Vísir - 17.07.1940, Page 1

Vísir - 17.07.1940, Page 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri ] Btaðamenn Sími: Auglýsingar ' 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla j 30. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 17. júlí 1940. 162. tbl. Hitler sagður í þann veg- inn að gera Bretum kost á að semja um frið. . .11 i 11» Jafnframt berast fregnir um, að innrás í England standi fyrir dyrum. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. ¥ gær síðdegis voru birtar fregnir um það, að Hitl- er ætlaði að leggja fram friðarskilmála og mundi hann gera grein fyrir þeim í ræðu á Ríkisþinginu, sem kvatt yrði á fund til þess að hlýða á TæðU leiðtogans. Fregn þessi var birt í blöðum Banda- rík janna og útvarpi i gær, en jafnframt bárust fregnir frá RÖmaborg, varðandi áform Þjóðver ja um innrás í England. Fregnirnar hafa vakið fádæma athygli, enda þótt þær þyki næsta ótrúlegar, einkanlega fregnin um hina fyrirhuguðu innrás i England föstudag 19. júlí. Hafa komið fram tilgátur um það í Bretlandi, að það ikunni að vera rétt, að Hitler ætli að gera tilraun til þess :að komast hjá að halda styrjöldinni áfram en fregnirn- 'ar um innrásína séu fram bornar til þess að hræða Breta, svo að þeir verðí tílleiðanlegri til þess að ganga að kostum Hitlers. 1 Bretlandi og Bandaríkjunum hefir sú skoðun komið fram, að Hitler þurfí að leíða styrj- öldina til sem skjótrastra lykta, því að Þjóðverjar þolí ekki að styrjöldin dragist á langinn. Muni Bretar gjalda varhuga við öllum tilraunuin Þjóðverja í þessa átt. Hinir amerísku fréttaritarar halda því fram, að tillögur Hitl- ers fjalli um nýja skipan í Evrópumálum, og komi stórveldin þeirri skipan á, AÐ Þýskaland fái aftur nýlendurnar sem það misti í Heimsstyrjöldinni, AÐ sérstakur stórveldasamningur verði gerður um viðskiftamál Evrópu, AÐ Bretar verði milli- göngumenn um samninga um viðskiftamál Evrópu og Vestur- álfuríkja. Agreiningur er sagður vera milli þýskra hemaðarleiðtoga um innrásarfyrirætlanír Þjóðverja. Sagt er að margar tillögur hafi verið gerðar, og hinar upphaflegu tillögur verið svo fífldirfsku- legar, að ýmsir kunnustur leiðtogar Þjöðverja, og eins ítalir, hafi ráðið frá þeim, en upp úr því var gengið frá áætlun, sem Hitler félst á. Þjóðverjar eru sagðir hafa míkinn fjölda skipa í ýmsum höfnum Noregs, Ilollands, Bel- gíu og Frakklands. Öll þau flutningaskip, sem eru í þess- um höfnum, verða notuð til flutninganna og mikill fjöldi smáskipa. Þjóðverjar eiga ekki mikinn herskipaflota, en þeir eiga þó talsvert af litlum her- skipum, tundurspillum, og mó- tor-torpedóbátum, svo og kaf- bátum og skipum, sem útbúin eru til þess að slæða tundur- dufl. Þessi skip eiga að verða herflutningaskipunum til verndar. En aðalverndina á þó þýski flugflotinn að veita.Yafa- laust verður einnig gerð tilraun til þess að flytja lið loftleiðis. Sumir þýsku herforingjanna eru sagðir þeirrar skoðunar, að það sé mjög áliættusamt að gera slíka tilraun, og það er talið, að von Brautschitcli her- foringi liafi haldið því fram, að Þjóðverjar yrði að gera ráð fyrir að missa alt að því % þess liðs, sem þeir gerðu tilraun til að koma til Bretlands. Er talið, að Þjóðverjar hafi 600,- 000—1.000.000 manna ■ reiðu- búna til þess að fara til Bret- lands. Bretar hafa, sem kunn- ugt er, 1—li/2 miljón æfðra manna undir vopnum í Bret- landi, mikið lið, sem hefir feng- ið nokkura þjálfun, og auk þess eru heimavarnarsveitir, sem í æru 1 miljón manna. En sterk- asta vörn Bretlands er vafa- laust í herskipaflotanum og flugflotanum, og hvernig sem fer, ef Þjóðverjar gera tilraun sína til innrásar, er það víst, að til svo stórkostlegra átaka kemur, að vart eða ekki eru dæmi til í sögunni. Spánverjar slíta stjórmálasam- bandi við Chile, Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Spánn liefir slitið stjórnmála sambandi við Cliile. Er orsök- in sú, að Chile liefir orðið griðastaður spánskra kom- múnista, svo og að rikisstjórn- in hefir látið það óátalið, að spánska stjórnin var óvirt á fjölmennum úlifundum í Cliile þ. 17. júni. Fregn frá Santiago liermir, að ríkisstjórnin liafi fengið staðfestingu 'á því, að stjórn- málasambandinu liafi verið slitið. Sendiherra Brazilíu liefir verið falið, að gæta liagsmuna (Chile á Spáni. Mistu eina flugvél á flmm vikum. London i morgun. ítalir hafa gert um 100 loft- árásir á Malta og mist um 20 flugvélar og margar fleiri skemst í þessum árásum. Ein var skotin niður í gær, og önnur hresk — hin fyrsta á 5 vikum. Hafa þó breskar árásarflugvélar gert lárásir á ítalskar flugvélar yfir Maita daglega. Konoye prins mynd- ar stjórn í Japan. London i morgun. Eftir seinustu fregnum að dæma lítur út fyrir, að hernað- arsinnarnir í Japan ætji ekki að fá mann úr sínum flokki vahnn til þess að taka að sér stjórnar- myndun, þvi að á fundi þeirra stjórnmálamanna, sem keisar- inn leitar ráða lijá, undir kring- umstæðum slíkum sem Jxissuni, vai'ð það ofan á, að leggja til að Konoye prins yrði falið að mynda stjórn, en hann var for- sætisráðherra i Japan frá 1037 þar til i ársbyrjun 1939, og þykir vitur og gætinn maður. Kon- oye prins vildi komast hjá því að taka að sér stjórnarmyndunina, og sagði, að hyggilegast væri, að stjórnarforystan yrði falin manni, sem hefði nánari kynni af her- og flotamálum en liann. Stjórnmálamennimir vildu þó ekki falla frá tillögu sinni. Myndin sýnir þýskan fallhlífarhermann vera að kasta sér út úr flugvél sinni. Það voru fallhlífarhermenn, sem aðallega stuðl- uðu að sigri Þjóðverja í Hollandi og Belgíu. Barkley öldungadeildar- þingmaður flytur flokks- þingi demokrata orðsend- ingu frá RoosevelL Fagnaðarlæti sem stóðu yfir 48 mínútur, er boðskapur Roosevelts hafði verið lesinn. Allir ráðstefnufulltróarnir frjálsir að þvi, að kjösa hvern þann, sem þeim sýnist. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. Barkley öldungadeildarþingmaður tilkynti á flokks- þingi demokrata í Chicago í gær, að skoðun Rooseveits Bandaríkjaforseta væri sú, að hver ráðstefnufulltrúi væri frjáls að því, að kjósa hvern þann mann forseta- efni, er honum sýndist. Barkley komst svo að orði: „Eg og aðrir góðir vinir Roosevelts forseta höfum lengi vitað, að hann hefir enga löngun til að verða í kjöri sem forseti á ný, að hann hefir ekki á nokkurn hátfc reynt að beita áhrifum sínum við nokkra ráðstefnu- fulltrúa eða aðra sér til fylgis, og jafnvel ekki leitað á- lits þeirra. Forsetinn hefir ekki borið neina löngun í brjósti til þess að vera ríkisforseti áfram, og hann hef- ir heldur ekki löngun til þess í dag. Og hann óskar þess ekki, að ráðstefnan velji sig sem forsetaefni. Hver ein- asti fulltrúi á þessari ráðstefnu er frjáls að því að kjósa hvern þann mann fyrir forsetaefni, sem honum sýnist. Þetta er boðskapur sá, sem eg flyt yður frá forseta Bandaríkjanna, og eru þetta hans óbreyttu orð.“ Þegar Barkley hafði sagt þetta létu menn fögnuð sinn óspart í ljósi. Stóðu fagnaðarlætin í 48 mínútur, og kölluðu menn ákaft: „Vér viljum Roosevelt“, „Bandaríkin þarfnast Roosevelts“, „Vér kjósum Roosévelt“ o. s. frv. Ráðstefnunni hefir verið frestað til kl. 2 e. h. á miðvikudag. Það vekur mikla athygli, að forsetinn sagði ekkert um það, að hann myndi neita að verða í kjöri ef hann yrði fyrir valinu, og er því litið svo á, að hann muni fallast á að verða í kjöri, ef hann yrði fyrir valinu, og er því litið svo á, að hann muni fallast á að verða í kjöri, ef flokksþingið velur hann forsetaefni. — Einn af þeim stjórnmálamönnum, sem ákafast hafa barist fyrir því, að Roosevelt yrði valinn forsetaefni, Harry Hopkins, hefir spáð því að Roosevelt verði kosinn forsetaefni með yfirgnæfandi atkvæðamagni annað kvöld. að skerða sjálfstæði Vesturálfu- ríkja, verða Bandaríkin að verja þau. Þetta merkir ekki, sagði hann, að vér viljuni hafa af- skiftí af styrjÖldum í öðrum heinisálfum, heldur að Vestur- álfa oll verði áfrain sem hing- að íil Öruggur griðastaður frjálsra nianna. Ný íjáraukaíög verða innan skamms lögð fyrir breska þingið, London í morgutú Það var tilkynt í London í gær, að Sir Kingsley Wood myndi leggja þriðju stríðsfjár- aukalögin fyrir þingið bráð- lega. Ilann hoðaði auknar skattaálögur fyrir skömmu, og var þá gert ráð fyrir, að lagður yrði á viðskifta- eða söluskattur, en sú hugmynd hefir sætt mót- spyrnu frjálslynda flokksins og verkamanna, og mun nú vei-a horfið frá því ráði, að skatt- leggja neysluvörur meira, en lagður á „luxus“ eða óhófs- skattur, til þess að afla ríkinu aukinna tekna, en útgjöldin aukast stöðugt, en tekjurnar ekki að sama skapi. Útgjöldin nema nú 9 miljónum sterlings- punda á dag og munu enn fara vaxandi. MINNA UM LQFTÍRÁSIR A INGÚANP: Breska flugmáílaráðuneytið tilkynnir, að 3 þýskar flugvélar hafi verið slcotnar niður í nánd við Bretland í gær, þar af 2 yfir Ermarsundí, en síi þriðja yfir Skotlandí, sköhimu eftír að hún gerði árás á skoska borg. Nokkur hús urðu fyrir skemdum, en manntjón varð ekki. Um manntjón er ekki getið í seinustu tilkynningum Breta um löftárásir Þjóðverja. Ekkert lát hefir orðið á loft- árásuiii Breta á hernaðarstöðv- ar Þjóðverja í Frakklandi, Hol- landi og Belgiu. Hefir orðið feikna tjón í loftrásum þessum. Veðurskilyrði liafa verið slæm, en það hefir ekki dregið úr loft- árásum Breta. Margar flugvél- ar lentu í þrumuveðri á leið- inni. í ræðu þeirri, sem Barkley flutti, gerði liann Monroekenn- inguna að umtalsefni, og sagði, að Bandaríkin yrði að vera við því búin, að verja vesturálfurík- in. Vér verðum. að sjá um, að Monroekenningin verði virt, en ef tilraun verður gerð' til þess Bretar og Norðmenn mótmæla í Stnkkliólmi. London í morgun. Rikisstjórn Noregs sem starfar í Bretlandi og hreska rík- isstjórnin hafa mótmælt því, að Sviar leyfa Þjóðverjum að flytja hergögn og herafla yfir Svíþjóð, til Noregs. Hefir sænska stjóm- in leyft slíkan flutning (innan vissra takmarka) þar sem styrj- öldinni í Noregi sé lokið. Þessu mótmæla rikisstjórnir Noregs og Bretlands og segja, að Norð- menn veiti Þjóðvei-jum enn við- nám, og liafi sænska stjórnin með framkomu sinni gerst brot- leg við Haagsamþyktina frá 1907. Mikil síld berst til Siglefjarðar og Ranfarhafnar f dag. Mikil sild kemur til Siglu- fjarðar og Raufarhafnar i dag, að þvi er tíðindamaður Vísis sagði blaðinu um hádegið í dag. Isleifur frá Akranesi kom með 800 mál frá Ströndum í morgun, en vitað er um, að mörg skip eru á leiðinni. 12 skip komu drekkhlaðin til Raufarhafnar í dag. Austan strekkingur ér á mið- unum, og eiga skipin þvi erfitt með að athafna sig, en sildin er nóg, svo að segja um allán sjó, alt frá Ströndum til Austfjarða. Hafa þannig mörg skip fengið sæmilegan afla á Húúaflóa og Skagafirði, og munu þáu leggja hann á land í dag. Þakkarávarp. Nýlega héldu nokkrir harmoniku- leikarar dansleik í Oddfellowhöll- inni, undi forystu hr. Hafstéins Ól- afssonar, til ágóða fyrir sjúklinga á Vifilsstöðum. Hefir bláðið verið beðið að færa þeim alúðar þakkir, ásamt hr. Agli Benediktssyni, fyr- ir að lána húsið, blöðum og útvarpi fyrir auglýsingar og Víldngsprenti fyrir prentun, sem alt var látið í té endurgjáldslaust.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.