Vísir - 07.08.1940, Síða 1

Vísir - 07.08.1940, Síða 1
V Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). 30. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 7. ágúst 1940. Ritstjóri Blaðamenn Slmi: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 179. tbl. Tyrknesku ráðherrarnir koma saman á fund til þess að taka afstöðu til • / Balkanmálanna - Stórkostlega mikil- vægar ákvardanir verða teknar. EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. amkvæmt fregnum, sem borist hafa frá Ankara er tyrkneska stjórnin í þann veginn að taka hinar mikilvægustu ákvarðanir. Er talið, að rætt verði um hina nýju skipan á Balkanskaga, sem möndulveldn vilja koma þar á, og ætla menn, að tyrk- neska sjórnin muni taka hinar mikilvægustu ákvarðan- ir varðandi þessi mál. óstaðfest fregn hermir, að Saydem forsætisráðherra muni ávarpa þjóðþingið í dag og gera grein fyrir stefnu stjórnarinnar. Jafnframt er því neitað opinberlega, að Þjóðverjar og ítalir hafi sameiginlega fraið fram á, að Tyrkir tæki afstöðu til áforma möndulveldanna varðandi nýja skip- an í suðausturhluta álfunnar. Tyrkir hafa að undanförnu rerið við öllu búnir og beðið ró- legir átekta. Eftir uppgjöf Frakka varð aðstaða þeirra erfiðari að ýmsu leyti og tilraunir hafa verið gerðar síðan, til þess að lokka þá frá Bretum, en Bretar telja, að Tyrkir muni hvergi bregðast þeim. Eru sem kunnugt er enn í fullu gildi samningar milli Breta og Tyrkja. En Tyrkir vilja fara sem varlegast, og veldur þar ekki síst hin óvissa afstaða Rússa, sem Tyrkir telja nauðsynlegt að hafa sem besta samvinnu við. Japönsk herskip og her- flutningaskip á suðurleið. Óvíst um ákvöirðunarstað þeirra- EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Fregnir frá Hongkong herma, að farþegar sem þang- að eru nýkomnir frá Shanghai, hafi séð f jölda mörg jap- önsk herskip og flutningaskip í suðurleið, undan For- mosa. 1 einum skipaflotanum voru 18 flutningaskip. Virðist þvi vera um herflutninga að ræða í mjög stóriim stíl, en ekkert er enn kunnugt um ákvörðunarstað herskipanna. Samkomnlagsnmleitanir milli þýska rík- isstjórnarinnar og Vatikanríkisios nm nýjan sáttmála. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Samkvæmt úreiðanlegum heimildum í Vatikanborginni eru byrjaðar samkomulagsumleitanir milli Vatikanríkisins og þýsku herstjórnarinnar um nýjan sáttmála. Samkomulagsumleitanir eru sagðar ganga að óskum. Hans heilagleiki páfinn og Magliztne hafa undirritað langa skýrslu tíl þess að gera grein fyrir ágreiningsmálum páfastólsins og þýsku stjórnarinnar. Skýrsla þessi verður send til Berlínar og er talið ekki ólíklegt, að Þjóðverjar leggi fram gagntillögur. Liaiidlier Itala I Af rílcit liefnr §oku. Ilanii liefir ráðl§t iim í Breska Nomalilaucl íið Adenflöa a 3 stöðniii EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun. í morgun var tilkynt í London, að engin ný tíðindi hefði bor- ist frá innrás ítala í Breska Somaliland við Adenflóa. Eftir fyrri fregnum að dæma höfðu ítalir byrjað sókn á þremur stöðum við landamærin og tekist að komast um 30 enskar mílur inn í landið á einum stað. í London er litið svo á, að ítölum sé nauð- ugur einn kostur að hef ja sókn nú, meðan þeir enn hafa allmikl- ar olíu- og hergagnabirgðar, en þeir hafa orðið fyrir miklu tjóni í loftárásum Breta á birgðastöðvarnar í Afríku að undanfömu. Sóknin byrjaði s. 1. sunnudag. Nokkuru áður höfðu borist fregnir um, að ítalir hefði liðsafnað mikinn á landamærum Libyu, og ætla Bretar nú, að innrásin í Breska Somaliland sé forleikur að aðalsókn, og sé markmið ítala að ráðast á Egiptaland. Bretar hraða æfingum flugmannaefna sinna. EINKASKEYTI frá U. P. — London í morgun. Það var tilkynt í Kanada í gær, að ráðstafanir hefði verið gerðar til þess að ósk bresku stjórnarinnar, að hraða sem allra mest æfingum flugmanna- efna í Kanada. Er, sem kunn- ugt er, verið að æfa mikinn fjölda flugmannaefna, fná öll- um löndum Bretaveldis. Ilefir æfingatíminn nú verið styttur í 7 vikur og er húist við að mik- ill fjöldi æfðra flugmanna geti farið bráðlega frá Kanada til Bretlands. Hátiðaliöld i Hollensku Austur-Asíu, í tilefni af afmælisdegi Irene Hol- landsprinsessn. Einkaskeyti frá United Press. London i morgun. Fregn frá Bandoeng í hol- lensku Austur-Asíu hermir, að þar fari fram mikil Iiátíðaliöld í tilefui af afmælisdegi Irene prinsessu, dóttur Bérnhards prins og Júlíönu Hollandsprins- essu. Flotaskóla liefir verið komið á fót við Sourabaya, en þar er flotastöð, og fá nú innfæddir menn þar sjóhernaðarlega æf- ingu í fyrsta skifti. — Hemaðar- skóli verður stofnaður bráðlega í Sourabaya. Pastenrstofn uii- in §tarfar áfram. Einkaskeyti frá United Press. London i gær. Það var tilkynt í gær í Vichy, aðsetursborg frönsku stjórnar- innar, að þrátt fyrir það, að mikill hluti Frakklands hafi verið hernuminn starfi Pastcur- stofnunin áfram í þágu fólksins á liinum hernumdu svæðum, með þvi að. framleiða yarnar- lyf í baráttunni við skæðar sóttir, svo sem taugaveiki o. fl. Japanir hafa sent Bretum fyrirspurn út af "handtökunum. London í morgun. EINKASKEYTI frá U. P. — Matsuoka utanríkismálaráð- herra, segir í Tokio-fregn, liefir skýrt frá því á stjórnarfundi, að fyrirspurn liafi verið gerð til hresku stjórnarinnar, varðandi handtökur japanskra manna i Rangoon, Hongkong og Singa- pore. — Viðeigandi ráðstafanir verða gerðar, sagði Matsuoka, þegar fyrirspurninni hefir verið svarað. miklai' niatvæla- birgðir ■ Brct- lamli. EINKASKEYTI frá U. P. — London í morgun. Ástralíumenn hafa orðið að draga úr kjötútflutningi til Bretlands í hili, vegna þess að öll frysti- og kæliliús eru full í Bretlandi. Blöðin í London hirta myndir frá höfninni til þess að sýna, að það hafi ekki við neitt að styðjast, sem Þjóðverjar halda fram, að siglingar liafi stöðvast þangað, vegna árás- anila á skipaflota í Ermarsundi. Menn húast við, að komist verði hjá frekari matvælaskömt- un í Bretlandi. Þáð er leidd athygli að því í London, að ítalir eigi yfir eyði- merkur og f jalllendi að fara, þar sem alt verði að hafa meðferðis, því að gróðurlaust er þarna víð- ast og drykkjarvatnsskortur. Erfitt er að koma við vélaher- sveitum. Bretar hafa þarna hin- ar svo nefndu „úlfaldahersveit- ir“, sem mjög eru frægar; eru í þeirn Bretar og Somalilands- menn, og hafa þeir úlfalda fyrir reiðskjóta. I hersveitum þessum eru afbragðs skyttur. Einhverj- ar þessara hersveita hafa fengið vélknúin farartæki og hergögn. Þótt Bretar geri sér vonir um, að þessum hersveilum muni auðnast að stöðva framsókn ít- ala, treysta þeir mest á flugher sinn. Mikið er um það rætt, hvert gagn ítalir myndi hafa af því, ef þeir næði breska Somalilandi á sitt vald, og er litið svo á, að það séu hafnir Breta við Aden-flóa, / sem þeir hafa augasíað á. Fregnir liafa komist á kreik um það í London, að Italir væri í þann veginn að hefja sókn á Badiasvæðinu, þar sem þeir liafa safnað miklu liði, til innrásar í Egiptaland. Þessar fregnir liafa ekki verið staðfestar í London. Hallast menn frekast að því, að ítalir muni safna enn meira liði, áður en þeir freisti að gera inn- rás þar. EINKASKEYTI frá U. P. — London í morgun. Samkvæmt tilkynningu, sem birt var í Rerlín í gær, er ekkert hæft í þeiri’i fregn að Julius Streicher, sem heiftarlegast herst gegn Gyðingum í Þýska- landi, væri látinn. — Streiclier var seinast landstjóri í Franken, en hafði látið af því starfi og hjó í kyrþei á búgarði sínum. Lausa- fregnir liermdu, er hann lét af embætti, að hann liefði fallið i ónáð hjá Göring. Synti frá Vatnagörð- um til Viðeyjar. ^ SUNNUDAGINN synti 14 ára stúlka, Ásdís Erlings- dóttir, Pálssonar yfirlögreglu- þjóns, frá Vatnagörðum til Við- eyjar, ósmurð og án þess að nokkur væri til fylgdar henni. Fór liún í sjóinn í víkinni lijá flugskýlinu um kl. 5 og synti nokkuð út. Datt henni þá í hug að synda vfir til Viðeyjar og gerði það hiklaust. Þegar yf- ir kom ætlaði hún að synda til baka, en stúlka, sem hún þekti í eyjunni bauð lienni lieim til sín upp á hressingu og flutti hana síðan til lands aftur. Vegalengdin, sem, Ásdís synti, er um 1500 metra og er straum- ur þungur í sundinu og sjávar- hiti var aðeins um 11° C. Er þetta frækilegt sund, en Ásdís er góð sundkona og harðgerð, eins og hún á kyn til og varð ekkert meint af. Skömmu áður en yisdís lagð- ist til sunds, urðu stúlkur, sem voru á háti um þessar slóðir, varar við hnísu, sem elti hát þeirra. Var það heppilegt, að linisan skyldi vera horfin, þeg- ar Ásdís synti yfir um, því að þær gera sundmönnum ýmsar skráveifur. Myndasýning Sig. S. Thoroddsens verkfræðings. Sigui’ður S. Tlioroddsen verk- fræðingur opnaði í dag sýningu á andlitsmyndum, vatnslita- og pennateikningum í Austurstræti 14, 1. liæð (þar sem hattabúð G. Briem var úður). Myndirnar eru 235 talsins og eru sannkallaðar „spegilmynd- ir“ af ýmsum þektum og óþekt- um samtíðarmönnum, mest Reykvikingum, en þar er einnig álitlegur hópur þjóðkunnra manna Utan af landi. Myndirnar eru misjafnar að gæðum, sem eðlilegt er, en margar þeirra eru mjög skemtilegar og hefir teikn- aranum oft tekist að ná lieildar- svip í fáa en ljósa og skýra drætti. Myndimar fást keyptar, en auk þess geta menn látið lirað- teikna sig fyrir kr. 1.50 auka- gjald. Mun marga óefað fýsa að sá sjálfa sig í þvi ljósi sem teikn- arinn sér þá, og vita livort skygnigáfa hans sé svo mikil, að hann geti dregið fram manns „innri mann“ í dráttum þeim er liann dregur. Sýningin verður opin næstu daga kl. 10—12, 1—7 og 8—10 e.~ h. Aðgangur kostar eina krónu. Drengjamótiö: Gunnar Huseby setur kringlukastsmet 1*^ rengjamótið hófst hér á 1- þróttavellinum í gærkveldi og var kept í 7 greinum. Eftir fyrsta kveldið hefir í. K. 13 sh, K. R. 12, Í.R. 8, Á. 6 og F.H. 3 stig. Fara liér á eftir úrslit í ein- stökum greinum. 80 m. hlaup: 1. Janus Eii’iksson l.K. 9.8 sek. 2. Axel Jónsson I.K. 9.8 sek. 3. Gunnar Huseby K.R. 9.9 sek. 1500 m. hlaup,: 1. Arni Kjartanss. Á. 4:37.6 m. 2. Hörður Hafliðas. Á. 4:39.2 — 3. Halld. Sigurðss. Á. 4:41.4 — Kringlukast: 1. Gunnar Huseby K.R. 47.81 m.. 2. Axel Jónsson I. K. 38.34 — 3. Jóel Sigurðsson I.R. 36.99 — Kast Gunnars er glæsilegt met og átti hann sjálfur það gamla, 45.76. Spjótkast: 1. Jóel Sigurðsson Í.R. 46.58 m. 2. Gunnar Husehy K.R. 43.14 — 3. Ben. S. Gröndal Iv.R. 40.92 — Stangarstökk: 1. Ing. Steinsson I.R. 2.71 m. 2. Magn. Gunnarss, F.H. 2.61 —- 3. Magn. Guðm.ss. F.H. 2.50 — Langstökk: 1. Gunnar Husebv K.R. 5.89 ni. 2. Axel Jónsson l.IÍ. 5.80 — i 3. Janus Eiríksson I.K. 5.57 — 1000 m. boðhlaup: 1. Sveit I. Iv. 2:20.6 mín. 2. Sveit K.R. 2:21.0 — 3. Sveit I.R. 2:24.0 — Mótið lieldur áfram í kveld og verður þá kept í 400 m. og 3000 m. hlaupum, kúluvarpi, hástökki og þrístölcki. Neðanmálsgreínin í dag. Guðm. Daníelsson. Próf. Guðbrandur Jónsson ritar í dag ritdóm Um nýjustu bók hins unga og efnilega rit- höfundar Guðmundar Daníels- sonar: Á bökkum Bolafljóts. —

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.