Vísir - 24.07.1940, Page 1

Vísir - 24.07.1940, Page 1
Ritstjóri: KrÉstján GuðSaugsson Skrifstofur: Féíagsprcntsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 24. júlí 1940. Ritstjóri Rlaðamenn Sími: Augiýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 168. tbl. Finnar verða enn að beygja sig fyrir Rússum, sem íæra sig stöðugt upp á skaftið. Alger afvopnun flnska hersins. Finskip herfopingjar flýja land. — Æðsta ráð sovét- Flkjanna kallad saman. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Fregnir frá Stokkhólmi herma, að ráðstjórnin rússneska hafi sent Finnum nýja úrslitakosti. Fyrir nokkurum dögum kröf ðust Rússar þess, að finski herinn yrði algerlega afvopnaður og taldi finska stjómin sig ekki hafa bolmagn til þess að hafna þessum nýju kröfum. Er afvopnun hersins nú hafin. Margir finskir herforingjar hafa farið úr landi af þess- aim sökum og dveljast þeir í Stokkhólmi. l>egar Finnar urðu loks að lúta í lægra haldi fyrir Rússum, eftir hina frækilegustu vörn, gerðu menn sér vonir um, að ekki yrði frekara þrengt að finsku þjóð- inni, og að hún gæti sint viðreisnarstarfi sínu í friði. — Rússar hafa fengið framgengt þeim kröfum, sem þeir ætluðu sér og væru nú ánægðir. En f yrir nokkuru gerðu þelr kröfur til Finna varðandi Álandseyjar eins og um var getið, í skeyti til Vísis, og nú hafa Finnar enn orðið að ganga að nýjum kröfum. í>að hefir sem vænta mátti vakið ugg í Finnlandi, að Russar færa sig þannig upp á skaftið og það háir þjóð- inni í viðreisnarstarfinu. Hún stendur nú varnarlaus fyrir og ótti er vakinn um, að Rússar áf ormi sér að inn- lima Finnland eins og Austur-Pólland, Bessarabíu, Norður-Bukovinu og Litlu Eystrasaltsríkin. Æðsta ráð ráðstjórnarríkjasambandsins hefir verið kallað saman tíl annars fundar síns á yfirstandandi ári. Kemur það saman í Kreml í lok ágústmánaðar til þess að hlýða á ræðu Molotovs utanríkismálaráðherra um innlimun Eystrasaltsríkjanna. Það er einnig búist við, að Molotov muni gera grein fyrir stefnu ráðstjórnar- innar yfirleitt, og verði utanríkismálin ekki undan- skilin. Horiornar enn ískyggi- legar á Balkanskaga. Rnmensknm og- búIgrörsku 111 ráð- herrnm hoðið til Þýskalands. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Horfurnar á Balkanskaga eru enn mjög í óvissu og allískyggi- legar. Virðist svo sem möndulveldin (Þýskaland og Ítalía) leggi nú aukna áherslu á að auka þar áhrif sín, en Rússar hafa, að því er sumar fregnir herma, aukin áform á prjónunum í Rúmeníu. Er sagt, að Rússar beiti áhrifum sínum til þess, að stofnuð verði róttæk stjóm, vinveitt Sovét-Rússlandi, í Rúmeníu, en ítalir, sem hafa beyg af áformum Rússa, birta aðvaranir til þeirra, um að ganga ekki í neinu á rétt möndulveldanna, og gefa í skyn, að Þýskaland muni þá grípa til sinna ráða. Eins og kunnugt er liöfSu Italir lýst því yfir oftar en einu sinni, áður en þeir fóru í stríð- ið, að þeir litl á Balkanskaga sem ítalskt áhrifasvæði og sögðu ítalskir faclstaleiðtogar, að þeir myndu aldréi þola Rúss- um að færa ut kvrarnar suður á Balkanskaga. Það átti að vernda Balkanskagann gegn hinni „rauðu hættu" eins og Spán. En þegar Russar gerðu kröfurnar á hendur Rúmenum fyrir skemstu og höfðu Bess- arabíu og Norðnr-Bukoviu upp úr krafsinu, höfðust Italir ekk- ert að, og talið var að þeir og Þjóðverjar hefði ráðlagt Ung- verjum að knýja ekki fram kröfur sínar um Transylvaníu, eins og þeir áformuðu, þegar Rússar tóku Bessarabíu. Var því litið svo á, að möndulveldin teldi sig hafa öðru að sinna og gæti ekki hætt á að til ófriðar kæmi á Balkan. Þótt aðvaranirnar í garð Rússa komi fram á ítalíu, er það margra ætlan, að Þjóðverj- ar séu jafn óánægðir og ítalir yfir afskiftum Rússa af Balkan- málum. Nú liefir von Ribbentrop boð- ið forsætisráðherra Búlgaríu og utanríkismálaráðherra til Þýskalands, en Gigurtu forsæt- isráðherra Rúmeníu og Manu- lescu utanrikismálaráðherra Rúmeníu, eru einnig boðnir. Koma þeir til Salzburg á föstu- dag, en búlgörsku ráðherrarnir fara til Berlinar og munu verða þar á laugardag. Búlgarar liafa gert kröfur til þess að fá suð- ur hluta Dohrujahéraðs í Rúm- eníu, en vilja fá kröfunum framgengt friðsamlega. Á ráð- stefnunni í Þýskalandi á föstu- dag og laugardag mun verða rætt um Balkanmálin, aðallega með tilliti til Rúnmeníu, og jafnvel Sovét-Rússlands, en hin- ir rússnesku leiðtogar liafa, að því er margir álíta, mörg áforrn á prjónunum, og eins og sjá má af öðru skeyti, sem birt er í hlaðinu í dag, lialda þeir áfram að gera kröfur í garð Finna. Tékkóslóvakisk ríkis- stjórn mynduð. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Það var tilkynt í breska þing- inu í gær, að hreska ríkisstjórn- in liefði veitt tékkóslóvakísku þjóðnefndinni í London viður- kenningu sem hráðabirgða- stjórn Tékkóslóvakíu og eru þar með endurtekin og staðfest á ný fyrri heit Breta um endurreisn TékkóslóValdu, ef Bretar og bandamenn þeirra sigra í stríð- inu. Forseti þjóðnefndarinnar er dr. Benes, mun hann verða for- sætisráðherra hinnar nýju stjórnar, en Jan Masaryk, sendi- lierra Téldcóslóvakíu í London þar til hún leið undir lok. Jan Masaryk er sonur Masaryk, fyrsta forseta og „föður Tékkó- slóvakíu“. Fjfilda marglr Frakkar sviftir þegnréttlndum. Fransklr ráðherrar fyrir réttl Daladier fyrv. forsætlsráð- herra meðal þeirra. Franska stjórnin hefir fyrir- skipað, að allir þeir, sem flýðu land 10. mai til 30. júní, í óleyfi ríkisstjórnarinnar, skuli sviftir borgararéttindum. Ýmsir franskir ráðherrar verða nú leiddir fyrir rannsókn- arrétt, og eru meðal þeirra Da- ladier, Delbos og Möndell, sem allir eru meðal kunnustu franskra ráðherra á síðari tim- um. Daladier og nokkurir þing- menn sem komu frá Marokko til Marseille í gær voru kyrrsettir. — Nokkurum ráðherrum verður stefnt fyrir herrétt fyrir að flýja land meðan Frakkland átti í ófriði. HÉR BIRTIST MYND af nýliðum í breska flughermutt. 1 Íjtfjjp Gífurlegar skattahækk- anir í Bretlandi vegna 2800 miljónir sterlingspunda til hepnadarútgjalda aö eins. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. Sir Kingsley Wood, f jármálaráðherra Bretlands, flutti ræðu í neðri málstofunni í gær og lagði fram nýtt fjárlagafrumvarp vegna styrjaldarinnar. Verður að hækka skattana gífurelga, bæði beina og óbeina, vegna styrjaldarútgjaldanna, sem aukasl gífurlega með viku hverri og eru nú komnir upp í 57 miljónir sterlingspunda á viku. Með þessari eyðslu — en það verður að gera ráð fyrir því, að útgjöldin vegna styrjaldarinnar fari mjög vaxandi — verða styrjaldarútgjöldin á ári 2800 miljónir sterlingspunda og út- gjöldin alls á yfirstandandi fjárhagsári 3467 milj. stpd. Tekjuskatturinn verðui’ liækk- aður um 1 shilling í 8V2 af liverju sterlingspundi og yfir- skattur af tekjum jrfir 2000 stdp. í 2 shillinga af sterlingspundi. Af tekjum yfir 20.000 stpd. greiðast 8 sh. af sterlingspundi. Skattur á hjór, léttum vinum, sterkum vinum og tóbaki hefir verið hækkaður. Skemtana- skattur hefir verið hækkaður. Viðskiftaskattur eða söluskatt- ur verður lögfestur og mun hann nema alt að % af andvirði varnings sem ekki telst nauðsyn- legur (luxury goods) en skatt- urinn nær ekki til gass, raf- magns o. fl. Sir Kingsley Wood lagði á- herslu á það, að þjóðin öll yrði að leggja á sig þungar og lang- varandi byrðar vegna stríðsins. Hann kvað nauðsynlegt að beina sem mestum fjárstraum í rikis- sjóðinn. Útflutningsverslunina yrði að auka sem mest, að standast straum af kaupum á hráefnum, hergögnum og öðru, sem fyltja þarf inn. Lundúnablöðin í morgun gagnrýna ræðu Sir Kingsley Wood fjármálaráðherra, á þeim grundvelli, að hann hafi ekki gripið til nógu víðtækra ráð- stafana til þess að afla tekna til styrjaldarþarfa, Daily Telegraph segir, að f jár- málaráðherran hafi bakað mönnum vonbrigði með tillög- um sínum, því að hann hafi alls ekki gripið til nógu víðtækra ráðstafana til f járöflunar. Segir blaðið, að nauðsynlegt sé að taka þessi mál fastari tökum. Þjóðin hafi búist við því, að hann hefði sýnt meiri rögg af sér. — News Cronicle segir, að fjármálaráðherran hafi ekki Sí'- • . V - jJPÍÖ horfst í augu við veruleikann. Daily Herald segir, að hann skorti ekki aðeins hugrekki, heldur og hugkvæmni. Bresku fjárlögin eru aðal- umræðuefni Lundúnablaðanna, og taka flest þeirra miklu dýpra í árinni en fjármálaráðherrann og telja að ráðstafanir hans til tekjuaukningar fyrir rikissjóð hafi gengið of skamt. „Daily Telegrapli“: Fjárlög Sir Kingsley Wood urðu mönnum að nokkuru leyti vonbrigði, vegna }>ess, að flest- um finst vist að ekki sé nærri nógu langt gengið á tekjuöflun- arleiðinni. Fyrir nokkuru hafði fjármálaraðherrann látið þess getið, að skattar og tollar myndu verða „hinir mestu, sem sögur fara af“, og voru því allir við þvi húnir að greiðsluþol al- j mennings yrði reynt til hins ítr- Höfðu menn búist við djarflegum fjármálaaðgerðum og karlmannlegri tilraun til að láta tekjur mæta gjöldum. En Sir Kingsley liefir sýnt merki- lega litla hugkvæmni í að finna upp nýja tekjustofna.“ „News Chronicle“: „Sir Kingsley hefir mist af þvi tækifæri sem honum bauðst. Skattarnir koma harðast niður á lágtekjumönnum, miðtekjurn- ar verða að vísu illa úti, en það hefði áreiðanlega verið liægt að leggja meiri hátekjuskatt á. Það er vafalaust röng pólitik að reyna ekki að ná meira en 40% af útgjaldaaukningunni með nýjum tekjuliðum. Það átti að stefna að þvi að ná öllum gjald- aukanum með tekjuauka. Besta ákvæðið í hinum nýju f járiögum er ákvæðið um að innheimta Framh. á 3. síðu. Innrásar-fyrir- ætlanír Hitlers. London í morgun. „Þó að innrásarfyrirætlanir Hitlers liafi tafist eitthvað, virð- ist engin ástæða til að ætla að hann sé hættur við þær,“ segir liernaðarsérfræðingur „Yorks- hire Post“ i grein í hlaðinu í morgun. „Fengist hefir nokkuraveginn áreiðanleg vissa fyrir því, að honuin mislikar stórum sá drátt- ur, sem orðið liefir á fram- kvæmd fyrirætlananna, og mun hann hafa tekið þeim aðvörun- um, sem æðstu raðunautar hans í hernaðarmálum hafa látið í ljósi, mjög illa. Er alment álitið, að enginn af æðstu lierforingjum lians, nema Göring, sé fylgjandi innrásinni, og að meira að segja muni Hess, Himmler og Göbbels liafa látið sannfærast af röksemdum hers- höfðingjanna, að innrásin væri óframkvæmanleg. En livað sem þcssu líður, verð- nr að reikna með því, að vilji Hitlers verði ráðandi og að inn- rásin verði gerð, livað sem það kann að kosta Þjóðverja. Frá sjónarmiði Breta er flest, sem mælir á móti því, að ihnrás- in geti tekist, og er þetta helst: 1. Tilraunir til að ná jafn- vígisaðstöðu á sjó hafa mistekist fyrir Þjóðverjum. 2. Ítalía hefir fult í fangi með að verjast og gétúr ekkert liðsinnt Þjóðverjum á Norður- sjó. 3. Þjóðverjar hafa ekki ná- lægt þvi nægan fiotastyrk til að aðstoða flutning herliðs yfir sjó. 4. Loftárás er möguleg en stórkostlega tvíeggjuð. 5. Breskar landvarnir hafa aldrei verið öflugri. 6. Föðurlandssvik og njósn- arstarf í Bretlandi hefir Þjóð- verjum mistekist. 7. Þjóðverjar hafa ekki næg- an hraðskreiðan skipakost til að flytja stóran her, þótt flotavernd væri fyrir hendi. 8. Ef Þjóðverjar taka úpp á þvi að beita öllum kröftum sin- um gegn Bretlandi, mega þeir eiga von á frekari lahdvinning- um Russa i vesturátt. Þá er breski lierinn í mið- austurlöndum þymir i augum Þjóðverjá. Ætluriin var, að italski herinn fengist við þann her, en árangurinn hefir orðið litill. Mun Hitler hafa ætlað sér að riota eitthvað af fráriska flot- anum i Miðjarðarhafi til að herja á hernaðarstöðvár Rreta í Suez og Rauðahafi, en hann misti flotann áður en til þess kom. til þess | asta.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.