Vísir - 02.07.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 02.07.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. kæð). 30. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 2. júlí 1940. Ritstjóri Qlaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S línur Afgreiðsla 149. tbl. Rússar hafa nú lagt undir sig Bessarabíu og norður- a e .. hluta Bucovina. Þjóðariorg: í Rúmcníu. — Arekstrar á Isiiirfa- mæiiiin Rúmeniu og- Ungverjalands, en nugver§ka iljóiiiin hefir frestað að taka ákvörðnn um almenna hei'væðingn. 3EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. I]^regnir frá Bukarest herma, að rúmenska herforingjaráðið hafi tilkynt, að Rúss- ar hafi haldið áfram að leggja undir sig Bessarabiu allan daginn í gær. Áður hafði verið tilkynt, að þeir hefði allan norðurhl. Bucovina-héraðs á sínu valdi. Til nokkurra árekstra kom milli Rússa og Rúmena, einkanlega í Bessarabiu, vegna þess að framverðir Rússa sóttu hraðar fram en Rúmenar gátu haldið undan. Sennilega hafa sumar fregnir, sem af þessum árekstrum bárust, verið ýktar, svo sem að til mikill- ar orustu hafi komið. Hinsvegar er víst, að árekstrar þeir, sem urðu, hafa ekki haft neinar stórkostlega alvarlegar afleiðingar í för með sér, og rúmenska herforingjaráð- ið tilkynnir, að öll ágreiningsmál hafi verið farsællegatil lykta leidd með samkomulagi. í morgun tilkynti útvarpið í Moskva, áð öll Bessarabia væri á valdi Rússa, en rúm- enska stjórnin ákvað á fundi sínum í gær, að „á miðvikudag 3. júlí, þegar seinustu rúmensku hermennirnir fara úr Norður-Bucovina og Bessarabiu, skuli vera þjóðar- sorg um gervalla Rúmeníu.“ Innanríkisráðherra Rúmeníu kunngerði í gær, að alger kyrð v&ri ríkjandi um alla Rúmeníu, og brottflutningur rúmenskra manna frá Bessarabiu og Bucovina, sem óskuðu að fara þaðan, hefði gengið vel eftir atvikum. Hefir stjórnin eftirlit með öllum • * rur PUNDIÐ HÆKKAR í NEW YORK. Undanfarið hefir verð ster- lingspundsins farið mjög hækkandi í New York. Sam- kvæmt símskeyti til blaðsins er síðasta verð $3.99 á móti pundi, en það samsvarar kr. 26.00, j>egar lagt er til grund- vallar gengi hér á dollar (kr. 651.65). Lítur þvi út fyiár að pundið muni bráðlega kom,- ast í sama verð í New York og það er hér nú, eða $4.03, en það verð er lagt til grund- vallar fvrir núverandi gengi pundsins liér, samkvæmt á- kvörðun, sem tekin var fyrir skömmu. vinnulausir, á 'móti 50 þús. i maí 1,4 (fyrra. Þjóðverjar hafa reynt að nota sér neyð Dana til að nota danskan vinnukraft við hergagnaiðnað sinn, en það lief- ir viljað ganga illa, vegna þess að meginliluti danskra verka- manna hefir fylgt sósíalistuni að málum og er mjög andvígur nasistum. fólksflutningum. Til nokkurra árekstra kom í gær á landamærum Ungverja- lands og Rúmeniu, en þetta voru landamæraskærur að eins, og var tala særðra um 30, en 3 menn féllu. Fregnir í gær hermdu, að ungverska stjórnin hefði sent aukið lið til landamæranna. Þótti ískyggilega horfa í gær. Var ungverska stjórnin á fundi í gærkveldi, og lauk honum kl. 10.30, en hann hafði þá staðið í 4 klst. — Að því er United Press fregnaði var frestað að taka nokk- ura ákvörðun um almenna hervæðingu að svo stöddu. Ennfrem- ur var tekið til athugunar hvort skilyrði væri fyrir hendi til þess að ná samkomulagi um, að beggja megin landamæranna væri kílómeters breitt svæði, þar sem engir hermenn væri, til þess að forðast frekari árekstra. Nokkurar æsingar urðu í Ungverjalandi og hallast ýmsir að því, að, Ungverjar hef jist handa og knýi fram kröfur sínar um Tran- sylvaniu, en aðrir hallast að því, að öll deilumál verði leyst með friðsamlegu móti. Rúmenska stjórnin hefir hafnað samkomulagi því, sem gert var er Frakkar og Bretar á- byrgðust sjálfstæði Rúmeníu, og lofuðu að koma þeim til hjálpar, ef ráðist væri á land þeirra. Utanríkismálaráðherra Rúm- eníu lýsti yfir því í gær, að Rúm- enar myndi taka upp aðra stefnu i utanríkismálum en áður. Bretar segja, að „uppsögnin“ Tiafi verið óþörf, þvi að hér haf' ekki verið um samkomulag að ræða, sem var bindandi fyrir þá, heldur fyrir Frakka og Brela sameiginlega. Bretar sitja ekki auðum höndum, verði ráðist á Sýrland. Breska stjórnin tilkynti í gær, að hún gæti ekki leyft að Sýr- land verði hernumið af nokkurri þjóð, sem fjandsamleg er Bret- um, né heldur að landið verði notað sem hernaðarbækistöð til árása á þau nágrannalönd, sem Bretar hafa skuldbundið sig til þess að verja. Bretar munu heldur ekki láta það afskifta- laust, ef þar yrði slíkt ástand ríkjandi, að nágrannalöndunum gæti stafað hætta af. í yfirlýsingunni er það tekið frain, að breska stjórnin skilji yfirlýsingu Mittelhaussers her- foringja á dögunum ekki á þann veg, að Frakkar myndi ekki gera tilraun til þess að verja landið, ef til innrásar kæmi, en þar fyr- ir vildi Bretar taka skýrt fram aðstöðu sína, til þess að enginn þvrfti að vera í vafa um hana. Mittelhausser liafði lýst yfir því, eins og menn muna, að vopna- viðskifti væri til lykta leidd, að því er Sýrland snerti. Stjórnmálamenn í London líta svo á, að þegar utanrikis- málaráðherra Rúmeníu hoð- aði í gær, að tekin yrði upp ný stefna í utanríkismálum, að með þessu sé raunverulega boð- að, að Rúmenar muni framvegis hlíta leiðsögu Þjóðverjaogítala. Er á það bent i þessu sambandi, að afstaða Ungverja breyttist skyndilega í gærkveldi. Yar engu líkara i gær siðdegis en að al- menn hervæðing yrði fyrirskip- uð, en svo fór, að alt önnur stefna var tekin, svo sem greint hefir vexáð liér að ofan. Sumardvöl bama. Samskotin til sveitardvalar barnanna gengu vel, svo að nú eru komnar inn um 10 þúsund krónur í frjálsum samskotum. London í morgun. Breska hlaðið „Economist“ birtir grein, sem ixefnist „Her- nám Danmerkur", og farast þvi m. a. orð á þessa leið: „Þegar Dannxörk var lier- numin, 9. aixríl, var hún í einu velfangi rænd tveim þriðju lilutum liins venjulega útflutn- ings síns og meir en helmingi síns nauðsynlega innflutnings. Tveir þriðju lilutar útflutnings frá Danmröku fóru til Eng- lands, enda var hún þriðja í röðinni af viðskiftalöndum Englands í Evrópu, miðað við vörumagn. Nú er Danmörk orð- in viðskiftalega og pólitískt nokkurskonar hluti af Þýska- landi. Danskur landbúnaður hefir nxist af iixixflutixingi á nauðsjnlegum hráefnum úr vesturátt, tilbúnunx áburði og fóðui-hæti. Það var fyrirsjáan- legt, að Dannxörk yrði, þegar til lengdar léti, Þýskalandi til byrði, enda er það nú konxið á daginn, að danskir bæixdur hafa þegar byrjað að slátra 3 miljón- um svína og 28 miljónum hænsna, enda er ekki unx annað að gei’a, þvi að of seiixt er að bíða þess, að fóðurskorturinn fari að vei’ða tilfinnaixlegur. Þar til landið var hernumið voru flestir danskir bændur sameinaðir í sanivinnufélögunx. Nú hefir lxerixámið gert það að verkum, að félögunx þessum liggur við upplausn, því að bændurnir slciftast íxú i and- stæða flokka, þá sem fylgja íxasistuixx, og hina, sem eru þeim andvígii’. Atvinnuleysi hefir aukist mjög í Danmörku. I maímánuði voru mxx 116 þúsuixd manns at- í gær söfnuðust um 3 þús. kr. Fyi’sti hópurinn, 150—160 börn, lagði af stað i morgun og fór Sigurður Thoi’lacius með börnunnum. Verða þau tvo mánuði í burtu. Það hafa enn ekki borist áreiðanlegar fregnir um franska flotann, t. d. liina nxiklu frönsku flotadeild, sem er i austurliluta Miðjarðarliafs. Það liafa engar fregnir verið birtar um livaða afstöðu lxún muni taka, — þ. e. að hlýða fyrirskipunum frönsku tjórnarinnar í Bordeux, eða ganga í lið með liinum „frjálsu Frökkum“, sem safnast sanxan undir merki De Gaulle herfor- ingja. — Hann hefir nú fengið kunnan franskan flotaforingja í lið með sér, og sett hann yfir herskip, senx franska þjóðnefnd- in i London kann að fá á sitt band. Hefir flotaforinginn skip- að öllum frönskum herskipum og flutningaskipum að halda til flotahafna Frakka, sem vilja halda stríðinu áfram, eða til breskra flotahafna. — Getur ]xað liaft hin mikilvæg- ustu áhrif hvaða afstöðu hin' fi’önsku flotaforingjar taka. — Boðhlaup umhverfis Reykjavík. Boðhlaup Ármanns umliverf- is Reykjavik verður háð i dag, og liefst á íþróttavellinunx kl. 8.30. 1 boðhlaupinu taka þátt 4 sveitir, tvær frá Ármann, ein frá 1. R. og ein frá K. R. 1 hverri sveit eru 15 manns svo keppendur eru alls 60 tals- ins. Kept er um Alþýðublaðs- liornið, en handhafi þess er Glínxufél. Ármann. Hlaupið endar í Iþróttavellinum. Að- gangur er ókeypis. HVERGI HRÆDDUR HJÖRS í ÞRÁ. — Þannig leit Winston Churchill út í augunx teiknara Daily Mail, liegar hann tók við forsætis- og landvarnaráðherraenxbættunum nýlega. 12 menn bidu bana9 en 18 sæfðust í loftáFásum Þjóð- verja á Bpetland í gær, EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. Öryggisnxálaráðuneytið breska tilkynti í morgun, að 16 menn hefði beðið bana, en 18 særst í loftárásum þeim, sem Þjóðverjar gerðu á Bretland í gærkveldi. Flugvélar Þjóðverja voru á sveimi yfir norðausturhluta Skot- lands og varð manntjónið aðallega í borg einni þar á ströndinni. Kom sprengikúla niður í húsaröð og fórust þar 12 manns, þar af 4 börn sem voru að leika sér á götunni. í fyrri tilkynningum segir, að óvinaflugvélar hafi flogið inn yfir suðvesturströndina skömmu fyrir miðnætti. Sprengjum var varpað á ýmsa staði við Bristolsund, en lítið tjón varð af. Fjórir menn særðust, en enginn alvarlega. Fjórar þýskar flugvélar voru skotnar niður við Bretland í gær. t SisorQor SisurOssðo búnaðarmálastjóri andaðist hér í bænum seinni hluta dags í gær. Þessa merka manns og brauti’yðjanda i land- búnaðarmálefnum verður nán- ar getið hér í blaðinu siðar. Sildin: UestðR ston oo eooin ueili. Einkaskeyti til Vísis. Siglufirði í morgun. ÍLUVERÐ sild kom upp fyrir austan Grímsey í gær- kveldi. Þar voru allmörg skip, og fengu þau slatta. í morgun er vestan stormur á miðunum, svo að tekið hefir fyrir veiði i bih. Nokkur skip liafa komið til Siglufjarðar í nótt og í nxorg- un með síld: Garðar frá Vest- mannaeyjum kom með 750 nxál, Björn 400, Fróði 400, Sæfinnur 100, Freyja úr Reykjavík 100 mál. Frevja kom með sprengda Sílil i, Bakkfirði og Vopnafirði. Gott veiöiveöur. Fréttaritari Vísis i Neskaup- stað símar blaðinu, að skip hafi fengið sæmilegan sildarafla á Bakkafirði og Vopnafirði i gær og í nótt. Þannig fékk t. d. Boðasteinur frá Færeyjum 700 mál á Bakkafirði. Mörg skip eru þarna að veiðuni og munu flest þeirra hafa fengið einhvern afla. Ekki verður þó sagt, að mikið sé enn um sild eystra, en hún veður í hnöppunx og fást því góð köst. Fékk t. d. Boðasteinur 600 mál í kasti. Síldin er frekar horuð, en hinsvegar er hún full af rauðátu og telja sjómenn veiðiútlitið gott. Veður er mjög sæmilegt á miðunum eystra. Vindur litill og sólskin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.