Vísir - 30.07.1940, Síða 1

Vísir - 30.07.1940, Síða 1
30. ár. 173. tbl. Reykjavík, þriðjudaginn 30. júlí 1940. Bgeskap flugvélas» koma í heimsékn Breskar sprengjuflugvélar liafa nú að undanförnu gert margar érásir á franskar borgir og hafnar- bæi. Hefir Petain-stjórnin mótmælt þessu, en það eru varla líkur til að Bretar taki þau mótmæli svo hátiðlega. En þegar Bretarnir koma í heimsókn .... 1 BRETAR HÓTA AD ST0BVA VIÐSKIFTl VIÐ JAPAN OG OPNA BURMABRAUTINA, vegna þess að 11 Bretar voru handtekn- ir í Japan. Eru þeir sakaðir um njösnir. Mikil gremja í breskum blöðum. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Alvarlegt deiluefni er upp komið milli Breta og Japana, sem kann að hafa hinar alvarlegustu afleiðingar. Ellefu kunnir Bretar í Japan hafa verið handteknir og eru þeir sakaðir um njósnir. Flestir þessara mánna hafa verið mörg ár í Japan og notið þar sem í heimalandinu mikils álits. 1 Bretlandi hafa verið birtar yfirlýs- ingar, þar sem svo er að orði komist, að það sé hreinasta f jarstæða að ætla, að þessir menn hafi haft njósnastörf með liöndum. Hóta bresk blöð róttækum gagnraðstöfun- um, ef mennimir verða ekki látnir lausir. Einn þeima manna, sem handtekinn var, Cox að nafni, Tokio-fréttaritari hinnar heimskunnu Reuters- fréttastofu, framdi sjálfsmorð í lögreglustöðinni, rétt á eftir að hann hafði verið handtekinn. Stökk hann út um glugga og beið bana í fallinu. I Tokiofregnum segir, að reynt hafi verið að koma í veg fyrir, að þetta áfomi fréttaritarans hepnaðist. I tilkynningu, sem dómsmála- og hermálaráðuneyti Japana hefir birt, er því haldið fram, að stigið hafi verið fyrsta skrefið til þess að upp- ræta n jósnastarfsemi Breta í Japan. Fregnirnar um þetta hafa vakið hina mestu furðu í London. Forseti British federated Industries hefir lýst yfir því, að starfs- menn iðnaðarsambandsins, er voru meðal hinna handteknu, hafi að eins sint viðskiftalegum störfum, og fjarstæða að saka þá um njósnir. Sir Robert Craigie, sendiherra Breta í Japan, hefir lagt fram mótmæli gegn handtökunum í Tokio. í breskum, blöðum í morgun er mikið um þella rælt og krefj- ast iblööin þests eindregi'ð, að stjórnin láti mál þetta til sin taka þegar í stað. Ákveðnasta afstöðu taka hlöðin News Chronicle og Daily Express, sem krefjast þess, að stjórnin taki til athugunar, verði menn- irnir ekki látnir lausir þegar í stað: 1) Að opna Burmabrautina á ný tii flutninga á hergögnum, herflutningabílum og hensíni, en eins og menn muna varð það að samkomulagi milli Breta og Japana, að slíkir flutningar um brautiná ,(til Kína) ju-ði bann- aðir um þriggja mánaða skeið. Var liér um mikla tilslökun af hálfu Breta að ræða. 2) Að viðskifti við Japan verði stöðvuð. [ 3) Að eiiefu Japanir verði liandteknir og hafðir í lialdi meðan hinir bresku menn sitja í varðhaldi. Fregnir frá Japan bera með sér, að bandtökurnar hafi ekki vákið minni gremju þar en í Bretlandi. Tveir Bretar til hafa verið liandteknir og er engu lík- ara en að grunur livíli á bresk- um mönnum hvarvetna. Fræðslumálaráðuneytið jap- anska hefir í hyggju að segja upp 500 erlendum kennurum, sem það hefir í þjónustu sinni. Eru meðal þeirra Englendingar, sem stimda enskukenslu. Ólti hefir komið fram um, að á upp- siglingu sé nokkurskonar her- ferð gegn Bretum í Japan. FRAKKAR SIÍIFTA UM SENDIHERRA 1 U. S. A. Einkaskeyti frá United Press. London í morgun. Franski sendiherran í Wash- ington, St. Quenlin, hefir skýrt frá Jivi, að hann muni láta af sendiherrastörfunum innan skamms, og fái hann annað starf í hendur. Mikii loftornsta yfir Bretlandi i gær.. 11 þýskar Sugvélas? skofnar nidur í kálfrar klukkustundar orusfu. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Tugir þýskra flugvéla gerðu loftárás á borg á auslurströnd Englands í gær. Tóku þátt í henni 30 sprengjuflugvélar, varðar um 50 orustuflugvélum. Tilætlunin mun hafa verið, að koma Bretum á óvart, en það mishepnaðist. Fjölda margar breskar Hurricane- og Spitfireflugvélar gerðu atlögu að þýsku flugvél- unum þegar í stað, og tókst þýsku flugmönnunum því ekki að hæfa í mark, og fóru flestar sprengjurnar í sjóinn. Varð þarna meiri atgangur í lofti en menn vita dæmi til, því að þetta mun vera hinn harðasti loftbardagi ,sem háður hefir verið af jafnmörgum flugvélum. Bardaginn stóð aðeins liðlega hálfa klukkustund, og á þeim tíma voru skotnar niður 17 þýskar flugvélar, svo að vitað er með vissu, en margar aðrar urðu fyrir skemdum. Tókst hinum bresku orustuflugvélum að dreifa þýsku flugvéladeildinni. Að eins ein bresk fJuvél var skotin niður í bardaganum, en hinsvegar viðurkent, -<5 margar hafi orðið fyrir skemdum. Þrjár þýskar flugvélar voru skotnar niður yfir Bretlandi ann- arstaðar í gær, og í morgun var skotin hiður þýsk sprengjuflug- vél yfir suðausturströnd Englands. STÓRBRUNI Á LANDA- MÆRUM NOREGS OG SVÍÞJÖÐAR. Einkask. frá United Press. London í morguri. Samkvæmt fregn frá Stokkhólmi kom upp feikna eldur í gær á landamærum Noregs og Sviþjóðar, skamt frá Sundsvall. Eldsupptök eru ekki kunn, en 33 járn- brantarvagnar eyðilögðust, og járnhrautarumferð yfir laridamærin á brunastaðnum stöðvast fyrirsjáanlega i marga daga, þar sem, járn- brautagöng, sem eru Noregs- megin landamæranna, hrundu. Það var viðurkent í enskum fregnum í morgun, að það hefði verið hafnarhorgin Dover, sem árásin var gerð á. Tvær af þeim 17 flugvélum, sem skotnar voru niður í orustunni, urðu fyrir skotum úr loftvarnabyssum. Lundúnablöðin í morgun ræða, sem vonlegt er, þennan atburð með allmiklu stolti. Flugmálasérfræðingur „Ti- mes“ ritar m. a.: „Árásin byrjaði, mjög sak- leysislega, Jiví að fyrst kom að- eins ein könnunarflugvél, og var lnin rekin á flótta. En skömmu seinna kom geysimik- ill hópur af Junkers 87 sprengjuflugvéliim, 30 talsins, og notuðu þær liina gömlu að- ferð, að fljúga beint úr sólar- átt, til að gera skygni erfiðara. Þessum flugvélum fylgdu 50 Messerschmitt orustuflUgvél- ar, og sveimuðu þær yfir þeim. Lojftvarnabyssur strand- varnaliðsins skutu þegar í stað niður tvær Junkers-vélar og á sama tíma flaug hópur af Hurricane- og Spitfire árásar- vélum af stað til að ráðast á sprengj uflugvélarnar. Þegar Junkers-vélarnar komu að h öfninni i Dover, steyptu þær sér næstum því lóðrétt niður til þess að miða sprengjum sínum, en hresku orustuflugvélarnar steyptu sér niður á eftir þeim, og var skot- hríðin frá þeim svo hörð, að öll mið rugluðust fyrir hinum þýsku flugmönnum. Háir vatnsstrókar gusu upp úr liöfn- inni, þar sem sprengjurnar lentu, og skipin köstuðust til við bólverkin, eins og kork- tappar, en engin sprengja hitti skip. Þær féllu allar í sjóinn. Siðasta röðin af Junkers vél- unum nálgaðist höfnina, en steypti sér ekki niður til árás- ar, heldur sneri við heimleið- is, án þess að hafa kastað einrii einustu sprengju. Skömmu eftir að viðureignin liófst, hafði ein Spitfire-sveitin skotið niður fjórar Messer- schmitt-vélar og eina sprengju- vél, en Hurricane-sveit hafði fjórar Junkers-vélar og eina Messerschmitt á samviskunni. Einn flug-lautenant, er stýrði Hurricane-vél, skaut á Junk- ers-vél og tókst að sprengja liana í loftinu. Annar flugmað- ur á Hurricane-vél neyddi Juii- kers-vél til að steypa sér nið- ur að haffletinum til að kom- ast undan, en harin sótti svo fast á eftir, að flugvélin lenti i sjónum. Reykj armökknr stóð aftur úr tveim liinna þýsku flugvéla, þegar þær sneru heimleiðis.“ Turner majór, sem er flug- málasérfræðingur „Daily Tele- graph“, skrifar meðal annars: „Flugmálaráðnneytið hefir tilkynt, að fimtán þýskar vél- ar hafi verið skotnar niður. í raun og veru munu J)ær vera meira en tuttugu. En ]x> ekki sé reiknað nema með þessum 15, þá er flugvélatjón Þjóð- verja í árásunum á England orðið 244 vélar, en alls hafa þá frá ófriðarbyrjun verið skotnar niður 318 þýskar flug- vélar vfir Englandi. Frá því að loftárásirnar liófust fyrir al- vöru á Engíand, 18. júní, hafa því að meðaltali verið skotnar niður sex þýskar flugvélar á dag. I gær mistu óvinirnir % af þeim flugvélnm, sem send- ar voru af stað. Þess ber að gæta, að fari tjón Þjóðverja yfir 10% af þeim vélum, sem J>átt taka í árás, er það frá þeirra sjónarmiði ógurlegt. Ennfremur hlýtur það að taka mjög á taugar flugmanna ]>eirra, því það sýnir hve hætt- an er gífurleg.“ „Breski flugherinn hefir ekki látið Hitler í friði, síðan Frakk- land gafst upp“, segir í grein i „NewYork World Telegram“. „Það er miklu erfiðara fyrir Þjóðverja að verja iðnaðar- svæðin í Rulir fyrir ágangi hreska flughersins, en fyrir Englendinga að verja sin iðn- aðarhéruð fvrir þýskum árás- um, enda þótt þýski flugherinn sé sterkari en hinn breski. Ástæðan er sú, að J)ótt bresku vélarnar séu færri, J)á ern þær betri að byggingu og flugmennirnir betnr æfðir og kjarkmeiri. England J)arf ]>ví ekkert að óttast, J)ó að fluglier J>ess sé minni, en Þjóðverjum mun þykja J>röngt fyrir dyrum, þeg- ar hann stækkar.“ en Þjóðvepjar ern vidbixnfp .... eru þýskn loftvarnabyssuskytturnar viðbihiar að veita þeim heitar móttökur. Hér sést loftvarnasveit, sem hefir tekið sér stöðu á uppfyllingu í Le Havre. Annars gera Bretar lítið að því, segja Þjóðverjar, að lierja :á staði, sem hafa hernaðarlega þýðingn. Ritsíjóri: Kristján Guðiaugsson Skrifstofur: Féíagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Blaðamenn Sími: Auglýsingar I 660 Gjaldkeri S línur Afgreiðsla

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.