Vísir - 31.07.1940, Side 1
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Áuglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsla
30. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 31. júií 1940. 174. tbl.
Miklir jarðskjálít-
ar í Tyrklandi - -
FRÁ SÍÐUSTU
JARÐSKÁLFTUM
í TYRKLANDI.
300 iiieiin bíða hamsi
Mörgf |>orp hrtiiiioa til g:ruisaia.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Fregnir frá Istanbul herma, að hinir ægilegustu
landskjálftar hafi komið í Tyrklandi í gær-
morgun snemma. Mest tjón af völdum þeirra
varð í Yozgat um 150 kílómetra fyrir austan Ankara.
Talið er, að um 300 manns hafi beðið bana, 60 meiðst
mjög alvarlega og á fjórða hundrað hlotið nokkur
meiðsli.
í tólf þorpum á landskjálftasvæðinu hrundu flest
hús til grunna.
Ríkisstjórnin hefir fyrirskipað víðtækar hjálparráð-
stafanir. Herlið, Rauða Kross sveitir og annað hjálpar-
lið hefir verið sent á vettvang.
Þetta er í annað skifti á tiltölulega skömmum tíma,
sem hinir ægilegustu landskjálftar koma í Tyrklandi.,
Fyrir nokkurum mánuðum varð feikna manntjón í
Anatolíu og víðar í Tyrklandi af völdum landskjálfta,
hús hrundu í borgum og bæjum, brýr eyðilögðust, járn-
brautir og vegir, og miklar skemdir urðu á öðrum mann-
virkjum, en fólk fórst og meiddist í tugþúsundatali.
Vatnavextir ollu og miklu tjóni og varð það til þess að
auka á hörmungarnar. — Jarðfræðingar spáðu um það
leyti að vænta mætti frekari landskjálfta. Hafa iðulega
borist fregnir frá Tyrklandi að undanförnu um jarð-
hræringar og hefir nokkurt tjón orðið, en ekki eins stór-
felt og nú.
Hertoginn af Windsor
á leið vestur um haf.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Norski kaup™
skipaflotinn
búinn fallbyssum
Havanaráðsfefnunni lokið.
Yflriýsing frá Gordell HulL
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Slg’rM Bretar?
Álit stpíðsfpéttaritapa „Yorkshire
Post“.
Striðsfréttari tari „Yorkshire
Post“ birti í gær grein um
möguleika Breta til að vinna
stríðið, og telnr liann fram í
greininni eftirfarandi atriði,
sem hann telur að hafa muni
lirslitaþýðingu:
1) Þýska hernum, mistókst í
júni að evðileggja breska her-
inn hjá Dunkirk, meðan þess
var kostur.
2) Bretland hefir síðan bygt
upp mikinn her og treyst varn-
ir sínar.
3) Breski loftherinn hefir að
miklu leyti náð yfirhöndinni.
4) Hafnbannið tekur nú til
landa þeii'ra, sem Þjóðverjar
hafa lagt undir sig, en áður var
möguleiki á því, að ná vörum
gegn um þessi lönd til Þýska-
lands.
5) Óvinunum hefir mistekist
að hindra flutninga til Eng-
lands.
6) VöruhirgðiY í landinu eru
nú með mesta móti.
7) Hitler hefir orðið að dreifa
liði sínu víðs vegar, milli Pvre-
neafjalla^ og Norður-íshafs.
8) Hm mikla strandlengja
landa þeirra, sem Þjóðverjar
ráða yfir, gerir það að verlcum,
að þýski flotinn er alls ónógur
til að verja hana.
9) Ílalía er Þjóðverjum til
byrði. Einkum má búast við
því, að Þjóðverjar verði að
senda henni hjálp, ef til þess
kemur, að Bretar ráðist á hana.
10) Bretar ráða á Miðjarðar-
hafi og liafa aðskilið Ítalíu og
nýlendur hennar.
11) Almenningur í Bretlandi
óttast ekki lengur loftárásir eða
þýslca innrás, þvi að sýnt er, að
hægt er að hrinda livorutveggja.
12) Breski fluglierinn gengur
nú á undan í þvi, að gera
sprengjuárásir á land óvinanna.
13) Vér erum, sameinaðir og
ákveðnir í að vinna sigur. En
Hitler á við margháttaða erfið-
leika að etja, hæði í hinum her-
teknu löndum og á Balkan-
skaga.
14) Bússland situr að stað-
aldri yfir hlut Þjóðverja og
liindrar ráðagerðir þeirra.
Nýj ap hafnbaims^
páðstatanip i
Bpetlandi.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Nýjar reglur varðandi sigl-
ingar hafa verið fyrirskipaðar í
Bretlandi. Gerði Mr. Dalton við-
skiftastríðsmálaráðherra grein
fyrir. j>ei m i ræðu, sem hann
flutti í neðri málstofunni í gær.
Verða öll skip, sem flytja
vörur til Evrópu og frá, að afla
sér sérstakra skírteina frá
breska flotanum, en þau skip,
sem það gera ekki, sæta sér-
stöku eftirliti og mega búast
við töfum.
Eru þessar ráðstafanir fyrir-
skipaðar til þess að koma í veg
fyrir, að nokkurar vörur berist
til Þýskalands eða ítaliu yfir
lilutlaus lönd eða þau lönd, sem
þeir hafa á valdi sínu. Hinar
nýju ráðstafanir ná til Frakk-
lands og landa þeirra í Norð-
ur-Afriku.
Havanaráðstefnunni er nú lokið. Áður en ráðstefnunni var
siitið skrifuðu allir fulltrúarnir undir samþykt, eða yfirlýsingu,
sem öll Vesturálfuríkin standa að. Sumir fulltrúarnir skrifuðu
undir með fyrirvara. Samþyktin kemur til framkvæmda, þegur
% þeirra ríkja, sem þátt tóku í ráðstefnunni, liafa samþykt nana
til fullnustu.
Cordell Hull, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, sem nú
er á heimleið, komst svo að orði í viðtali, að hann gæti ekki lagt
of mikla áherslu á það, að engin Vesturálfuþjóðanna bæri nokk-
ura löngun í brjósti til þess að nota sér á nokkurn hátt hversu
ástatt er í Evrópu, t. d. með því að ná yfirráðum yfir löndum,
sem Evrópuþjóðir eiga í Vesturálfu.
Sú hugsun var efst í allra hugum, sagði hann, að varðveitá
friðinn í Vesturálfu.
Nýjn verkamanna-
bðstaðirnir inllgerðir.
Verkamannabúðstaðirnir í Rauðarárholti eru nú um það bil
fullgerðir og kaupendur þeirra þegar fluttir í þá.
Húsin eru 10 talsins og standa þau í þyrpingu uppi í Rauðarár-
holti — öll í stil hvort við annað og hin Iaglegustu til að sjá. —
New York American Export
Lines tilk. að liertoginn af Wind-
sor (Játv. VIII. fyrrv. Bretakon-
ungur) og frú lians liafi trygt
sér far á einu skipi félagsins, og
leggi þau af stað frá Lissabon á
morgun. Hertogáhjónin eru
væntanleg til New York þ. 9.
ágúst.
Georg VI. Bretakonungur
skipaði hertogann landstjóra á
Bahamaeyjum fyrir skömmu, og
mun hann taka við landstjóra-
störfunum bráðlega.
Fregnir frá Camden, New
Jersey, Bandaríkjunum,
hermir að þar hafi geisað
hinn ógurlegasti eldsvoði.
Kom eldurinn upp í málning-
arverksmiðju og bréiddist út
með feikna hraða. Allmargir
menn biðu bana, en um 200
hlutu meiðsl og brunasár.
Tjónið af brunanum er á-
ætlað 200 miljónir dollara.
Um 53 hús brunnu til ösku
áður en tókst að hindra út-
breiðslu eldsins. — Um 1000
manns eru hoimilislausir eft-
ir brunann.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Eftir að lil styrjaldar kom
milli Norðmanna og Þjóðverja
var gripið til ráðstafana til þess
að tryggja það, að norski kaup-
skipaflotinn lenti ekki i hönd-
um Þjóðverja, og var norsku
flutninga- og farþegaskipunum,
beint til hafna bandamanna.
Nú hefir verið tilkynt, að
norsku skipin hafi verið búin
loftvarnabyssum og sérstökum
fallbyssum til j>ess að skjóta ú
kafbáta. — Skip þau, sem hér
er um að ræða, munu vera sam-
íals um 2.500.000 smálestir.
Landamærum Þýska-
lands og Svisslands
lokað.
Einkaskeyti frá United Press.
Fregnir bárust um það í gær-
kveldi, frá Basel i Svisslandi, að
landamærum Svisslands og
Þýskalands liefði verið lokað,
nema á einum stað. Þar var liaft
hið slrangasta eftirlit með allri
umferð og jafnvel menn, sem
höfðu forréttinda-vegabréf, svo
sem menn í stjórnarerindum,
fengu ekki að fara yfir landa-
mæi'in. — Ekkert hefir frést um
orsök þessa, en þegar 'landa-
mærunum liefir verið lokað áð-
ur, hefir verið talið, að það hafi
staðið í sambandi við óvenju-
lega herflutninga Þýskalands
megin landamæranna.
fnndur í breskn binn-
inu ínrir iuktui fiyrum
Utanríkismálin til
umræðu.
Einkaskeyti frá United Press.
London i morgun.
í gær síðdegis var samþykt i
neðri málstofunni með 290 at-
kvæðum gegn 109, að umræður
skyldi fara fram um utanríkis-
mál fyrir luktum dyrum. —- Áð-
ur en þessi atkvæðagreiðsla fór
fram, lýsti Winston Churehill
forsætisráðherra. yfir því, að
réttast væri að deildin skæri úr
því, hvort umræðurnar færi
frain á venjulegum þingfundi
eða fyrir luktum dyrum. Lýsti
hann yfir því, að ráðherrarnir
myndi ekki taka þátt í atkvæða-
greiðslunni. Nokkurar umræð-
ur urðu um þetta, og stóðu þær
í liálfa klukkustund, og varð
niðurstaðan sú, sem að framan
greinir. Winterton lávarður
hafði orð fyrir þeim, sem mæltu
með því að fundurinn yrði liald-
inn fyrir luktum dyrum. Kvað
hann ekki rétt að lialda slíka
fundi, nema alveg sérstakar á-
stæður væri fyrir hendi og benti
liann m. a. á, að öll Heimsstyrj-
aldarárin hefði ekki verið
haldnir slíkir fundir nema sjö
sinnum, en frá því styrjöldin
hófst, sem nú geisar, væri fimm
sinnum búið að halda lokaða
fundi.
Eiði.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
heldur skemtun a<5 Eiði á sunnu-
dag. Skemtiskrá verður fjölbreytt.
í liverju húsi eru fjórar íbúð-
ir, tvær þriggja lierbergja og
tvær tveggja herbergja. Auk
þess er i kjallara húsanna tvö
geymsluherbergi fyrir liverja
íbúð og ein köld geymsla. Þá er
og í hverju húsi sameiginlegt
þvottaherbergi með miðstöðvar-
katli. í hverri íbúð er svo bað-
herbergi með steypubaði.
Húsin eru húðuð með skelja-
sandi. Þökin eru lögð eternit
skífu, en gólfin eru svokölluð
parkettgólf. Ibúðirnar eru mál-
aðar i þeim lit sem eigandi henn-
ar æskir.
Umliverfis hvert liús er 180—
500 fermetra garður. Honum er
skift sundur í miðju og liafa
tvær íbúðir hvern helming. í
kjallara hússins er vatnskrani
er liggur að garðinum. Er hann
til liægðarauka til að völcva
garðinn og blóm og plöntur í
honum.
Húsin eru teiknuð af húsa-
meistara ríkisins, dr. Guðjóni
Samúelssyni, en aðalbygginga-
meistari var Tómas Vigfússon.
Hjálmar Jóhannsson múrara-
meistari sá um múrverkið, raf-
lagnir önnuðust Halldór Ólafs-
son og Guðmundur Þorsteinsson
eftir teikningum Jakobs Guð-
johnsens, en félagar úr Málara-
meistarafélagi Reykjavíkur
gengu frá öllum málarastörfum.
Gísli Halldórsson gerði teikning-
arnar að miðstöð, miðstöðvar-
kötlum og lireinlætistækjum.
Miðstöðvarkatlarnir eru frá
Keili, miðstöðvarofnarnir eru
helluofnar frá Ofnaverksmiðj-
unni, en að innlagningum unnu
Helgi Magnússon & Co. og Sig-
hvatur Einarsson, Hurðir,
gluggar og annað tréverk var
frá Völundi, en rafmagnsvélar
frá Rafha.
Ætlað er að í RaUðanárholtinu
rísi, er tímar líða, uppheilliverfi
af verkamannabúðstöðum,bygð-
um í sama . stíl og þessir,, en
sennilega mun verða bið á frek-
ari framkvæmdum i þessa átt,
á meðan ástandið breytist ekki
frá því sem nú er.