köflum, en liðið
gætir þess ekki nógu vel, að
„dekka upp“ andstæðingana.
hep.
aði pilturinn til kunningja síns
og hað liann aðstoðar til að
koma hringunum i verð. Höfðu
þeir uppi á háseta einum, er
var í förurn milli Englands og
Islands. Tók hann að sér að
selja hringana í Englandi, en
fékk lítið verð fyrir þá þar og
breytti andvirðinu í bjór og á-
fengi, svo að eftirtekjan mun
hafa orðið ærið rýr fyrir þjóf-
inn.
Hringarnir voru samtals um
1200 króna virði.
og leikur hin vinsæla hljómsveit
Péturs Bernburgs undir dansin-
um.
Veitingar verða á staðnum og
getur fólk fengið þar keypt öl
og gosdrykki, sælgæti eða vind-
linga, kaffi eða te, alt eftir þvi
hvað hver kýs, þannig að séð
er fyrir vellíðan fólks að þvi
leyti. Aðalatriðið er að fólk geri
sitt til að gera skemtunina sem
ákjósanlegasta, og Reykvíking-
ar og Hafnfirðingar hafa aldrei
látið hlut sinn eftir liggja í því
efni.
Skemtanirnar að Eiði eru að
almanna dómi þær bestu, sem
haldnar eru hér í grend við höf-
uðstaðinn og svo mun enn reyn-
ast á þessu sumri, ef veður verð-
ur sæmilegt, en öll önnur skil-
yrði eru fyrir hendi að öðru
leyti.
Bæjop
íréffír
Frost á hverri nóttu.
Hætt er við, að kuldar þeir, sem
yfir landið hafa gengið síðustu sól-
arhringana, kippi mjög úr gras-
vexti og’ að spretta verði rýr, ef
þessu fer fram. Sagði svo maður
nokkur úr Árnessýslu ofanverðri,
sem hér var á ferð i gær, að frost
hefði verið í uppsveitum á hverri
uóttu nú að undanförnu.
Hjónaefni.
Á laugardagskvöidið opinberuðu
trúlofun sína Finnborg Örnólfsdótt-
ir og Árni Þ. Egilssoh loftskeyta-
maður.
Hjónaefni.
Opinlierað hafa trúlofun sina
ungfrú Rósa Ágústsdóttir, Lauga-
veg 42 og Guðmundur Kristjáris-
son frá Vestmannaeyjum.
C'thlutunarskrifstofan
vill að gefnu tilefni áminna fólk
um að gæta raatvælaseðla sinna
vandlega. Skrifstofan getur ekki af-
hent seðla i stað þeirra, sem týn-
ast, þar eð slíkt gæti komið í um-
ferð stofnum, sem ekki eiga að vera
það.
Skopleikurinn
„Stundum og stundum ekki"
verður sýndur 5 síðasta sinn annað
kvöld og hefst sala aðgöngumiða
W. 4 í dag.
Kapt. Hilmar Andresen
frá Hjálpræðishernum hefir
fengið kveðjuskipun héðan og mun
bráðlega taka við stjórn Hjálpræð-
ishersins í Færeyjum. Kveðjusam-
komur kapteinsins verða haldnar i
dag og á sunnudag.
Næturlæknir.
Björgvin Finnsson, Laufásveg
11, sími 2415. Næturvörður er í
Reykjavikur apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Aðalfundur Í.S.Í.
verður haldinn í kvöld, fimtudag,
og hefst kl. 8.30 i Varðarhúsinu.
Fulltrúar mæti með kjörbréf.
Til fátæku konunnar,
afhent Visi: 5 krónur frá J. O.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 100 kr. frá Þ.
Áheit á Hallgrímskirkju
í Saurbæ, afhent Vísi: 5 kr. frá
Á- J.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19,30 Hljómplötur: Lög eft-
ir Joh. Svendsen. 20.00 Fréttir.
20.30 Frá Ferðafélagi Islands. 20.35
Útvarpshljómsveitin: Lög úr óper-
unni „Madame Butterfly", eftir
Puccini. 21.00 Synódus-erindi i
Dómkirkjunni: Kristindómurinn í
dag (sira Jón Auðuns, fríkirkju-
prestur í Hafnarfirði).
• m
L0GTAK
Eftir kröfu Sjúkrasamiags IkvkjavfiEun <itg]
að imdangengnum úrskurði, uppkveðrram? nj
dag, og með tilvísan til 88. gr. Jaga um alþýðu-
tiTfíííjngar nr. 74, 31. des. 1937, sbr. SCL gpv «ig
42. gr. sömu laga, sbr. iög nr. 29,16. des. 1885,
verður án frekari fyrirvara löglak látið I'ram
fara fyrir öllum ógreiddúrp iðgjöldmu til
Sjúkrasamlagsins, þeim er féllu í gjalddagp. H
i
i
i
mars, 1. apríl, 1. maí og 1. júní s. 1., að átta (iög- j
um liðnum fra birtingu þessarar auglýsíngai
verði þau eigi gi'eidd innan þess tíma.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 26. júní 1940..
BJÖRN ÞÖRÐARSON.