Vísir - 06.07.1940, Side 1

Vísir - 06.07.1940, Side 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Féiagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S línur Afgreiðsla ¥inátta og' ^amvinnubönd Frakka og: Breta rofin. Franska sljórnin slítnr stjórnnuilasamkandi viö Itresku stjórnina. Ahöfnnm frauskra herskipa f^rirskipað að sökkva þeim frekar en láta þan falla 1 lieudur Breta.—I Frakklandi sveigist æ meira í einræðisátt. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. amvinnu Bretlands og Frakklands er lokið. Frakkneska stjórnin hefir slitið stjórnmála- sambandi við bresku stjórnina og kallað heim ræðismenn sína í breskum löndum. Jafnframt hefir áhöfnum franskra herskipa verið fyrirskipað að sökkva herskipunum heldur en láta þau falla í hendur Breta. J>að hefir komið æ bétur í ljós að undanförnu eða síðan er só stefna varð ofan á meðal franskra stjórnmála- manna að sernja við Þjóðverja og ítali, að í Frakklandi stefnir æ meira í einræðisátt. Það hefir vakið hina mestu furðu f Öllum lýðræðislöndum, að í Frakklandi — landi lýðræðis og frelsis — skyldi þessi stefna verða ofan á, og það er dregið mjög í efa, að þeir menn, sem nú fara með völdin, hafi þjóðina að baki sér. En það er nú kom- ið I Ijós eins skýrt og verða má, að allri samvinnu er slit- ið milli þeirra manna, sem nú ráða í Frakklandi, og Bretlands, en til skamms tíma var álitið örugt víðast hvar, að Bretar og Frakkar myndi láta eitt yfir báða ganga — hin „hefðbundna vinátta Breta og Frakka“ myndi haldast um langa framtíð. Bretar gerðu sér fram á síðustu stund hinar bestu vonir um, að takast mundi að afstýra því, að Frakkar gæfist upp, með því að leggja fraui tillögur sínar um breskt-franskt samríki. En allar vonir Breta í þessum efnum hafa brugðist, nema ein. Þeir halda enn í þá von, að hinir „frjálsu Frakkar“, þ. e. þeir Frakkar, sem vilja halda áfram baráttunni, hafi frönsku þjóðina með sér og það muni ráða úrslitum uir* síðir, — þegar sigur vinnist í styrjöldinni verði stefna hinna frjálsu Frakka ofan á í styrjöldinni, og þá takist aftur að koma á bandalagi milli Breta og Frakka. Það var Pierre Laval, fyrrverandi ráðherra, sem skýrði frá því í gær í Vichy í Frakklandi, að franska stjórnin hefði slitið stjórnmálasambandi við Breta, vegna árásanna á franska flot- ann. í Vichy eru saman komnir um 50 þingmenn öldungadeildar þjóðþingsins. til þess að ræða hina nýju stjómarskrá Frakk- lands, stjórnarskrá „fjölskyldunnar og föðurlandsins“, sem Bretar segja að sé í fascistiskum og nazistiskum anda. Með breytingunni á stjórnarskránni er ríkisstjóminni veitt mjög aukið vald. Boudoin, utanríkismálaráð- herra frönsku stjórnarinnar, hefir haldið ræðu, sem hefir vakið mikla gremju í Bretlandi, og telja breskir stjórnmála- menn hana hina ódrengileg- ustu. I ræðu þessari ber ráð- herrann þær sakir á Breta, að her þeirra í Frakklandi hafi liugsað um það fremst af öllu að komast undan til hafnanna við Ermarsund og heim, og notið verndar frönsku hersveit- anna á undanháldinu. Ennfrem- ur notaði Boudoin tækifærið til þess að rifja upp ýmislegt úr sambúð Fralcka og Breta hin síðari ár, og henda ummæh Boudoin til þess, þrátt fyrir alt, sem sagt hefir verið um bresk- franska einingu,aðýmsirstjórn- málamenn Frakka hafi undir niðri verið óánægðir með sam- vinnuna, þ. e. þeir menn, sem nú hafa náð völdunum og fylg- ismenn þeirra. Áður var altaf talið, að alger eining hefði ver- ið rikjandi um sameiginlega af- stöðu Breta og Frakka. Boudoin sagði m. a., að það hefði verið Bretar, sem réðu því, að það varð ofan á, að beita refsiaðgerðum gegn ítalíu, en þátttaka Frakka i þeim hafi Breska stjórnin mótmælir ræðu Baudoin. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Upplýsingamálaráðuneytið breska hefir birt tilkynningu í tilefni að ræðu Baudouin franska utanríkismálaráðherrans. I til- kynningunni segir, að hinar óheiðarlegu staðhæfingar Baudouin hafi vakið furðu bresku stjómarinnar. I tilkynningunni er það tekið fram, að menn verði að hafa það hugfast, að þessar stað- hæfingar hljóti að hafa verið bornar fram opinberlega með samþykki Petain-stjórnarinnar og hinna þýsku og ítölsku hús- bænda hennar. Þá segir í tilkynningunni, að þegar franska stjórnin, þrátt fyrir hátíðlega gefin loforð og skuldbindingar hafi gefist upp fyrir Þjóðverjum, hafi verið augljóst, að hún hafi frá þeirri stundu gengið, í þjónustu þessara möndulvelda? Nú sé hinsvegar svo komið, að erfitt sé að átta sig á, hvort það, sem birt er í Frakklandi. hvort sem um er að ræða það, sem frá Baudouin kemur eða öðrum ráðherrum, sé raunverulega frá þeim komið, — og þar með gefið í skyn, að, allar tilkynningar og fyrirskipanir í Frakklandi nú kunni að vera frá Þjóðverjum komnar. orðið til þess að stórspilla vin- áttu og samvinnu ítala og Frakka. Einnig hafi það verið Chamherlain, sem réði því, livaða afstöðu Bretar og Frakk- ar tóku sameiginlega í Múnch- en, og loks hafi það verið Bret- ar, sem réðu því, að Bretland og Frakkland sögðu Þýskalandi stríð á hendur s.l. haust Ræða Boudoin var þrungin gremju í garð Breta og er húist við, að henni verði svarað af liálfu hresku stjórnarinnar þegar í dag. Þegar þetta er símað liafa enn engar fregnir borist um hvaða ákvörðun franski flota- foringinn í Alexandria tekur. í London var sú von látin í Ijós i gær, að þaðan yrði ekki sömu sögu að segja og við Oran, þ. e. að ekki kæmi til blóðsuthell- inga. Bretar hafa öfluga flota- deild í Alexandria og þeir liafa tilkynt, að herskipunum verði sökt eða á annan hátt komið í veg fyrir, að þau falli i hendur óvinanna, ef flotaforinginn felst eklci á skilyrði Breta. Helgidagslæknir. Daniel Fjeldsted, Hverfísgötu 46. shni 3272. Kanada sendir vista- skip til Grænlands. J^YKOMIN amerísk blöð skýra frá því, að ríkisstjórn Kan- ada hafi útnefnt tvo ræðismenn fyrir Grænland og sent vista- skip þangað, til þess að engin hætta sé á hungursneyð. Aðalræðismaður Kanada í Grænlandi verður Kennetli P. Kirkwood, sem var fyrsti ritari við sendisveit Kanada í Haag, þar til Þjóðverjar tóku landið. Vararæðismaður verður A. E. Porsild, sem hefir verið húsett- ur á Grænlandi og starfað þar við námarekstur. Þetta er í fyrsta skifti, sem Kanada hefir ræðismenn í nokkuru landi. Hefir það hing- að til látið sér nægja að hafa sendisveit í liverju landi. Voru ræðisinenn Breta jafnframt i-æðismenn Kanada. Vegna þess að Grænland hef- ir ekkert viðskiftasamband við Danmörkif, ájkvað Kanada að koma þvi til lijálpar. Skipið, sem flutti ræðismanninn og starfslið hans til Grænlands var fullfermt ýmsum nauðsynja- vörum, sem liætta var á að mundu ganga til þurðar. í staðinn flutti skipið á hrott þaðan ýmsar grænlenskar framleiðsluvörur, t. d. lcryolit, sem notað er við framleiðslu á aluminium, grávöru, lýsi o. fl. afurðir. 36 breskir flugleið- angrar á 48 sólar- hringum. Sir Philip Jouhert, flugmar- skálkur, lýsti yfir þvi í útvarps- ræðu í gærkvöldi, að Bretum liefði nú borist áreiðanlegar upplýsingar, þess efnis,- að hin- ar sífeldu árásir hreska flug- liersins á samgöngukerfi og hirgðastöðvar Þjóðverja, væri nú þegar farnar að valda mikl- um glundroða innan hernaðar- kerfis þeirra. Þjóðverjar geta alls ekki lengur notað járn- hrautirnar óhindraðir, en liafa orðið að gripa til allra mögu- legra flutningatækja, til að flytja vistir og vopn til her- sveita sinna í liinum herteknu Hitler kemur til Berlinar í dag eftir átta fjarveru. Kátídahöld í tilefni heim- komunnar. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Það var opinberlega tilkjTit í morgun, að Hitier rikis- leiðtogi væri væntanlegur til Berlínar í dag, eftir átta vikna f jarveru. Göbbels hefir fyrirskipað stórkostiega móttökuhátíð. Öllum sölubúðum og verksmiðjum, nema matsölubúð- um og vopnaverksmiðjum, verður lokað frá hádegi. — Hitler hefir dvalist á vigstöðvunum að undanfömu, og eins og menn muna, var hann í Compiégne, er vopna- hlésskilmálarnir voru afhentir Frökkum. Nánari fregnir um afdrif frönsku her- skipanna við Oran. London í morgun. Fregn frá Algier hermir, að tilkynt hafi verið opin- berlega, að orustu-beitiskip- ið Dunkerque. Bretagne, Provence óg Mogador, liafi orðið fyrir stórskemdum í orustunni við Oran. Var þeim öllum rent á land. Manntjón Frakka í orust- unni var um 1000 menn, þ. e. fallnir, særðir og þeir, sem saknað er. Franskt eftirlitsskip sökk undan Matifou i Algier. fclkki er kunnugt, hvort það var skotið í kaf eða það fórst á tundurdufli. Næstum öll- um skipsmönnum var bjarg- að. Fregn frá Clasablanca í Marokko liermir, að skothríð liafi verið gerð úr strand- virkjum á breskan tundur- spilli, en liann komst undan, með því að hvlja sig i reyk- skvi. í F rakklandi og héruðum Belgiu. „Síðustu 49 daga hefir flug- her vor flogið 36 nætur inn yf- ir Þýskaland, auk þess sem mik- ill fjöldi smærri árása hefir verð gerður að degi til. A sama tima hafa Þjóðverjar ekki far- ið nema 13 ferðir til Englands og í ekkert sinn valdið neinu verulegu tjóni.“ Þjóðverjar á her- skyldualdri, handteknir hér. Þrír íslendingar yfir- heyrðir. Vísi hefir borist eftirfarandi tilkynning frá bresku hejr- stjóminni: „Bi'ésku yfirvöldin hafa tal- ið ]>að nauðsynlegt að taka í gæslu alla þýska karlmenn á lierskyldualdri, að undantékn- um þeim, sem vitað er um að hafa raunverulega flúið undan harðstjórn Hitlers. Menn mun reka minni til þess, að Þjóðverjar í Dan- mörku, Noregi, Hollandi og Belgiu misnotuðu stórlega gest- risni þá, sem þeim var sýnd í þessum löndum og endurguldu velgerðarmönnum sínum með þvi að skjóta þá aftan frá. Vissulega má vera, að ýmsir þeirra, sem teknir hafa verið í gæsiu, hafi ekkert ilt í huga, en með tilliti til starfsemi „fimtu herdeildar" i öðrum löndum væri lieimskulegt að gera ekki allar varúðarráðstafanir til verndar íslandi og breska setu- liðinu.“ Auk þess voru þrír íslend- ingar yfirheyrðir, vegna kynna sinna af tveim Þjóðverjuin, er höfðu farið huldu liöfði. Einn Islfendinganna, Helgi Fihppus- son, gat fært sönnur á, að liann hafði ekkert liaft saman við Þjóðverjana að sælda. FYRSTA LOFTÁRÁSIN Á GIBRALTAR I GÆR. London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. I Gibraltar voru þrívegis gefnar aðvaranir um loftárásir í gær. Loftvarnabyssur voru teknar i notkun, en ekki getið um, að óvinaflugvélarnar hafi varpað niður sprengjum á borg- ína eða virkin. Þ'etfa er í fyrsta skiftí, sem tilraun er gerð til loftárásar á Gihraltar. BRETINN FÆR ÞAÐ. — Það er ekki látið fylgja með hvar þessi mynd var tekin. Er verið að út- búa þýskan kafbát í „veiðiför“ og láta um borð i hann tundurskeyti. — Þau eru liin mestu völund- arsmíði og mjög dýrt að framleiða þau. Vegna þess hversu stór þau eru, geta kafbátar aðeins flutt mjög takmarkaðan fjölda.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.